Þjóðviljinn - 18.10.1974, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1974.
Nýtt skip til
eskfirðinga
sjónvarp nœstu viku
r
Laugardaginn 12. október af-
henti Slippstöðin h.f. 150 lesta
stálfiskiskip til „Friðþjófs h.f.” á
Eskifirði. Skipið hlaut nafnið
„SÆLJÓN SU-104”.
Sæljón er 11. skipið i röð 150
Húseigendur ;
athugið! ■
Látið okkur skoða hús-
in fyrir veturinn. önn- j
umst hvers konar*
húsaviðgerðir.
Húsaviðgerðir sf. í
Sími12197 i
<sm
SENDIBÍLASTÖDIN Hf
rúmlesta fiskiskipa, sem Slipp-
stöðin h.f. hefur smiðað undan-
farin ár i raðsmiði. Skipið er út-
búið til iínu- tog- neta og nóta-
veiða og er togbúnaður gerður
fyrir skuttog.
1 skipinu eru ibúðir fyrir 12
manns og eru þær bæði afturi og
frami. Skipið reyndist vel i
reynsluferð og var ganghraði 13,0
sjómilur. Skipstjóri á
„SÆLJÓNI” er Friðrik Rós-
mundsson og 1. vélstjóri Bjarni
Stefánsson.
Nú eru i smiði tvö siðustu 150
iesta fiskiskipin, sem framleidd
verða að 'sinni. Þau eru byggð
fyrir aðila á Ólafsvik og Stykkis-
hólmi og er áætlað að afhenda
þau seinni hluta vetrar.
Um þessar mundir er verið að
byrja á skuttogurum, sem verða
aðalverkefni stöðvarinnar næstu
tvö árin.
Framundan eru þvi næg verk-
efni og skortur á vinnuafli, eink-
um plötusmiðum.
Sunnudagur
20. október
18.00 Stundin okkar. I stund-
inni kynnumst við að þessu
sinni tveim dvergum, sem
heita Bjartur og Búi, og eiga
heima i holum trjástofni.
Einnig koma Súsi og Tumi
og söngfuglarnir fram i
þættinum, og flutt verður
myndasaga um indiána-
drenginn Kikó njósna-
fuglinn Tsitsi og fleiri
skógarbúa. Þar á eftir
kemur svo smásaga eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson og
siðan sænsk teiknimynd en
þættinum lýkur með heim-
sókn i Þjóðminjasafnið.
Umsjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son
20.00 Fréttir.
20.30 Jane Goodall og villtu
aparnir. Sumarið 1960 tók
ung ensk stúlka, Jane Goo-
dall, sér ferð á hendur til
Tanganyika i Afriku, til
þess að kynnast lifnaðar-
háttum simpansa i frum-
skógunum þar. Bandariska
kvikmyndafyrirtækið MPC
gerði þessa mynd um leið-
angurinn, sem varð upphaf
að áralöngu rannsókna-
starfi Jane Goodal og fleiri
visindamanna á þessum
slóðum. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir. Þulur, ásamt
henni, Ellert Sigurbjörns-
son.
21.20 Saga Borgarættarinnar.
Kvikmynd, byggð á
samnefndri skáldsögu eftir
Gunnar Gunnarsson. Mynd-
in var tekin á íslandi árið
1919 af Norræna kvik-
myndafélaginu, sem þá
hafði um nokkurra ára skeið
verið athafnasamt við gerð
þögulla kvikmynda. Leik-
stjóri Gunnar Sommerfeldt.
Aðalhlutverk Guðmundur
Thorsteinsson (Muggur),
Frederik Jakobsen, Marta
Indriðadóttir, Ingeborg
Spangsfeldt, Inge Sommer-
feldt, Gunnar Sommerfeldt,
Ore Kuhl og Guðrún
Indriðadóttir. Söguágrip,
sem flutt er með myndinni,
gerði Eirikur Hreinn Finn-
bogason. Þulur Helgi Skúla-
son. Aður á dagskrá 17. júni
1970.
23.40 Að kvöldi dags. Samúel
Ingimarsson, æskulýðsleið-
togi Filadelfiusafnaðarins i
Reykjavik flytur hugvekju.
23.50 Dagskrárlok.
Mánudagur
21.október
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 Oncdin skipafélagið
Bresk framhaldsmynd. 3.
þáttur. Áttavitinn sýnir
aðra stefnu. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. Efni 2. þáttar:
A leiðinni heim frá Portúgal
veikist einn skipverja
hastarlega af hitasótt og
deyr skömmu siðar. Annar
slasast á hendi, og þegar
James verður sjálfur fár-
veikur, kemur i ljós, að
Baines er hvorki læs né
skrifandi, og þar með ófær
um að sigla skipinu á eigin
spýtur. Anne hleypur undir
bagga og annast alla út-
reikninga. Hana grunar, að
veikindin kunni að stafa af
neyslu skemmds kjöts, og
þvi lætur hún kasta öllum
kjötbirgðunum I sjóinn.
Skipshöfnin unir illa mat-
aræðinu og um skeið liggur
viö uppreisn. En að lokum
kemst James á fætur, og
skipið nær heilu og höldnu
heim til Liverpool.
21.25 tþróttir. Meðal efnis i
þættinum verða svipmyndir
frá iþróttaviðburðum helg-
arinnar. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
22.00 Orkukreppan.Þriggja*
mynda fræðsluflokkur sem
hefur gert um orkuvanda-
mál heimsins. 1. þáttur.
OliaiuÞýðandi og þulur Jón
O. Edwald.
22.30 Dagskrárlok*
Þriðjudagur
22. október
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 Iljónaefnin (I promessi
sposi). Ný itölsk framhalds-
mynd i átta þáttum, byggð á
samnefndri skáldsögu eftir
einn helsta brautryðjanda
Italskrar skáldsagnagerðar,
Alessandro Manzoni, sem
uppi var frá 1785 til 1873. 1.
þáttur. Þýðendur Sonja
Diego og Magnús G. Jóns-
son. Sagan gerist á 17. öld og
skammt frá Milanó, sem
um þær mundir laut stjórn
spánverja. í landinu rikir
stöðugur ófriður og farsóttir
og óáran hefja á fólkuð.
Aðalpersónur sögunnar,
Lucia og Ranzo, eru ung og
ástfangin. Brúðkaup þeirra
hefur þegar verið ákveðið,
en áður en af þvi verður
kemur slæm hindrun i ljós.
Spænskur valdamaður i
bænum, Don Rodrigo að
nafni, leggur hug á stúlk-
una, og kemur i veg fyrir
giftinguna. Aðalhlutverk i
framhaldsmyndinni leika
Paola Pitagora, Nino
Castelnuovo og Tino Carr-
aro, en leikstjóri er Sandro
Bolchi.
21.45 Þvi fer fjarriv
Norskur skemmtiþáttur með
stuttum, leiknum atriðum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. fNordvision —
Norska sjónvarpið)
22.15 Ileimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Sonja Diego.
22.45 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
23.október
18.00 Filahirðirinn, Bresk
framhaldsmynd fyrir börn
og unglinga. Skrúðgangan
mikla Þýðandi Jóhanna Jó
hannsdóttir.
:r?\i
$
‘íi.
-.>”V
Indlánadrengurinn Kfkó, andlegt afkvæmi islendingsins Karls
Þórðarsonar, scm starfaði fyrir Disney-fyrirtækið. Barnatimi
sjónvarpsins hcldur áfram að rekja ævintýri hans á sunnudag-
inn.
18.25 Gluggar. Breskur
fræðslumyndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýðandi
og þulur Jón O.Edwald.
18.50 Butraldi. Sovésk leik-
brúðumynd, eins konar
framhald af myndinni um
krókódilinn Gena og vini
hans. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir;
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 Orkukreppan. Bresk
fræðslumynd I þremur þátt-
um. 2. þáttur. Kjarnorkan.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
21.25 „Ungrfrú Alheimur”
Sjónvarpsupptaka frá al-
þjóðlegri fegurðarsam-
keppni I Manilla á Filipps-
eyjum' fyrr á þessu ári.
Þátttakendur I keppninni
eru frá 65 þjóðum, og þeirra
á meðal er Anna Björns-
dóttir frá Islandi. Auk kepp-
enda og dómara, koma
fram i þættinum listamenn
af ýmsu tagi og flytja
skemmtiatriði. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
23.10 Ðagskrárlok.
Föstudagur
25.október
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 GulleyjaníTeiknimynd úr
flokknum „Animated Class-
ics”, byggð á hinni alkunnu
sjóræningjasögu eftir Ro-
bert Louis Stevenson. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
21.25 Lögregluforinginn
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Blóðugir seðlar.
Þýðandi Auður Gestsdóttir.
22.15 Kastljós-Fréttaskýringa-
þáttur. Umsjónarmaður
Guðjón Einarsson.
22.45 Dagskrárlok.
Laugardagur
26.október
17.00 Enska knattspyrnan.
18.00 iþróttir.Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar,
20.25 Læknir á lausum kili,
Breskur gamanmynda-
flokkur. Tekinn með trompi.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
20.50 Vaka.Dagskrá um bók-
menntir og listir. Umsjón-
armaður Gylfi Gislason.
21.25 Jötunheimar.Mynd um
landslag og leiðir i háfjöll-
um Noregs. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
22.00 Kræfur kjósandi (Great
Man Votes)»Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1939. Aðal-
hlutverk John Barrymore
og Virginia Weidler. Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
Aðalpersóna myndarinnar
er drykkfelldur rithöfundur.
Hann er ekkill, en á tvö
stálpuð börn. Yfirvöldum
barnaverndarmála þykir
hann óhæfur til að annast
uppeldi þeirra og á hann þvi
um tvo kosti að velja, bæta
ráð sitt, eða láta börnin frá
sér ella. Einnig kemur við
sögu i myndinni frambjóð-
andi nokkur, sem verið
hefur andsnúinn rithöfund
inum en vill nú allt til vinna
að fá stuðning hans i kosn-
ingum.
23.10 Dagskrárlok.,