Þjóðviljinn - 10.09.1974, Síða 3
Þriðjudagur 10. september 1974 ÞJóÐVlLJINN — SIÐA 3
Aðfararnám
búvísinda
í læknaskóla
Búfræðingar sækja nú i fyrsta
sinn undirbúnings- og raun-
greinadeild tækniskóla sem að-
fararnám fyrir kandidatadeildina
ibúvisindum á Hvanneyri. Slikar
deildir starfa nú á Akureyri og á
tsafirði.
Þetta kom fram ma. við setn-
ingu Tækniskóla íslands i byrjun
mánaðarins, en aðsókn að skólan-
um er nú meiri en nokkru sinni og
er fjöldi nemenda hátt á þriðja
hundrað.
1 aðalatriðum er um tvenns
konar framhaldsmenntun iðnað-
armanna að ræða, sem tekur ým-
ist 2 1/2 ár eða rösklega 5 ár. Við
lok styttra námsins er námsgráð-
an tæknir, en við lok þess lengra
tæknifræðingur.
Sérstakt verkefni i samvinnu
Á fjórða
hundrað
miljónir
veittar úr
Iðnþróunar-
sjoði a
þessu ári
Föstudaginn 30. ágúst hélt
stjórn Iðnþróunarsjóðs fund i
Reykjavik en sæti I stjórn hans
eiga fulltrúar frá Norðurlöndun-
um S.
A þessum fundi var samþykkt
lánveiting til fyrirtækja að upp-
hæð 89 miljónir króna og hefur þá
sjóðurinn lánað 310 milj. kr. á
þessu ári. Þá veitti stjórnin fram-
kvæmdastjórn sjóðsins heimild til
að ráðstafa 60 milj. kr. til al-
mennra lána til viðbótar fyrri
heimildum.
Einnig veitti stjórnin heimild til
ráðstafana 10 milj. kr. til styrkja
eða lána með sérstökum kjörum.
Frá upphafi hefur sjóðurinn veitt
25,3 milj. kr. til slikra lána eða
styrkja.
Frá þvi er sjóðurinn tók til
starfa, 1970, hefur hann veitt lán
til fyrirtækja og sjóða að upphæð
1.344 milj. kr.
í dag
Haustslátrun hefst
Aœtlað er að slátra um 900 þús. fjár á um 60 stöðum
á landinu — Nýtt kjörverð innan viku
Haustslátrun hefst í dag
í sláturhúsi KB í Borgar-
nesi sem er fyrsta slátur-
húsið sem tekur til starfa á
þessu hausti, sagði Sveinn
Tryggvason hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins
okkur í gær. Síðan munu
húsin taka til starfa hvert
af öðru næstu daga, þegar
byrjað verður að slátra fé
úr heimahögum, en al-
mennt hefjast réttir ekki
fyrr en um næstu helgi.
Sveinn tjáði okkur i gær að
áætlað væri að slátra um 900 þús-
und fjár i haust i sláturhúsum
landsins en þau eru um 60 á land-
inu öllu. t fyrra var slátrað 830
þúsund fjár og er reiknað með 6
til 8% fjölgun slátur-fjár i ár. En
Sveinn tók fram að hér væri um
ágiskunartölur að ræða, það veit i
rauninni enginn hve miklu verður
slátrað fyrr en að henni lokinni i
haust.
Sveinn sagði, eins og raunar
hefur áður komið fram i Þjóð-
viljanum, að búið væri að ákveða
verð á kjöti i haust en sú verð-
lagning liggur enn fyrir rikis-
stjórninni og er beðið ákvarðana
hennar i málinu. Nýtt kjöt mun
væntanlegt á markaðinn um
miðja næstu viku þannig að
ákvörðun rikisstjórnarinnar
verður að liggja fyrir fyrir þann
tima.
Sveinn sagði að ekkert nýtt
sláturhús yrði tekið i notkun á
þessu hausti en á Hólmavik hefði
verið unnið að endurbótum á
sláturhúsinu þar og myndi þaö
þvi verða nýtiskulegt og full-
komið þegar slátrun hefst þar i
haust ef verkinu verður endan-
lega lokið en það er óvist enn. Eitt
sláturhús fékk ekki leyfi i ár,
stóðst ekki gæðamat en kröfur
allar til sláturhúsanna um hrein-
Framhald á 11. siðu.
við þrjár rannsóknastofur i
Reykjavik er menntun meina-
tækna og tekur tvö ár að loknu
stúdentsprófi. Næsti hópur
meinatækna verður brautskráður
1. okt. n.k., en næsti hópur tækni-
fræðinga fyrir jól og tæknar fara
frá skólanum út á vinnumarkað-
inn um miðjan janúarmánuð.
Húsnæðisvandamál Tækniskól-
ans eru enn óleyst og starfar skól-
inn við mikið óhagræði á nokkr-
um stöðum I Reykjavik, en stefnt
er að þvi að starfsemin komist
undir eitt þak fyrir haustið 1975.
Barátta
gegn
loftmengun
Alma-Ata. Borgarstjórn Alma-
Ata, höfuðborgar sovétlýðveldis-
ins Kasakstan, hefur skipað
nefnd, sem á að hafa stöðugt eft-
irlit með ástandi andrúmsloftsins
i borginni. Eitt aðalverkefni henn-
ar verður að finna viðhlitandi ráð
til að hreinsa loftið I borginni,
sem er i dal, umluktum háum
fjöllum á alla vegu. Til þess að
draga úr mengun loftsins hefur i
fyrsta lagi verið ákveðið, að með-
fram mestu umferðargötunum
skuli komið upp lofthreinsunar-
tækjum til að hreinsa loftið af út-
blæstri bifreiðanna.
Af Breiðholtsbraut eftir kosningar
RÍFA, RÍFA
Borgarstjórnarihald-
inu hefur þótt það fara
býsna vel með fé al-
mennings. Almenningi
hefur þótt borgar-
stjórnarmeirihluti
ihaldsins fara býsna illa
með fé almennings.
Hvor aðilinn hefur rétt
fyrir sér má nokkuð sjá
af meðfylgjandi mynd
og eftirfarandi frásögn.
Þegar leið að borgarstjórnar-
kosningunum i vor fundu for-
vígismenn borgarstjórnarmeiri-
hlutans að staða þeirra var ekki
svo sterk sem skyldi. Til þess að
bæta úr var var fundin upp græna
byltingin svokallaða. En sam-
hliða henni átti svarta byltingin
að fara fram, það er' götulögn.
Mestan árangur hlaut að bera að
svarta byltingin færi fram i þeim
hverfum, sem flestir ibúar
bjuggu i. Þvi varð sameiginlegt
Breiðholtshverfi fyrir valinu, og
svarta byltingin hélt þangað inn-
reið sina og hafin var ný vega-
lagning úr Breiðholti III, þar sem
heitir Breiðholtsbraut.
Svo skattgreiðendum og at-
kvæðum mætti vera ljóst hver
hugur var I borgarstjórnarmeiri-
hlutanum, og til þess að fólk veldi
slika stórhuga framkvæmda-
menn enn aftur til þess að
stjórna framkvæmdum og fjár-
málum borgarsjóðs, var unnið
langt fram á kvöld og flestar
helgar siðustu vikurnar fyrir
kjördag. Og Breiðholtsbraut
lengdist og hækkaði.
Svo var kosið. Meirihlutinn hélt
velli með glæsibrag. Og þá var á-
stæða til þess að hægja örlitið á,
enda búið að eyða 800 miljónum
umfram það sem hugsanlegt var
að afla sem tekna allt árið. Þá var
Breiðholtsbraut orðin býsna löng,
en umfram allt mjög há. Gafst nú
timi til þess að reikna út hvernig
brautin skyldi liggja. Kom þá i
ljós, að brautin var all miklu
hærri orðin en hún skyldi endan-
lega verða hæst og munaði hvorki
meira né minna en um það bil
hálfum metra.
Þessa dagana eru þvi vinnu-
vélar að vinna að þvi að grafa upp
og aka á brott þvi uppfyllingar-
efni, sem áður var búið að setja
sem undirlag fyrir Breiðholts-
braut hina nýju, efni sem búið var
að jafna, slétta og þjappa, verk
sem borgarbúar greiddu glaðir
fyrir vikurnar á undan kosning-
unum, en sem þeir greiða nú aftur
fyrir eftir kosningar og nú miðar
að þvi að rifa niður það sem fyrr
var svo vel unnið.
Svona er hún nú traust og góð
fjármála- og verkstjórn borgar-
stjórnarmeirihlutans.
—úþ
35 kenna við Öldungadeildina
Ör fjölgun 1
öldungadeild
Hamrahlíðarskóla
Yfir 500 manns munu lesa til
stúdentsprófs við öldunga-
deild Menntaskólans i Hamra-
hlíð í vetur.
Fjölgunin i öldungadeildinni
hefur verið hröö frá þvi hún
hóf starfsemi sina, en i fyrra
voru 404 skráðir i deildina.
Hjálmar Olafsson
konrektor i M.H. tjáði Þjóð-
viljanum, að afföll væru jafn-
an nokkur á vetri, en þó ekki
mjög mikil. Þannig gengu 280
til prófs i vor af þeim 404 sem
hófu nám um haustið.
Kennsla fer fram eftir
venjulega skólatima, þ.e. frá
17.20 á daginn fram undir
klukkan 19 og frá 21 til 22.30.
Ekki er kennt á kvöldin á
fimmtudögum á laugardeög-
um er kennt frá 13.15 til 18.
Timafjöldi sem öldungar-
deildarnemendur sækja fyrir
stúdentspróf er helmingi
minni en i yngri deild skólans,
og „öldungarnir” greiða 2500
kr. fyrir hverja námsönn, en
annirnar eru tvær á vetri. 1 lok
hverrar annar eru próf. 1
yngri deild er prófunum lokið
á tiudögum.enda er hvert próf
stutt, stendur aðeins i eina
klukkustund. „öldungarnir”
fá prófunum dreift á lengri
tima eða allt til þess er næsta
önn hefst.
Hjálmar Ólafsson tjáði
Þjóðviljanum, að yfirleitt
gengi vel að fá kennara að
öldungadeildinni. Þeir verða
35 talsins I vetur og margir
þeirra kenna jafnframt i yngri
deild menntaskólans, en
nokkrir eru úr öðrum skólum,
t.d. Háskólanum. —-GG
Af Breiðholtsbraut fyrir kosningar
Leggja, leggja