Þjóðviljinn - 05.06.1974, Side 11

Þjóðviljinn - 05.06.1974, Side 11
Miðvikudagur 5. júni. 1974 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Sjúkralistinn erfiður baggi Keflvíkingar eiga í erfiðleikum vegna sjúkralistans, en sigruðu þó Akureyringa 3:0 Keflvíkingar eiga um sárt að binda um þessar mundir. Tveir bestu menn liðsins eru meiddir, þeir Einar Gunnarsson og Guðni Kjartansson. Það sást enda á leik þess gegn Akureyringum, þótt vissu- lega verði slök frammi- staða ekki afsökuð með mannfalli einu saman. Það er e.t.v. ekki rétt að tala um slaka frammistöðu liðs, sem sigrar andstæðinga sína 3:0. En einhvern veginn er það svo, að maður gerir meiri kröfur til ÍBK en annarra liða sökum hinnar glæsilegu frammistöðu á siðasta keppnistimabili. Engum dylst, sem horft hefur á lið Keflvíkinga i vor, að það er ekki eins vel undir- búið og I fyrra. Allur leikur þess er oft á tiðum ráðvilltur og litt hugsaður, en það, sem kemur þvi til bjargar eru góðir einstakling- ar, sem með einkaframtaki færa liðinu mörk og stig. Einstakling- arnir eru sist lakari nú en áður, en heildin kemur ekki eins vel út, meiri samæfingar er þörf. Haukar sóttu tvö stig til ísafjarðar Haukarnir frá Ilafnarfirði, sem ekki viröast standa of vel að vigi eftir að hafa misst marga af sin- um bestu leikmönnum frá I fyrra, sóttu sér tvö mjög dýrmæt stig til isafjarðar um siðustu helgi. Þeir sigruðu ÍBl 2:1. Hætt er við að ísfirðingar lendi I fallbaráttunni i sumar, en þeir komu uppúr 3. deild i fyrra og virðast ekki eftir fyrstu leikjun- um að dæma vera með sterkt lið. Mörk Haukanna skoruðu Arnór Guðmundsson og Guðjón Sveins- son, en mark tsfirðinga Ragnar Guðmundsson. Eins og markatalan gefur til kynna var leikurinn heldur jafn, en þó var meiri broddur i leik Haukanna, og sigur þeirra var verðskuldaður. Sigur Keflvikinga i leiknum gegn Akureyringum var þó aldrei i hættu og fyllilega sanngjarn. En leikurinn olli vonbrigðum, hann var leiðinlegur á að horfa og bauð ekki einu sinni upp á falleg mörk, nema það fyrsta, sem Hörður Ragnarsson skoraði stórglæsi- lega. Hann fékk háa fyrirgjöf Karls Hermannssonar frá endamörkum og skallaði frá vitapunkti ofar- lega I vinstra markhornið — gull- fallegt mark og illverjandi fyrir Samúel markvörð. Aðeins minútu siðar fékk Stein- ar svipaða fyrirgjöf, og aftur þurfti Samúel að horfa á eftir skallabolta i netið, en Steinar var dæmdur rangstæður og markið þvi ógilt. 27 minútur voru liðnar af leikn- um og staðan 1:0 fyrir heima- menn, sem sóttu áfram, og annað mark lá i loftinu. Það kom siðan á 40, min. Stein- ar fékk þá boltann eftir hörmuleg varnarmistök, og þegar Steinar stendur einn og óvaldaður á markteig þarf ekki að spyrja um afleiðingarnar. 2:0 var staðan þvi i leikhléi. I siðari hálfleik kom fjörkippur i norðanmenn, sem sóttu nokkuð og áttu ágæt tækifæri, sem nýtt- ust þó ekki. Sóknarmönnum gekk illa og svo virtist, sem uppgjöf kæmist i liðið og Keflvikingar juku sóknarþungann, ekki vegna aukins styrkleika sins liðs, heldur fyrst og fremst vegna vanmáttar andstæðinganna. Síðasta markið kom á 40. min, siðari hálfleiks. I eitt skipti af mörgum var vörn Akureyringa, með Gunnar Austfjörð sem lang- besta mann, leikinn nokkuð grátt, Ólafur Júliusson fékk boltann á Fádæma ruddaskapur dómara í leik Þróttar og Breiðabliks Framkoma Einars Hjartarsonar, dómara leiks Breiðabliks og Þróttar, sem lauk með 0-0 jafntefli, er svo fádæma ruddaleg, að ekki veröur hjá þvi komist að segja frá. Einar hefur löngum haft orð á sér fyrir tillitsleysi i garð leikmanna, þjálfara, áhorfenda og ann- arra, þ.e.a.s. ef illa liggur á honum. En þannig var hann einmitt skapi farinn fyrir þennan leik og lét það svo sannarlega bitna á leikmönnum og áhorfendum, sem virt- ust honum til mikils ama. Látum vera þótt boltinn hafi legið i neti Þróttara þrisvar sinnum, þrátt fyrir frábæra markvörslu, og Einar hafi dæmt þau öll af. Lát- um vera þótthonum hafiyfirsést eina vitaspyrna. Slikt er mannlegt og allir reiðubúnir að fyrirgefa slikt. En framkoma Einars við leikmenn Breiðabliks og þjálfara fyrir leikinn var ámælisverð, og verður nánar sagt frá þvi iblaðinu á morgun. —gsp Hörður Ragnarsson skorar fyrsta mark GSP) Völsungar skell gegn IBK gegn ÍBA (Ljósm. fengu FH Völsungar frá Húsavik komu til Hafnarfjarðar sl. laugardag og léku þar gegn FH og fengu heidur betur á baukinn. FH sigraði 6:0, stærsti sigur sem unninn hefur að Selfyssingar koma enn á óvart- sigruðu Ármann 4:2 í 2. deildarkeppninni Sennilega hefur ekkert lið f 2. deild komið jafn mikið á óvart það sem af er keppninni og lið Selfoss. Þetta lið hefur staðið mjög tæpt í 2. deild sl. tvö ár, en í bæði skiptin sloppið naumt við fall. Nú aftur á móti virðist liðið blómstra og hefur unnið tvo mjög at- hyglisverða sigra og báða sannfærandi, gegn Völs- ungum, og nú síðast um helgina gegn Armanni. Selfyssingar sigruðu Armann 4:2, greinilega engin tilviljun sá sigur. Hinn snjalli markakóngur þeirra Selfyssinga, Sumarliði Guðbjartsson, skoraði þrennu i leiknum, en 4.markið fyrir Selfoss skoraði Kristinn Ásgeirsson. Mörk Armanns skoruðu þeir Sig- urður Leifsson og Jens Jensson, kunnari sem handknattleiksmað- ur með Armanni. Það er ljóst eftir fyrstu leikina i 2. deild, að Armann verður ekki með i toppbaráttunni með Þrótti, FH og Breiðabliki, en hinsvegar sýnist manni sem Selfyssingar geti blandað sér i þá baráttu, eða alla vega sett strik i reikning „stóru” liðanna. verið i tslandsmótinu fram þessu I ár. Það er alveg greinilegt að lið FH hefur vart verið sterkara i mörg ár en það er núna og það er af fróðum mönnum talið mjög lik- legt til að vinna deildina i ár, en helstu keppinautar þess eru Breiðablik og Þróttur. Menn höfðu búist við miklu af Völsungunum eftir mjög góða byrjun i mótinu, en sjálfsagt verður þessi skellur til að draga úr vonum áhangenda liðsins um að það verði með i toppbaráttunni i sumar. Mörk FH i þessum leik skoruðu Leifur Helgason þrjú, Ólafur Danivalsson tvö og Gunnar Bjarnason eitt. Skarðsmótið Siðasta skiðamót þessa kcppnistimabils fór fram um sið- ustu helgi, en það var Skarðsmót- ið sem fram fer árlega um hvita- sunnuna á Siglufirði. A morgun munum við birta úrslit mótsins, auk mynda sem teknar voru við verðlaunaafhendinguna. f® Helgi alvarlega meiddur Helgi Helgason, hinn snjalli miðvörður Vikings, meiddist all-alvarlega I leik Vikings og KR sl. föstudagskvöld, og verður liann ekki með Vik- ingsliðinu sennilega i nokkrar vikur, þar eð liðbönd i fæti hans slitnuðu. Varð að fiytja hann á sjúkrahús þar sem hann var settur I gips. Þetta kemur sér afar illa fyrir Vikinga þar sem Helgi er einn besti varnarlcikmaður liðsins. markteig og renndi honum i hálf- tómt markið. Lokatölurnar urðu þvi 3:0 sigur Keflvikinga, sem áttu hann fylli- lega skilið. Akureyringar ná sér ekki almennilega upp, en það er þó alls enginn mælikvarði á frammistöðuna i sumar, þvi æf- ingaleiki hefur liðið enga fengið, heldur kemur það gjörsamlega leikreynslulaust inn i Islandsmót- ið að þessu sinni sem oftar. í fyrra var siðari umferðin mun betri helmingur mótsins fyrir IBA, og ég er ekki frá þvi, að svo verði einnig i ár. Liðið á marga mjög skemmtilega leikmenn, en æfingu og reynslu vantar enn. —gsp — staðan /»V Staðan eftir leikina um sið- ustu helgi er nú þessi i 1. deild, en þess skal getið að leikurinn sem fram fór i gærkvöld, Vik- ingur—Fram, dæminu: er ekki með i ÍA 3 2 1 0 6:1 5 KR 3 2 0 1 3:2 4 ÍBK 3 2 0 1 5:2 4 ÍBV 3 1 1 1 3:3 3 Valur 3 0 2 1 2:3 2 ÍBA 3 1 0 2 1:7 2 Vikingur 2 0 1 1 2:3 1 Fram 2 0 1 1 3:5 1 Markahæstu menn: Matthias llallgrimsson ÍA 3 Steinar Jóhannsson ÍBK 3 Teitur Þórðarson tA 2

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.