Þjóðviljinn - 29.01.1975, Síða 3

Þjóðviljinn - 29.01.1975, Síða 3
Mi&vikudagur 29. janúar 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3 Sikorsky þyrlan sem fórst. Bar tífaldan leyfilegan þunga m I valdi flugmanns að fara eftir hleðslutakmörkunum Siðan þyrluslysið varö á Kjalarnesi á dögunum hafa menn mikiö velt þvi fyrir sér hvaö hafi valdið þvi. Rannsóknanefnd flug- slysa annast rannsókn slyssins og i gær gaf hún út fréttatiikynningu þar sem segir aö eftirfarandi atriöi hafi komiö fram: 1. Viö flugtak I Reykjavlk var þyrlan yfirhlaöin sem nemur 429 kflóum. Leyföur hámarksfarmur meö fullum eldsneytisgeymum var aöeins 43 kiló, auk tveggja fíugmanna. 2. Viö flugtak mun þyngdar- punktur þyrlunnar hafa legiö aft- an viö leyfö mörk. 3. Veöur á slysstaö var mjög órólegt. Þaö alverlegasta viö þessar niöurstööur er aö sjálfsögöu fyrsta atriöiö, yfirhleöslan. Eins og vélin var hlaöin eldsneyti og oliu mátti hún aöeins bera barn sem vegur 43 kiló. Þess i staö voru sex fullorönir I vélinni auk flugmanns. Annaö atriöiö leiöir sjálfkrafa af þvi fyrsta. Mörgum kann aö þykja þetta litil hleðsla sem vélin mátti bera en i þessu örlagarika flugi voru benslngeymar þyrlunnar fullir, i beim var um hálft tonn af bensini sem nægja á til uþb. 5 klst. flugs. Hins vegar átti flugferöin ekki að taka nema hálfan annan tima og má þvi segja aö hún hafi verið með óeölilega mikiö eldsneyti. Þess má svo geta að þyrlan var um tuttugu ára gömul er hún kom til landsins nú um áramótin. Viö ræddum viö Grétar Óskars- son framkvæmdastjóra Loft- feröaeftirlitsins og spurðum hann hvernig eftirliti með hleðslu flug- véla væri háttaö. — Þegar ný vél kemur til lands- ins skoðum við hana og gefum siöan út loftferöa- og flughæfnis- skirteini þar sem tilgreind er leyfileg hámarkshleðsla vélar- innar. Siöan er þaö i valdi og á ábyrgö flugmanns aö fara eftir þvi. Viö fylgjumst með þvi öðru hvoru hvort farið sé eftir okkar fyrirmælum um hleðslu, þe. tök- um „stikkprufur” eins og það kallast. Hins vegar er algerlega ókleift aö fylgjast meö hverri flugvél sem fer i loftið, til þesk þyrfti heilan her manns og gæti þó aldrei oriö fullkomið, sagöi Grétar. I fréttatilkynningu nefndarinn- ar segir að Sikorsky verk- smiöjurnar i Bandarikjunum, en þar var þyrlan smiöuð, hafi látið i té mikilsveröa hjálp við rann- sóknina og ma. sent hingað sér- fræöing þeirra erinda. Eru nú nokkrir þættir rannsóknarinnar til umfjöllunar vestra. Loks segir aö þegar rannsókn- inni sé lokið veröi niöurstöður hennar sendar samgönguráðu- neytinu. 1 nefndinni eiga sæti Jó- hannes R. Snorrason, Halldór Sigurðsson og Karl Eiriksson. —ÞH Utvarpsráð stöðvar sj ónvarpsþátt Þáttur Omars Valdimarssonar með Megasi, Böðvari og Erni þótti argasta guðlast í augum meirihluta hans Þjóðviljinn skýrði frá þvi stuttu fyrir jól að til stæði að stöðva þátt ómars Valdimarssonar. Það eru komnir gestir, þar sem hann ræddi við örn Bjarnason, Böðvar Guðmundsson og Meg- as. Nú hefur útvarpsráð fjallað um þáttinn og var þar samþykkt að sýna hann ekki. Njörður P. Njarðvik sagði i viðtali við blaðið að sýning þáttarins heföi verið felld i útvarpsráði með fjórum at- kvæöum gegn þremur að við- höfðu nafnakalli. Þeir sem andvigir voru sýningu þáttar- ins voru Stefán Júliusson, Magnús Þórðarson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson og örlygur Hálfdánarson. Með voru Njörður, Stefán Karlsson og Ólafur Ragnar Grimsson. — Nei, ég er ekki ánægður meö þessi úrslit, sagöi Njörö- ur. — Mér fannst þessi þáttur að mörgu leyti sá skemmtileg- asti sem gerður hefur verið undir þessu nafni, umræður þeirra félaga voru smellnar og fyndnar. — Hins vegar eru i einum söngtexta Megasarýmsirhlutir sem fara fyrir brjóstiö á mjög kristnu fólki og það settu þeir fjórmenningarnir fyrir sig. En það er dálitið skemmtileg til- viljun að i þættinum er Böövar spuröur að þvi hvort hann hafi einhvern tima verið ritskoöaö- ur. Hann kvaö nei við þvi enda væru islendingar þekktir fyrir viösýni og fordómaleysi. — Það var Pétur Guðfinns- son sem skaut þessu máli til útvarpsráös og tel ég þaö al- veg rétt hjá honum þegar upp kemur ágreiningur milli dag- skrárstjóra og stjórnanda. — Er þá þessi þáttur alveg úr sögunni? — Ég er ansi hræddur um þaö. Reyndar á þetta útvarps- ráð að öllum likindum ekki langt eftir ólifaö en mér er það mjög til efs að þaö sem við tekur veröi umburöarlyndara i þessum efnum, sagði Njörö- ur. Texti sá sem um var deilt mun vera „Fylgdu mér inn i blómalandiö, amma”. 1 hon- um tekur Megas þá kenningu guðspjallamanna um aö guð sé alls staöar nálægur bók- staflega og kemst aö þeirri niðurstöðu aö hann hljóti þá að vera til staðar i hlutum eins og garðslöngum, gaddavir, gúmmii o.fl. Eins er þar greint frá feröum Krists á KFUM- fund, i kauphöllina, þegar hann situr fyrir hjá ljósmynd- ara og hamstrar hjólbaröa. Og guð skapaði jú manninn i sinni mynd, ekki satt? —ÞH Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn: Eitt stœrsta félagslega réttlœtismálið En hægri stjórnin ætlar að skjóta málinu á frest 1 svari viö fyrirspurn frá Magn- úsi Kjartanssyni á alþingi i gær uppiýsti heilbrigöis- og trygg- ingaráöherra, Matthias Bjarna- son, aö ekki veröa tekin nein skref i áttina aö lifeyrissjóöi fyrir alla landsmenn næsta áriö. Hvort tveggja kemur til: ráöherrann telur aö enn þurfi aö „kanna mál- iö" og svo skýtur hann sér á bak viö erfiðleika i efnahagsmálum. Nú sé ekki rétti timinn til aö gera ráðstafanir sem miöa aö jafnrétti landsmanna! Magnús reifaöi þann vanda, sem hiö margbrotna kerfi lif- eyrissjóöa býöur upp á, sumir njóta lifeyris úr verötryggöum sjóöum sem miöa greiöslur sinar viö hlutfall af atvinnutekjum, aörir veröa aö sætta sig viö greiöslur úr litt eöa ekki tryggö- um sjóöum og fá þess vegna miklu minni lifeyri og allstór hóp- ur launamanna á ekki aögang að neinum lifeyrissjóöi og hefur þvi ekkert nema tekjutryggingu elli- launa upp á aö hlaupa. Þeir væru verst settir en þó mun betur nú eftir aö vinstri stjórnin innleiddi tekjutrygginguna. Alþingi brást þeirri skyldu aö leysa þaö mál I tima að lifeyris- tryggja alla landsmenn, þess vegna uröu verkalýösfélögin að knýja fram stofnun almennu lif- eyrissjóöanna. Þeir hafa styrkt fjárhagsstööu verkalýösfélag- anna og hafa reynst nokkur bak- hjarl i sambandi við húsnæöis- málin, en verömæti þeirra brenna upp i eldi veröbólgunnar. Það er þvi eitt brýnasta félags- lega úrlausnarefniö nú aö tryggja landsmönnum jafnrétti á sviöi lif- eyristrygginga og koma hér á kerfi svipuðu og gert var á Noröurlöndum fyrir alllöngu. í stjórnarmyndunarviöræöunum i sumar lagöi Alþýöubandalagiö höfuöáherslu á þaö aö ný vinstri stjórn stæöi aö stofnun lifeyris- sjóös fyrir alla landsmenn. Um þetta virtust flokkarnir sammála. Þess vegna ritaöi Magnús, þá heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, bréf til nefndar, sem þá var starfandi, skipuö fulltrúum allra þingflokka, til aö endur- skoöa tryggingakerfiö. í bréfinu fól Magnús nefndinni að semja frumvarp til laga um stofnun sliks llfeyrissjóös sem allir er nú standa utan lifeyrissjóöa verði aöilar I, eldri sjóöfélagar annarra sjóöa geti gengiö i, miöaöi greiöslur slnar viö atvinnutekjur, væri verötryggöur og starfaöi sem hluti af almannatrygginga- kerfinu. Nefndin fengi heimild til að ráöa tryggingafræöing svo aö hún gæti útbúiö frumvarpið fyrir næsta þing, þ.e. i vetur. Málið er fullkannað Um þetta mál uröu miklar um- ræður. Matthias Bjarnason játaði að hann heföi ekki haft áhuga á þvi að nefndin ynni að þessu máli og ætlar hann aö leggja hana formlega niöur nú einhvern dag- inn. Hins vegar mundi hann vænt- anlega biöja Guöjón Hansen tryggingafræöing um aö endur- skoöa tryggingalöggjöfina þannig að ný nefnd gæti tekiö viö tillög- um hans aö hausti. Var svo að skilja sem lifeyrissjóður fyrir alla landsmenn væri ekki inni i þeirri endurskoöun, enda skilaði Guðjón itarlegri álitsgerö um það mál til gömlu trygginganefndarinnar, sem Geir Gunnarsson veitti for- stööu fyrir rúmu ári. Magnús Kjartansson lagöi á- herslu á þaö — og undir það sjón- armiö tóku ýmsir aörir ræöu- menn, þ.á m. Gylfi Þ. Gislason — aö máliö væri i reynd fullkannaö, nú væri að hefjast handa. Alits- gerö Guðjóns ásamt ýmsum fyrri skýrslum væri ákjósanlegur grundvöllur til aö byggja laga- smiö á. A dögum vinstri stjórnar- innar virtist vera þingmeirihluti fyrir stofnun allsherjar lifeyris- sjóös og á það þyrfti að reyna aft- ur. Á sjóðasöfnun rétt á sér? Eðvarð Sigurðsson benti á að verkalýðsfélögin væru orðin lang- þreytt að biöa eftir lifeyrissjóöi fyrir alla landsmenn, máliö var þrautrætt og það lá fyrir hvernig ætti að fara aö þessu en samt var þaö alltaf úti i blámóðu fjarskans. Það strandaði nefnilega alltaf á þvi hvernig ætti aö fjármagna þennan sjóö. Þess vegna sömdu verkalýðsfélögin um almennu sjóöina 1969. Vitanlega þarf aö stefna aö jafnrétti allra landsmanna og það verður ekki viö málið ráöiö án samráðs við verkalýðsfélögin. En spurning væri hvort þaö ætti aö safna i svona sjóöi — sem þá verður að verötryggja á einhvern hátt og það verður ekki gert nema með miklum fjármunum á verö- bólgutimum — eöa hvort það ætti að láta tekjur kerfisins renna beint til lifeyrisbóta á þvi ári er Frh. á bls.5 ® TILKYNNING Þeir, sem telja sig eiga bila á geymslu- svæði ,,Vöku” á Ártúnshöfða, þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir 14. febr. n.k. Hlutaðeig- endur hafi samband við afgreiðslumann ,,Vöku” að Stórhöfða 3, og greiði áfallinn kostnað. Að áðurnefndum fresti liðnum verður svæðið hreinsað og bilgarmar fluttir, á kostnað og ábyrgð eigenda, á sorphauga, án frekari viðvörunar. Reykjavik 23. janúar 1975. Gatnamálastjórinn i Reykjavik. Hreinsunardeild.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.