Þjóðviljinn - 18.10.1974, Side 1
UOÐVIUINN
Föstudagur 18. október 1974 — 39. árg. 204.tbl.
„skortir fé
OG LÆKNA”
Skúli Johnsen, borgarlæknir, segir, að fé og lækna skorti i Reykjavik til
þess að sinna heimilislækningum, og röðin hljóti nú að vera komin að þétt-
býlinu varðandi fjárframlög til heilbrigðismála.
SJÁ YIÐTAL VIÐ BORGARLÆKNI Á 3. SIÐU
Bílaeigendur hundsa
bannið við Laugaveg
Þrátt fyrir bann borgaryfirvalda bilum sinum, þar sem stöðumæl-
við bifreiðastöðum á Laugavegi frá arnir voru áður. Ibúar við Grettis-
Klapparstig að Snorrabraut, halda götu, en þangað hafa stöðumælarn-
bifreiðastjórar áfram að leggja ir verið fluttir, segja hinsvegar:
„ÞETTA ER TÓM VITLEYSA” - SJÁ BAKSÍÐU
Láglauna-
bœtur
3500 kr. á
mánuði en:
ELLILIFEYRIR HÆKKAR
UM 735 KR. Á MÁNUÐI
Af hverju fáum við ekki
láglaunauppbót á ellilíf-
eyrinn? spyr gamla fólkið/
sem þessa dagana sækir
lifeyri til Tryggingastofn-
unar ríkisins. Láglauna-
uppbótin mjögumtalaða er
kr. 3.500 á mánuði# og
gamla fólkið bjóst auðvit-
að við því að sú upphæð
kæmi ofan á ellilífeyrinn.
En sjálfsagt mælir enginn
því í mót/ að ellilífeyrir og
örorkulifeyrir séu lág laun.
En láglaunauppbótin kemur
ekki ofan á ellilifeyrinn. Hækkun
almenns ellilifeyris er kr. 735 á
mánuði, eða rúmlega fimmtung-
ur láglaunauppbótarinnar, og
tekjutryggingin, sem var 6.671 kr.
á mánuði verður 7.825 á mánuði.
Hækkun hennar er 1.154 kr. eða
um það bii þriðjungur láglauna-
hækkunarinnar.
Þess skal getið að ellilifeyris-
hækkuninni er ætlað að bæta 20%
verðlagshækkanir fram til 1.
febrúar, þannig að stór hluti
verðhækkananna kemur bóta-
laust af fyllsta þunga á gamla
fólkið.
Meðan
aðrir
kvarta
Frá Húsavik
Blómstrar Fiskiðjusamlag Húsavíkur
Nú, meðan flestir fiskfram-
leiðendur kvarta og kveina i
von um styrki frá rikisstjórn-
inni, var okkur bent á að Fisk-
iðjusamiag Húsavikur
blómstraði og það svo að
hagnaður fyrstu 8 mánuði
þessa árs væri rúmar 18 milj.
kr. Við snerum okkur til fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins
Tryggva Finnssonar og spurð-
um hann hvort þessi tala væri
rétt.
— Nei, hún er nú of há, enda
væri það engu likt ef hún væri
rétt, en hinsvegar vil ég taka
fram að afkoman hjá okkur er
góð i ár, já, mjög vel við un-
andi, og við erum ánægðir
með útkomuna.
— Er heildarútkoman lak-
ari i ár en hún hefur verið und-
anfarin ár?
— Já, heldur er þa.ð nú,
einkum frystingin sem kemur
verr út nú en áður. Svo erum
við einnig með saltfisk og
skreið, og þar virðist útkoman
ekki vera verri.
— Þið greiðið hluthöfum arð
fyrir árið 1973?
— Já, 10%; við megum ekki
greiða hærra. Eins greiðum
við sjómönnum uppbót á fisk-
verðið, en það hefur enn ekki
verið ákveðið hvað það verður
mikið, enda höfum við ekki
enn fengið allt upp gjört fyrir
siðasta ár.
Afkoman það sem af er þessu ári er viðunandi, sagði Tryggvi Finnsson
NÚHÆKKAR
SOÐNINGIN
UM 27%
Samkvæmt upplýsingum frá
verðlagsstjóra verða i dag ýmsar
verðhækkanir.
Kiló af ýsu hækkar úr 68 kr. I
85,- kr. þ.e. 25%.
Kiló af ýsuflökum hækkar úr
118 í 150 kr. þ.e. 27%
Heildós af fiskbollum fer úr
131 í 141 kr. hækkun 7,0%
Fiskbúðingur hækkar I 180 i
195 kr., eða um 8,3%
Útseld vinna I málmiðnaði
hækkar um 1—5%
Ctseld vinna í byggingariðnaði
hækkar um 5—9%
Gjaldskrá fyrir vinnuvélar
hækkar um 15%.
Það vekur sérstaka athygli, að
soðningin til neytenda hækkar nú
um 27%, enda þótt fiskveð til sjó-
manna hafi aðeins hækkað um
11%.