Þjóðviljinn - 10.10.1973, Síða 13
Miövikudagur 10. október 1973, ÞJÓÐVILJINfV>4- SIÐA 13
11.
BOÐORÐIÐ
upphæö og auk þess færöu álag á
efniö og ráögjafarþóknun.
— Hvað i ósköpunum er nú það?
spuröi ég.
Alex hló.
— þú hefur alltaf verið furðufugl
i viöskiptamálum, sagöi hann. —
Ég heföi spurt: hvað er það
mikiö?
— Hvað mikið? sagði ég.
— Tiu þúsund.
Ég þagði stundarkorn, þvi að ég
hefði ekki getað opnað munninn
án þess að gapa.
— Fyrir hvað? spurði ég svo.
— Útvegun leyfa, sem við
ættum sjálfir erfiðara með að fá.
Til að mynda þetta. . .
Hann rétti mér holræsaupp-
drátt.
— Og hröðun. Mér skilst að þú
sért i góðu áliti hjá friðdómaran
um hér og byggingaryfirvöldun-
um á staðnum. Þóknunin nær yfir
slikt.
Ég velti fyrir mér hver hefði
sagt honum það meðan ég virti
fyrir mér uppdrættina. Hann varð
fyrri til:
— Svæðið er rétt fyrir sunnan
plantekruna.
— En hér er gert ráð fyrir
tönkum og rotþróm. Það er
bannað.
— Bara almennt, sagði hann. —
Stöku náungar hér um slóðir hafa
fengið undanþágur, og það
skiptir öllu máli fyrir söluna,
að það verði ekki k^mrar. Þú
verður að bjarga þvi.
— Ég er ekki viss um að ég geti
það.
— Jú, ég þekki þig. Þú kippir
þvi i lag.
Hann talaði eins og þegar væri
afráðið að ég tæki tilboðinu sem
lá á borðinu fyrir framan mig.
— Fyrst verð ég að fara yfir
þetta, sagði ég.
— Vitaskuld, en ég er sannfærður
um að þú tekur að þér þetta verk-
efni fyrir mig, og meðan hann
endurtók þetta siðasta, var eins
og viðskiptahamurinn rynni aftur
af honum og sposka brosið kom
aftur i ljós:
— Ég er viss um það, Johs.
Skál, kunningi.
Hann tók bjórflöskuna sina og
lyfti henni. Ég hafði ekki komið
með glös. Við vorum báðir gamlir
iönaðarmenn.
— Skál fyrir gömlum dögum,
sagði hann.
Það var eina athugasemdin
sem hann kom með við þetta
tækifæri. En með hliðsjón af þvi
hvernig þeir höfðu endað.. . Þetta
var næstum óhugnanlega
smekklaust. Ég sat stjarfur og
þögull og hafði ekki hugmynd um
hvernig ág átti að bregðast við.
En til allrar hamingju vorum
við truflaðir einmitt i þessu,
þegar Mark kom inn á skrifstof-
una og sagði að það væri vatn i
oliunni á vörubilnum. — Það er
farin pakkning, sagði hann. — Ég
er búinn að panta nýja og við
ættum að fá hana á morgun. En
við þyrftum að koma vélar-
blökkinni af stað i dag, svo að
hægt sé að slipa hana.
— Ég kem niðureftir og hjálpa
þér að losa hana, sagði ég. Ef þú
vilt hafamig afsakaðan, Alex?
Eiginlega vorum við búnir, var
það ekki?
— Ojú, eiginlega i fyrstu lotu,
sagði hann og reis á fætur og var
bersýnilega gramur yfir þvi að ég
skyldi hafa bundið endi á samtak
ið. Hann hafði alltaf verið naskur
að finna tilefni — eða tylliástæðu
— til að móðgast, og eftir á gat
hann brotið heilann langtimum
saman um það hvernig hann ætti
að ná sér niðri.
— Sjáðu til, við getum illa verið
án vörubilsins, sagði ég.
— Og þú verður að vera þinn
eigin vélvirki, sagði hapn. —
Þarna sér maður.
Svo litilfjörlegt var fyrirtækið,
svo aumur var ég. Það var það
sem hann átti við. En þar sem ég
var hæstánægður með tilveru
mlna, snerti það mig ekki.
— Ojá, hérna handan við
tuttugasta kartöflubeðið verðum
við stundum að bjarga okkur
sjálfir. En það er nú öllu heldur
Mark sem er vélvirkinn. Sjáðu til,
hann hefur ....
Hann greip fram i fyrir mér súr
á svip: — Jæja, viðsjáumst, sagði
hann og kinkaði kolli stuttaralega
um leið og hann gekk út.
— Hver var þetta? spurði Mark
forvitnislega.
— Gamall kunningi. Hann kom
með tilboð sem gæti gefið okkur
góöa möguleika, ef það er eins
gott og það sýnist vera. Sjáðu
hérna.
Ég lagði teikningarnar og út-
reikningana á skrifborðið og við
stóðum og rýndum i það i nokkrar
minútur-. Mark er fljótur að átta
sig á tölum og hann gat i hug-
anum framkvæmt útreikninga
sem ég varð að bjástra við á
pappirsblaði. útkoman hjá
honum varð til þess að hann
kinkaði hressilega kolli hvað eftir
annað.
— Þetta litur vel út, sagði hann.
Ja, sem ég er lifandi, Bernt:Þetta
ætti að geta hresst duglega upp á
fyrirtækið. Ég get ekki séð að
nein ástæða sé til að hika.
Við fórum niðureftir og tókum
sundur vélina i vörubilnum, og á
eftir settist ég aftur inn á skrif-
stofu og reiknaði út tilboðið. Það
var svo sem engin ástæða til að
hrópa húrra fyrir hagnaðinum á
frágangi grunnanna, enda hafði
Alex búið mig undir það, og það
var sett hámarksverö á hráefni.
En þegar þessi ráðgjafarþóknun
upp á tiu þúsund var lögð ofaná...
já, þá leit þetta bara , þokkalega
út. Þar við bættist að þetta gaf
mér tilefni til að gera Mark að
meðeiganda I fyrirtækinu, en það
hafði ég lengi haft hug á til að
vera öruggur um að halda
honum. Nú orðið var það ekki
siður hann en ég sem rak timbur-
verslunina, og hann var ekki að-
eins eldfljótur að koma gamalli
vörubilsdruslu i gang — nú yrði
reyndar hægt að skipta á honum
og öðrum betri* - heldur
hagsýnn og útsjónarsamur að öllu
leyti. Hann gæti áreiðanlega
stjórnað vinnunni við grunnana
og pipulögina I sumarbústaði
Alexar á eigin spýtur.
Alex, já.
Ég var næstum búinn að
gleyma honum yfir þessum upp-
örvandi horfum. Nú birtist hann
aftur fyrir hugarsjónum minum,
þegar hann hafði staðið i dyr-
unum og horft á mig með gömlu
hæðninni og sagt: -Þessu hafðirðu
ekki búist við.
Var nokkur ástæða til að hika
við að taka tilboði hans? Er ekki
fremur ástæða til að vera
áhyggjufullur ef ég gerði honum
þann óleik að taka þvi ekki?.
Meðan ég velti vöngum yfir þessu
— var þó i raun og veru búinn að
taka ákvörðun — uppgötvaði ég
allt i einu að ég stóð frammi i
eldhúsi, þar sem ég hellti snafsi i
glas handa mér og drakk hann til
aö skerpa hugsunina. Hann ýtti
undir þá ákvörðun mina, að það
væri heimskulegt að taka ekki
tilboði Alexar.
Það var komið kvöld og ég tók
teikningarnar og flýtti mér heim.
Hann var að gera upp kassann i
litlu, þröngu kompunni sem kom i
stað skrifstofu i einu horni
timburskemmunnar.
— Við verðum liklega að færa út
kviarnar með verktakadeild,
sagði ég og lagði teikningarnar
fyrir framan hann. Hann leit
undrandi á mig og ég heyrði vel
að ég virtist dálítið hátt uppi út af
snafsinum.
— Já, það get ég imyndað mér,
sagði Mark.
— Við, það erum ég og þú. Þú
vannst á sinum tima hjá verk-
taka, svo að þú verður að taka
það að þér.
Hann sýndist ringlaður, þótt
mér virtist ég hafa talað skýrt og
skilmerkilega. Ég settist við litla
vélritunarborðið og i vélinni var
blaösnepill, svo að ég skrifaði
þetta fyrir hann:
J. BERNT&MARK
Byggingameistarar og verktakar
Timburverslun
Ég reif blaðið úr ritvélinni og
rétti honum. Hann góndi á það ei-
lifðar tima.
— Attu við. . .? spurði hann.
— Já, hefurðu nokkuð á móti
þvi að gerast meðeigandi?
— Þú ert ekki með réttu ráði,
sagöi hann.
5
Það var nokkuð liðið á daginn;;
ég gat heyrt sláttinn i billjarð-
kjuðum i almenningnum i Ráð-
húskaffistofunni. En það kom að-
eins einn einasti gestur inn i
innsta salinn, þar sem ég sat. Það
var járnvörukaupmaðurinn úr
Kóngsgötu. Við kinkuðum kolli
hvor til annárs og hann settist við
borð I horninu á móti, sökkti sér
niður i dagblaðið sitt og angraði
mig ekki. Framreiðslustúlkan
kom með kaffi handa honum, og
þegar hún fór út, gaut hún augun-
um að glösunum minum, sem
höfðu eflaust staðið tóm siðasta
klukkutimann.
NYLON hjólbarðarnir japönsku
fóst hjó okkur.
Allar stærðir ó fólksbíla, jeppa og vörubíla
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055
sSíi&i
Miðvikudagur
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Þórunn Magnúsdóttir
heldur áfram „lEyjasögu”
sinni. (3) Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög á milli liða.
Kirkjutónlist kl. 10.25.
Margrét Eggertsdóttir
syngur andleg lög við orgel-
undirleik dr. Páls Isólfsson-
ar / Ragnar Björnsson
leikur Passacagliu i f-moll
eftir Pál Isólfsson. Fréttir
kl. 11.00. Tónlist eftir
Schumann: Svjatoslav
Rikhter leikur á píanó
„Fiðrildi” op. 2 / Régine
Crespin syngur „Söngva
Mariu Stuart” op. 135 /
Ronald Turini og Oxford-
kvartettinn leika Kvintett
op. 44.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
13.30 Setning Alþingis. a.
Guðsþjónusta i Dóm-
kirkjunni. Prestur: Séra
Ingimar Ingimarsson i Vik i
Mýrdal. Organleikari: Guð-
mundur Gilsson. b. Þing-
setning.
14.45 Slödegissagan: „Hin
gullna framtlö” eftir Þor-
stein Stefánsson. Kristmann
Guðmundsson les sögulok
(18)
15.15 Miödegistónleikar Is-
lensk tónlist. a. Strengja-
kvartett no. 2 op. 36 eftir
Jón Leifs. Kvartett Björns
Olafssonar leikur. b. Lög
eftir Sigfús Einarsson.
Guðrún Tómasdóttir syng-
ur. Ölafur Vignir Alberts-
son leikur á pianó. c.
„Skúlaskeið” verk fyrir
einsöngvara og hljómsveit
eftir Þórhall Arnason. Guð-
mundur Jónsson syngur við
undirleik Sinfóniuhljóm-
sveitar tsl. Páll P. Pálsson
stj.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Popp-
hornið.
17.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir.
18.45 Veðurfregnir.
18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá, Bein lina til
Gyifa Þ. Gislasonar for-
manns Aiþýöuflokksins.
Umsjónarmenn: Arni
Gunnarsson, og Einar Karl
Haraldsson.
19.45 Einsöngur I útvarpssal:
Guðmundur Jónsson syngur
lög eftir Pál Jónsson,
Jóhann Gislason, Gisla
Kristjánsson, Jón Björns-
son, Mariu Brynjólfsdóttur,
Kristin Reyr og Ingólf
Sveinsson. ólafur Vignir
Albertsson leikur á pianó.
20.20 Rithöfundakvöld: Guö-
mundur G. Hagalln 75 ára.
a. Þórleifur Bjarnason
flytur erindi. b. Guðmundur
G.Hagalinles eina af smá-
sögum sinum: „öllu breyta
þeir.”
21.10 Kórsöngur/ Sunnukórinn
á Isafiröi syngur. tslensk
lög. Söngstjóri: Ragnar H.
Ragnar.
21.30 Útvarpssagan:
„Fulltrúinn, sem hvarf”
eftir Hans Scherfig.
Þýðandinn, Silja Aðal-
steinsdóttir, les (13).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Bréf frá
frænda. Viðtakandi, Jón
Pálsson frá Heiði, flytur.
22.35 Nútimatónlist. Halldór
Haraldsson kynnir. a. Tón-
blær i nútimatónlist. b.
Strengjakvartett nr. 3 fyrir
strengi og elektrónisk hljóð
eftir Kjrchner.
23.20 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok. .
18.00 Töfraboltinn. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
Þulur Guðrún Alfreðs-
dóttir.
18.10 Kengúran Skippl.
Astralskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga.
Stormurinn. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Lappar. Framhalds-
mynd um sögu og menningu
Lappa i norðlægustu héröð-
um Finnlands. 2. hluti. Þýð-
andi og þulur Gylfi Gröndal.
18.55 Illé.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Verndargripastriö-
iö. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Nýjasta tækni og visindi.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.25 Stórhyrningar. Ljóðræn,
kanadísk kvikmynd um
hornprúöan villifénað i
Klettafjöllum i Kanada.
21.40 Mannaveiðar. Bresk
framhaldsmynd. 11. þáttur.
Laun dyggöarinnar.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son. Efni 10. þáttar: Gratz
tekur Ninu til itarlegrar
yfirheyrslu. Hann er þægi-
legur i viðmóti og fer vel á
með þeim. An þess að gera
sér þess fulla grein, gefur
hún honum ýmsar upp-
lýsingar. Von Gebhardt,
yfirmaður Gratz, býður
honum þátttöku i samsæri
gegn Hitler, en Lutzig og
Helldorf koma skyndilega á
vettvang. Þeir skjóta
Gebhardt og saka Gratz um
landráð. Vinchent og
Jimmy hafa lagt á ráðin um
að myrða Gratz, en þegar
þeir koma til herbergja
hans, neyöir Nina þá til að
hætta við þá áætlun.
22.30 Dagskrárlok.
Indversk undraveröld.
Vorum að taka upp miög glæsilegt og fjölbreytt
úrval af austurlenskum skraut- og listmunum
m.a. Bali-styttur, veggteppi, gólf-öskubakka,
smádúka, batik-kjólefni, indversk þómullarefni,
töflúr margskonar efniviði, málmstyttur, vörur
úr bambus og margt fleira nýtt.
Einnig margar tegundir af reykelsi og reykelsis-
kerum. Gjöfina sem gleður fáið þér I
j Jasmin Laugavegi 133.