Þjóðviljinn - 31.03.1973, Side 11
Laugardagur 31. marz mS.'l’JÓÐVlLJINN — SIÐA 11-
Knattspyrna
um helgina
Með hækkandi sól
fjölgar knattspyrnu-
leikjunum, og nú um
helgina fara fram þrír.
I' Meistarakeppni KSi
leika Fram og IBV á
Melavellinum, og hefst
sá leikur klukkan 14.00 í
dag.
Litla bikarkeppnin
heldur áfram í dag og
leika Kópavogsmenn við
Akurnesinga i Kópavogi.
Leikur meistaraf lokks
hefst þar klukkan 3,og 1.
flokkur leikur síðan
strax á eftir.
í Ketlavík leika
heimamenn við
Hafnfirðinga, ( Hauka),
og er leikið á sama tíma
og í Kópavogi.
Breiðholts-
hlaup ÍR
Breiðholtshlaup 1R fer fram
i þriðja sinn á morgun.
Hlaupið verður, eins og fyrr,
um 800 metra langt og hefst og
endar við Breiðholtsskóla.
Hlaupið hefst klukkan 14, og
þurfa keppendur að mæta 1/2'
klukkustund áður.
Breiðholtshlaup IR er öllum
opið, ungum sem öldnum,
konum og körlum.
Á þessari mynd sjást þrfr þátttakenda f landsflokkaglfmunni, þeir Sigurður Jónsson, Gunnar
Ingvarsson og Pétur Ingvarsson.
Landsflokkaglíman
Landsflokkagliman 1973 verður háð i fimleikasal Vogaskóla sunnudag-
inn 1. april og hefst klukkan 19.00. Keppt verður i þremur þyngdarflokk-
um og þremur unglingaflokkum.
Skráðir þátttakendur eru 42 frá 8 félögum og samböndum.
Meðal þátttakenda i 1. flokki verða Sigurður Jónsson Vikverja, Ingi Þ.
Yngvason H.S.Þ., Jón Unndórsson K.R. og Pétur Ingvarsson Vikverja.
í 2. flokki Gunnar Ingvarsson Vikverja, Ómar úlfarsson K.R. ,
Kristján Yngvason H.S.Þ.
í 3. flokki Rögnvaldur Ólafsson K.R., Guðmundur Freyr Halldórsson
Ármanni og Þorvaldur Aðalsteinsson Ú.Í.A.
í yngri flokkum glima margir ungir og efnilegir glimukappar.
Leik-
dagar
Lidu
bikar-
keppninnar
Leikdagar litlu bikarkeppn-
innar i knattspyrnu hafa nú verið
ákveðnir, en það er Breiðablik
sem sér um keppnina að þessu
sinni. Einn leikur hefur þegar
farið fram: IBH sigraði IA um
siðustu helgi 2:0
Næstu leikir verða sem hér
segir:
Laugardagur 31. marz
Breiðablik — IA
IBK — IBH
Laugardagur 7. aprfl
IA — IBK
Breiðablik — IBH
Laugardagur 14. aprfl
IBH — IA
IBK - Breiðablik
Laugardagur 28. april
IBH — IBK
1A — Breiðablik
Laugardagur 5. mai
IBH - Breiðablik
IBK — IA
Það liðið sem nefnt er á undan i
þessari upptalningu á heimaleik
, og sér það að öllu leyti um leikinn
eins og ávallt hefur verið. Strax á
eftir leik meistaraflokksliðanna
fer fram leikur sömu aðila i 1.
flokki.
Svona fór í gærkvöld:
F j aðurboltasláttur
Um helgina fer fram i
Laugardalshöllinni Reykja-
vikurmeistaramót i badmin-
ton. Mótið hefst klukkan 16
i dag, og úrslit verða
væntanlega um klukkan 20 á
sunnudagskvöld.
Um næstu helgi fer svo fram
Unglingameistaramót
Reykjavikur i badminton. Það
mót hefst klukkan 13, laugar-^.
daginn 7. april. Þátttökutil-
kynningar skulu berast til
Reynis Þorsteinssonar i sima
38177 fyrir 3. april. —GSP
Þessi mynd er af Haraldi Kornelfussyni. Hann er meðal þátttakenda •
Reykjavikurmeistaramótinu sem fram fer um helgina.
en of stórt tap piltanna
Norðurlandameistaramót unglinga hófst igærog sigruðu islenzku stúlk-
urnar þær norsku með 13:12 og fór sá leikur fram í Danmörku. Er þetta
óvæntur og gleðilegur sigur. Aftur á móti töpuðu piltarnir okkar of stórt
fyrir Dönum, 25 gegn 18, en sá leikur fór fram i Sviþjóð.
Piltarnir leika gegn Svium i dag og á sunnudag gegn Finnum og Norð-
mönnum.
Frá Frjálsíþróttadeild ÍR
Frjálsíþróttadeild IR gengst
fyrir innanhússmóti i nokkrum
völdum greinum frjálsiþrótta i
Laugardalshöllinni i dag.
Mót þetta er haldið . i tilefni
dvalar brezku stúlkunnar Lynn
Ward frá Solihull hérlendis, en
hún mun keppa i 1500 m. hlaupi
kvenna sem sérstakur gestur.
Auk hennar munu m.a. keppa i
hlaupinu Islandsmethafinn Lilja
Guðmundsdóttir, IR, og Ragn-
hildur Pálsdóttir, UMSK. Ætla
máaðhérverði um skemmtilegt
hlaup að ræða. Fyrir utan 1500 m
hl. kvenna verður keppt i tveimur
af þeim greinum er hæst bar á
Innanhússmeistaramóti Islands á
dögunum, nefnilega kúluvarpi
karla og 1500 m hlaupi karla.
Keppendum i þessum greinum
hefur verið sérstaklega boðiö til
keppninnar, þannig að tryggt er
nú að þarna verður aðeins það
bezta á boðstólnum. Okkar ágætu
kúluvarparar áttu góðan dag á
Meistaramótinu, og bættu flestir
fyrri árangur sinn verulega.
Þeir sem nú þegar hafa þegið
boð um keppni i kúluvarpinu eru:
Hreinn Halldórsson, HSS,
Erlendur Valdimarsson, 1R, Páll
Dagbjartsson, HSÞ, Guðni
Sigfússon, A, Guðni Halldórsson,
HSÞ. og Óskar Jakobsson, 1R, en
þetta eru einmitt flestir okkar
beztu kúluvarparar i dag.
1500 m hlaup karla ætti aö geta
boðið upp á mikla spennu og
skemmtilega keppni, ekki siður
en kvennahlaupið, þvi þar munu
eigast við „topparnir” frá MI:
Ágúst Asgeirsson, IR, Sigfús
Jónsson ÍR, og Einar óskarsson
UMSK, ásamt Júliusi Hjörleifs-
syni IR, Gunnari P. Jóakimssyni
Framhald á bls. 15.
Öyæntur sigur stiilknanna,