Þjóðviljinn - 18.10.1974, Page 12
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar I
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla
lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna
■18.—24. okt. er i Vesturbæjarapóteki
og Háaleitisapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
uverndarstöðinni. Simi
21230.
9?
Þetta er
95
vitleysa
segja íbúar við Grettisgötu
„Stórkostleg röskun á högum
íbúa’\ segir Höskuldur Jónsson
í bréfi til borgarráðs
fbúar við Grettisgötu
virðast yfirleitt óánægð-
ir með það ráðslag
borgaryf irvalda að
beina þeim bílum sem
áður voru stöðvaðir á
Laugavegi, upp á
Grettisgötu.
Bifreiðastöður eru bannaðar
á Laugavegi, og mun eflaust
margur taka þvi ráði vel, en
hitt finnst mörgum skrítið að
ætlast til að fólk reyni að troða
bilum sinum i stæði i Grettis-
götu, sem þegar er yfirfull af
bilum.
Þjóðviljinn hafði samband
við nokkra ibúa við Grettis-
götu i gær og bað þá að segja
álit sitt á aukinni bilaumferð
um götu þeirra:
Magnús Sigurðsson,
Grettisgötu 76: „Ég er ákveð-
ið á móti þessari tilhögun.
Umferðin hefur verið að auk-
ast um þessa götu ár frá ári,
hér hefur staðið bill við bil ár-
um saman, og ég skil ekki
hvernig þeir geta hugsað sér
að auka við flotann hér. Þetta
er að verða tóm vitleysa”.
Karl Guðmundsson, Grettis-
götu 58b: „Grettisgatan var
fullskipuð bilum fyrir, og þeir
sem eiga hér bila verða að
fara með þá burtu. Það er
bilastæði hér við húsið mitt, og
ég hef reynt að halda þvi fyrir
mig. Ég merkti það með
„einkabilastæði”, en bileig-
endur fara ekkert eftir þvi.
Þeir æpa meira að segja að
manni og segjast eiga stæðið
eins og ég. Það er eins og þeir
séu ekki með réttu ráði, sumir
bilstjórar. Ég er eindregið á
móti þvi að beina umferðinni
af Laugavegi hingað, nóg var
fyrir”.
Helga Hálfdánardóttir,
Grettisgötu 32b: „Mér list illa
á þetta. Umferðin hefur jafn-
an verið að aukast. Mennirnir
sem vinna við Laugaveg
geyma bilana sina hér á
Grettisgötunni allan daginn,
og svo á lika að bæta við bilum
þeirra sem versla þar. Og eitt
finnst mér skritið. Það eru
settir hér upp stöðumælar, þar
Bílaþröngin á Grettisgötunni eykst enn. tbúar eru reiðir.
sem menn kaupa sér stæði á 10
krónur og fá að geyma hér bil i
15 minútur. Hvaða erindi er
hægt að reka á Laugaveginum
á 15 minútum? Grettisgatan
er alltof þröng til að hægt sé að
beina á hana umferð. Þetta er
enn ein vitleysan”.
Bréf frá Höskuldi
Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri býr við Grettis-
götu, og hefur hann sent
borgarráði, fjölmiðlum og
ibúum við Grettisgötu bréf,
þar sem hann gagnrýnir harð-
lega þessa ráðstöfun borgar-
ráðsins. Höskuldur Jónsson
segir þar m.a.: „Þess munu
vart eða ekki finnast fordæmi,
að umferð á verslunargötu eða
sem á annan hátt fylgir at-
vinnurekstri, hafi verið beint
með fullum þunga yfir á
ibúðargötu með þeim hætti
sem hér hefur verið lagt til.
Þau óþægindi sem þessu
fylgja, verða mjög tilfinnan-
leg fyrir ibúa við götuna, og
hafa þeir alls ekki getað búist
við sllkri röskun...
Uppsetning stoðumæla við
Grettisgötu munu margfalda
umferð um götuna og langt
umfram það, sem telja verður
þolanlegt af núverandi ibúum
götunnar. Mun slik ákvörðun
fljótlega hafa i för með sér
stórkostlega röskun á högum
ibúa og gera ibúðarhús þar
óvistlegri, vegna aukningar
hávaða og loftmengunar...”
—GG.
Rœkjuveiðin
Tregari í ár
en var í fyrra
sagði Ingimar Júlíusson á Bíldudal
■
Djúpivogur
Lítið fiskað í
sláturtíðinni
— Afli þeirra rækjubáta
sem héðan róa hefur verið
heldur lakari nú en var á
sama tima í fyrra, sagði
Ingimar Júliusson á Bíldu-
dal er við ræddum við hann
i gær.
— Það róa héðan 14 bátar á
rækju, en i fyrra voru þeir ekki
nema 11 eða 12. Bátarnir mega
veiða 4 tonn af rækju hver þá
daga vikunnar sem þeir róa, og
þessar tvær fyrstu vikur sem
rækjuvertiðin hefur staðið hefur
enginn bátur náð að fylla kvót-
ann.
— I allt hafa veiðst tæp 60 tonn.
Aflinn fyrri vikuna var 21,4 tonn,
en siðari vikuna 33,1, hinsvegar
hef ég ekki tölur fyrir þessa viku
sem er sú þriðja frá þvi veiðarnar
hófust.
— Hér á Bildudal eru tveir aðil-
ar sem vinna tækjuna, Matvæla-
iðjan og Rækjuver h.f. Hefur hvor
verksmiðjan nú 7 báta til að vinna
aflann af. —S.dór
Már Karlsson fréttaritari Þjóð-
viljans á Djúpavogi tjáði okkur að
sláturtið stæði nú yfir og gengi
vel. Alls verður slátrað 12 þúsund
fjár á þessu hausti. Utlit er fyrir
að fallþungi dilka verði Ivið rýr-
ari I ár en i fyrra.
— Meðan sláturtið stendur yfir
tökum við ekki á móti fiski, sagði
Már. — Frystihúsið er það litið að
það annar ekki meiru á meðan.
Hér er verið að byggja nýtt frysti-
hús og er búið að slá upp fyrir
starfsmannahúsi, sökkli og bitum
en ekki byrjað að steypa. Allt er i
óvissu með áframhald bygging-
arinnar þar sem einhver tregða
er með lánveitingar úr fiskveiði-
sjóði. Okkur er það mikil nauð-
syn að frystihúsið komist sem
fyrst i gagnið þvi annars blasir
ekki annað við en atvinnuleysi og
eymd.
— Eina fiskiriið, sem nú er
stundað eru ýsuveiðar hér i Beru-
firðinum. Smærri bátar hafa lagt
þetta 3-4 linur og fengið fallega og
góða ýsu. Virðist vera töluvert af
henni hér innarlega i firðinum og
er það óvenjulegt.
— Við sjáum sjónvarp alveg
sæmilega hér og batnaði það
mikið eftir að reist var endur-
varpsmastur á Bóndavörðu sem
er hér i þorpinu. Hins vegar vill
það brenna við að norska sjón-
varpið trufli útsendingar þess is-
lenska. Bregður stundum fyrir
Framhald á 11. siðu.
EBE
Bretar
vilja
flýta
samn-
ingum
Stjórn Verkamannaflokksins i
Bretiandi rekur nú á eftir þvi að
samið verði um ný skilyrði fyrir
aðild landsins að EBE. James
Callaghan utanrikisráðherra
breta skýrði frá þvi á ráðherra-
fundi EBE I Luxemborg á þriðju-
dag að stjórn hans ynni nú að
ýtarlegri kröfugerð um ný skil-
yrði fyrir aðildinni og yrði hún
væntaniega lögð fyrir fund utan-
rikisráðherra EBE-landanna 12.
nóvember.
Callaghan lét i ljós þá ósk sina
að samningum um ný skilýrði
yrði lokið fyrir áramót. Breska
stjórnin hefur skýrt frá þvi að ef
samningar náist fyrir aprillok
muni Verkamannaflokkurinn
fjalla mun hin nýju skilyrði á sér-
stöku flokksþingi i mai og siðan
verða greidd atkvæði um þau I
þjóðaratkv.-greiðslu I júni.
Ástæðan fyrir þvi að Callaghan
óskar þpss að samningum verði
lokið fyrir áramót er talin vera sú
að nái hann góðum samningum
ætli hann þegar upp úr áramótum
að hefja áróðursherferð I Bret-
landi fyrir þvi að aðild að EBE
verði samþykkt með nýjum skil-
málum. Er hann talinn hafa næg-
an stuðning innan flokksins til að
ná sinu fram.
Regína
Þórðardóttir
látin
1 gær lést I Reykjavik Regina
Þórðardóttir, leikkona, 68 ára að
aldri. Regina var i hópi fremstu
leikkvenna hér á landi.
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Alfheimar
Stigahlíð
Kleppsvegur
Sogamýri
Vinsamlegast hafið
samband við af-
greiðsluna.
Alþýöubandalagið
Alþýðubandalagið á Akranesi
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur félagsfund I Rein mánudaginn 21.
október kl: 20.30. Fundarefni: 1. Bæjarmál, 2. Fjármál Reinar og 3.
Kosning á landsfund. — Stjórnin.
Námshópar um sósialisma og nútima þjóðfélag:
S.l. miðvikudag komu námshóparnir saman i fyrsta sinn og var þá út-
deilt námsefni og skipt I námshópa. Námshóparnir koma saman á fund
i næstu viku.
Námshópur I á mánudagskvöld kl. 20.30.
Námshópur II á þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Námshópar III og IV á miðvikudagskvöld ki. 20.30.
Þátttakendur sem ekki hafa þegar skráð sig i ákveðna hópa tilkynni
þátttöku á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3, en þar
munu námshóparnir starfa. Þeir þátttakendur sem eru úr Kópavogi og
vilja heldur koma saman I Þinghól á miðvikudagskvöldum tilkynni það
i sima 2 86 55. — Fræðsiunefnd.