Þjóðviljinn - 30.05.1974, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 30.05.1974, Qupperneq 9
Fimmtudagur :iO. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Þorsteinn Antonsson: KOLUR Mér — ungum rithöfundi! hefur reynst vandasamast i samskiptum minum við útgef- endur að sannfæra þá um, að þeir skuli gefa út bók eftir mig, sem útgefandinn mun sennilega tapa á. Er þá bókin svona léleg, eða markaður fyrir bækur svona litill i land- inu? Hvorugt. útgáfa bóka er orðin svo sérviskuleg, svo djúpt grópuð i ákveðið far, að hún stendur af sér, likt og freðin niður i svell, öll tækifæri til endurnýjunar. t áratugi hafa útgefendur biðlað til sama smekks hjá væntanleg- um kaupendum. Á meðari hef- ur þessi smekkur breyst eins og aðrar hugsýnir hefur þeirra ekki elst, þótt kaupendurnir væntanlegu hafi reynst háðir venjulegum náttúrlegum og félagslegum lögmálum, ný sölutækifæri hafi sprottið upp og tengst fjölmörgum nýjum markaðsöflum, hefur útgáfan staðið i stað og útgefendur tekið að likjast æ meir Don Quixote, að berjast við vind- millur og heita á sér til full- tingis Dulsineu eigin draum- óraheims. Hvað verður til að mynda um fólk, sem hverfur áhugi á poppi, þegar kemur fram á fullorðinsár? Án full- nægju rennur lifsljóð þess saman við steinsteypu, hús- gögn með afborgunarskilmál- um og bila, bækur eru ekki skrifaðar á máli þess, ekki um þær fjallað á máli þess, ekki boðnar fram á máli þess, og þvi er runnið i blóð og merg að lita á bókaútgáfuna sem há- mark fáránleikans i þjóðlif- inu. Riddarinn berst við vind- myllur og lofsyngur sina Dulsineu á meðan, en mærin skilur ekki mynd sina i huga riddarans, þótt hún sé næmari á hefðir og þar með þann sérstæða glæsibrag, sem er á baráttunni, öll verk skulu vera i viðhafnarbúningi, tæki- færisskaup sem ljóð þjóð- skálda, tvipökkuðstrax og þau eru boðin fram, og helst gullá- letruð, þvi að gull er augna- yndi Dulsineu, pappir bók- anna svellþykkur, svo að nógu mikið fari fyrir bókinni i hillu, tiu eða tólf aukasiður framan og aftan við meginmálið, helst auðar, þvi að pappirsbruðl er þeim upphefð, sem komin er af fátækum, spássiur stórar, svo að Dulsineu glýi i augun við að horfa á textann, likt og hún sitji undir hundrað kerta peru og stari á hjarngljáandi frystikistu, og letrið gliðru- legt, sem svarar blankugljá- anum. Þegar lokið er slikum plastikskurðaðgerðum á handriti höfundar, sem ekki er samkvæmt sér nema finlegust blæbrigði þess komist til skila, skiptir orðið litlu, hvað i bók- inni stendur, öllu að hún er til, höfundurinn frægist af afl- raunum. Bætið við tiu til tuttugu prentvillum og útkom- an verður það makalausa fyrirbæri, gjafabókin, sem út- gefendur telja að höfði sterk- ast til kaupvildar manna. Við, sem höfðum til skiln- ingarvita fólks, eigum erfitt með að koma orðum að þvi, sem fyrir okkur vakir, frammi fyrir slikri sölumennsku. „Hvernig væri að ljósrita verkið,” segi ég við einhvern útgefandann, ,,og binda það ekki inn? Núorðið er hægt að gera bók varanlega án alls saumaskapar?” Og minni á þúsundir pappirskilja, sem jafnan liggja frammi i bóka- búðum, svo litauðugar, að jafnvel gæti komið regnbog- anum til að roðna.' Og við- bragðið er alltaf hið sama, likt og klappað i stein: ,,Ég vil ekki sitja af mér gjafamark- aðinn.” í vetrarbyrjun hefst svo ár- viss geðlátaleikur, ofboðsleg- ur i dólgshætti sinum og smekkleysi, þegár tuttugu menn reyna að komast i einu gegnum sömu dyrnar, allir með fangið fullt af bókum. Og stendur fram undir jól. Þetta er fengitimi riddarans og Dul- sineu, þvi að aðra tima árs tel- ur hann, að hún hafi ekki nátt- úru til nýútkominna bóka. Frá sjónarmiði hinna væntanlegu neytenda litur málið öðruvisi út, þeim eru þessir sölu- mannshættir samviskuraun, sem ekki verði komist hjá, og þvi þrautaúrræði að takmarka hana við ákveðinn tima og hafa hann knappan. Á strjál- ingi meðal manna er vfsir að sönnum bókmenntaáhuga, en vitund þeirra, allra, um það hol er menn bera i brjósti, þar sem bókmenntirnar höfðu brennt sig inn sem menning- ararfleifð en þaðan sem þeim hefur verið vikið og fyllt hefur verið með verðrýrnandi pen- ingaseðlum, er haldið svifandi milli himins og jarðar, óljósri, óskiljanlegri, með tungutaki Undralands Lewis Caroll, hinu þögla máli, sem einstaka sirin- um nær að verða persónulegt, likt og tungustifður munnur mæli fram þras eða smjaður: froðusnakki um listir. Þegar fegrunaraðgerðin hefur farið fram, tekur það við, og undir grimu þess svæfingalæknis sefur árið út sá vilji, sem vit- andi vits myndi kaupa sér bók óháð fengitið útgefenda. Stundum spyr útgefandi, er hann skilar mér handriti eftir nokkurra vikna umsátur mitt um skrifstofu hans: „Ertu að skrifa fyrir gagnrýnendur?” Og á við, að ég sé ekki að skrifa fyrir Dulsineu. Taki ég þá að útlista skoðanir minar á markaðstækifærum, verður hann á svipinn eins og hann haldi að ég sé með hand- sprengju i vásanum. Bón er það og bón skal það vera, þetta sölutilboð mitt um af- notarétt, sem útgefandinn hef- ur þvi miður ekki séð sér fært að verða við („Kannski næsta ár”), á öðrum forsendum fæst hann ekki til að ræða útgáfu. Avinningur getur orðið af henni að visu, hann veit það, þótt salan gangi hægt, höfund- arheitið tengist útgáfunni, uppblásið af fjölmiðlum, og getur orðið með óbeinum hætti til að auka markaðsgengi alls, sem frá útgáfunni kemur, á huglægu plani leggst „hið list- ræna” verksins, sefnæmt en ósýnilegt á hibýlin, veggi og loft útgáfunnar og jafn vel út- gefandann sjálfan og smitar frá sér oft með sömu afleið- ingu. En undir grimu svæf- ingalæknisins gerist útgefand- inn sjálfur fulltrúi gervisam- hengis: rithöfundurinn bendir ekki á holur i kerfinu, heldur málar þær á sjálfur, um það er útgefandinn sammála gagn- rýnandanum. Nú hækkar allt, eftir þvi sem fram vindur árinu. Jóla- bókin og jólaskyrtan verða jafn dýrar i haust. Útgefendur hafa þingað um vandamál sin, niðurstaða orðið, að hagsmun- ir þeirra og rithöfunda væru ekki tveir farvegir, heldur einn. Af þvi verður séð, að rit- höfundum hefur orðið ágengt i baráttu sinni undanfarin ár. Útgefendur benda sjálfir á gott dæmi þessara hagsmuna- tengsla með umleitan sinni, að bækur verði ekki lagðar fram á bókasöfnum, fyrr en að liðn- um aðlögunartima frá útkomu þeirra á markaði. Þessi eftir- leitan er viðleitni til verndar frjálsu einkaframtaki, sið- ferðislega réttmæt, sem sést af þvi, að þeir menn leita helst eftir að komast yfir bækur fyrir ekki neitt og semfyrst, er nota þær til að ganga i augu annarra, eða lifa óigrundað i hyllingu hins þögla máls, aftanihossar tiskunnar, hinar dáleiddu hænur gagnrýninnar. En séð verður af þvi, að útgef- endur skuli kenna hag sinn i að bera fram þessa umleitan, og þvi, að útlán safna eru mikil og fara vaxandi, hve tak- markaður áhugi manna raun- ar er á hinum forkostulega frá- gangi og útgáfuháttum bóka, mikill fjöldi manna vilJ lesa bók i eitt skipti og gleyma svo hamnum af henni, það setur i bókahilluna hjá sér ebonvið- arstyttu af negra og vikurstein ofan úr Þjórsárdal. Þannig felst i þessari umleitan einnig rök fyrir einföldun útgáfunn- ar. Með henni og jarðbundnari kynningaraðferðum en nú tiðkast, og um leið aukinni og örari sölu, ættu rithöfundar, sem þinguðu um sama leiti og vilja nú prósentur af sölu — ekki greiðslu i eitt skipti fyrir öll, eins og áður — (taka þar með þátt i tapi útgefenda af verðgildisrýrnun krónunnar) — I það minnsta að bera jafn- ari hlut frá borði.en ella. Ég hef nú dregið upp linur til afmörkunar þremur stórum hópum, sem hver fyrir sig og allir saman hefðu mikinn hag af stórfelldi einföldun og vit- væðingu bókaútgáfunnar. Þessir hópar eru yngra fólk, þeir, sem raunverulegan bók- menntaáhuga hafa og safn- gesturinn, leitandinn. Þegar upp rennur fyrir mönnum yfirleitt, að þeir eru fremur safngestir en verðir, mun hagur bókmenntanna fyrst hafa batnað til muna. Breytingar á sviði þeirra eru hægari, óræðari, þjáninga- fyllri en á öðrum, þvi að þær eru fremur félagslegum mál- efnum öðrum tilfinningamál. En breytingar verða þó. Sem safnverðir hafa Islendingar verið svo múlbundnir af vana- hegðun, að þeir hafa ekki séð. safngesti fyrir sýningargrip- um. Og safn þeirra var fornt, þjóðminjasafn. Svo glám- skyggnir urðu þeir, að þeim sást yfir tilurðarstigið, lifið sjálft, i námsbókum um þjóð- leg verðmæti var engra getið úr lifi þeirra sjálfra, skáld samtimans sáust þar ekki. Glámskyggnin óx og varð inn á við að tærandi ugg, en út á við að þýlyndi. Jafnvel inn- fluttum bókum var gert hærra undir höfði en innlendum. En tæring óvissunnar dró niður i kolunum á þessu safni, uns þær lögðust út af og um skipt- ist og vafurbjarmi nýrrar tið- ar fór ljósi sinu um sali, i þeirri birtu urðu safnverðirnir að gestum. Timi varðanna er liðinn. Kannski skiljum við það öll einhvern tima. Meðan við biðum þess, reynum að sjá okkur sjálf og hvert annað. Tökum undir með þeim, sem ekki geta að sér gert, en bæta hag annarra, um leið og þeir bæta sinn eiginn. Gefum út- gefendum eftir tollinn af pappirnum, sem á fer innlent prentmál, fyrst hið erlenda er ótollað, sjáum hvernig þeim nýtist hann. Sleppum af þeim klónni! Gerum. venjur okkar sveigjanlegri og hættum að skattleggja vörur þeirra, veit- um þeim vitsmunalegt aðhald i staðinn, sem sæmir málinu: efni, sem allt verður byggt úr. Engum fslendingi er lengur á- vinningur I að múlbinda sig sjálfan af ótta við hina. Við er- um hinir. — Þorsteinn Antonsson. Vatnsdalur í Vatnsfiröi. Þar verður þjóöhátfö Vestfiröinga haldin. Þjóöhátíö Vestfirðinga Vestfirðingar halda sameigin- lega þjóðhátið i Vatnsdal i Vatns- firði þ. 13. og 14. júli i ár. Það er engin tilviljun að Vatns- fjörður var valinn sem hátiðar- svæði, en tvennt ber þó hæst, en það er, að Flóki Vilgerðarson (Hrafna-Flóki) réði skipi sinu i Þrælavog i Vatnsfirði og hafði þar ársdvöl, og hitt, að náttúrufegurð er þar söm og á dögum Flóka og staðurinn aðlaðandi til dvalar ungum og öldnum. Á Lónfelli upp af Vatnsfirði munu þeir Flóki hafa staðið er þeir gáfu landinu nafn. Dagskrá verður m jög f jölbreytt og má þar nefna að vikingaskipi með gapandi trjónum og sköruð- um skjöldum verður siglt inn Vatnsdalsvatn og stiga þar á land fulltrúar forfeðranna og flytja sögulegan þátt, sem saminn hefur verið I þessu tilefni. Þá veröur flutt hátiðarræða, kórar syngja, leiksýningar, iþróttasýningar, lúörasveit leikur og dans verður stiginn á 2 pöllum á laugardags- og sunnudagskvöld. Á sunnudaginn hefst dagskráin með guðsþjónustu undir berum himni, sem allir prestar fjórð- ungsins standa að ásamt vigslu- biskupi, allir kirkjukórarnir syngja við messuna, sem hefst með prósessiu kennimanna okkar að messustað. Þá verður sitthvað gert fyrir yngstu gestina, svo sem fluttir leikþættir, siglt verður um Vatns- dalsvatn með þá sem þess óska og i ráði er aö halda uppi gæslu fyrir þá allra yngstu. Hver sýsla ásamt Isafjarðar- kaupstað hefur sitt afmarkaða tjaldsvæði með hliði, sem merkt er tákni héraðsins. Ætlast er'til að brottfluttir Vestfirðingar, sem munu fjölmenna á hátiðina, búi i tjaldbúð sinnar heimabyggðar og dvelji með vinum og frændaliði hátiðisdagana. Komið verður upp vatnsleiðslu og hreinlætisaðstöðu. Bilastæði er fyrir um 2000 bifreið- ar. Þjóðhátiðarnefnd hefur látið gera 2 veggskildi úr postulini; annar er með mynd af nafngift landsins, teiknaðri af Halldóri Péturssyni, en hinn af landvælti Vestfirðingafjórðungs, griðungn- um, sem er jafnframt okkar fjórðungsmerki. Þá hafa verið gerð barmmerki, gull og silfurlit- uð, bilmcrki, fánar og veifur. Vonast er til að öll vestfirsk heim- ili kaupi eitthvað til minja um þjóðhátiðarárið. 1 ráði er að starfrækja pósthús á hátiðinni og notaður verður sér- stakur póststimpill. Gefin verða út umslög með merki hverrar sýslu og tsafjarðarkaupstaðar og verða þau seíd á hátiðinni og ef til vill eitthvað fyrr. Starfrækt verður matvæla- verslun með helstu nauðsynjar; ennfremur verður félögum og fé- lagasamtökum úr hverju byggð- arlagi gefinn kostur á að reka sölutjöld. Þjóðhátiðarnefnd hefur i hyggju að fara fram á að öll fyrir- tæki og stofnanir i fjórðungnum verði lokuð föstudaginn 12. júli svo að þjóðhátiðargestir hafi nægan tima til að koma sér fyrir þannig að ekki skapist óþarfa þrengsli við tjaldstæðin. Komið hefur til tals að efna til fjölskyldutónleika, poppmúsik og alls kyns músik flutt bæði af hljómsveitum og hljómplötum með fullkomnu magnarakerfi. Sem sagt tónlist fyrir alla fjöl- skylduna. Þjóðhátiðarnefnd vonast til að allir Vestfirðingar, bæði heima- mennog þeir sem burt eru fluttir, leggist á eitt um að gera þessa hátið sem glæsilegasta, minnugir þess að við erum saman komin á UOOára afmæli byggðar á Islandi til að hylla forfeður okkar fyrir kjark, áræði og þrautseigju á um- liðnum öldum. Þjóðhátiðarnefnd mun kappkosta að hátiðin geti farið fram með sem mestum menningarbrag, svo hún geti orð- ið öllum til ánægju, sem hana sækja, bæði gestum og heima- mönnum. Þess vegna verður haft mjög strangt eftirlit með þvi að vin verði ekki haft um hönd. t þjóðhátiðarnefnd Vestfirðinga eru: Marias Þ. Guðmundsson, framkv.stj. fyrir ísafjarðarkaup- stað, form., Kristinn Hannesson. skólastj. fyrir Norður-lsafjarðar- sýslu, Bergur Torfason, bóndi Felli, fyrir Vestur-lsafjarðar- sýslu, Andrés ölafsson, prófastur Hólmavik, fyrir Strandasýslu og Þórarinn Þór, prófastur Patreksf., fyrir Barðastrandar- sýslur. Framkvæmdastjóri Þjóðhátið- arnefndarinnar er Páll Ágústs- son, kennari Patreksfirði. (fréttatilkynning) Unnum ekki mann aö þessu sinni Þjóðviljinn biður lesendur sina, og þó sérstaklega Soffiu Guðmundsdóttur og aðra Alþýðu- bandalagsmenn á Akureyri. af- sökunar á þeim mistökum, sem áttu sér stað i forustugrein blaðs- ins i gær. Þar var sagt að Alþýðu- bandalagið hefði bætt við sig bæjarfulltrúa á Akureyri; svo varð ekki nú en gerist áreiðan- lega i næstu kosningum til bæjar- stjórnar þar nyrðra. Alþýðubandalagið bætti við sig bæjarfulltrúum i fimm kaup- stöðum. Það gerðist á Dalvik, i Hafnarfirði, á Neskaupstað. i Kópavogi og i sjálfri höfuðborg- inni, Reykjavik. Alþýðubanda- lagið tapaði einum bæjarfulltrúa, á Siglufirði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.