Þjóðviljinn - 18.10.1974, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1974.
19
og skimaði upp og niðureftir aðal-
götunni áöur en hann gekk út i
vaxandi kófið.
Borck var svo handviss um
hvert hinn ætlaði, að hann gaf
honum drjúgt forskot. Hríðarkóf-
ið hjálpaði honum. Hann gat
meira að segja rakið slóðina eftir
skóna mannsins: mynstrið minnti
á einfaldaða teikningu af greni-
tré: hann elti greinarnar og oddar
þeirra vissu i áttina sem hann átti
að ganga i.
Skammt frá útidyrunum stans-
aði Borck. Hann hafði slökkt ljós-
ið eins og hann var vanur, nú var
ljós i eldhúsinu hjá honum.
Gremjan yfir frekjunni leið skjótt
hjá, hann var altekinn þeirri til-
finningu að hann væri i þann veg-
inn að vinna sigur, hreykinn af
kænsku sjálfs sin, sem hafði jafn-
vel komið honum sjálfum á óvart.
Hann reyndi ekki að gera sér i
hugarlund hvað væri að gerast
uppi i ibúðinni. Þar gat ringul-
reiðin naumast orðið verri en hún
var. Meðan hann beið laumaðist
hann meðfram kyrrstæðu bilun-
um og stakk lyklinum i sinn eigin
bil. Hann skrúfaði I skyndi peruna
úr litla lampanum sem kviknaði á
um leið og dyrnar voru opnaðar.
Hann þorði ekkiað sitja inni i biln-
um sinum: hann faldi sig bakvið
einn af hinum bilunum og reyndi
að stöðva hnerra, sem sóttu að
honum, með þvi að horfa upp að
ljósinu i eldhúsglugganum sinum.
Maðurinn var kominn að glugg-
anum hans og horfði i kringum
sig. Borck fylgdist með honum
gegnum tvennar bilrúður. TIu
minútur liðu, stundarfjórðungur
leið. Loks var ljósið slökkt i eld-
húsinu hjá Borek. Borck hnipraði
sig saman milli tveggja bila.
Maðurinn kom út, leit i allar áttir
og gekk af stað eftir veginum sem
lá að tjörninni.
Þegar Borck taldi liklegt að
maðurinn væri kominn að beygj-
unni hjá tjörninni, settist hann
upp i bilinn sinn og ók sömu leið
án ljósa. Hann ók hægt eftir
breiða veginum þangað tii hann
sá ögn frá sér. Auðvelt var að
fylgjast með fótsporunum á gang-
stéttinni, þau lágu I áttina að
aðalgötunni. Borck kveikti
stöðuljósin, hann hélt að þau
vektu minni athygli. I fyrsta
skipti uppgötvaði hann kosti þess
að annar hver bill var Cortina.
Honum hafði ekki skjátlast,
hinn maðurinn hafði komið i bil.
Þegar Borck fór að nálgast aðal-
götuna mætti hann rauðri Angliu
með öfugsnúna bakrúðuna næst-
um hulda snjó. yangasvipur
ekilsins var auðþekktur. Hann
hugsaði: það leigir enginn út
Angliur. Þegar hann beygði á
eftir Angliunni, sá hann að snjór-
inn hafði lagst yfir númerið. En
þá hlaut hann lika að hylja hans
eigin númer? Hann ók löturhægt
uns Anglian var horfin inn á
sveiginn á aðalgötunni.
Anglian var framundan. Hann
ók framhjá kertagerðinni, Volvo-
umboðinu, alla flóknu leiðina yfir
hraðbrautina, framhjá spor-
vagnsstæðinu, niður að slaufu-
gatnamótunum. Hér lét hann sem
hann ætlaði að aka beint áfram —
hann var kominn of nærri Angl-
iunni — ók framhjá innkeyrslunni
á hraðbrautina, sneri við og var
eftir andartak kominn i humátt á
eftir bilnum á ný, með nokkra
blla á milli þeirra og hagstæðari
fjarlægð. Hinn maðurinn ók lika
fremur hægt i snjókomunni.
Þetta varð langur eltingaleikur
en ekki erfiður. Bilarnir óku hægt
og nærri rauðu bakljósunum hver
á öðrum. Einu sinni eða tvisvar
ók hinn framúr. Snjórinn var fall-
inn af númerinu hans, og Borck
tók upp kúlupennann sinn og
skrifaði númerið á Angliunni á
miðann sem festur var á stýrið
hjá honum til að ininna hann á
næstu smurningu á bilnum.
Þeir óku i átt að borginni, að
hringveginum. Hér dró hinn úr
hraðanum og það gerði Borck lika
i hæfiiegri fjarlægð. Til að dyljast
skipti Borck öðru hverju frá
stöðuljósum i háljós: samt fannst
honum sem það væri óþarfi.
A hringveginum höfðu fleiri bil-
ar komið milli þeirra og Borck
Bókhaldsaðstoð
með tékkafærsium
BUNAÐARBANKINN
REYKJAVÍK
RAFAFL
Vinnufélag
rafiðnaðar-
manna
Barmahlíð 4
HÚSEIGENDUR,
HÚSBYGGJENDUR
• önnumst allar nýlagnir og
viðgerðir á gömlum raflögn-
um.
• Setjum upp dyrasima og lág-
spennukerfi.
• Ráðgjafa og teikniþjónusta.
• Sérstakur simatimi milli kl.
1-3 daglega, simi 28022.
þorði ekki að aka fram úr af ótta
við að hann þekktist — yrði sýni-
legur i baksýnisspegli hins. 1
hvert skipti sem beygja kom til
greina, fylgdist hann vandlega
með þvi sem var að gerast fram-
undan. Þeir óku i sveig kringum
þvi nær alla borgina. Loks fór
Anglian inn á vinstri akrein og
birtan frá bakljósunum varð tvö-
falt sterkari. Hann þorði ekki að
fara sjálfur á vinstri akrein, held-
ur lét sér nægja að draga úr hrað-
anum.
Hinn beygði og Borck slökkti á
háljósunum og yfir i stöðuljós og
ók án þess að gefa stefnuljós
þvert yfir vinstri akrein og elti
Angliuna á eftir tveim bilum, sem
hann reyndi að leynast bakvið.
Þegar hann vogaði sér fram kom
hann i fyrstu ekki auga á Angli-
una, en þarna var hún samt, hafði
aðeins aukið hraðann og fjar-
lægðist bilana á milli þeirra.
Borck gerðist svo djarfur að aka
framúr fáeinum þeirra. Rétt á
eftir var Anglian komin lengst til
hægri, hún hemlaði og beygði en
Borck var tilneyddur að aka beint
áfram. Blindgatastóð undir skilt-
inu við veginn sem hann hafði ek-
ið inn á.
Hann ók smáspöl, beygði siðan
sjálfur til hægri, inn á veg sem
einnig var blindgata. Hann lagði
bilnum milli tveggja götuljósa og
leit I baksýnisspegilinn: Myrkur
fyrir aftan hann. Hann steig út úr
bilnum.
Allt i kring voru litlir matjurta-
garðar. Langt i burtu, þar sem
vegurinn endaði, fór járnbrautar-
lest framhjá, furðulega hátt uppi:
erlendir svefnvagnar með ljósum
hvolfþökum og glæsilegum glugg-
um með ljósum og fólki fyrir inn-
an. Lestin var óendanlega löng.
Borck gekk i áttina að breiðari
veginum og sneri baki i lestina.
Ekkert fólk var sjáanlegt á
þessum slóðum. Húsin voru al-
dimm i litlu, beru trjágörðunum.
Honum flaug i hug að maðurinn
hefði getað lokkað hann i gildru
og hann var að þvi kominn að
hlaupa aftur að bilnum, en stillti
sig. Hann kom að veginum sem
maðurinn hafði beygt inn á. Spöl-
korn neðar, undir götuljósi, stóð
Anglian, tóm að þvi er virtist,
með ljósin slökkt.
Lestin var farin framhjá og
skildi eftir kennd einmanaleika
og dálitla heyrnardeyfu. Borck
hikaði við að nálgast bilinn, sem
nú var óðum að hyljast snjó.
Hefði hann verið i sporum hins,
hefði hann þá ekki reynt að tæla
hann inn á svona svæði? Hlaut
maðurinn ekki að hafa tekið eftir
þvi að honum var veitt eftirför?
En svo hugsaði hann með sér, að
hinn maðurinn vissi ekki brot af
þvi sem hann sjálfur vissi. Gatan
hét Hjartagrasvegur. Borck gekk
eftir honum.
Maðurinn hefði getað falið sig i
bllnum, en úr nokkurri fjarlægð
kom Borck auga á fótsporin sem
lágu burt frá bilnum. Garðshlið
stóð hálfopið, fáein ljós voru
kveikt i litlum timburkofa með
gluggahlerum.
Hjartagrasvegur númer niu
Hann hefði getað gengið lengra og
gægst inn, en hann þorði það ekki
og hann mátti reyndar engan
tima missa. Borck hélt af stað á-
leiöis að breiðari veginum og velti
fyrir sér hvað hann ætt.i að segja.
f simaklefanum reyndist aðal-
vandinn að ákveða i hvaða númer
hann ætti að hringja. Hann fletti
upp á lögreglunni i dálkunum
fremst i skránni. Hann valdi
rannsóknardeild, hringdi i
númerið og hélt um nefið með
þumli og visifingri hægri handar.
— Þetta er vinur jólasveinsins,
sagði hann þegar tólinu var lyft
hinum megin og hann hafði beðið
um deildina.
— Þér getið náð i vin minn jóla-
sveininn, sem reyndi að ræna
banka, þér munið.
— Andartak, við skulum gefa
samband.
Margir smellir heyrðust, hann
taldi vist að verið væri að tengja
segulband. Hann reyndi að breyta
röddinni enn meira, með þvi að
klípa svo fast um nefið að hann
fór að verkja i það.
— Halló.
— Þetta er fyrrverandi vinur
jólasveinsins, þess sem ætlaði að
ræna banka en hætti við það. Nú
getið þið gripið hann og hann er
reyndar gamall kunningi ykkar.
— Hver er það sem talar?
— Sleppum öllum formsatrið-
um og hafið með ykkur hund sem
hefur þefað af jakkanum sem
jólasveinninn skildi eftir i bank-
Föstudagur 18. október
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl). 9,00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Morg-
unstund barnanna kl. 8.45:
Rósa B. Blöndals heldur
áfram að lesa söguna
„Flökkusveinninn” eftir
Hector Malot (5). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög á
milli liða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Spænsk tón-
list kl. 11.00: Nicanor
Zabaleta og Sinfóniuhljóm-
sveit Berlinarútvarpsins
leika Konsertserenötu fyrir
hörpu og hljómsveit eftir
Jaoquin Rodrigo/Augustin
Leon Ara og Jean Claude
Vanden Eynden leika
Spænska sónötu fyrir fiðlu
og pianó eftir Turina-
/Hljómsveit Tónlistarhá-
skólans i Paris leikur Bolero
eftir Ravel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 „Fólk og stjórnmál”, úr
endurminningum Erhards
Jacobsens. Auðunn Bragi
Sveinsson les þýðingu sina
(3).
15.00 Tékkneska trióið leikur
Trió I Es-dúr fyrir fiðlu,
pianó og knéfiðlu op. 100 eft-
ir Schubert.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
17.30 Pilagrimsför til
lækninga lindar innar I
Lourdes Ingibjörg Jóhanns-
dóttir lýkur lestri á frásögn
Guðrúnar jacobsens (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svarað Svala
Valdimarsdóttir leitar
svara við spurningum hlust-
enda.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar islands i Háskóla-
biói kvöldið áður. Stjórn-
andi: Samuel Jones frá
Bandarikjunum. Einleikari
á pianó: Michael Roll frá
Bretlandi.a. Harmforleikur
op. 81 eftir Johannes
Brahms. b. Adagio fyrir
strengjasveit op. 11 eftir
Samuel Barber. c. Fjórar
sjávarmyndir op. 33a eftir
Benjamin Britten. d. Pianó-
konsert nr. 5 i Es-dúr eftir
Ludwig van Beethoven. —
Jón Múli Árnason kynnir
tónleikana.
21.30 Útvarpssagan: „Gang-
virkið” eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson Þorsteinn Gunn-
arsson leikari les (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur: Mjólkuriðnaðurinn
á Akureyri GIsli Kristjáns-
son ritstjóri ræðir við Vern-
harð Sveinsson forstöðu-
mann Mjólkursamlags KEA
og Gisla Magnússon
múrarameistara.
22.35 Afangartónlistarþáttur i
umsjá Ásmundar Jónssonar
og Guðna Rúnars Agnars-
sonar.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
áJj, áJj.
O
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar,
20.35 Tökum lagið. Breskur
söngvaþáttur. Hljómsveitin
„The Settlers” flytur iétt
lög ásamt fleirum. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
21.00 Kapp með forsjál
Breskur sakamálamynaa-
flokkur. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.50 Kastljós. Frétta-
skýringaþáttur. Umsjónar-
maður Svala Thorlacius.
22.25 Dagskrárlok.
Þjóðviljinn býður ykkur að auglýsa I
Sunnudagsmarkaði, eða gera samninga
um fastaauglýsingar. Hafið samband við
auglýsingadeildina og spyrjist fyrir um
verð og kjör. Simi 17500.
r um
Iðnaðarmenn
Indversk undraveröld
Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjöi-
breytt úrval af austurlenskum skraut- og list-
munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör-
ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og
margt fleira.
Einnig úrval af indverskri bómull, batik-efn-
um, rúmteppum og mörgum gerðum af
niussum.
Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum.
Gjöfina, sem ætið gleður, fáið þér í
Jasmin
Laugavegi 133 (við Hlemmlorg).