Þjóðviljinn - 10.10.1973, Síða 1
DIOBVIUINN
Miðvikudagur 10. október 1973. —38. árg. — 232. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
APDIEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7,
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2,
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
SÓÐASKAPUR
Ræddu
kjaramál á
fundi í
Reykjavík
t fyrradag gengu starfsmenn
Viölagasjóös i Vestmannaeyjum
á fund forráöamanna hans hér i
Reykjavik til aö skiptast á
Segja má að Fossvogs-
dalurinn sé þakinn plast-
druslum hvar sem um hann er
fariö. Astæðan fyrir þessum
einstæða sóðaskap er, að verið
er að reisa viðlagasjóðshús
Kópavogsmegin i Fossvogs
dalnum og sem kunnugt er
koma þau i einingum tilbúin til
uppsetningar. Einingarnar
eru pakkaðar inn i plast til
hlifðar og þegar iðnaðar-
mennirnir sem vinna við að
reisa húsin taka plastum-
búðirnar utan af henda þeirþvi
hvar sem er i nágrenni
húsanna. Þar liggur það i
stórum haugum.
Um leið og hvessir fýkur
plastið um allan dalinn og er
nú- svo komið að dalurinn er
þakinn þessum óþverra. Skóg
ræktin i dalnum hefur ekki
farið varhluta af þessu, þvi að
greinar trjánna tjalda hvitum
plastdruslum i hundraðavis.
Fádæma sóðaskapur þetta.
Myndin hér að ofan sýnir
glöggt hvernig umhorfs er i
nágrenni húsanna, plast-
druslur hvert sem litið er.
— S.dór
Fisksölur erlendis
Surtsey
setti met
Seldi í Ostende
fyrir 56 kr. kg.
Vestmannaeyjabáturinn
Surtsey sló öll met hvað
meðalverð á kg snertir er
hann seldi í Ostende í
Belgíu í gær 44,5 tonn fyrir
2.525.000 ísl. kr. sem er
56.70 kr. fyrir kg. Þetta er
hæsta meðalverð sem is-
lenskt skip hefur fengið
fyrir isfisk erlendis.
Annars hafa islenskir togarar
og skip gert góðar ferðir bæði til
Þýskalands og Belgiu undanfarið.
Þannig seldi Neptúnus i
Cuxhaven i Þýskalandi 140 tonn i
fyrradag og fékk fyrir það rúmar
6,6milj. isl. kr. eða 43 kr. fyrir kg.
Sama dag seldi skuttogarinn
Hvalbakur i Bremenhaven 108
tonn fyrir 5,5 milj. isl. kr. eöa
51,40 fyrir kg.
Og svo i gær seldi Hrafn Svein-
bjarnarson III i Bremenhaven 60
tonn fyrir 2,9milj. eða sem svarar
49,10 kr. fyrir kg.
Allar þessar sölur eru með þvi
besta sem gerist erlendis.
Von er á aö 3 skip selji i Þýska-
landi i þessari viku og eitt skip
mun selja i Ostende i næstu
viku — S.dór
Verkalýðshreyfingin
MIKILVÆGIR FUNDIR
skoöunum um launamál og var
ekkert ákveöiö á þessum fundi, né
annar fundur boöaöur.
Þegar bærinn tók við dag-
legum rekstri i Eyjum sagði Við-
lagasjóður upp öllu starfsfólki
sinu nema þeim sem unnu við
húsaviðgerðir. 1. október felldi
Viðlagasjóður niður auka-
greiðslur til manna sem störfuðu i
Eyjum. Núverandi starfsmenn
eru óánægðir yfir þessu, en Við-
lagasjóður bauð I staðinn staðar-
uppbót sem á að smálækka á 24
vikum, þ.e. 2000 krónur á viku
fyrstu 10 vikurnar, 1200 krónur
næstu átta vikurnar og 600 krónur
næstu sex vikurnar.
Ekki er um neitt verkfall að
ræða — þetta eru þau kjör sem
Viðlagasjóður hefur boðið og er
mönnum i sjálfsvald sett hvort
þeir vilja vinna samkvæmt þeim
eða ekki. Núna eru um 40 manns á
launum hjá Viðlagasjóði I Vest-
mannaeyjum. SJ
Nú í vikunni veröa haldn-
ir tveir fundir á vegum
verkalýðshreyfingarinnar
sem báöir eru mjög mikil-
vægir hvað snertir kjara-
baráttu hennar f nú og í
framtíðinni. Eru það fram-
haldsstofnfundur lands-
sambands almennra lífeyr-
issjóða og kjaramálaráð-
stefna ASi.
Framhaldsstofnfundur lands-
sambands almennra lifeyrissjóða
hefst klukkan 10 á fimmtudags-
morgun i ráðstefnusalHótelsLoft-
leiða. Rúmlega 30 lifeyrissjóðir
eru nú starfandi og hefur hver
þeirra rétt til að senda alla
stjórnina sem I eru 4 menn. Gætu
þvi fulltrúar á stofnfundinum orð-
ið á annað hundrað talsins ef allir
sjóðirnir senda fulla tölu.
A þessum fundi verður gengið
endanlega frá stofnun landssam-
bandsins en hann stendur i einn
dag.
Kjaramálaráðstefnan
A föstudagsmorgun hefst svo á
sama stað klukkan tiu önnur
kjaramálaráðstefna ASI á þessu
hausti en sú fyrri fór fram að
Reykholti i endaðan ágúst eins og
menn muna. Er búist við að svip-
aður fjöldi sæki þessa ráðstefnu
og þá fyrri eða tæplega 70.
Nú eiga hin einstöku verkalýðs-
félög að vera búin að ræða kjara-
samningana I haust og móta end-
anlega kröfur sinar i þeim. Ráð-
stefnan mun svo fjalla nánar um
heildarkröfurnar og samninga-
gerðina.
Að þvi er Ólafur Hannibalsson
hjá ASI tjáði blaðinu hefur ekkert
verið ákveðið um framgang mála
að ráðstefnunni lokinni en beri
hún góðan árangur ætti litið að
vera þvi til fyrirstöðu að samn-
ingaviðræður geti hafist fljótlega
að henni lokinni.
Lengd ráðstefnunnar er ekki
ákveðin og mun ráðast af gangi
umræðna og störfum hennar.
—ÞH
Alþingi kemur
saman í dag
í DAG
r
Eg ákœri
Frásögn af kappræðu-
fundinum um landhelgis-
málið er í opnu. Þar sagði
kunnur Sjálfstæðismaður:
"Ég ásaka ritstjóra og út-
gáfustjórn Morgunblaðsins
fyrir að gefa breskum
toga raútgerða rmönnu m
kost á að koma áróðri
sínum gegn okkur Is-
lendingum á framfæri á
síðum Morgunblaðsins í
formi greiddra auglýsinga
en neita mér, Sjálfstæðis-
manninum Pétri Guðjóns-
syni, um þennan sama
rétt."
Alþingi verður sett í dag.
Forseti Islands, dr.
Kristján Eldjárn, setur
þingið, síðan tekur
Hannibal Valdimarsson,
aldursforseti þingsins/ við
fundarstjórn og minnist
látinna þingmanna.
Að þessu sinni hafa þrir fyrr-
verandi þingmenn fallið frá,frá
þvi að þingi var slitið s.l. vor. Þeir
eru Björn Kristjánsson, Jónas
Guðmundsson og Kristinn E.
Andrésson.
Venja er — þegar minnst hefur
verið látinna þingmanna og ald-
ursforseti tekið við fundarstjórn
— að fresta þá þingfundi þar til
daginn eftir.
Miklar breytingar hafa veriö
gerðar á þinghúsinu i sumar og er
þar nú miklu rýmra en áður
var. Breytingarnar eiga m.a.
rætur að rekja til þess að skrif-
stofa forseta íslands er nú i
stjórnarráðinu og hefur húsnæði
forsetaembættisins verið tekið
undir kaffistofur. Þessu fýlgja
siðan breytingar á anddyri, eld-
húsaðstöðu, kringlunni og les-
stofu og blaðageymslu.
Þcssi mynd var tekin í prentsmiöjunni Gutenberg i gær þar sem
starfsmenn vinna nú aö þvi aö útbúa fyrstu þingskjölin fyrir setningu
alþingis, sem fer fram I dag.