Þjóðviljinn - 10.10.1973, Qupperneq 3
Miövikudagur 10. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Bátur handa unglingum
Æskulý&sráB Reykjavikur hef-
ur eignast skólabát, Reykviking
RE 76. betta er 12 metra langur
bátur, sem upphaflega var smið-
aöur sem nótabátur.
Báturinn verður notaöur til að
kenna unglingum siglingafræði,
vinnubrögð og meðferð afla, auk
þess sem báturinn mun i sumar
verða notaður I styttri veiðiferðir.
011 helstu tæki eru i bátnum, en
trésmíðavinnu annaðist Nökkvi i
Garðahreppi. Vélaverkstæði Jó-
hanns Ólafs Jónssonar sá um
niðursetningu véla, en aðalvélin
er Lister diselvél, 44ra hestafla.
Ganghraði bátsins er 7-8 milur.
1 káetu er rúm fyrir 6-8 manns i
sæti. Myndina tók A.K. i gær
Flokks-
forysta
Sjálfstœðis-
flokksins
sett í bann?
Trúnaðarmaöur í sjálf-
stæðisflokknum tilkynnti okk-
ur eftirfarandi i gær:
„Vegna hinnar alvarlegu
stöðu i landhelgismálinu hefur
það verið rætt meðal al-
mennra flokksmanna stjórna
og trúnaöarráða flokksfélaga,
að samþykkt verði um það
gerð, að Sjálfstæðisflokkurinn
setji bann á að forystumenn
flokksins ræði um landhelgis-
málið ihvers kyns fjölmiðlum,
heldur ekki á almennum vett-
vangi, svo sem opnum fund-
um.”
Astæðan fyrir þessu mun
vera eftirfarandi sönn raunar-
sága:
1 ■ Yfirlýsingar Geirs Hall-
grimssonar, varaformanns
Sjálfstæðisflokksins i Ever-
tonmálinu; yfirlýsingar sama
manns eftir gleðskap með her-
foringjum i Brussel.
2. Frammistað Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar ritstjóra aðal-
málgagns flokksins, Morgun-
blaösins, i sjónvarpsþætti þar
sem rætt var um landhelgis-
mál.
3. Ummæli Jóhanns Haf-
stein, formanns Sjálfstæðis-
flokksins um þátt NATÓ i þvi
að bresku herskipin fóru út
fyrir 50 milna mörkin, og
prentuð voru risaletri fyrir til-
stuðlan Eyjólfs Konráðs.
4. Frammistaða formanns
þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, Gunnars Thoroddsens, á
almennum borgarafundi um
landhelgismáliö á Sögu siöast
liöinn sunnudag, þar sem hann
túlkaði stefnu Sjálfstæöis-
flokksins á þann hátt, að
hörðustu flokksmenn trúa ekki
sem sannri, né heldur vilja
fylgja henni.
Væntanlega mun veröa hægt
að skýra nánar frá þessu máli
innan tiðar. -úþ
Norðurfjörður:
Meðal fall-
þungi dilka
tæp 20 kg
Mikið um að tvílembingar leggi sig á
20 kg. hvor. — Þingeysku metin slegin.
Þingeyingar hafa jafnan verið
taldir mestir fjárbændur á land-
inu enda hefur meöal fallþungi
dilka verið þar einna hæstur yfir
landið undan farin ár. Greinilegt
er að þingeyskir bændur hafa
fengið harða keppinauta á þessu
sviði, þar sem eru Strandamenn.
Dilkaslátrun er nú langt komin
hjá Kaupfélagi Strandamanna á
Norðurfirði og er allt útlit fyrir að
meðal fallþungi dilka þar veröi
nær 20kg. Kaupfélagsstjórinn á
Norðurfiröi sagði okkur I gær aö
það sem af er þessu hausti væri
fallþungi dilka hjá þeim nokkuö
yfir 19kg. aö meðaltali. sagði
hann sem dæmi að mikil brögð
væru að þvi að tvilembingar
legðu sig á 20kg. hvor. Þetta væri
ótrúlega algengt.
Þá sagði hann að slátrað hefði
verið hjá þeim 2ja vetra hrúti fyr-
ir nokkru og lagði skrokkur hans
sig á 61kg. sem mun nálgast eins-
dæmi.
1 ár verður slátrað 2500 fjár hjá
Kaupfélagi Strandamanna á
Norðurfiröi og er slátrum langt
komin eins og áður segir.
1 fyrra var meðal fallþungi
dilka i Norðurfirði 17,5kg. Kaup-
félagsstjórinn sagði að megnið af
þessum dilkum væru tvilembing-
ar.
Aðspurður um i þessu sam-
bandi hvort Strandamenn hefðu
ekki aflagt alla galdra, sagði
kaupfélagsstjórinn svo vera.
Þessi afburða árangur væri aö-
eins afrakstur af góðri meðferð
fjárins og miklum kynbótum á
sauðfé hjá bændum þar nyrðra
undanfarin ár, enda væri nú svo
komið að kynbótahrút.ar af
Ströndum væru orðnir mjög svo
eftirsóttir um allt land. Hefðu
nokkrir verið seldir til annarra
landshluta bæði i fyrra og i ár.
S.dór
F ærey skukennslan
hefst miðvikudag kl. 7 síðdegis i Lauga-
lækjarskóla.
Nemendur i hagnýtum verslunar- og
skrifstofustörfum komi miðvikudagskvöld
kl. 7,30 i Laugalækjarskóla.
Tréskurður. Kennsla hefst 17. okt..
Nemendur geta valið um mánudaga,
þriðjudaga og miðvikudaga. Ekki er hægt
að bæta við fleiri nemendum en þegar
hafa skráð sig.
Námsflokkar Reykjavikur
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta meS
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMfVINNUSTOFAN H.F.
Skiphoiti 35 — Reykjavik — Sími 30688
Auglýsingasíminn er 17500
Silfurlampinn
á uppboð
Félag Islenskra leikdómara
hefur nú ákveðið að setja þann
fræga grip silfurlampann sem
Baldvin Halldórsson fúlsaði við i
vor á uppboð. Veröur hann seldur
hæstbjóðanda þann 16. þessa
mánaðar á uppboði á vegum List-
munauppboðs Sigurðar Bene-
diktssonar hf.
Þá hefur téð félag ákveðið að
gefa andvirði lampans i
minningarsjóð Stefaniu
Guðlaugsdóttur sem hefur þaö
markmið að efla menntun og
þroska Islenskra leikara og skilji
þeir sneiðina sem eiga. -ÞH
sameiginlegt
simanúmer
f rá og með 7. október er
simi sameiginlegrar
farskrárdeildar fyrir millilandaflug
islensku flugfélaganna
25100
FLUCFELAC L0FTLEIDIR
/SLAJVDS