Þjóðviljinn - 30.01.1975, Side 1
Fréttabréf frá
Gísla á
Súgandafirði
Sjá Síðu 6
Snjór og aftur snjór
Þessi mynd er austan úr Hallormsstaðaskógi.
Þarna er Sigrún Blöndal á skiðum. Viða i skóg-
inum er tveggja metra jafnfallinn snjór. Sjá
spjall við skógarvörðinn og myndir á 3. siðu.
Frá Akranesi
Skip fyrir 5,4
miljarða 1974
Þar af 18 skuttogarar fyrir 3 miljarða. 7 vöruflutn-
ingaskip komu til landsins á síðari hluta 1974
Útgerð að
stöðvast á
Akranesi
Bœjarstjórn krefst aðgerða stjórnvalds
Á fundi bæjarstjórnar Akraness 28. þ.m. var gerð
einróma eftirfarandi samþykkt:
,,Með þvi að sú hætta er yfirvofandi að togaraút-
gerð á Akranesi og viðar stöðvist á næstu dögum
vegna mjög alvarlegra rekstrarörðugleika vill
bæjarstjórn Akraness eindregið skora á rikisstjórn-
ina að gera nú þegar nauðsynlegar ráðstafanir til að
fyrirbyggja slika stöðvun og tryggja rekstrar-
grundvöll þessarar útgerðar. Bæjarstjórnin bendir
á að af stöðvun þessara þýðingarmiklu atvinnu-
tækja mun þýða stórfellt atvinnuleysi ekki aðeins á
Akranesi, heldur á útgerðarstöðvum um allt land.”
Fóstureyðinga-
frumvarpið
Engir
fundir
um kjör
sjó-
manna
á bátum
Engir fundir hafa veriö boöaöir
i kjaradeiiu sjómanna og út-
geröarmanna. Til þessa hafa aö-
eins veriö haldnir tveir fundir,
annar meö samninganefndum
bátasjómanna og útgeröarmanna
upp á eigin spýtur, en til hins var
boöaö af hálfu sáttasemjara.
Ekkert nýtt hefur komiö fram á
siðustu dögum i deilu þessari, og
engin tilboð frá útgerðarmönn-
um.
Formaður Sjómannasambands-
ins, Jón Sigurösson, sagði i gær,
að hann byggist við þvi, að brátt
yrði boðað til samningafundar.
Eins og kunnugt er hefur
samninganefnd bátasjó'manna
innan Sjómannasambandsins
boðað það, að til verkfalls komi
verði ekki séð fyrir að samningar
verði komnir i höfn fyrir 10.
febrúar. —úþ
í DAG
Skip voru flutt inn fyrir á 10
miljarö króna sl. tvö ár og flug-
vélar fyrir nærri 200 milj. kr.
Fyrir viölagasjóö voru flutt inn
hús á sl. tveimur árum (1973) fyr-
ir tæpar 900 milj. kr. og til Lands-
virkjunar voru fluttar inn á þess-
um tima vörur fyrir um 650 milj.
kr. Alls nemur innflutningur
þessara vöruflokka þvi um 10
miljöröum króna á tveimur árum
— eil vöruskiptahallinn á tveimur
árum er alls talinn um 24 miljarö-
ar króna. Þar af 19 miljaröar
1974.
Þetta kemur fram i yfirliti
Hagstofu Islands um verömæti
útflutnings og innflutnings á síð-
asta ári, 1974 ásamt samanburði
við fyrra ár.
í fyrra voru fluttar út vörur
héðan fyrir 32.8 miljarða króna,
en innflutningur nam 52,5 mil-
jörðum króna. Vöruskiptajöfnuð-
urinn var þvi óhagstæður um 19.7
miljaröa króna, en innflutningur
nam 52,5 miljörðum króna. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var þvi óhag-
stæður um 19.7 miljarða króna.
1973 var vöruskiptajöfnuðurinn ó-
hagstæður um 5.8 miljarða króna.
Vert er að taka það fram að inni
i þessum tölum er álverksmiðjan
með innflutning og útflutning.
Nam innflutningur vegna verk-
smiðjunnar 4.3 miljörðum króna
sl. ár en útflutningur frá henni 4.8
miljörðum króna.
A siðasta ári voru flutt inn skip
Framhald á 11. siðu.
Fyrsta umrœða
á þingi í gœr
Matthías Bjarnason heil-
brigðis- og tryggingaráð-
herra mælti fyrir fóstur-
eyðingaf rumvarpinu svo-
kallaða á alþingi í gær.
Nokkrar umræður urðu um
málið og kom fram gagn-
rýni á þær breytingar sem
gerðar hafa verið á frum-
varpinu síðan í fyrra.
Magnús Kjartansson lýsti sig
andvigan breytingunum á 9. grein
um heimildir konu til fóstur-
eyðinga. Akvörðunarvaldið á að
liggja hjá konunni og það á eng-
inn að hafa siðferðilegan rétt til
að taka það af henni. Hér er um
að ræða hluta af vanda þeim og
vegsemd sem þvi fylgir að vera
maður, sagöi Magnús. Um þau
ákvæði sem nú hafa verið sett inn
i 9. grein sagði Magnús að þau
væru feikilega almenn og erfitt
væri að vita fyrirfram hvað verið
væri að samþykkja meö þeim.
Magnús benti á að varhugaverð
ákvæði hefðu verið sett inn i 13.
Framhald á 11. siðu.
Sjá síðu 9
Stóriðja
rœdd á
Búnaðar-
þingi
Asgeir Bjarnason, formaöur
Búnaöarfélags tslands, tjáöi
blaðinu i gær, að Búnaðar-
þing.sem hefst 24. næsta mán-
aðar, myndi taka fyrir og
ræða fyrirhugaðan rekstur
málmblendiverksmiöju i
Hvalfirði.
Eins og sagt var frá i blað-
inu i gær samþykkti Búnaðar
samband Borgarfjarðar ein-
róma á aukafundi, að skora á
stjórn Búnaðarsambands Is-
lands og Stéttarsambands
bænda að hlutast til um að
ekki verði hafist handa um
verksmiðjurekstur i Hvalfirði
fyrr en að undangenginni itar-
legri könnun á áhrifum stór-
iðju á nærliggjandi byggðar-
lög og þá sérstaklega á land-
búnað og búvöruframleðslu.
Aður hafði Björn Stefáns-
son, hagfræðingur, ritað Bún-
aðarfélagi Islands, Stéttasam-
bandi bænda, Búnaðarsam-
bandi Borgarfjarðar og fleiri
aðilum og hvatt til þess að
málið yrði tekið fyrir. Tillaga
hans, var að sögn Asgeirs,
rædd á stjórnarfundi i Búnað-
arfélagi tslands, og þar
ákveðið að visa henni til Bún-
aðarþings.
■■II !■■■■! ■ ■■■■■■
Slíta samstarfi um Kjarvalsstaði — Sjá 3 síðu