Þjóðviljinn - 24.03.1974, Side 12
\
MOÐMHNN
Sunnudagur 24. marz 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgarvarsla
lyfjabúða i Reykjavik 22.-28.
mars verður i Reykjavikur- og
Borgarapóteki.
Slysavaröstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
VORDAGU
Á þriðjudaginn var kom
vorið til okkar, rétt svona
eins og krakki sem rekur
nefið í gættina, segir hó og
er svo horfinn. Þeir gerast
ekki öllu fallegri né betri
sumardagarnir á íslandi,
en var þennan þriðjudag á
Góu.
Og þótt verið sé að tala um að
allt breytist i veröldinni, sem
sjálfsagt er nokkuð til i, þá er eitt
sem ekki breytist á Islandi, við-
brögð barnanna þegar vorið
kemur, hvort heldur það þjóf-
startar eins og þriðjudaginn eða
þegar það kemur fyrir alvöru.
Sippibönd eru komin á loft,
boltar farnir að skoppa utanhúss
og hinn öruggi vorboði, strákar að
veiða kola, ufsa og marhnút niður
á bryggju. Og þegar við fullorðna
fólkinu blasir sjón eins og myndin
af Rauöarárvikinni sýnir, þá
hægja menn á sér og setja gjarn-
an húfuna eða hattinn aftar á
hnakkann, hendurnar aftur fyrir
bak og dæsa af tánægju.
En svo liður þsssi ágæti dagur
og menn vakna morguninn eftir
og byrja á þvi að gá til veðurs að
gömlum islenskum siö, spenntir
eftir að vita hvort vorið hafði að-
eins þjófstartað eða hvort það
ætlar að standa aðeins lengur við,
áður en þaö kemur fyrir alvöru.
Og viti menn, það er enn ekki
Myndir og texti S.dór.
fjarri gættinni. A miðvikudaginn
var enn ágætt veður, þótt ekki
jafnaðist það á við þriðjudaginn.
Voriö var sem sé ekki alveg farið
aftur.
Og nú þegar aðeins lifir einn
dagur af Góu og Einmánuður
tekur við á morgun megum við
fara að vonast eftir þvi, aö vorið
hoppi inn til okkar dag og dag,
uns það kemur og sest að fyrir
alvöru á Hörpu, eða á að minnsta
kosti aö gera það,og þá erum við
jafn örg út i Vetur konung ef hann
lætur sjá sig og við erum glöð
þegar vorið þjófstartar á Góu.
En ef vel vorar, þá megum við
gera ráð fyrir að sjá strákana oft-
ar með færin sin niður á bryggju,
sjá reykin úr loðnubræöslunum
stiga þráðbeint upp i loftið yfir
bátana sem dorma i veðurbliö-
unni viö bryggjurnar, og viö sjá-
um þá einnig krakkana að leik
niðri i fjörunum i kringum
Reykjavik, og þegar við förum að
sjá þetta daglega, þá er komið
vor.
Galdra-
nornir og
herramenn
i Norrœna
húsinu
„Háxor och herremán"
eöa galdranornir og herra-
menn nefnist leikrit, sem
Friteatern leikur í Nor-
ræna húsinu á næstunni og
f iallar um galdraofsóknir í
Svíþjóð á 17. öld.
Friteatern er vel þekktur leik-
flokkur i sinu heimalandi, Svi-
þjóð, og reyndar isiensku leikhús-
áhugafólki að góðu kunnur einnig
siðan flokkurinn sýndi leikritið
„Goðsaga” i Norræna húsinu
fyriru.þ.b. tveim árum. Fyrirliði
hópsins er Marta Vestin.
Sýningar á Háxor och herre-
mán” hér verða a.m.k. fjórar
dagana 3.-6. april. Auk þess
verður einhvern þessara daga
haldinn fyrirlestur og veitt
fræðsla um leiklist, bæði fyrir
leikara og annað áhugafólk.
Aðgöngumiðar að sýningum
Friteatern veröa seldir f kaffi-
stofu Norræna hússins frá mánu-
deginum 1. apríl.