Þjóðviljinn - 17.04.1973, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. apríl 1973
Jafntefli í tveimur
fyrstu leikjum
Rey kj avíkurmótsins
Reykjavikurmótið i knattspyrnu hófst sl. föstu-
dagskvöld og hélt svo áfram á laugardaginn. í
fyrsta leiknum mættust Fram og Þróttur, og var
jafntefli 0:0, og i leik Vals og Vikings á laugar-
daginn varð einnig jafntefli 1:1. Þessir leikir bera
að visu nokkurn vorsvip, en eigi að siður er
greinilegt að vetrarleikirnir sem tiðkazt hafa
undanfarin ár koma liðunum fyrr i leikæfingu en
áður var. Þá er þess einnig að gæta, að Mela-
völlurinn getur vart ennþá taiizt i leikhæfu
ástandi, bæði blautur og þungur.
Það blæs sannarlega ekki
byrlega fyrir tslandsmeisturum
Fram um þessar mundir. Liðið
hefur nú leikið 4 alvöruleiki og
engan þeirra unnið og aðeins
skorað 1 mark.
1 leik þess við Þrótt á föstu-
dagskvöldið vantaði ekki að
Fram ætti meira í leiknum eða
þá að liðið ætti ekki marktæki-
færi, en þvi virðist vera fyrir '
munað að skora mörk og vantar
nú illilega markaskorarann
mikla, Kristin Jörundsson.
t leik Vals og Víkings á
laugardaginn léku Valsmenn
undan vindi ii fyrri hálfleik og
sóttu þá nær látlaust. Jóhannes
Eðvaldsson skoraði mark Vals á
10. minútu með skorti af '30 m.
færi, og smaug boltinn efst i
vinkilinn. Þetta er eitt af þess-
um mörkum sem sjást ekki
nema einu sinni eða tvisvar á
ári.
Og staðan var 1:0 Val i vil, þar
til á 43. minútu siðari hálfleiks.
Þá var Vikingur i sókn. Einn
sóknarmanna Vikings var að
missa boltann framhjá sér og
greip þá það til bragðs að stöðva
boltann með hendinni og leggja
hann siðan fyrir Stel'án
llalldórsson sem skoraði glæsi-
legt jöfnunarmark. Það var
leiðinlegt lyrir Viking að þurfa
að skora jölnunarmark sitt
ólöglega, þvi að liðið átti
sannarlega skilið jafntefli og vel
það. —S.dór.
Ilér bjargar Sigurður Dagsson naumlega I leik Vals og Vikings.
Óvænt úrslit
Breiðablik sigraði Keflavík 2:1
„Meistarar meistara
meistaranna”, sögðu Breiða-
bliksmenn og glöddust yfir sigri
sinum yfir meisturum
meistaranna, Keflavik. Það el-
annars athyglisvert, að Kefl-
vikingar hafa ekki sigrað
Breiðablik siðan árið 1971, þá
unnu þeir cinn leik af fjórum
það árið.
Fyrri leikur þessara liða i
Litla bikarnum fór fram i Kefla-
vik á laugardaginn. Breiða-
bliksmenn léku gegn vindi i
hálfleik, og þá tókst Breiða-
bliksvörninni loksins að sýna
mjög þokkalegan leik. Fyrri
hálfleikurinn var marklaus, en i
siðari hálfleik skoruðu þeir
bræður Einar og Hinrik Þór-
hallssynir tvö mörk fyrir
Breiðablik. Steinar Jóhannsson
jafnaði leikinn örlitið með
marki um miðjan hálfleik, en
það dugði ekki til, og sigur
Breiðabliks var tryggður.
Greinilegt var, að heimamenn
ætluðu Blikana auðveldan bita,
og er þetta ekki i fyrsta skipti
sem þeir gera sig seka um þau
alltof algengu mistök. Breiða-
bliksmenn áttu nú sinn bezta
leik i ár og verðskulduðu
sigurinn fylliiega.
Al(«
□ □
m wm
L J
TEIKNARI JEAN EFFEL
— Ég er með hjartslátt
— Það hlýtur að vera sjokkið eftir uppskurðinn
— Hún er alveg einstök i sinni röð