Þjóðviljinn - 15.05.1974, Síða 1

Þjóðviljinn - 15.05.1974, Síða 1
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7, NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2. SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3 SÍMI 40102 BÓTARÉTTUR ÞEIRRA SEM ENGAR TEKJUR HAFA: Adda Bára Hækkun 285% á valda- tíma vinstristjómar Framfœrsluvísitalan hefur á sama tíma hœkkað um 56%. Almennur ellilífeyrir hefur hœkkað um 149% Það kemur fram i við- tali sem Þjóðviljinn birtir i dag við öddu Báru Sigfúsdóttur, sem skipar 2. sætið á fram- boðslista Alþýðubanda- lagsins i borgar- stjórnarkosningunum, að geysileg hækkun hef- ur orðið á bótarétti al- og þó sérstaklega á bótarétti þeirra sem engar tekjur hafa, og fá nú svonefnda tekju- tryggingu. I viötalinu segir Adda Bára: „I júli 1971, þegar rikisstjórnin var mynduö átti þetta fólk rétt á 4.900 á mánuöi. Þaö gat aö visu hugsanlega fengiö meira en þurfti þá að snúa sér til viðkomandi sveitarfélags, hér i Reykjavik til borgarinnar, og aöeins meö beiöni frá framfærsluyfirvöldum i Reykjavik var unnt að fá viöbót- ina. Gamla styrkþegasjónarmið- ið var semsé rikjandi og margir skirröust við að biöja um þaö sem þeim fannst vera náðarbrauö. Þessu var breytt strax i ágúst 1971, þannig aö réttur til uppbótar varð óháður sveitarfélaginu. Nú erellilifeyrinnkr. 12.215 á mánuöi og þeir sem engar aörar tekjur hafa, eiga rétt á uppbót, sem nemur 6670 kr. á mánuöi. A þessum tima hefur þvi al- mennur ellilifeyrir hækkaö um 149% og bótaréttur þeirra sem engar aðrar tekjur hafa um 285%. Framfærsluvisitalan hefur hins vegar hækkað um 56% á sama tima (þ.e. frá júni 1971 til apríl 1974)”. Viötaliö viö öddu Báru er á 4. siöu. mennra ellilifeyrisþega Fimm skip komin á Norðursjóinn Fimm isiensk sildveiöiskip eru þegar komin til veiða i Norður- sjónum og eru farin aö fá afla og hafa selt fyrir allgott verð. Skipin sem komin eru á miöin eru Guðmundur RE- Börkur NK, Loftur Baldviníi. „n,Helga RE og Faxaborg. Guðmundur RE seldi fyrstur hinn 7. mai sl. 150 tonn af sild fyr- ir 4,2 milj. kr. eða um 30 kr. með- alverð fyrir kg. Þann 11. mai seldu Helga RE og Guðmundur RE samtals 323,1 tonn fyrir 5,8 miljónir eða um 15 kr. meðalverð fyrir kg, en þess ber að geta að stór hluti aflans fór i bræðslu. Næst seldu Helga, Guðmundur og Börkur samtals 230 tonn fyrir 6,8 milj. eða um 30 kr fyrir kg. Frá 1. febrúar til 15. júni mega islensku skipin veiða samtals 2500 tonn i Norðursjónum. Frá 15. júni til 1. júli eru engin kvótamörk, en frá 1. júli til 1. febrúar mega skip- in veiða 30 þúsund lestir. t fyrra fóru milli 40 og 50 skip til veiða i Norðursjónum, og er búist við að þau verði fleiri i ár vegna þess að ekki verður um neina humarveiði að ræða i sumar. Það er þvi ekki óliklegt að milli 50 og 60 skip fari til sildveiðanna i Norðursjónum i sumar og haust. Þótt 5 skip séu þegar farin til veiða er ekki búist við að skipin fari almennt fyrr en um næstu mánaðamót. —S.dór í SOL OG SUMARYL Krakkarnir undu sér vel í Hljómskálagarðinum i gaer að lokinni skólavist^ Veðurbliðan undanfarnar vikur náði hámarki með sólríkum og hlýjuin degi. (Ljósm. AK) ÓLAFSYÍK í blaðinu í dag segjum við frá heimsókn okkar til hins blómlega útgerðar- bæjar ólafsvikur, en þang- að brugðum við Þjóðvilja- menn okkur fyrir skömmu. Þar ræddum við við hreppsnefndarmann, raf- veitustjórann og fólk í fiskvinnu. Sjá bls. 7-8-9 og 10. Undirskriftir gegn bömum! íbúar einbýlishúsahverfis viö Hábæ I Árbæjarhverfi hafa tekiö sig saman og safnaö undirskriftum gegn þvi, aö rekið vcrði barnaheimili i einu einbýlishúsanna. Hópur foreldra, sem ekki hefur getað fengið inni fyrir börn sin á dagheimilum borg- arinnar, heíur tekið umrætt hús á leigu og hafið undirbún- ing að rekstri dagheimilis fyr- ir börnin með samþykki og til- styrk borgarinnar samkvæmt nýju lögunum um dagvist- unarstofnanir og þátt rikisins i rekstri þeirra. Þegar undirbúningurinn hófst þótti fólkinu viðkunnan- legra að láta nágranna húss- ins vita hvað til stæði og kynna þeim væntanlega starfsemi. Og viðbrögðin létu ekki á sér standa: undirskriftum var safnað undir mótmæli og þau send borgarráði. Börn eru semsé greinilega óvelkomin i þetta rikismanna- hverfi og minna þessar að- gerðir óhugnanlega á undir- skriftasöfnun i öðru sliku hverfi fyrir nokkrum árum, þar sem ibúarnir ætluðu að koma i veg fyrir, að fyrrver- andi sjúklingar fengju húsa- skjól. —vh Alþýðubandalagið FÉLAGS- FUNDUR Alþýðubandalagið i Reykja- vik heldur félagsfund i kvöld kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 3. DAGSKRÁ: 1. Kosin kjörnefnd vegna al- þingiskosninganna, stjórnar- kjörs i Alþýðubandalaginu i Reykjavik og kjörs fulltrúa á landsfund Alþýðubandalags- ins. 2. Adda Bára Sigfúsdóttir segir frá starfi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins á þvi kjörtimabili, sem nú er senn á enda. 3. önnur mál. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.