Þjóðviljinn - 15.05.1974, Síða 3
Þriðjudagur 14. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Listamanna-
þing krefst
brottfarar
herliðsins
Laugardaginn 27. aprfl var háð
Listamannaþing 1974 I Reykja-
vik. Umræðuefni þingsins var:
„Frelsi listamannsins gagnvart
þjóðf éla gs v a ldin u ”.
Frummælendur voru:
Matthias Jóhannessen skáld,
Hjörleifur Sigurðsson listmálari,
Ólafur Haukur S'imonarson rit-
höfundur, Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur og Hannes Kr. Daviðs-
son arkitekt.
Meðfylgjandi þrjár ályktanir
voru samþykktar samhljóða i lok
þingsins, en þær hafa verið send-
ar réttum aðilum:
Herstöðvamálið
„Listamannaþing 1974 lýsir þvi
yfir, að óþolandi sé að erlendur
her sé á islenskri grund”.
Um lista- og
menningarstofnanir
„Listamannaþing 1974haldið til
að ræða stöðu listamannsins
gagnvart þjóðfélagsvaldinu,
beinir þeirri áskorun til rikis-
stjórnar Islands, að hún hlutist til
um að endurskoðaðar verði regl-
ur og lög um lista- og menningar-
stofnanir á Islandi, með það fyrir
augum að útilokuð verði flokks-
pólitisk áhrif á starfsemi þeirra.”
Skoðanakúgun sovéskra
„Listamannaþing 1974 mót-
mælir harðlega skoðanakúgun
sovéskra stjórnvalda gagnvart
þarlendum listamönnum, sem
kemur m.a. fram i þvi að fiytja
rithöfundinn Alexander
Soltsjenytsyn nauðugan úr landi
og meina honum að birta verk sin
fyrir þjóð sinni”.
Schereiber
styður
d’Estaing
PARIS 14/5 — Jean-Jacques
Schreiber, aðalritari svokallaðs
radikal-sósialistaflokks i Frakk-
landi, sagði i dag að stjórn flokks
hans hefði ákveðið að styðja
ihaldsframbjóðandann Valery
Giscard d’Estaing i forseta-
kosningunum. Radikal-sósialist-
ar þessir munu telja sig einskon-
ar milliflokk.
Servan-Schreiber sagðist telja
að sjötiu af hundraði fylgismanna
flokksins myndu hlýða kalli for-
ustunnar og styðja ihaldið, en
hinir myndu kjósa Mitterand,
frambjóðanda vinstrifylkingar-
innar.
„Kann aö vera
að ég sé ekki
nógu duglegur”
Við höfðum spurnir af
því að Svavari Guðna-
syni hefði verið falið að
gera mynd fyrir
Reykjavíkurborg og
slógum við þvi á þráðinn
til Svavars til að spyrj-
ast nánar um þetta.
— bað er rétt, ég hef verið
beðinn að gera mynd i sam-
bandi við ellefu hundrað ára
hátiðahöldin. Þetta verður
nokkuð stór mynd, um 4 fer-
metrar.
— Veistu hvar myndinni
verður valinn staður?
— Mér skilst að það komi til
greina ýmsir staðir, jafnvel
súkrahús eða bókasafn.
— Hvað er langt siðan þú
hefur unnið verk fyrir opin-
bera aðila?
— Ég gerði fyrir nokkrum
árum mynd fyrir danska rikið
og er hún á stúdentaheimili i
Árósum. Svo gerðl ég stóra
mynd fyrir Búnaðarbankann
og er hún i nýjum húsakynn-
um bankans við Hlemm.
Myndin, sem ég gerði fyrir
Dani, er stærsta mynd sem ég
hef gert — heilir tiu fermetrar.
— Er von á einkasýningu
hjá þér á næstunni?
— Ég hef ekki ákveðið neitt
slikt.
— Þú sendir við og við
myndir á sýningar i Dan-
mörku?
— Ég hef skrópað dálitið i
þvi núna upp á næstuna, en
hygg nú gott til þess að fara
utan um áramótin næstu og
taka þátt i Grönningen-sýn-
ingu.
— Selurðu þá dálitið heima-
við?
— Ég get selt miklu meira
en ég get málað, góði, en hitt
kann að vera að ég sé ekki
nógu duglegur. Ætli það liggi
ekki i þvi hvað ég er orðinn
gamall og ónýtur...
o
Birgir Thorlacius:
„Mikil fjárfestingarþörf á
framhaldsstiginu”
MT flyst í Vogaskóla - Tækniskólinn fœr
inni við Höfðabakka - Ekkert gert fyrir MR
— Það er griðarlega mikil fjár-
festingarþörf á framhaldsskóla-
stiginu, sagði Birgir Thorlacius
ráðuneytisstjóri i menntamála-
ráðuneyti er blaðið spurði hann
eftir húsnæðismálum Mennta-
skólans við Tjörnina og annarra
framhaldsskóla. En eins og blaðið
greindi frá i gær er i bigerð að MT
fái þann hluta húsnæðis Voga-
skóla scm hýst hefur gagnfræða-
deildirnar.
— Það hefur náðst samkomulag
milli ráðuneytisins og fræðslu-
ráðs Reykjavikur um að MT yfir-
taki þennan hluta Vogaskólans i
áföngum, þannig að hann verði
fluttur þangað allur haustið 1976.
Þetta á þó eftir að taka fyrir i
borgarstjórn.
Birgir taldi upp það sem
menntaskólastigið vantaði til
fjárfestingar og var það á þá lund
að eftir væri að fullgera þrjá
skóla, MH, M1 og ML og að
byggja þyrfti yfir þrjá til viðbót-
ar. MT,skólann á Austurlandi og
þann i Kópavogi.
Þessi lausn á húsnæðisvanda
MT er þannig hugsuð að með þvi
að fresta þvi að byggja yfir skól-
ann á lóð þeirri sem honum hefur
verið úthlutað i Laugardal og
koma honum fyrir i Vogaskóla
væri hægt að leggja meiri áherslu
á byggingu fjölbrautarskóla i
Breiðholti en sá skóli mun verða á
menntaskólastigi.
Gagnfræðadeildir Vogaskóla
eiga að flytjast i Langholtsskóla
en til þess að það verði hægt þarf
að ljúka við að byggja hann. Væri
það mun ódýrara og hentugra en
að byrja á nýrri byggingu fyrir
MT. Námsflokkar Reykjavikur
munu svo yfirtaka gamla Mið-
bæjarskólann eftir þvi sem hann
losnar.
Blaðið innti Birgi eftir þvi hvað
fyrirhugað væri að gera til lausn-
ar á húsnæðisvanda Tækniskól-
ans. Sagði hann að á fjárlögum
væri heimild til að selja núver-
andi húsnæði skólans við Skipholt
til að standa straum af leigu á
nýju húsnæði og stofnkostnaði.
Væri nú svo til afráðið að taka á
leigu hluta af stórhýsi við Höfða-
bakka á Ártúnshöfða og væri
skólastjórn Tækniskólans sam-
þykk þeirri ráðstöfun.
Ekki kvað Birgir neinar úrbæt-
ur fyrirhugaðar á húsnæðisvanda
Menntaskólans i Reykjavik.
Lóðarrými leyfði ekki nýbygg-
ingu og svo væri stefnt að þvi að
fækka i skólanum þegar MT væri
kominn i nýtt húsnæði.
Blaðið reyndi að ná i rektor MT.
Björn Bjarnason, og spyrja hann
álits á nýja húsnæðinu en hann
hafði þá brugðið sér úr borginni.
—ÞII
ítalskur harmoníku-
snillingur á ferð
„Ég er byltingarsinnaður tónlistarmaður -
samfélagsvitund min gerir mig að tónlistarmanni”
„Tónlistarmenn ættu að vinna á
meðal fólksins og nota tónlistina
til að breyta þjóðfélaginu —
breyta viðhorfi fólks til tónlistar
Jarðskjálftar
í Júgóslavíu
BELGRAD, HONGKONG 13/5
Samdægurs varð vart allsterkra
jarðskjálftakippa i Júgóslaviu og
Kina. I Kina hefur jarðskjálfti
sem mældist 7,1 stig á Richter
valdið allmiklu tjóni á fólki og
mannvirkjum i Júnanhéraði i
suðvesturhluta landsins. í Skoplje
i Júgóslaviu fundust kippir upp á
5—6 stig, en ekki hafa þeir valdið
teljandi tjóni. Skoplje lagðist að
verulegu leyti i rústir i miklum
jarðskjálftum 1963.
— ég er byltingarsinnaður tón-
listarmaður”.
Það er italski tónfræði- og tón-
smiðaprófessorinn Salvatore di
Gesualdo, sem þannig talar.
Salvatore di Gesualdo er stadd-
ur hér á landi núna og hefur með
sér harmoniku sina, sem hann
leikur á sigilda tónlist af ýmsu
tagi, tónlist eftir gömlu meistar-
ana, núlifandi snillinga og sjálfan
sig, sem rétt er að telja til þeirra
siðarnefndu.
Gesualdo heldur af' stað i tón-
leikaför um landið næstu daga og
mun leika á Akranesi, Akureyri,
Húsavik, Neskaupstað og ef til
vill viðar. Sl. laugardagskvöld lék
hann i Þjóðleikhúskjallaranum,
en áheyrendur voru fáir og að
sögn umboðsmanns Gesualdo hér
á landi, mjög dónalegir sumir.
„Fólk kann ekki að meta
harmonikuna”, sagði Gesualdo,
„það telur hana afþreyingartæki,
og hún er yfirleitt notuð sem slikt
tæki, notuð til að græða á pen-
inga. Ég mótmæli slikri notkun á
þessu hljóðfæri og tek upp þráð-
inn frá Segovia. Segovia gerði git-
arinn að verðugum fulltrúa i fjöl-
skyldu hljóðfæranna. Hann leikur
sigilda tónlist á gitarinn og gerir
það stórfenglega. Ég reyni það
sama með harmonikuna”.
Þeir sem heyrt hafa Gesualdo
leika, eru margir á þvi, að hann
verðskuldi að honum sé likt við
Segovia. Hann starfar við Cheru-
bini tónlistarháskólann i Flórens,
en við og við fer hann i hljóm-
leikaferðir. Hann kom t.d. til ts-
lands árið 1972 — og segir um
landið: „Ég er mjög hrifinn af
Salvatore di Gesualdo — tón-
fræðiprófessor frá Flórens sem
ferðast um landið og heldur tón-
lcika.
landinu. Það höfðar mjög til mins
suðræna eðlis, landslagið, litirnir,
þetta er allt stórfenglegt — ég
skynja landið af djúpri tilfinn-
ingu. Ég vildi aðeins óska þess, að
ég næði eins góðu sambandi við
fólkið i landinu gegnum harmoik-
una mina”.
— Tónlist og pólitik — hvernig
fer það saman?
„Ég vil gera tónlistina að póli-
tisku tæki. Ég er ekki aðeins tón-
listarmaður — ég er frekar bylt-
ingarsinnaður tónlistarmaður.
Og sem slikur, þá mun ég alla tið
berjast gegn stofnuninni. Stofn-
unin á Italiu er kapitalisminn. og
kapitalisminn stendur i vegi fyrir
listinni. List, öll góð list, öll sönn
menning, kemur frá vinstri —
kemur frá fólkinu i hverju landi —
og þvi verður byltingarsinnaður
tónlistarmaður að berjast við
stofnunina, alveg eins og bvlt-
ingarsinnaður málari eða rithöf-
undur. Þess vegna notfæri ég mér
sfölna tónlistarhefð, jafnframt þvi
sem ég sem verk min út frá minni
pólitlsku vitund”.
Salvatore di Gesualdo hefur
leikib inn á band fyrir Rikisút-
varpið, hann hefur komið fram i
islenska sjónvarpinu, og 1972. er
hann var hér á ferð. hélt hann
fjölsótta tónleika i Norræna hús-
inu.
—GG