Þjóðviljinn - 15.05.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 15.05.1973, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. mal 1973 STEINAR MEÐ FIMMU þegar IBK sigraði FH 5:0 og varð um leið Sigurvegarar IBK i Litlu bikarkeppninni, fremri röö frá v. Einar Gunnarsson, Gisli Torfason, Guöni Kjartansson fyrirliöi, Astráöur Gunnars- son og Grétar Magnússon. Aftari röö f.v. Albert Hjálmarsson, Steinar Jöhannsson, Jón Ólafur Jónsson, Gunnar Jónsson, Karl Hermannsson, Hjörtur Zakarlasson, Þorsteinn.Ólafsson og ólafur Júlfusson. Þar hita þeir sig upp á þvi sem flestir rnemi bifa ekki sigurvegan 1 Litlu bikar- keppninni Það er sannarlega ekki ónýtt fyrir lið að hafa mann i sínum röð- um eins og Steinar Jóhannsson er um þessar mundir. Það má segja að maðurinn sé algerlega óstöðvandi við markið enda hafa þau lið sem ÍBK hefur leikið gegn i vor greini- lega fengið að finna fyrir „dýrlingnum” þeirra Keflvíkinga. Steinar hefur skorað mark i öllum leikjum ÍBK i vor nema einum og í þeim 6 leikjum sem tBK hefur leikið í Litlu bikarkeppninni hefur hann skorað 10 mörk af 18 mörkum liðsins. Og á sunnudaginn sýndi hann snilli sina svo um munaði er hann skoraði 5 mörk gegn FH og var óheppinn að skora ekki ein 2 i viðbót. Þessi 5:0 sigur ÍBK gefur alls ekki rétta mynd af gangi leiksins. ÍBK hefði átt að vinna hann með minnst 10 marka mun slikir voru yfir- burðir Keflvikinganna i leiknum. FH-liðið, sem vakti á sér nokkra athygli i fyrra, er það komst i úrslit bikarkeppninnar, var hreint eins og smástrákalið i höndum eða réttara sagt fótum þeirra IBK-manna. FH átti ekki eitt einasta, sagt og skrifað ekki eitt, marktækifæri i leiknum og alls komust FH leikmennirnir 7 sinnum inn i vítateig ÍBK án þess nokkru sinni að skapa sér marktækifæri. Leikið var á hinum nýja velli Hafnfirðinga i Kaplakrika en hann er enn mjög slæmur, bæði mishæðóttur og ósléttur og laus i sér en hann getur eflaust orðið ágætur með timanum. Fyrir bragðið áttu liðin erfitt með að ná upp samleik og þvi var mikið um langspyrnur og hlaup i leiknum. Marktækifæri IBK manna hlóðust upp en enginn þeirra nýtti þau nema Steinar. Fyrsta markið skoraði hann á Framhald á bls. 15. t sannleika sagt fallast manni hendur við aö horfa á mót eins og kraftlyftingamót lslands sem fram fór i KR-húsinu sl. laugar- dag. Þarna horfir maöur á menn hita sig upp i þeirri þyngd sem allir venjulegir menn væru stoltir af aö láta fljóta undir. Vissulega eru lyftingar mikil átakaiþrótt en þær eru þó heldur litið hjá þessum ósköpum enda eru kraftlyftingar, eins og nafnið bendir til, aöeins mæli- kvaröi á beina krafta án tækni en tæknin er ekki svo litill hluti af venjulegum lyftingum. En svo viö snúum okkur aö mótinu sjáifu, þá var þarna mikið metaregn i flestum þyngdarflokkum. t fluguvigt sigraði Siguröur Grétarsson UMFS og setti islandsmet I öll- um greinunum, bekkpressu 52,5 kg, hnébeygju 92,5 kg, rétt- stöðulyftu 120 kg, samtals 265 kg. Allar þessar tölur eru ný isl. met. i dvergvigt sigraöi Gunnar Jóhannsson meö 80 kg, 120 kg og 155 kg, samtals 355 kg, og allar þessar tölur eru isl.met. i fjaðurvigt sigraöi Jón Pálsson UMFS meö 55 kg, 100 kg, 135 kg og 290 kg. Hér er ekki um met að ræða. Það varð hins- vegar metaregn hjá Skúla Óskarssyni i léttvigt, 112,5 kg, 180 kg og 235 kg, samtals 527,5 kg — allt ný isl. met. Ólafur Emilsson sigraði I millivigt með 125 kg, 180 kg, 230 kg, samtals 535 kg. Ekkert met. Guömundur Guðjónsson setti aftur á móti met i Iéttþungavigt með 145 kg, 222,5 kg, 252,5 kg — samtals 620 kg, en sú tala er met. í millivigt sigraöi ólafur Sigurgeirsson með 157,5 kg (met jöfnun), 215 kg, — samtals 632,5 kg. Kristmundur Baldursson sigraði i þungavigt með 140 kg, 190 kg, 250 kg, — samtals 580 kg. Og Sigtryggur Sigurösson sigraði I yfirþungavigt meö 160 kg, 235 kg og 265, samtals 660 kg. Enn sigrar 14 Blikana Margt er þaö I sambandi við boltaleiki sem gaman væri að fá skýringu á, eins og til að mynda það að sama viröist hve sterkt ÍBK liðiö er, það virðist ekki geta sigrað Breiðablik. Eins og hitt aö Skagamenn, hversu siakt sem liö þeirra er virðist þaö alltaf eiga visan sigur gegn Breiðabliki. Svona mætti lengi telja milli liða bæði i handknattleik og knatt- spyrnu. Skagamenn virðast alls ekki liklegir til stórræöa eins og er, en samt sigruðu þeir Breiða- blik, sem er nýbúið aö sigra og gera jafntefli við ÍBK, 2:0 I Litlu bikarkeppninni á laugardaginn uppá Akranesi. Leikurinn fór fram i miklu roki og kulda og einkenndist mjög af þeim aðstæðum. Breiðablik sótti undan rokinu i fyrri hálfleik, en náði ekki að skora þótt oft munaði mjóu. Aftur á móti skoruðu Skagamenn fyrra mark sitt gegn rokinu og olli það nokkrum deii- um þar eð Breiðabliksmenn héldu þvi fram að markvörður þeirra hefði verið búinn að handsama boltann, en honum sparkað úr höndum hans. 1 siðari hálfleik skoruðu Breiðabliksmenn mark. Guðmundur Þórðarson gerði það, en markið var dæmt af vegna rangstöðu og enn urðu miklar deilur við dómarann. Svo eftir einar 10 til 15 minútur af siðari hálfleik innsiglaði Jón Gunn- laugsson sigur 1A með marki skoruðu af marklinu eftir mikla pressu Skagamanna að Breiða- bliks-markinu. Og 2:0 sigur 1A varð úrslit leiksins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.