Þjóðviljinn - 30.01.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 30.01.1975, Side 7
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. janúar 1975. Fimmtudagur 30. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 FYRIRBÆN vegna hýru- dreginna i öldunga Ég geri ráð fyrir þvi, að þegar fiskverð er ákveðið, leggi við- komandi frystihús og fiskikaup- menn fram einhver gögn. Gögn, sem verðlagsráð vinnur svo eftir. Gera má ráð fyrir, að afkoma frystihúsanna sé mjög misjöfn og fer það þá i mörgum tilfellum eft- ir ráðdeild og skynsamlegri til- högun stjórnenda þeirra. Ég hygg, að erfitt muni vera að ákveða fiskverð þeirra hluta vegna. Væri ekki rétt, að sjávar- útvegsráðherra skipaði nefnd, góða nefnd sem færi um landið og kynnti sér reksturshagkvæmnina hjá hinum einstöku frystihúsum og fiskkaupendum, áður en arð- ránslög væru sett á sjómanna- stéttina, eins og nú nýlega hefur átt sér stað og er endurtekning frá haustinu 1968. Arið 1969 voru lögð á land hér á Suðureyri 6240.4 tonn. Verðmæti þess til skipta var 34.634.220.00 kr., en skv. lög- um frá 1968 fékk útgerðin um- fram þetta verð 9.351. 234.00 kr. eða 27% umfram skiptaverð, sem skiptist þannig 10% i stofnf jársjóð fiskiskipa og 17% til annarra þarfa eða óþarfa. Sjómenn töldu þá, að illa væri farið með sig, sem von var. Er ekki ver farið með þá núna? Jú. En sjómenn eru hinir Maðurinn með hattinn er Valdimar Þorvaldsson, elsti maður i Súgandafirði, 96 ára gamall. Hann er hér að ræða við Friðbert Pétursson, bónda I Botni,á kosningadaginn 30. júnii sumar. miskunnsömu samverjar, þeir mögla litið; þeir æðrast ei, þó á bjáti. Samtakamáttur þeirra er þó sterkur, ef á reyndi, sjómenn eru kjarni þjóðarinnar, og þeim ber að standa fast á rétti sinum. Aflaskráin á síðast liðnu ári Suðureyri, sunnudaginn 12. janúar 1975. Það er nú litið héðan að frétta. Stirð veðrátta var i desember og er það raunar enn. Héðan voru þrir bátar gerðir út á linu i desember mánuði. Afli þeirra var frekar tregur. Meðaltal lakara en i desember 1973. Einn skuttogari Trausti var gerður út héðan. Hann kom hingað eins og ég hef áður getið 29. september og hóf veiðar 6. október. Afli hans var mjög rýr miðað við skuttogarana i kringum okkur. Eitt sinn gat ég þess, það var áður en hann kom til landsins, að hann yrði sennilega með flotvörpuútbúnað. Það reyndist ekki rétt. Hann er ekki með þann útbúnað ennþá. Já, fjögur skip voru gerð út héðan i haust.og kemur hér desemberafli þeirra: Ársaflinn var 5173 tonn í Súgandafirði 1974 1973 Kristján Guðmundsson 81.9tonn 15róðrar 114.1 tonn 18 róðrar Sigurvon 73.2 tonn 15róðrar 92.1 tonn 17 róðraf ÓlafurFriðbertsson 72.2 tonnl4róðrar 119.3 tonnl8róðrar b/v Trausti 126.6 tonn 4 landanir aflinn var slægður; afli linubátanna var óslægður. Og þá kemur hér ársafli hinna stærri báta. Fyrst eru það linuskip: Úthaldsdagar tonn 1974 tonn 1973 Bolungarvik, þá kemur hér afli þar i desember; einnig ársafli og úthaldsdagar. Des u >o -o U 03 tfl U 'd Sólrún 93.4 15 1245.5 Guðmundur Péturs 83.7 15 1281.2 Hugrún 73.9 15 926.0 FlosiXoðna 1133 tonn 76.0 14 1603.2 si eo T3 n Hafrún og Kofri.Sama og einn bátur -3 295 295 232 212 628.7 vetrarvertið Og þá eru það skuttogararnir vestfirsku, afli þeirra árið 1974. BessiSúðavik Július Geirmundsson Isaf. Guðbjartur Framnes 1 Þingeyri Páll Pálsson Hnifsdal Guðbjörg Isafirði Trausti Suðureyri 3656 tonn 3119 tonn 3058 tonn 3045 tonn 2655 tonn 2624 tonn 324 tonn allt árið allt árið allt árið allt árið allt árið frá 22/3 frá 6/10 Kristján Guðmundsson 280 1123.5 1210.9 Ólafur Friðbertsson 310 1104.0 1071.4 Sigurvon 271 969.6 924.0 Eins og sjá má á úthaldsdögunum er talsverður timi milli vertiða, sem fer i lagfæringar og þrif. Og þá koma hér togskipin. Björgvin stundaði veiðar fjóra mánuði og átta daga 1974, afli hans varð 320.0 tonn. Björgvin var seldur héðan i haust. Togskipið Sverdrubson,hinn norski, stundaði veiðar átta mánuði af árinu,aflinn varð 669.1 tonn. Hann er nú seldur burt til Vestur-India. Þriðja togskipið, sem héðan stundaði veiðar með botnvörpu á þjóðhátiðarárinu var skuttogarinn Trausti. Veiðitimi hans var 87 dagar. Honum tókst að fiska 322.9 tonn skv. minum kokkabókum. Afli þessara þriggja togveiðiskipa var slægður. Tindabikkja og karfi er aldrei slægður, en frekar litið var af þeim fiskitegundum. M/b Gullfaxi 48 tonna bátur eign Bárunnar h.f. stundaði veiðar með linu á vetrarvertiðinni og afli hans var þá 261.0 tonn. Einnig stundaði hann veiðar með handfæri i sumar og var sá afli 10.4 tonn. Hann mun ekki verða gerður út i vetur, er á söluskrá. Afli handfærabátanna var á árinu 1974 372,9 tonn. Er þá ársafli súgfirska veiðiflotans samtals 5.173.0 tonn. Ársafli árið 1973 var aftur á móti 5.509.9 tonn. Vonin h.f. verkaði i harðfisk 207.7 tonn. Báran h.f. verkaði i salt og herslu 355.2 tonn. Hlutur Fiskið junnar var þvi aðeins 4.610.1 tonn. 200-300 tonn munu hafa komið hingað af fiski frá öðrum stöðum; mun Báran hf.f. hafa fengið eitthvað af þeim afla. Afli Bolvíkinga og skuttogaranna Svo eitthvað sé nefnt, þá landaði Arnar HU 89,9 tonnum og Guð- bjartur IS 59.4 tonnum. Svo komu smáslattar bæði með skipum og yfir heiði. Það kom lika fyrir, að fiskur var sendur héðan til Flat- eyrar til vinnslu, svo það valt hér á ýmsum rössum, eins og karlinn sagði. 837.0 tonn komu hingað af loðnu. Hún fór mestmegnis I bræðslu. Talsverðu var þó beitt. Og af þvi mér þykir svo vænt um Afli þeirra var slægður. Fiskifélag íslands breytir stundum afla togskipa og gefur hann upp sem óslægðan, með þvi að bæta við þessar tölur 20%. Það má einkennilegt vera, ef skip sem fiska svona vel, eins og skuttogararnir hér að ofan sýna, skuli tapa 1-2 milljónum króna á mánuði. Þaðhlýtur að vera hrópleg lygi. Víkur hann sér til Færeyja Nú vik ég mér snöggvast til Færeyja, eða næstum þvi. Ég er hér með úrklippu úr færeysku blaði útgefnu 8/10 1974. Þar er fjallað um fiskverð i Færeyjum. Ég tek hér örfáar fisktegundir til saman- burðar okkar verði. Gengið er miðað til 20 kr. íslenskar fyrir hverja færeyska krónu. Verðið er miðað við slægðan bita. Færeyjar Island Þorskur 70 cm og yfir 61.40 31.50 57 cm og yfir Þorskur 44-70 cm 42.00 21.80 43-57 cm Ýsa 40 cm og yfir 50.40 31.50 50 cm og yfir Langa óstærðarflokkuð 42.20 28.50 70 cm og yfir Keila 52 cm og yfir 29.80 15.20 50 cm ogyfir Steinbitur óstærðarfl. 22.40 20.30 Eins og sjá má, er mikill verðmunur á fiski þar og hér. En hvað getur það verið, sem veldur svona gifurlegum mismun? Þvi getur sennilega enginn svarað. Auðvitað er margt, sem þvi getur valdið og mun ég stikla á stóru, þar að lútandi. Óþarflega mikið starfslið i afurðasölumálunum, misjafnlega góð stjórn hjá fiskvinnslustöðv- unum, þar á meðalof mikið af óþörfum forstjórum. Kann að vera að verkstjórar og aðrir fastir starfsmenn séu óþarflega margir hjá einstöku fyrirtækjum. Þá getur lika skeð að hráefni sé eyðilagt i stórum stil, sem flutt er svo i gúanó. Slæm tilhögun á niðurröðun á verkafólki ofl. ofl. Þómá nefna skuttogara og prest Stórviðburðir ársins 1974 voru fáir, en þó má nefna hér skuttog- ara og prest. Skuttogarinn Trausti 1S 300 kom hingað frá Noregi. Hann hóf veiðar sunnu- daginn 6/10. Um svipað leyti og hlerar Trausta skullu á hafflöt- inn, sté hinn nývigði sálusorgari Auður Eir Vilhjálmsdóttir i stól- inn hér i Suðureyrarkirkju i fyrsta sinn og flutti þaðan sina fyrstu ræðu hér. Auður Eir hleyp- ur oft i skarðið, þegar kennara vantar i barnaskólann. Nú er hún næstum þvi skólastjóri, þvi að hinn rétti skólastjóri er fyrir sunnan. Hún þjónar lika Flateyr- arprestakalli að hálfu leyti. Presturinn þar hefur verið veik- ur. Það er erfitt að komast á milli Flateyrar og Súgandafjarðar vetrardaginn, og það þarf áreið- anlega kjarkmikinn prest, og það kvenmann, til þess að gegna starfi á báðum stöðum um hávet- urinn. Það er auðvitað ekki i frásögur færandi að á árinu varð hér bylt- ing i stjórn hreppsins. Nýir menn komust hér til valda og nokkru siðar nýr sveitarstjóri. Á árinu fluttu héðan 10 fjölsk. eða um 40 manns. Sumar þeirra höfðu dval- ið hér 1-2 ár. Ekki er hægt að saka hina nýju sveitarstjórn þar um, þvi að næstsiðasta fjölskyldan fór, daginn sem kosið var i vor. Talsvert mikið af aðkomufólki kom hingað á árinu til dvalar,en sennilega munu það ekki fylla 40 manna skarðið. Sennilega tapar hreppsfélagið á hinum tiðu fólks- flutningum héðan. Aðeins 3 línubátar í vetur Það er nú sýnilegt að aðeins þrjú skip verða gerð út héðan i vetur á linuveiðar. Eru það Olaf- ur Friðbertsson, Kristján Guð- mundsson og Sigurvon. Trausti verður að likindum á togveiðum. Dýrtiðarflóð hefur geysaö hér i Súgandafirði eins og annars stað- ar. Það er nú orðið nokkuð dýrt að ferðast á milli ísafjarðar og Súg- andafjarðar i snjóbil. Sætið norð- ur kostar nú kr. 700.00,áður 350.00. Fari maður til baka fara aðrar 700.00 kr. úr vasa farþegans, en áður kr. 350.00. Ef menn vilja fá snjóbilinn privat norður þá kostar hann kr. 7000.00 áður kr. 5.000.00 Ef billinn er inni i botni fjarðar- ins, eins og stundum kemur fyrir, þegar auð er jörð hér niðri, þá greiðir leigutaki kostnaðinn þangað og eins að norðanverðu ef með þarf. Getur þvi ein ferð að öllu meðtöldu kostað um kr. 9.000.00. Rikið mun nú styrkja Framhald á 11. siðu. Kirkjan á Stað við Súgandafjörð. Hún var byggð árið 1886, en er nú lltið notuð. Oftast er þó messað þar á gamlárskvöld. Nú siðast mættu þar 36 manns. Hinir dauðu koma þar lika við svo fremi að ekki sé kastað rekunum hér innfrá i Suðureyrarkirkju. Ráfiskaprísir Eáfiskanevndin, sum sett er eftir logtingslóg nr. 21 frá 8. mai 1969, hevur á fundi 7. oktober 1974 ásett hesar minstuprísir fyri fyrstafloks blóð- gaðan ráfisk, kruvdur við hovdi frá vekt. Toskur...........yvir70cmlA kr. 3,p7pr. kg — ..............— 70 cm 1B kr. 1,57 pr. kg — ______..../. 44- 70 cmlA kr.2,10pr. kg — ..............44—70cmlB kr. l,57p!.kg — .............^.. 34—44 cm kr. 1,00 pr. kg Hýsa ...........yvir 40 cm 1A kr. 2,52 pr. kg — ..............— 40cmlB kr. 1,60 pr. kg Longa .. .•................ kr. 2,11 pr. kg Blálonga .................... ongan prís Brosma ............yvir 52 cm kr. 1,49 pr. kg ,Sketa .................. kr. 1,22 pr. kg Kongafiskur................. ongan prís Upsi ..............yvir 75 cm kr. 1,10 pr. kg Hvítingur..........yvir31 cm kr. 1,13 pr. kg Havtaska ............yvir 3 kg kr. 1,46 pr. kg Kalvi ...............yvir 4 kg kr. 6,21 pr. kg Tunga..............yvir 300 gr. kr. 2,30 pr. kg Reyðspreka .......yvir 300 gr. kr. 2,13 pr. kg ' Skrubba .........yvir400gr. onganprís Steinbítur \................ kr. 1,12 pr. kg Hesir prísir eru galdandi frá og við 8. oktober 1974, sum omanfyri tilskilað á hesum plássum: Klaksvík, Hvannasund, Norðdepil, Lorvík, Fuglafjorð, Eiði, Gotu, Skálafirði, Nólsoy, Tórshavn, Yestmanna, Miðvági, Sorvági, Tvor- oyri og Vági. J Fyri tey avreiðingarpláss, sum eru ikki nevnd her, verður prísurin hin sami, sum í omanfyri nevndu plássum við frádrátti av flutnings- kostnaði til og frá avskipingarhavn. Tórshavn, 8. oktober 1974 Prísásetingarnevndin á ráfiski Alþýöubandalagiö, Reykjavík: OPIÐ HÚS Nýjung f félagsstarfinu Kjuregej Þorleifur í kvöld, fimmtudag, er „opið hús" hjá Alþýðu- banda lagsfélaginu í Reykjavík að Grettisgötu 3, uppi. Ætlunin er að slík- ar samkomur verði hálfs- mánaðarlega f risinu á Grettisgötunni, framvegis á miðvikudögum, þó farið sé af stað nú á fimmtu- degi. í kvöld koma fram þau Kjuregej Alexandra Jóns- son ásamt Gunnari H. Jónssyni gítarleikara og Þorleifur Hauksson. Eftir tæpan hálfan mán- uð mun Gunnar Benedikts- son, rithöfundur, koma í heimsókn á Grettisgötu og lesa úr áður óbirtum hand- ritum. Leppstjórnir á fallandi fæti Bandaríkjastjórn staðráðin í að halda þeim á floti Á tveggja. ára afmæli svokallaðs Parisarsáttmála um frið i Viet- nam blasir við sú staðreynd, að striðið I Indókina færist i aukana á ný. Eins og alkunna er komst að visu aldrei á friður i löndum þess- um, þrátt fyrir umræddan friðar- samning. Eina meginbreytingin, sem varð við þann friðarsamn- ing, var sú að Bandarikin hættu beinni þátttöku i striðinu — á yfir- borðinu að minnsta kosti, en enn- þá hafa þau bæði i Suður-Vietnam og Kambódiu fjölda „hernaðar- ráðgjafa”, sem hafa það hlutverk að stæla heri bandarisku lepp- stjórnanna i þessum löndum. Þegar haft er I huga að á milli áttatiu og niutiu af hundraði tekna á fjárlögum Saigon-stjórn- arinnar er bandarisk efnahagsað- stoð, verður ljóst að þrátt fyrir brottför Bandarikjahers úr Viet- nam eru Bandarikin ennþá aðal- þátttakandinn i striðinu öðru megin. Vegna þess að svo hefur átt að heita að friður væri i gildi i Suður- Vietnam siðustu tvö árin hefur hernaðurinn þar á þeim tima ver- ið kallaður „vopnahlésstriðið”. Að sjálfsögðu kenna striðsaðilar hvorir öðrum um vopnahlésbrot- in, en ljóst virðist þó af fréttum, þar á meðal frá heimildum, sem eru siður en svo hlynntar suður- vietnömsku bráðabirgðabylting- arstjórninni og þjóðfrelsisfylk- ingunni, að þar hvili sökin fyrst og fremst á leppstjórn Nguyen Van Thieus. Bófaforingi þessi, sem hjarir á bandarisku fjár- magni, undirritaði Parisarsátt- málann sárnauðugur og ekki fyrr en eftir dúk og disk fyrir þrýsting frá húsbændum sinum i Washing- ton gerandi sér fyllilega ljóst að áframhaldandi kvöl bandarisks varnarliðs i landinu var örugg- asta tryggingin fyrir hann og hans hyski. Þjóðfrelsisfylkingin virðist hinsvegar hafa hugsað sér að halda Parisarsáttmálann og séð sér hag i þvi. Hún fagnaði þvi að fá frið til að vinna að umbótum og uppbyggingu á yfirráða- svæðum sinum og tryggja þannig aðstöðu sina þar. Saigon-stjórnin sá sér hinsvegar nýjan voða bú- inn ef Þjóðfrelsisfylkingin fengi þann vinnufrið og hóf þvi skipu- lagðar ögranir, meðal annars með stöðugum stórskotaárásum á yfirráðasvæði Þjóðfrelsisfylk- ingarinnar og siðan beinum inn- rásum á þau svæði. Þetta varð til að hleypa af stað hörðum hernað- arátökum, sem staðið hafa með litlum hvildum og hafa aldrei verið harðari en nú siðan um jól- in. Sigrar Þjóöfrelsisfylking- arinnar 1 bardögunum um jólin og ára- mótin unnu hersveitir Þjóðfrels- isfylkingarinnar sem kunnugt er mikla sigra, hertóku þannig allt héraðið Phuoc Long norður af Saigon og ýmsar stöðvar nær höfuðborginni, auk þess sem þær bættu aðstöðu sina viðar i land- inu. Síðan um áramót hefur verið barist af hörku viðsvegar i landinu, án þess að miklar breytingar hafi orðið á stöðu striðsaðila. Einna harðastir hafa bardagarnir verið i héruðunum Thua Thien og Binh Dinh i land- inu miðju, en þar segjast Saigon-menn reyna að stemma stigu fyrir sókn Þjóðfrelsisfylk- ingarinnar til strandar, og i óshólmum Mekong, auðugasta risræktarhéraði landsins. Þar hefur Þjóðfrelsisfylkingunni veitt ivið betur og hafa liðsmenn hennar viða truflað samgöngur EiU fórnarlamba Indóklna- striðsins. Saigon-liða á landi og legi. Saigonstjórnin hefur svarað fyrir sig með stórfelldum loftárásum, sem að hennar eigin sögn beinast gegn hersveitum, birgðalestum og öðrum „hernaðarlega mikil- vægum skotmörkum” á yfirráða- svæði Þjóðfrelsisfylkingarinnar, en talsmenn Þjóðfrelsisfylking- arinnar segja hinsvegar að árás- irnar hafi komið langharðast niður á óbreyttum borgurum og eignum þeirra. öflug andspyrna gegn Thieu Sigrar Þjóðfrelsisfylkingarinn- ar hafa verið nógu miklir til að hleypa miklum skelk i leppstjórn- ina i Saigon og grátbiður Thieu Bandarikin nú um aukna aðstoð. Bandarikjastjórn hefur fyrir sitt leyti ekki látið undir höfuð leggj- ast að hafa i hótunum við Þjóð- frelsisfylkinguna og Norður-Viet- nam, en Bandarlkjaþing, sem eft- ir siðustu kosningar er með frjálslyndara og róttækara móti, er hinsvegar tregt til að taka meira af skattpeningi banda- riskra þegna til að ausa i óráðsiu- hit Thieus og snýst áreiðanlega öndvert gegn öllum tillögum um beina striðsaðild Bandarikjanna á ný. Saigon-stjórnin segist búast við stórsókn Þjóðfrelsisfylkingar- innar á öllum vígstöðvum þá og þegar, en þar er liklega um að ræða áróður til að hræða meiri aðstoð út úr Bandarikjamönnum. Bandariskir fréttaskýrendur eru meðal þeirra, sem telja að Þjóð- frelsisfylkingin hyggi ekki á slika sókn, meðal annars af ótta við aukna ihlutun Bandarikjanna á ný. Hinsvegar er trúlegt að fylk- ingarmenn haldi áfram að bæta aðstöð sina með takmörkuðum hernaðaraðgerðum eins og und- anfarið. Sú stefna gæti verið skynsamleg, ekki sist með tilliti til þess að kúgun og spilling Thie- stjórnarinnar hefur i þeim mæli ofboðið fólki á yfirráðasvæði hennar að þar er nú komin upp magnaðri andspyrnuhreyfing en leppstjórnir Bandarikjanna þar i landi hafa haft við að glima siðan á dögum Diems. Heimildum ber saman um að stjórn Thieus og stuðningsmenn hennar séu bófa- flokkur af ógeðslegustu tegund, samsafn kaupsýslubraskara, herforingja og lögregluforingja, sem reka rikið eins og eigið hluta- félag. Andúð landsmanna á þvi pakki gæti vel orðið svo mögnuð, að vonlaust yrði að halda Thieu við völd, hversu ósparir sem bandarikjamenn reyndust á doll- arana við ha'nn. Mekong- leiðinni lokað Striðið i Kambódiu færðist einnig i aukana um áramótin. Leppstjórn Bandarikjanna þar, sem kennd er við forsprakka sinn Lon Nol, er jafnvel enn rækilegar upp á Bandarikin komin en Saigon-stjórnin. Lon Nol-stjórnin hefur á sinu valdi höfuðborgina Phnompenh og litið svæði þar fyrir utan, en langmestur hluti landsins er á valdi andstæðinga hennar, sem hafa Sihanouk fursta fyrir æðsta leiðtoga. Phnompenh hefur svo árum skiptir verið umsetin af hersveitum rauðra khmera, eins og her sameinaðra andstæðinga leppstjórnarinnar er gjarnan kallaður, og það eina, sem komið hefur i veg fyrir að borgin falli rauðum khmerum i hendur eru stórfelldir flutningar þangað á vistum og vopnum að tilhlutan Bandarikjanna. Þeir flutningar eru bæði loftleiðis og þó einkum upp eftir Mekong. 1 bardögunum upp á siðkastið hafa rauðir khmerar talsvert þrengt hringinn um Phnompenh og stöðvað nær algerlega flutninga upp Mekong. Skipalest mikil varin fallbyssubátum, sem reyndi nýlega að komast þá leið, var stöðvuð með stórskotahrið og varð fyrir miklum áföllum. Notuðu rauðir khmerar I þeirri hrið stórar byssur, sem þeir höfðu tekið herfangi af Lon Nol- hernum, en það hefur mjög háð rauðum khmerum að þeir hafa haft litið af stærri vopnum. Undanfarið hafa bardagarnir verið hvað harðastir um Neak Luong, einu borgina sem Lon Nol- herinn heldur nú við Mekong fyrir neðan höfuðborgina. Rauðir khmerar sitja nú um þann stað og hafa lokað þangað öllum að- flutningum nema loftleiðis. Ábyrgö Banda- ríkjanna Þar eð fulljóst er að stjórninar I Saigon og Phnompenh eru hat- aðar og fyrirlitnar af öllum þorra landsmanna i Suður-Vietnam og Kambódiu segir sig sjálft að þær stæðust ekki andstæðingum sin- um snúning deginum lengur ef ekki kæmi til stuðningur Banda- rikjanna. Bandarikjunum væri i lófa lagið að koma á friði i Indókina með þvi að hætta stuðn- ingi við Thieu og Lon Nol. Með þvi að hætta þeim stuðningi myndu Bandarikin jafnframt sýna i verki virðingu fyrir sjálfs- ákvörðunarrétti smærri þjóða. En litlar sem engar horfur eru á að Bandarikin taki þetta skref. 1 þjónkunarskyni við stórveldis- hagsmuni sina halda þau áfram að stuðla að manndrápum, limlestingum og eyðileggingu i Indókina, auglýsa þannig hið rétta eðli utanrikisstefnu sinnar. Sú stefna breytist að sjálfsögðu ekki þótt einn skúrkurinn og stjórnmálabraskarinn sé látinn leysa annan af hólmi sem húsbóndi i Hvita húsinu dþ P.s. Að þessari grein nýskrifaðri barst frétt þess efnis að Ford Bandarikjaforseti hefði beðið þingið um 300 miljón dollara aukaaðstoð við Thieu og 222 miljónir dollara handa Lon Nol. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að siðferði Bandarikja- stjórnar hefur i engu breyst til batnaðar þótt Nixon og Water- gate-dólgum hans væri vikið frá. Striðið i Vietnam er viðurstyggi- legasti glæpurinn gegn mannkyninu eftir siðari heims- styrjöldin, og á þvi bera Banda- rikin fulla ábyrgð. Með þvi hafa ráðamenn þeirra siðustu áratugina tryggt sér sess meðal verstu glæpamanna sögunnar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.