Þjóðviljinn - 28.02.1974, Blaðsíða 16
WOÐVIUINN
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgarvarsla
lyf jabúðanna i Reykjavik, vikuna
22.-28. febrúar verður i Reykja-
vikurapóteki og Borgarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans*
,er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Franska
stjórnin
fer frá
PARIS 27/2 — Talsmaður
Pompidous Frakklandsfor-
seta kunngerði i dag að rikis-
stjórn landsins hefði sagt af
sér. Siðar um daginn fékk svo
hinn fráfarandi forsætisráð-
herra,Pierre Messmer, það
hlutverk að mynda nýja
stjórn. Stjórnarkreppa þessi
kom mjög á óvart, svo og að
Messmer skyldi vera falin
stjórnarmyndum. Upp á sið-
kastið hefur þvi verið hvislað
að Pompidou væri miðlungi
ánægður með Messmer og
fyrst eftir að afsögn stjórnar-
innar var tilkynnt var alveg
eins búist við að Valery
Giscard d’Estaing, fjármála-
ráðherra, yrði valinn i stað-
inn.
Mótmœli
til stuðnings
Trœdal
OSLÖ 27/2 — Nefnd til stuðn-
ings Narve Trædal efndi i dag
til mótmælagöngu til stjórnar-
bygginganna og stórþinghúss-
ins, og afhenti nefnd mót-
mælafólksins fulltrúum for-
sætisráðherra og þingforseta
yfirlýsingu, þar sem mótmælt
er dómnum yfir Trædal.
Dómurinn var kveðinn upp i
Bodö á þriðjudaginn.
1 yfirlýsingunni er þvi fast-
lega haldið fram að Trædal
hafi verið ranglega dæmdur
og af pólitiskum ástæðum. Að
yfirlýsingunni standa sextiu
og niu verkalýðsfélög, nokkur
samtök önnur og auk þess
hafa skrifað undir hana
nokkrir menn sem gegna her-
þjónustu.
Vily
a banna
síldveiðar
ÞRANDHEIMI 26/2 — Norska
hafrannsóknastofnunin hefur
mælt með þvi að spærlings-
veiði verði takmörkuð á mið-
unum við Lófóten og að allar
sildveiðar við strendur lands-
ins verði bannaðar ef tryggja
á veiðar þessara fisktegunda i
framtiðinni.
1 skýrslu stofnunarinnar
fyrir árið 1973 segir enn-
fremur að hætta sé á að sildar-
stofninn i Norðursjó sé i
mikilli hættu vegna gegndar-
lausrar veiði ungsildar. Segir
að hrygningarmöguleikar
sildarinnar hafi minnkað um
75% siðan 1965. Verði ekki
settar alþjóðareglur um tak-
mörkun á veiðinni, sé hætta á
slikri ofveiði á fullvaxinni sild
að stofninn nái ekki að endur-
nýjast.
BUNAÐARÞINGI SLITIÐ
Búnaðarþingi var slitið i
gær, og gerði það Halldór
Pálsson búnaðarmálastjóri.
Að venju samþykkti þingið
fjöldann allan af ályktunum.
Má þar til nefna ályktun um
byggingu einangrunarstöðv-
ar i Hrisey. Felst i henni
stuðningur um stofnun slikrar
stöðvar fyrir holdanaut, og að
verkinu verði hraðað til að
unnt verði að flytja þangað
sæði úr Galloway nautum frá
Skotlandi þegar á næsta vetri.
Einnig mætti nefna ályktun
um að treysta verði til fram-
búðar byggð á Hólsfjöllum
ásamt Möðrudal og Viðidal.
Ef til vill verður þess kostur
siðar meir að birta ályktanir
þingsins.
Þessi mynd er frá upphafi
siðasta fundar þingsins, en
það er Asgeir Bjarnason i As-
garði sem stendur fyrir miðri
mynd. —-úþ. Ljósm. A.K.
BRETLAND:
Fylgi íhaldsins niinnk-
ar jafnt og þétt
Frjálslyndum spáð oddaaðstöðu
LUNDtlNUM 27/2 — í þingkosn-
ingunum, sem fara fram i Bret-
landi á morgun, verður kosið um
635 þingsæti i neðri deild, og er
það fimm þingsætum fleira en á
siðasta þingi. Fjölgunin stafar af
breytingum á kjördæmaskipan.
Kosið er til fimm ára og situr við
það, nema forsætisráðherra
ákveði kosningar fyrr, eins og nú
kom á daginn. Siðustu þingkosn-
ingar i Bretlandi fóru fram
átjánda júni 1970. x
2.134 frambjóðendur leiða sam-
an hesta sina að þessu sinni, og er
það met. 633 þeirra eru frá ihald-
inu, 623 úr Verkamannaflokkn-
um, 517 frá Frjálslyndum, 70 frá
Skoska þjóðarflokknum, 36 af
hálfu velskra þjóðernissinna
(Plaid Cymru), 54 frá Þjóðfylk-
ingunni og 44 frá Kommúnista-
flokknum.
Þegar siðasta þing var leyst
upp hafði Ihaldsflokkurinn 322
þingmenn i neðri málstofunni,
Verkamannaflokkurinn 287,
Frjálslyndi flokkurinn 11, Skoski
þjóðarflokkurinn tvo, Lýðræðis-
legi verkamannaflokkurinn einn,
sósilademókratiski verkamanna-
flokkurinn einn, Sambandssinnar
af mótmælendatrú einn, Banda-
lagsflokkurinn einn, Einingar-
flokkurinn einn og óháðir einn.
Þar við bætist sæti þingforseta og
eitt sæti sem var autt vegna
dauðsfalls.
I kosningunum 1970 fékk fhaldið
þrjátiu og eins þingsætis meiri-
hluta, en hefur siðan tapað fimm-
tán sætum i aukakosningum. 1970
var tala þeirra er neyttu kosn-
ingaréttar sins 28.257.499, sem
var 72% kosningabærra manna.
íhaldið fékk þá 46.4% greiddra at-
kvæða, Verkamannaflokkurinn
43%, Frjálslyndir 7.4% og aðrir
3.2%.
Mesta þátttaka i breskum þjóð-
þingskosningum til þessa var
1950, þegar 83.9% kosningabærra
manna greiddu atkvæði. 1 þetta
sinn eru um fjörutiu miljónir
manna á kjörskrá, eða allir sem
orðnir voru átján ára 16. febr. s.l.
Siðusiu þrjár vikurnar hafa
skoðanakannanir bent til þess að
fylgi Ihaldsflokksins væri þremur
til fimm prósentum fyrir ofan
Verkamannaflokkinn, en Verka-
mannaflokknum virðist jafnt og
þétt aukast fylgi og siðustu kann-
anir benda til að forskot ihaldsins
sé komið niður ihálftannað pró-
sent. Niðurstöður könnunar, sem
Opinion Research Centre kunn-
gerði i dag, gefa ihaldinu 36.5% og
Verkamannaflokknum 35%. Báð-
ir stóru flokkarnir eru með lifið i
lúkunum út af þvi að Frjálslyndir
fái oddaaðstöðu á hinu nýkjörna
þingi, og þeir Heath og Wilson
hafa báðir svarið fyrir að til
greina koma að þeir myndi sam-
steypustjórn með Frjálslyndum.
Jeremy Thorpe, leiðtogi Frjáls-
lyndra, vonast til að fá sextiu
þingsæti og segist reiðubúinn að
mynda minnihlutastjórn. Segir
hann hvorugan þeirra Heaths og
Wilsons njóta þess trausts að þeir
geti fengið þjóðina til að samein-
ast undir forustu sinni, og báðir
eigi þeir pólitiskan dauða visan,
ef flokkar þeirra tapi i kosningun-
um.
Sýrlendingar af-
henda fangalista
WASHINGTON 27/2 — Sýr- yrðum þeim, er Israelsmenn
lendingar hafa gengið að skil- settu fyrir þvi að samningaum-
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Borgarnes
Alþýðubandalagið i Borgarfiröi heldur fund um atvinnumál, skipulags-
mál og heilbrigðismál héraðsins. Fundurinn verður laugardaginn 2.
mars klukkan 2 I Snorrabúð Borgarnesi.
leitanir hæfust þeirra á milli um
aöskilnað herja þeirra á vigstöðv-
unum í suðvesturhluta Sýrlands.
Af hálfu Hvita hússins hefur
verið tilkynnt að Kissinger, sem
snemma I dag kom til Tel Aviv
frá Damaskus, hafi haft með sér
lista yfir sextiu og fimm israelska
striðsfanga i vörslu Sýrlendinga.
Ennfremur kváðu Sýrlendingar
hafa samþykkt að fulltrúar
Alþjóðarauðakrossins mættu
heimsækja israelsku fangana
þegar á föstudag.
Litið er á þetta sem mikilvægt
skref i átt til friðar i Austur-
löndum nær. Mun hér um að ræða
niðurstöður viðræðna þeirra
Kissingers og Hafesar Assads,
forseta Sýrlands.
Eþíópska stjórnin fallin
Uppreisnin
breiðist út
um landið
ADDIS ABEBA 27/2 — Eþiópska
rikisstjórnin sagði af sér i kvöld,
þegar ljóst var orðið að upp-
reisnin innan hersins breiddist
stöðugt út, en herdeildir viðs-
vegar um allt landið hafa nú að
sögn gengið i lið með uppreisnar-
mönnum. Vitað er að deild úr
flughernum var komin með I
uppreisnina og hafði tekið á vald
sitt flugvöll aðeins fimmtiu
kilómetra frá höfuðborginni.
Hluti sjóhersins hefur tekið i
sama streng og ■ hertekið
Massava, helstu herflotahöfn
keisaradæmisins.
Meðan sjónvarpið i Addis
Abeba tilkynnti afsögn stjórnar-
innar flugu herþotur lágt yfir
borgina, og er giskað á að þær
hafi verið frá uppreisnar-
mönnum. Haile Selassi, hinn
áttatiu og tveggja ára gamli
keisari landsins, skoraði i dag á
landsmenn að sýna samheldni, en
greinilegt er að sú áskorun hefur
engin áhrif haft á uppreisnar-
menn. Að sögn hófst uppreisnin
vegna óánægju hermanna með
launakjör, og byrjuðu þeir með
þvi að hertaka Asmara, aðra
mestu borg keisaradæmisins, til
að leggja áherslu á kaupkröfur
sinar. Liðþjálfi nokkur i land-
hernum kvað hafa orðið fyrstur
til að hvetja til aðgerðanna.