Þjóðviljinn - 18.10.1974, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1974.
Landsliðið fær ekki
húsnæði til æfinga
og það er okkar stærsta vandamál ásamt fjármál-
um,sagði Sigurður Jónsson formaður HSÍ - sjaldan
hafa jafn mörg verkefni beðið landsliðsins sem nú
— Við eigum við tvö al-
varleg vandamál að etja í
hándknattleiknum I dag,
sagði Sigurður Jónsson
formaður HSí á blaða-
mannafundi í fyrradag.
Annað er fjármálin, þar
sem HSI er með 6 milj. kr.
skuldabagga á bakinu, og
hitt er húsnæðisleysi, bæði
til að koma islandsmótinu
fyrir og eins fyrir æfingar
landsliðsins. Hér i Rvk. er
aðeins um eitt hús að ræða
sem hefur löglegan hand-
knattleiksvöl I, það er
Laugardalshöll, og hún er
orðin svo ásetin að við
komumst þar ekki lengur
að með æfingar landsliðs-
ins. Og segja má, að það sé
til lítils að vera að gera á-
ætlanir um stóra hluti, svo
sem ráðningu erlends
landsliðsþjálfara og þátt-
töku í stórmótum fyrir
landslið, fyrr en þessum
tveim málum hefur verið
kippt í lag, sagði Sigurður.
Sigurður skýrði siðan frá til-
raun sem HSt ætlar að gera til að
leysa fjármálavanda sinn, sem er
að efna til ibúðarhappdrættis,
sem mun verða glæsilegasta
skyndihappdrætti sem efnt hefur
verið til hér á landi og sýnir stör-
hug þeirra HSI-manna. Sagði Sig-
urður að ef þetta tækist vel,
myndi það gera betur en að leysa
vandann. Það myndi gera okkur
mögulegt að byggja upp fyrir
framtiðina, en segja má að tómt
mál sé að tala um slikt fyrr en
fjármálavandinn hefur verið
leystur, sagði Sigurður.
Hitt vandamálið, húsnæðisleys-
ið, er miklu erfiðara viðfangs.
Eins og áður segir er það höllin
ein sem hefur löglega vallarstærð
húsa i Rvk fyrir handknattleik, en
hún er nú orðin svo ásetin, að HSl
fær ekki inni fyrir landsliðsæfing-
ar lengur, nema i örfá skipti i vet-
ur. Alveg sama er að segja um
iþróttahúsið i Hafnarfirði, sem
hefur löglega vallarstærð, það er
einnig svo ásetið að erfitt eða ó-
mögulegt er að fá þar inni.
Hvernig þetta vandamál verður
leyst er'ekki hægt að segja um á
þessu stigi málsins, en það hljóta
allir að geta tekið undir það með
HSl-mönnum, að ef við ætlum
okkur að eiga landslið i hand-
Möguleiki er á aö ís-
iensku A-landsliðin í karla-
og kvennaflokki leiki alls
28 landsleiki í vetur. Þó er
ekki búið að fullákveða
alla þessa leiki, en mjög
miklar likur á, að þeir fari
knattleik og ráða til þess dýran
erlendan þjáifara, þá verður að
vera til húsnæði til æfinga, og það
allir fram. Þessir leikir
eru:
Nóvember
Færeyska karlalandsliðið kemur
hér i byrjun nóv. og leikur 2 leiki.
tslenska karlalandsliðið fer til
Færeyja og leikur tvo leiki.
Landslið A-Þýskalands leikur tvo
leiki á tslandi
Hollenska kvennalandsliðið leik-
ur hér tvo leiki.
Descmber
Landslið Kanada leikur hér á
milli jóla og nýárs á leið sinni til
Evrópu.
Janúar
Landslið Luxemburg leíkur hér
einn leik.
verður að fást hvað sem það kost-
ar.
—S.dór
Febrúar
Landslið tslands fer til Póllands
og leikur tvo landsleiki við Pól-
land og fer siðan til Danmerkur
og tekur þátt i Norðurlandamóti.
Mars
Landslið Tékkóslóvakiu kemur i
byrjun mars og leikur hér tvo
leiki.
Kvennalandslið Kanada kemur til
Islands á leið sinni til Evrópu og
leikur tvo leiki við kvennalands-
liðið.
Landslið júgóslava kemur til Is-
lands um miðjan mars og leikur
tvo leiki.
April
Danska landsliðið leikur hér tvo
leiki og fer siðan til Færeeyja.
Fyrir utan þá leiki sem hér eru
taldir upp leikur svo karlalands-
liðið 3 leiki i Sviss siðast i þessum
mánuði, við ungverja, v-þjóð-
verja og svisslendinga.
Fyrir svo utan alla þessa leiki
taka bæði pilta- og stúlknalands-
liðin þátti NM i vetur, og verður
NM stúlkna haldið hér á landi um
páskana.
Milli-
ríkja-
dómarar
skipaðir
Dómaranefnd HSf hefur til-
nefnt eftirtaida menn sem
milliríkjadómara fyrir næsta
kcppnistimabil:
Val Benediktsson
Magnús V. Pétursson
Óla Ólsen
Björn Kristjánsson
Hannes Þ. Sigurðsson
Karl Jóhannsson.
Hilmar
ráðinn
til HSI
Hiimar Björnsson hand-
knattleiksþjálfari hefur vcrið
ráöinn i hálft starf hjá HSl, og
er starf hans einkum fólgið i
þvi að segja handknattleiks-
þjáifurum til, bæði með þvi að
fara á staðina, og eins mun
hann skipuleggja og sjá um
námskeiðahaid fyrir hand-
knattleiksþjálfara. Þá mun
Hilmar einnig fara I skóla
landsins og kynna handknatt-
leikinn sérstaklega.
Hilmar hefur sem kunnugt
er stundað nám viö iþrótta-
kcnnaraskóla i Svíþjóð sl. 2 ár
og kynnt sér handknattleik al-
veg sérstaklega, auk þess sem
hann hefur æft undir hand-
leiðslu landsliðsþjálfara svia,
Rolands Mattsson. Hilmar er
nú þjálfari 1. deildarliðs Vals.
Aðeins 10
dómarar
í 1. deild
Jón Erlendsson formaður
dómaranefndar HSt hefur
skýrt frá þvi, að i vetur muni
aðeins 10 dómarar dæma leiki
i 1. deild, það eru 5
dómarapör. Munu sömu tveir
dómararnir alltaf dæma
saman,en það eru:
Karl Jóhannsson
Hannes Þ. Sigurðsson
Björn Kristjánsson
Óli Ölsen
Magnús V. Pétursson
Valur Bendiktsson
Sigurður Hannesson
Gunnar Gunnarsson
Jón Friðsteinsson
Kristján örn
Þessi ráðstöfun er til fyrir-
myndar. Undanfarin ár hafa
alltof margir dómarar sem
alls ekki eru til þess hæfir
fengistvið að dæma 1. deildar-
leikina, oft á tiöum með
slæmum árangri. Að visu eru i
þessum hópi menn sem ekki
ættu þar að vera, sökum hæfi-
leikaskorts, en það, að hafa
aðeins 10 dómara i 1. deild og
siðan 20 dómara i 2. deild eins
og ákveðið hefur verið, gefur
möguleika á að færa menn á
milli ef þeir standa sig ekki i 1.
deild, og i stað þeirra komi svo
þeirsem best þykja standa sig
i 2. deild.
—S.dór
EB bikarmeistara
í handknattleik
Fram til þessa hefur i handknattleik aðeins veriö um að ræða
Kvrópukeppni meistaraliða, en á þingi Alþjóöahandknattleiks-
sambandsins (IHF) sem hald.ið var 4. og 5. okt. sl. var samþykkt að
koma á Evrópukeppni fyrir bikarmeistara, en þar sem bikarkeppni
fer ekki fram er leyfilegt að senda það lið til keppninnar sem varð
númer tvö i landsmóti.
Þarna er um að ræða Evrópukeppni bæði I karla- og kvennaflokki,
og á fyrsta Evrópukeppni bikarmeistara að fara fram næsta haust.
Þetta er áreiðanlega mjög til bóta, þar sem bikarkeppni mun fara
fram I fiestum löndum álfunnar þar sem handknattleikur er
iðkaður, en ekkert sérstakt verkefni hefur veriö fyrir þau lið sem
orðið hafa bikarmeistarar til þessa.
1 vetur er fyrirhugað að bikarkeppni HSl fari fram jafnhliöa I.
deildarkeppninni og að henni ljúki um svipað leyti og
islandsmótinu.
Möguleiki á 28
landsleikjum á
komandi vetri