Þjóðviljinn - 18.10.1974, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
SKÚLIJOHNSEN, BORGARLÆKNIR:
„Lœknaskortur
í Reykjavík”
I Reykjavik eru það
aðeins 25 læknar sem
stunda heimilislækningar
sem aðalstarf/ og annast
þannig heilsugæslu um
80.000 borgarbúa.
Þetta eru i stórum
dráttum þeir erfiðleikar
sem yfirvöld heilbrigðis-
mála glima nú við að
breyta.
Þjóðviljinn skýrði frá
því í gær# hvernig kerfi
heimilislækninganna er
byggt upp, og þar kom
skýrt fram, að gamla
kerfið, þ.e. einn heimilis-
læknir með ákveðinn
fjölda borgara á sinni
könnu, er alveg farið úr
böndunum og brýn þörf
er á endurbótum.
,,Þa5 hefur verið stefna yfir-
valda, að dreifbýlið ætti að
ganga fyrir hvað snertir endur-
bætur á læknisþjónustu”, sagði
Skúli Johnsen, borgarlæknir i
samtali við Þjóðviljann.
„Hér i Reykjavik er vandinn
annar en úti á landi. í dreifbýl-
inu hefur fólk þurft að vera
læknislaust. Hér eru hins vegar
alltof fáir læknar,sinna of mörg-
um ibúum”.
Borgarlæknir sagði, að erfið-
leikar heimilislækninganna i
Reykjavik hefðu verið efst á
baugi hjá sinu embætti um
margra ára skeið, en nú væru i
giidi ný lög um heilbrigðisþjón-
ustu, og lausnin þar með i sjón-
máli.
Stefnt er að þvi að koma á fót
heilsugæslustöðvum i hinum
ýmsu borgarhverfum, en áður
en hægt verður að vinna að þvi,
verður að útvega fé til fram-
kvæmdarinnar.
Heilsugæslustöð
í Árbæjarhverfi
Reykjavikurborg hefur fest
kaup á húsi i Arbæjarhverfi og
þar er ætlunin að fimm læknar
hafi aðsetur og sinni læknis-
þjónustu fyrir Arbæjarhverfið.
Sagði Skúli Johnsen að brátt
yrði lokið við að hanna innrétt-
mgu þessarar heilsugæslustöðv-
ar, og vilyrði hefði fengist hjá
rikisstjórninni fyrir fjárveitingu
til stöðvarinnar.
Samkvæmt lögum þá á rikið
að leggja fram 85% af kostnaði
við byggingu slikrar heilsu-
gæslustöðvar.
Breiðholtið
mesti vandinn
En þótt fólkið i Arbæjarhverf-
inu eygi kannski lausn i næstu
framtið, þá er stærsti vandinn
eftir. Breiðholtshverfið er alveg
læknislaust, Þar er enginn
heimilislæknirstarfandi, og þótt
Heilsuverndarstöðin hafi nýlega
komið þar á fót eins konar úti-
búi, verður allur fjöldinn sem
býr i þessari stóru útborg að
sækja alla læknisþjónustu niður
i miðbæ.
Verið er að hanna heilsu-
gæslustöð fyrir Breiðholtshverf-
ið, en enn sem komið er, eru
ekki horfur á að fjármagn fáist i
bráð til að byggja stöðina. Borg-
arlæknir kvað það von sina, að
einhver hluti ibúanna i Breið-
holti gæti sótt læknisþjónustu i
heilsugæslustöðina i Árbæjar-
hverfi, þegar sú stöð kemst á
fót.
Læknaskortur
Læknaskorturinn i þéttbýlinu
hefur komið heilbrigðismálun-
um i þéttbýlinu i það horf, að nú
er haft á orði að miklu erfiðara
sé fyrir borgarbúa að leita
læknis heldur en fyrir þá sem i
dreifbýli búa.
Og sú staðreynd, að aðeins 25
læknar sinna heimilislækning-
um að marki, bendir til að þótt
peningar fáist til heilsugæslu-
stöðva, þá verði erfiðleikum
bundið að manna þær stöðvar
með læknum og aðstoðarfólki.
Þeir læknar sem nú sinna
heimilislækningum i Reykjavik
og nágrenni hafa án efa mikið
að gera, og það var á borgar-
lækni að skilja, að áhugaleysi
lækna á heimilislækningum
stafaöi meðfram af þvi aðstöðu-
leysi sem yfirvöld bjóða þeim.
Viö skýrðum frá þvi i gær, að
læknir sem annaðist heilsu-
gæslu kringum 3000 samlags-
manna Sjúkrasamlags Reykja-
vikur, hefði i árslaun um 2,5
miljónir. Það er rétt að benda á
að þessi tala er vitanlega
brúttóupphæð. Læknirinn verð-
ur að greiða af þessum „laun-
um” sinum kostað við
lækningastofu og jafnvel laun til
aðstoðarfólks. Og af þvi leiðir
aftur, að læknir sem heimilis-
lækningar stundar, reynir að
sinna öðrum læknisstörfum
meðfram, svo sem þjónustu á
sjúkrahúsum og jafnvel störfum
fyrir fleiri en eitt sjúkrasam-
lag. — GG
Breiðholt lœknislaust
Fást lœknar í heilsugœsiustöðvar?
Heimilislœknar stunda mörg störf
Einkunnarorð framboðs Verðandi til 1, des. nefndar:
þjóðsag-
veruleikinn
Kjörstjórn 1. des. kosninganna aö störfum. Frá vinstri: Hannes Sig-
urðsson læknanemi, Þorsteinn A. Jónsson laganemi og Alfheiður Inga-
dóttir liffræðinemi
ísland
an og
ísland — þjóðsagan og veru-
ieikinn eru einkunnarorð á fram-
boði Verðandi, féiags róttækra
við Hí, tii 1. des. nefndar i ár. Til-
laga er um Þorstein frá Hamri,
rithöfund, sem ræðumann.
1 fréttatilkynningu frá Verð-
andi segir ma.: „...tekin verður
til umræðu og athugunar með
samfelldri dagskrá sú söguskoð-
un sem við kennum við þjóðsög-
una um tsland, sett fram visinda-
leg söguskoðun og nútiminn skil-
greindur i ljósi hennar.”
Um þjóðsöguna segir svo i
ávarpi frá Verðandi: „Þjóðsagan
um tsland: sagan um frelsisást
vikinganna, einstæða illmennsku
dana, hugrekki sjálfstæðishetj-
anna og siðast en ekki sist frelsið,
jafnréttið og stéttleysið á tslandi
eftir farsæl endalok sjálfstæðis-
baráttunnar.”
1 framboði til 1. des. nefndar af
hálfu Verðandi eru Gylfi Páll
Hersir, Leifur Hauksson, Auður
Styrkársdóttir, Berglind Gunn-
arsdóttir, Einar Már Sigurðsson,
Tómas Einarsson og össur
Skarphéðinsson.
Nái fólk þetta kjöri i kosningun-
um sem fram eiga að fara á
þriðjudaginn 22. október hyggjast
Verðandimenn haga störfum sin-
um þannig að við hlið aðalnefnd-
arinnar starfi ritnefnd og ræðu-
nefnd. Sú fyrrnefnda mun sjá um
útgáfu 1. des blaðsins en sú siðar-
nefnda, sem að mestu verður
skipuð sagnfræðingum, hagfræð-
ingum og öðrum visindamönnum,
mun semja textann að dag-
skránni. Efnivið fær hún frá
starfshópum sem skipta munu
sögunni milli sin og skipaðir
verða stúdentum. Eins og áður
hyggjast Verðandimenn láta tón-
list skipa veglegan sess i dag-
skránni.
Af Vöku — félagi lýðræðissinn-
aðra stúdenta — er það að segja
að hún býður fram undir einkunn-
arorðunum Tjáningarfrelsi og
skoöanamyndun. Ræðumenn
Vöku eru þeir Markús Möller for-
maður félagsins og Hrafn Gunn-
laugsson sem sett hefur fram
kenningar um „frjálsa fjöl-
miðla”.
Vinstri menn hafa einna mest-
an áhuga á að sjá hver verður af-
staða Vöku til Frjálsrar menn-
ingar. Ekki þykir liklegt að félag-
ið leggi i að lýsa stuðningi sinum
við Hreggvið þar sem slikt er
fremur óvænlegt i atkvæðaveið-
um innan háskólans. Taki þeir
vökumenn hins vegar afstöðu
gegn Hreggviði eru þeir komnir i
hrapalega þversögn við eigin
kenningar sem eru þær helstar að
afnema beri alla rikiseinokun á
fjölmiðlum og veita hana frjálsa.
Og vitanlega hlýtur það frelsi að
ná til bandarikjahers — eða
hvaö?
1 gær gerðist það að kjörstjórn
neitaði að viðurkenna umboðs-
mann lista Vöku, Kjartan
Gunnarsson. Það var gert á
þeirri forsendu að Kjartan hafi
ekki talist háskólanemi lögum
samkvæmt. Kjartan skrifaði á
sinum tima bréf til háskólaráðs
þar sem hann fór fram á að hon-
um yrði sleppt við innritunargjöld
og tilfærði lagakróka sem að
hans mati gætu heimilað það.
Engrar ástæðu gat hann fyrir
þessari beiðni i bréfinu, en hana
vita allir sem vilja vita. Þessi
beiðni Kjartans er i beinu sam-
hengi við þær tilraunir sem hægri
menn við háskólann, jafnt úr hópi
nemenda sem kennara, hafa gert
að undanförnu til að svipta Stúd-
entaráð fjárhagslegum starfs-
grundvelli sinum og jafnframt að
þagga niður i Stúdentablaðinu.
Slik er nú ástin á tjáningarfrels-
inu.
—ÞH
ENGINN EINLEIKUR
Segir formaður Einingar um birtingu launataxta 1. nóvember
Jón Helgason, form. Einingar
„Ég tcl það ckki farsælt að við
leikum neinn einleik i þessu,”
sagði Jón Helgason, formaður
Einingar á Akureyri, þegar Þjóð-
viljinn spurði hann eftir þvi I gær,
á hvern rekspöl augiýsing sér-
staks kauptaxta með fullum visi-
tölubótum væri komin, en félags-
fundur i Einingu samþykkti fyrir
skömmu að slikt skyldi gert.
„Ég held að fréttamiðlar hafi
farið svolitið rangt með hlutina,”
sagði Jón. „Það er rétt að fram
kom tillaga um að auglýstur yrði
taxti með fullum verðlagsuppbót-
um á laun. Við þessa tillögu kom
fram breytingatillaga um það, að
leitað yrði samráðs við almennu
félögin nú þegar. Ég sendi þessa
tillögu til Verkamannasam-
bandsins, en ég hef ekkert heyrt
frá þeim ennþá. Meðan ég verð
ekki var viö að neinir ætli að
ganga i þessa átt, tel ég þetta
detti nærri þvi um sjálft sig,
a.m.k. að svo stöddu.
t upphaflegu tillögunni var gert
ráð fyrir að auglýsa taxta frá 1.
nóvember með fullum verðlags-
uppbótum á laun, og náttúrulega
er það sama og að lýsa yfir vinnu-
stöðvun, þvi jafnframt heimilaði
fundurinn stjórn og trúnaðar-
mannaráði að fylgja auglýsing-
unni eftir með vinnustöðvun, ef
taxtinn yrði ekki samþykktur. Og
i sjálfu sér er það verkfalisboðun
að setja nyjan taxta einhliða.
Nýlega var fundur hjá Verka-
mannasambandinú og þessi til-
laga var kynnt þar, en ekki tekin
nein afstaða til hennar. Satt að
segja finnst mér ekki grundvöllur
til að gera stóra hluti, ef Verka-
mannasambandið tekur ekki und-
ir það og þau félög, sem að þvi
standa, svo við förum okkur ró-
lega enn þá.” —úþ