Þjóðviljinn - 17.04.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 17.04.1973, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. apríl 1973 Jafntefli í tveimur fyrstu leikjum Rey kj avíkurmótsins Reykjavikurmótið i knattspyrnu hófst sl. föstu- dagskvöld og hélt svo áfram á laugardaginn. í fyrsta leiknum mættust Fram og Þróttur, og var jafntefli 0:0, og i leik Vals og Vikings á laugar- daginn varð einnig jafntefli 1:1. Þessir leikir bera að visu nokkurn vorsvip, en eigi að siður er greinilegt að vetrarleikirnir sem tiðkazt hafa undanfarin ár koma liðunum fyrr i leikæfingu en áður var. Þá er þess einnig að gæta, að Mela- völlurinn getur vart ennþá taiizt i leikhæfu ástandi, bæði blautur og þungur. Það blæs sannarlega ekki byrlega fyrir tslandsmeisturum Fram um þessar mundir. Liðið hefur nú leikið 4 alvöruleiki og engan þeirra unnið og aðeins skorað 1 mark. 1 leik þess við Þrótt á föstu- dagskvöldið vantaði ekki að Fram ætti meira í leiknum eða þá að liðið ætti ekki marktæki- færi, en þvi virðist vera fyrir ' munað að skora mörk og vantar nú illilega markaskorarann mikla, Kristin Jörundsson. t leik Vals og Víkings á laugardaginn léku Valsmenn undan vindi ii fyrri hálfleik og sóttu þá nær látlaust. Jóhannes Eðvaldsson skoraði mark Vals á 10. minútu með skorti af '30 m. færi, og smaug boltinn efst i vinkilinn. Þetta er eitt af þess- um mörkum sem sjást ekki nema einu sinni eða tvisvar á ári. Og staðan var 1:0 Val i vil, þar til á 43. minútu siðari hálfleiks. Þá var Vikingur i sókn. Einn sóknarmanna Vikings var að missa boltann framhjá sér og greip þá það til bragðs að stöðva boltann með hendinni og leggja hann siðan fyrir Stel'án llalldórsson sem skoraði glæsi- legt jöfnunarmark. Það var leiðinlegt lyrir Viking að þurfa að skora jölnunarmark sitt ólöglega, þvi að liðið átti sannarlega skilið jafntefli og vel það. —S.dór. Ilér bjargar Sigurður Dagsson naumlega I leik Vals og Vikings. Óvænt úrslit Breiðablik sigraði Keflavík 2:1 „Meistarar meistara meistaranna”, sögðu Breiða- bliksmenn og glöddust yfir sigri sinum yfir meisturum meistaranna, Keflavik. Það el- annars athyglisvert, að Kefl- vikingar hafa ekki sigrað Breiðablik siðan árið 1971, þá unnu þeir cinn leik af fjórum það árið. Fyrri leikur þessara liða i Litla bikarnum fór fram i Kefla- vik á laugardaginn. Breiða- bliksmenn léku gegn vindi i hálfleik, og þá tókst Breiða- bliksvörninni loksins að sýna mjög þokkalegan leik. Fyrri hálfleikurinn var marklaus, en i siðari hálfleik skoruðu þeir bræður Einar og Hinrik Þór- hallssynir tvö mörk fyrir Breiðablik. Steinar Jóhannsson jafnaði leikinn örlitið með marki um miðjan hálfleik, en það dugði ekki til, og sigur Breiðabliks var tryggður. Greinilegt var, að heimamenn ætluðu Blikana auðveldan bita, og er þetta ekki i fyrsta skipti sem þeir gera sig seka um þau alltof algengu mistök. Breiða- bliksmenn áttu nú sinn bezta leik i ár og verðskulduðu sigurinn fylliiega. Al(« □ □ m wm L J TEIKNARI JEAN EFFEL — Ég er með hjartslátt — Það hlýtur að vera sjokkið eftir uppskurðinn — Hún er alveg einstök i sinni röð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.