Þjóðviljinn - 30.10.1973, Side 15
Þriðjudagur 30. október 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Misrétti
Þegar frimerki var gert til minningar um
danska visindamanninn Niels Bohr vann
teiknarinn eftir listrænni ljósmynd (til
vinstri). Ljósmyndarinn fékk 500 krónur
danskar i sinn hlut, og þurfti að borga af
þvi söluskatt, en teiknarinn fékk 2000
danskar og þurfti engan söluskatt að
borga, af þvi hans verk fellur undir
ramma listaverks.
Það var danskt ljósmyndablað, sem
vakti athygli á þessu misrétti.
15.
SÍÐAN
UMSJÓN: SJ
BREKKUFLUG
Nýjasta flugsportið er það sem
Bretar og Bandarikjamenn kalla
brekkuflug. Þeir sem hafa áhuga á
þessari iþrótt geta keypt sér þá hluti
sem til þarf i einum pakka og sett sam-
an sina eigin „flugvél” á einni helgi, og
svo er að taka nokkra tima hjá þeim
sem eru orðnir færir i iþróttinni. Þar
næst er að finna góða brekku, hlaupa
gegn vindinum og áður en varir ertu
farinn að svifa.
Á myndinni hér fyrir ofan sjáum við
mann að nafni Walling (sitjandi), en
hann byrjaði fyrstur að kynna sér þessa
iþrótt i Bretlandi. Hann hefur verið
lengst á lofti i 12 minútur, en einhverj-
um i Bandarikjunum hefur tekist að
vera þrja tima á lofti i einu. Walling
sver og sárt við leggur að þetta sé ekki
hættuleg iþrótt, en flugmennirnir þurfa
samt að vera vel klæddir og með hlifð-
arhjálm á höfði. í lendingu ferðu bara
að eins og önd, sem er að setjast á vatn!
Klukkustrengir Jökuls
Jakobss.sýndir
Þjóöleikhúsinu
Sahlon Gahlin
Salon Gablm
út, ég hélt hann væri einn af
sjúklingunum.
Þjóðleikhúsið frumsýnir á
föstudaginn leikritið Klukku-
strengi sem Jökull Jakobsson
samdi fyrir Leikfélag Akur-
eyrar i fyrravetur. I.eikstjóri
er Brynja Benediktsdóttir, en
leiktjöld gera Gunnar Bjarna-
son og Þorbjörg Höskuldsdótt-
ir listmálari, sem nú starfar i
fyrsta skipti hjá Þjóðleikhús-
inu. Mest mæðir á leikurunum
Kristbjörgu Kjeld, Bessa
Bjarnasyni og Hóbert Arn-
finnssyni.og sýndist mér á æf-
ingu sl. laugardag að þetta
verði skemmtilegar mann-
gerðir.
Leikritiö er áreiðanlega erf-
itt viðureignar i uppfærslu, en
viöa eru samtölin hnyttin,
þannig aö engum ætti að leið
ast.
Jökull Jakobsson hefur ver-
ið erlendis að undanförnu og
er nýkominn heim.
Aðrir leikendur eru Jón
Júliusson, sem hefur veriö i
Sviþjóð undanfarið, Sigrún
Björnsdóttir, Þórunn Lovisa
Friðleifsdóttir og Randver
Þorláksson. Sigurður Skúla-
son er aðstoðarleikstjóri.
A myndinni sjáum við Krist-
björgu Kjeld sem Jórunni,
sem býr ein ásamt dóttur sinni
i góðu húsnæði i þorpi einhvers
staðar úti á landi, og Róbert
Arnfinnsson sem Harald, sér-
kennilegan menntamann.
Kataaríjörð'jr tu sðlu
Úr auglýsingu i Morgunblaðinu.
Heimspressan
Kaffiö og kvillarnir
Bandariskir læknar, sem hafa rannsakað nær eitt
þúsund sjúklinga, og notað tölvur sér til aðstoðar,
segja, að ekkert samband sé á milli kaffidrykkju og
hjartakvilla. Þetta var semsagt niðurstaða lækna
við Kaiserstofnunina i Oakland, en annar banda-
riskur læknahópur komst nýlega að þveröfugri
niðurstöðu.
Aftur á móti sögðu læknarnir við Kaiserstofnun-
ina að það væri mikið samband á milli kaffidrykkju
og sigarettureykinga.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■iii5§
Ósvífnir viöskiptamenn
Hjónakorn, sem sögðust nýkomin til Sviss frá Vest-
ur-Þýskalandi fengu sér alklæðnað i verslun einni i
Genf. Þau gengu út með talsvert af skiptimynt.
Búðareigandinn komst að raun um það stuttu siðar
að hjónin höfðu greitt honum með þýskum seðlum,
sem voru teknir úr umferð árið 1910.