Þjóðviljinn - 07.09.1974, Qupperneq 11
Laugardagur 7. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Bridgevertiðin
er að hefjast
Bridgefélag Reykjavikur hefur
sent frá sér svolátandi fréttatil-
kynningu:
Vetrarstarfsemi bridgefélags
Reykiavikur er senn að hefjast,
og verður spilað á miðvikudags-
kvöldum i Domus Medica. Verður
starfsemin með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Byrjað verður á
tveimur eins kvölds tvimennings-
keppnum, og hefst sú 'fyrri 11.
september, en 25. september
hefst svo meistarakeppni félags-
ins i tvimenning, og veitir sú
keppni réttindi i Reykjavikurmót.
Bridgefélag Reykjavikur er
elsta og tvimælalaust sterkasta
bridgefélag landsins. Ungum
spilurum hefur fjölgað verulega i
félaginu á siðustu árum, og veita
margir þeirra orðið gömlu kemp-
unum haröa keppni, enda harðna
upprennandi kempur naumast
öðruvisi en með harðri andstöðu.
Bridgefélag Reykjavikur veitir
sem fyrr nemendum framhalds-
skóla 50% afslátt á keppnisgjöld-
um. 1 ráði er að taka upp bridge-
kennslu fyrir byrjendur á vegum
félagsins siðar i vetur. Nýir félag-
ar eru velkomnir.
Stjórn Bridgefélags Reykjavik-
ur skipa þessir: Karl Sigurhjart-
arson, formaður, Gylfi Baldurs-
son, varaformaður, Stefán Guð-
johnsen, gjaldkeri, Guðlaugur R.
Jóhannsson, ritari, Jakob Ar-
mannsson, fjármálaritari.
Lagt til atlögu
gegn Selassie
ADDIS ABEBA 6/9 — Svo virðist
sem herinn í Eþlópfu, sem ræður
öllu 1 landinu, sé nú að búa sig
undir að gera úrslitaatlögu gegn
Haiie Selassie keisara, sem nú er
82 ára að aldri.
Yfirstjórn hersins, sem hefur
smám saman verið að svipta
keisarann öllum völdum siðan i
febrúar, ákærði hann i dag fyrir
að hafa dregið fé úr bjórgerð sem
sett var á laggirnar fyrir 50 árum
og varið þvi til eigin þarfa.
Stjórnin sagði að þótt Haile
Selassie hefði skipað svo fyrir að
hluti af tekjum bjórgerðarinnar,
sem hann stofnaöi sjálfur ásamt
öðrum aðila meðan hann var
krónprins, skyldi varið til bók-
mennta, lista og visinda, hefði
mestur hluti fjárins farið til for-
réttindamanna. Veitt hefði verið
fé til sérhæfðra rannsókna meðan
þúsundir Eþiópiubúa hefðu verið
að deyja úr hungri og drépsótt-
um.
Ákærunni gegn keisaranum var
útvarpað og sjónvarpað, og i
sjónvarpi voru sýnd ýmis skjöl,
sem keisarinn hafði sjálfur undir-
ritað. Það vakti athygli að Haile
Selassie var ekki nefndur „keis-
ari” heldur „konungur”.
Glæpum fjölgar
í Bandaríkjunum
WASHINGTON 6/9 — Alvarleg-
um afbrotum I Bandarlkjunum
fjölgaði um sex af hundraði I
fyrra, og var framið morð ein-
hversstaðar I landinu á hverjum
27 mlnútum.
Þetta kom fram i skýrslu
bandarisku alrikislögreglunnar
FBI um glæpamál þar i landi,
sem út kom i gær. Samkvæmt
skýrslunni voru 19510 menn myrt-
ir i Bandarikjunum árið 1973, en
18550 árið áður, og voru tveir
Yiðvörun
vegna
sporðdreka
READING 6/9 — Lögreglu- og
heilbrigðisyfirvöld i borginni
Reading fyrir vestan London gáfu
i dag út viðvörun eftir að ban-
vænn sporðdreki hafði fundist i
þvottahúsi.
Sporðdreki þessi var af hinni
gulu evrópsku tegund, en hún er
með eiturbrodd sem getur verið
banvænn. Hann fannst I hólfi þar
sem óhreinn þvottur var geymd-
ur, en einn af starfsmönnum
þvottahússins drap hann ápur en
hann gat valdið nokkrum skaða.
Heilbrigðisyfirvöld i London
komu strax fram með móteitur ef
fleiri sporðdrekar kæmu i leitirn-
ar. —Reuter
þriðju hlutar þessara manna
skotnir. Það kom einnig fram að
tala þeirra kvenna, sem frömdu
alvarleg afbrot, hafði aukist mik-
ið, t.d. höfðu 10% fleiri konur
verði handteknar fyrir vopnuð
rán en árið áður.
Arið 1972 fækkaði alvarlegum
glæpum um 4 af hundraði, og
gerðu menn sér þá vonir um að
baráttan gegn glæpum væri að
bera árangur, en skýrsla FBI nú
sýnir að sú von hafði ekki við rök
að styðjast. Hún sýnir lika að
starfshættir glæpamanna eru að
breytast, þvi að glæpum i stór-
borgum hefur aðeins fjölgað um
einn af hundraði, en glæpum i út-
hverfum um niu af hundraði.
Utan stórborganna hefur morð-
um fjölgað um 13,5% bilþjófnuð-
um um 16,5% og ránum, innbrot-
um og árásum um 17%.
Mosambik
Framhald af 12 siðu
töldu að Mosambik myndi senni-
lega verða sjálfstætt i júli, en
bráðabirgðastjórnin myndi taka
við völdum 25. september, en þá
eru liðin tiu ár siðan sjálfstæðis-
baráttan hófst.
Talið er að i samningnum sé
gert ráð fyrir þvi að þjóðfrelsis-
hreyfingin fái tvo þriðju ráö-
herraembætta i bráðabirgða-
stjórninni, þ.á m. utanrikisráð-
herra, en varnarmálaráðherrann
og innanrikisráðherrann muni
verða portúgalir.
Við þökkum innilega vináttu og samúð
við fráfall og jarðarför
Thors E. Cortes, prentara
Elisabet Cortes og dætur hins látna.
Sími 32075
AMLFIRIEIDMQ)
A\ILIFIR!IEIDHDI
ítölsk-amerisk gamanmynd i
litum með ensku tali — um
ungan mann, sem Dustin
Hoffman leikur — og sam-
skipti hans við hið gagnstæða
kyn.
Leikstjóri: Pietro Germi.
ISLENSKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Silent night — Bloody
night
Spennandi og hrollvekjandi
ný, bandarisk litkvikmynd
um blóðugt uppgjör.
islenzkur texti
Leikstjóri: Theodore
Gershuny.
Leikendur: PatricO’Neal,
James Patterson, Mary
Woronov, Astrid Heeren.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Pipulagnir
Nýlagnir, breytingar,
hita veitutengingar.
Simi 36929 (milli ki.
12 og 1 og eftir 7 á
kvöldin).
Húseigendur
athugið!
Látið okkur skoða hús-
in fyrir haustið. Onn-
umst hvers konar
húsaviðgerðir.
H úsaviðgerðir sf.
Sími 12197
Slmi 11540
KID BLUE
tslenskur texti
A FUNNY THING HAPPENED TO KID BLUE
ONTHEWAY. TOTHEROBBERY
He was a good kid, but a rotten baodit.
He missed the boat
and the train
and the stage coach
and thobank.
DENNIS HOPPER WARREN OATES
PETER BOYLE BEN JOHNSON
"KID BLUE
. , LEE PURCELL JANICERULE £
Bráðskemmtileg, ný amerisk
gamanmynd úr villta vestr-
inu.
Aðalhlutverk: Dennis Hopper,
Warren Oates.
Sýnd kl. 5, — og 9.
Valdez kemur
Thcy tore his bodv.
They buried
his pride.
his oldunilorm,
his Sharps riile,
and his
Buiiaio gun.
Find Tanner,
E1 Segundo.and
the 16 others.
And tell them
Valdez is coming.
BURT
LANCASTER
KCOMINC’
i
Ný, bandarísk kvikmynd —
spennandi og vel leikin, enda
Burt Lancaster i aöalhlut-
verki. Aðrir leikendur: Susan
Clark, Jon Cypher.
Leikstjóri: Edwin Sherin.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum^yngri en 16
ára.
ÍSLENSKUR TEXTI.
KVENNADEILD
STYRKATARFÉLAGS LAM-
AÐRA OG FATLAÐRA
Hin árlega kaffisala deildar-
innar verður nk. sunnudag, 8.
september, i Sigtúni við
Suðurlandsbraut 26, kl. 14
Þær konur, sem vilja gefa
kökur eða annað meðlæti eru
vinsamlegast beönar að koma
þvi i Sigtún sama dag fyrir há-
degi.
Stjórnin.
Laus staða
Prófessorsembættið I barnasjúkdómum og staða yfir-
læknis á Barnaspitala Hringsins er laus til umsóknar.
Gert er ráð fyrir að sarna lækni verði veitt bæði störfin.
Umsækjendur mega gera ráð fyrir þvi, að núverandi
fyrirkomulag barnaspitalans breytist.
Um mat á hæfni umsækjenda verður fjallað samkv. 11. gr.
laga nr. 84/1970 og 33. gr. laga nr. 56/1973.
Umsóknarfrestur er til 10. október 1974.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókninni upplýsingar
um námsferil og fyrri störf, svo og ýtarlega skýrslu um
vlsindastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rann-
sóknir.
Umsóknir sendist öðru hvoru ráðuneytinu.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ,
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAM A.L ARAÐUNEYTIÐ,
5. scptember 1974.
Sími 22140
Milli hnés og mittis
(It’s a 2 ft 6” above the ground
world)
ISLENSKUR TEXTI
Meinfyndin skopmynd um
barneignir og takmörkun
þeirra.
Leikstjóri: Ralp Thomas.
Aðalhlutverk: Hywel Bennett,
Nanette Newman.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Övenju spennandi, ný amerisk
sakamálamynd i litum um
Mafiu-starfsemi i Los
Angeles. Leikstjóri Robert
Hartford Davies. Aðalhlut-
verk: Jim Brown, Martin
Landau. Brenda Sykes.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuö börnum.
Simi 16444
Strið karls
og konu
jACKummoM
BARBARAHARRIS
Sprenghlægileg og fiörug, ný
bandarisk gamanmynd i litum
um piparsvein, sem þolir ekki
kvenfólk og börn, en vill þó
gjarnan giftast — með hinum
óviðjafnanlega Jack Lenunon,
sem nýlega var kjörinn bezti
leikari ársins.
ISLENSKUR TEXTI.
Sýndkl.3, 5, 9, og 11,15
VELDUR,HVER
0 SAMVINNUBANKINN
m
HELDUR