Þjóðviljinn - 14.06.1974, Page 1

Þjóðviljinn - 14.06.1974, Page 1
MOWIUINN Föstudagur 14. júni 1974—39. árg. -97. tbl. af. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON APOTEK OPIÐ OLL KVOLD TIL KL. 7, NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2, j SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3 | SlMI 40102 Þeir voru ekki svona kátir á svipinn, strákarnir á Akureyri, þegar svarti lögreglubillinn nálgaðist. Þá hlupu þeir i varnarvegg, röðuðu sér upp svo að enginn sæi bátkænuna, blistruðu lagstúf og fleyttu kerlingar á pollinum. Löggan keyrði framhjá, og sigri hrósandi opnuðu þeir varnar- vegginn og opinberuðu leyndarmálið. — ljósm. gsp — °g Valdi til arfskipta Nú er senn að komast á lokastig arfskipting á einu stærsta, ef ekki stærsta fyrirtæki á landinu, versl- unarfyrirtækinu Silli og Valdi. Fyrirtækið er ekki hlutafélag, heldur var það einkaeign tveggja manna, en fyrir um það bil ári féll annar eigandinn, Sigurliði Kristjánsson (Silli), frá. Ekkja hans fékk ekki leyfi skiptaráð- anda til að sitja í óskiptu búi, þar cð þau hjónin áttu enga afkom- endur. Að þvi er Unnsteinn Beck skiptaráðandi i Heykjavik tjáði Þjóðviljanum igær, er það skvlda að liafa lokið slikum skiptum sem þessum innan árs, en hann bætti þvi við, að þegar um stórfyrirtæki eða flókin skipti væri að ræða, væri oft gefinn lengri frestur til að Ijúka skiptum. Óhætt mun að fullyrða, að stærra eða ríkara fyrirtæki en Silli og Valdi hafi ekki verið tekið til arfskipta á lslandi. —S.dór Björn Jónsson breytir ákvœðum um orlofsgreiðslur: Hafði ekkert samráð við verkalýðsfélögin! Björn hefur samráð þegar hentar! I gær birtist auglýsing frá Vinnuveitendasam- bandi islands þar sem vak- in er athygli á reglugerð um breytingu á reglugerð 125200 krónur fyrir öll lyf Á morgun tekur gildi ný reglugerð um greiðslur sjúkrasamlaga á lyfjakostn- aði. Þetta er samkvæmt lög- um breytingu á lögum nr. 67/1971 um almannatrygging- ar sem samþykkt voru á Al- þingi 8. mai s.l., segir i frétt frá heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytinu um málið. Reglur um fulla greiðslu sjúkrasamlaga á lifsnauðsyn- legum lyfjum eru i öllum meg- inatriðum óbreyttar. Hins vegar mun gilda sú aðalregla, að af öðrum lyfja- kostnaði greiðir samlagsmað-' ur fyrstu 125 krónurnar af inn- lendum lyfjum og fyrstu 200 krónurnar af erlendum sér- lyfjum. Sjúkrasamlag greiðir svo það sem á vantar fullt verð. Sé heildarverð viðkomandi lyfs jafnt eða lægra en fram- angreind mörk, greiðir sam- lagsmaður það verð. örfá lyf verða undanþegin ákvæðum þessum. um orlof, þar sem ákveðið er, að við ákvörðun um or- lofsgreiðslur, þá telst fastur starfsmaður sá er á rétt á að minnsta kosti þriggja mánaða uppsagn- arfresti. Þjóðviljinn sneri sér til Eðvarðí Sigurðssonar formanns Dagsbrún- ar og spurði hann álits á þessari breytingu. Hann sagði: „Þessi breyting er gerð án vit- undar verkalýðshreyfingarinnar, og ég tel þetta hreint brot á sam- komulaginu um framkvæmd or- lofslaganna. Hér er um það að ræða, að verið er að hringla með reglugerðarákvæði og skapa óvissu um framkvæmd þeirra. Hugtakið fastur starfsmaður túlkast þannig mismunandi eftir hinum ýmsu lög- um og reglugerðum, og skapar það mikla óvissu um framkvæmdarat- riði. Þessi breyting á reglugerð skerðir rétt sem fólk hefur haft. 1 fyrra þegár sett var reglugerð um framkvæmd orlofslaganna, þá var samkomulag um túlkun á þessu at- riði og haft samráð við aðila vinnu- markaðarins eins og kveðið er á um i orlofslögunum; nú er þessu ákvæði breytt og ekkert samráð haft við þessa aðila.” Þjóðviljinn hefur aflað sér upp- lýsinga um það, að breyting þessi á reglugerð um reglugerð um fram- kvæmd orlofslaganna hefur Björn fyrst i siðustu viku að aðilar vinnu- markaðarins uppgötvuðu þessa breytingu, og nú hagnýtir Vinnu- veitendasambandið sér ákvæði hennar. Þannig hefur Björn Jóns- son i embætti sinu sem félagsmála- ráðherra gert breytingu á reglu- gerð án þess að hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins sem or- biða siðan tjón af þessu með skert um orlofsgreiðslum. Þannig hefui ráðherrann hagað sér, sem sagð sig úr vinstri stjórninni vegna þesi að ekki var haft nægilegt samrái við verkalýðssamtökin, að han: dómi. Jónsson sett án þess að hafa sam- lofslögin skuldbinda hann þó til. ráð við nokkurn mann. Það var Félagar i verkalýðshreyfingunni SJASIÐU 5 SKAGAFJARÐARLÍNAN: Hefur þegar flutt 660 þúsund kvst. Kafmagnslinan milli Eyja- fjarðar og Skagafjaröar hefur nú flutt orku I rúman mánuð og hefur samkeyrsla og flutn- ingur gengið vel, sagði Guöjón Guðmundsson, skrifstofustjóri Bafmagnsveitna rikisins, i viðtali við Þjóðviljann i gær. Linan hefur nú flutt 660 þús- und kilóvattstundir, og disil- stöðvakeyrsla á Norðurlandi vestra hefur verið nærri stöðvuð á sama tima. 660 þúsund kilóvattstundir frá disilstöðvum hefðu kostað um 4 milj. kr., en kilóvatt- stundin kostar nú um 6 kr. frá disilstöðvum. 1 rauninni er þetta fundið fé vegna þess að hér er eingöngu um umfram- orku að ræða. Er ljóst að linan borgar sig strax á þessu ári. í bílana sína ISLENDINGAR EYÐA A ARI: 15 miljörðum Margir segja sem svo að það sé ekki lengur lúxus að eiga bifreið á íslandi og sjálfsagt má deila um hvað er lúxus og hvað ekki. En þegar það kemur i Ijós, að við is- lcndingar eyðum á milli 12 og 15 miljörðum i einkabila á ári, sem liggur á milli 10 og 15% af þjóðar- tekjunum, þá er ekki óeðlilegt að spurt sé hvort ckki sé hægt að verja þessu fé á skynsamlegri hátt. Samkvæmt útreikningum Fé- lags isienskra bifreiðaeigenda kostar það nú 250 þúsund kr. á ári að reka Fólksvagn, sem er milli- bifreið bæði hvað verð og rekstur- kostnaði viðkemur. Og miðað við að i landinu séu um 60.000 bifreið- ar þá verður kostnaður lands- manna vegna einkabila á milli 12 og 15 miljarðar á ári. Stundum er fóiki bent á hversu háa upphæð það fer með á ári i tóbaksreykingar og hvað hægt væri að gera við þá peninga sem nytsamlegra mætti teljast. Senni- lega væri einnig hægt að gera það I sambandi við einkabilismann og það með sterkum rökum —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.