Þjóðviljinn - 18.05.1974, Blaðsíða 15
Laugardagur 18. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
i&m s
Kraftlyftingameist-
aramótið háð í dag
Kraftlyftingameistaramót
Islands fer fram i æfingasal
lyftingamanna i Sænska
frystihúsinu i dag og hefst
keppni i léttari þygndarflokk-
um kl. 15, en i þyngri flokk-
unum kl. 17. Allir bestu kraft-
lyftingamenn landsins verða
meðal þátttakenda.
Jafntefli hjá FH
ogBreiöabSiki 1:1
Fyrsti leikur 2.-deildarkeppni
Islandsmótsins i knattspyrnu fór
fram sl. fimmtudag og mættust
þá FH og Breiðablik á leikvelli
Hafnfirðinga i Kapplakrika.
Leiknum lauk með jafntefli 1:1.
Síöasta
Hljóm-
skála-
hlaup ÍR
Síðasta Hljómskálahlaup 1R á
þessu ári fer fram á morgun,
sunnudag, og hefst kl. 14. Hljóm-
skálahlaupin hafa verið mjög vel
sótt i vetur, betur en nokkru sinni
fyrr, og má búast við mjög harðri
keppni um efsta sætið, en sá er
bestan tima hefur útúr öllum
hlaupunum samanlagt sigrar.
FH lék undan mjög sterkum
vindi i fyrri hálfleik en tókst þó
ekki að skora fyrr en á marka-
minútunni, þeirri 43. Þannig var
svo staðan i leikhléi, 1:0 FH i vil.
Strax á 3. minútu siðari hálf-
leiks jafnaði Brciðáblik og -
bjuggust menn við að Blikarnir
myndu vinna auðveldan sigur, en
svo varð þó ekki, oftar vildi
boltinn ekki i netið.
Þessi leikur verður að teljast
afar þýðinarmikill fyrir þessi lið
sem eru talin liklegust til sigurs i
mótinu i sumar.
Ársþing
BLI
Arsþing Blaksambands fslands
verður haldið I dag að Hótel Loft-
leiðum og hefst kl. 13.30.
Að venju verða mörg mál tekin
fyrir á þinginu enda hefur starf-
semi Blaksambandsiiis aukist
verulega á siðasta vetri og
framundan er liflegt starf hjá
sambandinu.
WWt
síiV^^
*Í"'S
'jtf
^tm *
islandsmeistarar iBK. Tekstþeim að verja titilinn íár?
l.-deildarkeppni íslandsmótsins hefst í dag
Víkingur
IBV
IBK
Fram
Akranes-Valur
leika í dag, en KR — IBA á morgun
l.-deildarkeppni islands-
mótsins i knattspyrnu
hefst i dag og þar með er
keppnistímabilið í knatt-
spyrnunni hafið fyrir al-
vöru. Þrir leikir fara fram
i dag. Á Melavellinum
leika Vikingur og ÍBV, kl.
14 á Njarðvíkurvelli ÍBK
og Fram, og hefst sá leikur
kl. 14, en kl. 16 hefst á
Akranesi leikur IA og Vals.
Á morgun kl. 16 hefst svo
leikur KR og IBA á Mela-
vellinum.
Það er samdóma álit manna að
þetta tslandsmót verði jafnara en
mótið i fyrra, þar sem Keflvik-
ingar voru i slikum sérflokki að
engu liði þýddi að etja við þá
kapp. Ekkert lið hefur sýnt þá
getu i vor að ástæða sé til að ætla
að eitthvað svipað gerist i ár.
I Þjóðviljanum i gær spáðu 8
knattspyrnuáhugamenn um úrslit
íslandsmótsins og verður fróðlegt
að sjá i haust hver þeirra kemst
næst hinu rétta.
Ekki er ég alveg sammála
þeirri heildarniðurstöðu sem kom
út úr þeirri spá. Við höfum alltaf
gert það að gamni okkar hér á
iþróttasiðu Þjóðviljans að geta
okkur til um úrslit mótsins og ætl-
um ekki að bregða út af þeirri
venju nú.
Heildarniðurstaða spámanna
okkar i gær varð sú að IBK yrði i 1.
sæti, Fram i 2. og Vikingur i 3.
sæti. Ég hef ekki trú á að þessi
verði röð liðanna. Ekki kæmi mér
á óvart þótt IBK og Vikingur yrðu
á toppbaráttunni, en þó ber þess
að geta að Vikingur hefur aldrei
verið grasvallalið, enda á félagið
ekki grasvöll og getur sú stað-
reynd sett strik i reikninginn.
Eg hef þá trú að tBK, Valur,
Vikingur og 1A muni berjast um
toppinn og þá frekast ÍBK, IA og
Valur. Þá hygg ég að Fram og
IBV verði um miðja deild en KR
og IBA i tveimur neðstu sætunum
og að IBA falli niður i 2. deild. Ef
ég ætti að gera nákvæma spá
myndi röðin verða þessi:
. 1. IBK
2. Valur
3. IA
4. Vikingur
5. IBV
6. Fram
7. KR
8. IBA. —S.dór
U-landsliöiö heldur
til Svíþj. á mánudag
islenska unglingalandsliðið
i knattspyrnu heldur utan til
Sviþjóðar á mánudaginn þar
sem það mun taka þátt I loka-
keppni HM unglinga
islenska liðið er i riðli með
þvi rúmenska, finnska og
skoska og verða leikir islenska
liðsins sem hér segir:
island — S kotland 22. mai
ísland — Rúmenia 24. mai
island — Finnland 26. mai
Leikirnir fara fram i
Rönneby I Sviþjóð. Sigur-
vegari i hverjum riðli heldur
áfram i undanúrslit
keppninnar sem hefjast 29.
mai.
íslenska liðið verður þannig
skipað:
Ólafur Magnússon Val (1),
Guðjón Þórðarson iA <2),
Guðjón Hilmarsson KR (3),
Björn Guðmundsson Vikingi
(4), Janus Guðlaugsson FH
(5) fyrirliði, Viðar Eliasson
ÍBV (6), Hannes Lárusson Vai
(7), Gunniaugur Þór Krist-
finnsson Vikingi (8),Kristinn
Björnsson Val (9), öskar
Tómasson Vikingi (10), Jón
Þorbjörnsson Þrótti (12), Arni
Valgeirsson Þrótti(13) , Arni
Sveinsson ÍA (14), Ragnar
Gislason Vikingi (15),
Erlendur„Björnsson Þrótti
(17), Einar Arnason KR (18).
Númcrin i svigum fyrir
aftan nöfn leikmanna eru
treyjunúmcr þeirra, er þeir
leika með iiðinu.
Kristinn Björnsson, besti sóknarieikmaður u-iandsiiðsins, sést hér
skora annað marka sinna i leiknum við Skota í haust er ieið.
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON