Þjóðviljinn - 30.10.1973, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. október 1973 ÞJ.ÓÐVILJINN j— StÐA 3
Ný gjaldskrá:
Kílówatt-
gjaldið
hœkkað og
fastagjaldið
lagt niður
Ný gjaldskrá verftur tekin I
notkun hjá Rafmagnsveitu
Reykjavikur um áramótin nk.
og jafnframt algerlega nvtt
kerfi við gjaldmælingar.
Borgarráð samþykkti þess-
ar breytingar á siðasta fundi
sinum, en samkvæmt þeim
verða öll fastagjöld lögð niður,
en kilówattgjaldið hækkað um
þá upphæð sem tapast á tekj-
um vegna niðurfellingar
fastagjaldsins.
Tekur þessi nýi taxti fyrir
heimilisnotkun gildi um ára-
mót og þá verður jafnframt
breyting á heimtaugargjöld-
um, einföldun á kerfinu og
samræming, þannig að allir
munu greiða sama heim-
taugargjald hvort sem um er
aðræða langa eða stutta vega-
lengd.
Aformað er að breyta einnig
öðrum töxtum Rafmagnsveit-
unnar, þ.e. atvinnurekstrar-
töxtum og húshitunartöxtum,
en þær breytingar ganga ekki i
gildi fyrr en 1. janúar 1975 eða
ári siðar. Veröa nýju taxtarnir
þó keyrðir i kerfinu jafnhliða
gildandi töxtum til að athuga
megi áhrif breytinganna á
tekjur RR.
—vh
Þessi mynd var tekin á þingi Verkamannasambands tslands sem haldiö var um helgina. Sjá frétt um
þingið á forsiöu og ályktanir þingsins á 6. siðu.
Sjómannafélag ísfirðinga:
Engin þörf er á
samningumvið Breta
Sjómannafélag Isfirð-
inga hélt fund sl. sunnudag
og gerði þar m.a. eftirfar-
andi samþykkt:
„Almennur fundur i Sjómanna-
félagi tsfirðinga 28. október 1973
fagnar þeirri þjóðareiningu sem
náðst hefur um útfærslu islensku
fiskveiðilandhelginnar i 50 milur.
Fundurinn telur að samningar
Sjómenn á tsafiröi þakka
starfsmönnum landhelgisgæsl-
unnar frábær störf við erfiðustu
aðstæður, en harma jafnframt að
yfirmenn löggæslu og dómsmála
virðast láta það afskiptalaust sið-
an samningaumleitanir hófust á
ný við Breta, þótt breskir togarar
þurrausi friðlýst veiðisvæði og
stundi óáreittir veiðar langt innan
12 milnanna”.
um timabundnar veiðiheimildir
innan hinnar nýju landhelgi við
vinveittar þjóðir eigi fullan rétt á
sér og sé málstaö okkar ávinning-
ur. Fundurinn getur ekki fallist á
brýna þörf fyrir undanþágu-
samningum við Breta og Vestur-
Þjóðverja sem beitt hafa vopnuð-
um yfirgangi, þverbrotið islensk
lög og engu skeytt þótt mannslif
væru i veði.
Skákþing
IJrslit próf-
kosninganna
1 gær var prófkjör meöal stúd-
enta um kandidat til rektorskjörs.
Kosningin fer þannig fram að
hver stúdent tilnefnir 3 menn og
fær sá fyrsti á hverjum seðli 3
stig, annar 3 og sá þriðji 1 stig.
Stigin féllu þannig:
Guðlaugur Þorvaldsson 830
Ólafur Ragnar Grimsson 345
Þór Vilhjálmsson 231
Jónatan Þórmundsson 205
Guðmundur Björnsson 184
Jóhann Axelsson 159.
Guðlaugur Þorvaldsson mun
einnig hafa oröið efstur innan há-
skólaráðs, en þar urðu hins vegar
Þór og Jónatan númer 2 og 3.
Atkvæði greiddu 654 eða 30%,
en ekki mun hafa verið búist við
meiri kjörsókn.
Maurkláði
kemur upp
á hverju
hausti
Ekki meira
um hanti nú
en vanalega
Maurkláði, eða það sem
kallað hefur verið kláöi i gegn-
um árin hér á landi, hefur
herjað aö einhverju marki á
Reykvikinga undanfarið.
Við höfðum i gær samband
við aðstoðarborgarlækni og
spurðum hann hvort meira
væri um þennan kláða nú en
áður. Sagði hann svo ekki
vera, þetta væri mjög svipað
nú og undanfarin haust, en
einmitt þá virðist þessi leiðin-
legi sjúkdómur helst koma
upp i borginni.
Maurkláði er smitandi og
viröist oft verða vart við hann
fyrst eftir að skólar byrja á
haustin, en mjög auðvelt er að
lækna hann þannig að engin
hætta er á að hann geti orðiö
að faraldri, að sögn aðstoöar-
borgarlæknis.
Það er með kláðamaur eins
og lúsina aö hans tilvera bygg-
ist á hreinlætisskorti og-ótt við
teljum okkur hafa útrýmt lús-
inni er það ekki alveg rétt, það
kemur alltaf eitt og eitt tilfelli
upp og eins er með kláða-
maurinn, sagði aðstoðar-
borgarlæknir.
— S.dór.
Víðtœkt prófkjör í Háskólanum
Hver verður
rektor Hl?
I gær var prófkjör i Há-
skóla íslands í tilefni
rektorskjörs sem áætlað er
10. nóv. Prófkjörið var í
þrennu lagi. Háskólaráð
stóð fyrir prófkjöri allra
þeirra sem kosningarétt
munu hafa 10. nóvember,
en það verða væntanlega
122.
og vonir standa til að alþingi af-
greiði það fyrir rektorskjör.
Fjölgunin er aðeins til að leiðrétta
hlutfall stúdenta við kjörið i sam-
ræmi viö vaxandi stúdentafjölda
við Háskólann. Þeir sem atkvæði
greiða af hálfu stúdenta eiga báð-
ir fulltrúa i hverri háskóladeild,
en þær eru 8, og auk þess formað-
ur og varaformaður stúdentaráðs
og þeir tveir stúdentar sem sæti
eiga i háskólaráði.
Sovét-
ríkjanna
Spasskí
sigraði
Boris Spasski varð hlut-
skarpastur á meistaramóti
Sovétrikjanna, fékk 11 l/2 vinning
af 17 mögulegum, og varð heilum
vinningi ofar en næstu menn.
Hann tefldi við Petrosjan i siðustu
umferðinni og skildu þeir jafnir. 1
2. til 6. sæti voru Petrosja, Kort-
snjoj, Polugajeskij, Karpov og
Kuzmin með 10 1/2 vinning.
Fyrstu færeysku
frímerkin koma
Önnur prófkosning var svo
meðal stúdenta og sú þriðja með-
al félags starfsmanna Háskólans.
Að loknu prófkjöri ættu linurnar
að skýrast og I ljós að koma
hverjir vænlegastir þykja i
rektorsstarfið, sem Magnús Már
Lárusson sagði lausu fyrir
skömmu.
Stúdentar
fá leiöréttingu
Þjóðviljinn náði i gær tali af
Halldóri Armanni Sigurössyni
formanni stúdentaráös. Halldór
sagði að stúdentar gerðu sér von-
ir um að eiga 20 fulltrúa viö
rektorskjöriðistað 11 eins og ver-
iö hefur. Frumvarp um þetta er
tilbúið i menntamálaráðuneyti,
Færeyingar munu senn hefja
útgáfu eigin frimerkja. Skrifstofa
aiþjóðapóststofnunarinnar i
Bern hefur samþykkt aö gefa
megi út færeysk frimerki án þess
aö nafn Danmerkur standi á
þeim.
Alþjóðareglur um útgáfu fri-
merkja hafa til þessa verið
túlkaðar þannig, að ekki hefur
þótt unnt aö verða við óskum
Færeyinga um útgáfu eigin fri-
merkja. Kröfur um útgáfu fær-
eyskra frimerkja hafa marg-
sinnis veriö lagðar fram i lög-
þingi Færeyinga.
Danska póstmálastjórnin hefur
nú loks vakið máls á þessum ósk-
um við Alþjóðapóstmálastofnun-
ina, en Danir hafa farið með yfir-
stjórn þessara mála fyrir Fær-
eyjar.
Þetta hefur borið þann árangur
aö alþjóðastofnunin telur Færey-
ingum heimila frimerkjaútgáfu
enda hafi þeir svo mikla sjálf-
stjórn eigin mála að þeir gefa út
eigin peningaseðla.
Aðeins er nú eftir aö ráða fram
úr framkvæmdaatriðum varð-
andi frimerkjaútgáfu Færeyinga,
og þegar hún hefst, má búast við
þvi aö handagangur verði i öskj-
unni hjá frimerkjasöfnurum.
REUTER — Eþiópia hefur slitið
stjórnmálasambandi við ísrael.
Þykir það nokkrum tiðindum
sæta, þar eð Eþiópia hefur
lengstum verið nánasta vinariki
Israels i Afriku. Viss söguleg
minni tengja rikin saman, þar eð
Eþiópiukeisari telst kominn af
Salómó konungi og drottningunni
af Saba og einn af óteljandi titlum
hans er Ljón Júda.
Orkumál Norðurlanda rœdd
i sambandi við haustfund Nor -
ræna ráðsins i Stokkhólmi var
haldinn hinn 25. október sl. fundur
norrænna iðnaðarráöherra. Var
sænski iðnaðarráðhcrrann Rune
B. Johansson i forsæti.
Fundinn sótti frá Danmörku
verslunar- og iðnaöarráðherr-
ann Erling Jensen, frá Finnlandi
verslunar- og iðnaðarráðherrann
Jan-Magnus Jansson, frá Noregi
iönaðarráðherra Ingvald Ulve-
seth og frá Islandi iðnaðarráð-
herra Magnús Kjartansson.
Aðalefni fundarins var að fjalla
um raunhæf orkumál. Var hvort-
tveggja rætt, um ástandið i hinum
einstöku löndum á þessu sviði,
svo og viðhorf á alþjóðavettvangi.
Þá var og skýrð sú norræna sam-
vinna sem nú á sér stað á iðnaðar-
og orkumálasviðinu, og sem hafin
var meö samþykkt rikisstjórna
Norðurlandanna á fyrra ári.
Skýrsla var og gefin um hinn ný-
stofnaða tækni- og iðnþróunar-
sjóð.
Iðnaðarráöherrarnir voru sam-
mála um að halda næsta fund
þegar norræna ráðið kemur sam-
an i Stokkhólmi i febrúarmánuði
n.k.