Þjóðviljinn - 08.04.1975, Side 10

Þjóðviljinn - 08.04.1975, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. apríl 1975. Reykjavíkurmótiö Or leik Fram og Vfkings. Hér er HafliOi Pétursson kominn I dauðafæri en mistókst. Fram byrjar vel Sigraði meistara Víkings 1:0 í fyrsta leiknum Reykjavikurmótið i knatt- spyrnu hófst si. sunnudag með leik milli Reykja víkurmeistara Vikings og Fram. Svo fóru leikar aö Fram sigraði 1:0 cftir að stað- an i leikhléi haföi verið 0:0. Það verður þvi ekki annaö sagt en að Fram byrji keppnistímabilið vel eins og svo oft áður, en Fram er löngu frægt fyrir að byrja vel en dala svo þegar á liður keppnis- timabilið, hvað sem nú verður. Mótið verður keyrt mjög stift áfram; i gærkveldi léku Valur og Þróttur og i kvöld leika svo KR og Ármann. Mótinu lýkur 5. mai nk. Vikingar hafa enn ekki fengið þjálfara sinn, Sanders, til lands- ins og eru þvi kannski verr undir búnir Reykjavikurmótið en hin Reykjavikurfélögin sem öll hafa fengið sina þjálfara og eru byrjuð skipulagðar æfingar fyrir löngu. Vikingar eru að visu fyrir löngu byrjaðir að æfa, en ekki undir stjórn þess manns sem verður með liðið i sumar. Sænska liöið sem varð Norðurlandameistari i handknattleik stúlkna (mynd Einar) Haukar unnu stór- sigur Einn leikur fór fram i Litlu bikarkeppninni í knattspyrnu um siðustu hegi og áttust þar við ÍBH (Haukar) og Breiða- blik. Leikurinn fór fram i Hafnarfirði. Haukarnir unnu óvænt stór- an sigur yfir Blikunum, 4:1. i leikhléi var staöan 1:1, en Breiðablik lék undan allsterk- um vindi i fyrri hálfleik. í þeim siðari þegar Haukarnir höfðu vindinn i bakið tóku þeir öll völd og skoruðu þrivegis. Haukarnirsem urðu i 2. sæti i 2. deild i fyrra viröast vera öllu sterkari nú en þá og ekki óliklegt að þeir verði aftur i toppbaráttu 2. deildar i sum- ar. Undan- úrslit í kvöld i kvöld kl. 20.15 hcfst fyrri leikurinn i undanúrslitum bik- arkeppni HSÍ og er það leikur Fram og Leiknis og fer hann fram i Laugardalshöllinni. Síðari leikurinn, milliFH og Hauka fer svo fram annað kvöld i Hafnarfirði og hefst hann kl. 20.45. Sigurvegarar i þessum leikjum leika svo til úrslita i bikarkeppninni. Bikar- meist- ararnir sigruöu íslands- meist- arana 2:1 Fyrsti leikurinn i meistara- keppni KSt fór fram á Akranesi sl. laugardag og áttust þar við bikarmeistarar Vals og islands- meistarar tA. Leiknum lauk með sigri Vals 2:1. Leikurinn var harður og skemmtilegur á að horfa, kannski einum of harður þar sem þrir leikmenn voru bókaðir. Valsmenn byrjuðu leikinn af feikna krafti og eftir aðeins 5 minútur lá boltinn i neti Akra- ness-marksins eftir skot frá Kristni Björnssyni. Og 5 minútum siðar, eða á 10 min. lá boltinn aft- ur i netinu og nú var það Ingi Björn Albertsson sem sendi hann i markið, 2:0 Val i vil. Og Valsmenn héldu uppi mikilli sókn I 20 minútur og áttu nokkur góð tækifæri sem ekki nýttust. En uppúr miðjum fyrri hálfleik Frh. á bls. 15 Svíar sigruöu (sland í 3. sæti Danirnir urðu í 2. sæti, einu stigi á undan íslendingum. Orslit leikja mótsins urðu sem hér segir: ísland—Noregur 12:7 Danmörk—Sviþjóð 11:11 Noregur—Sviþjóð 8:10 Island—Danmörk 9:9 tsland—Sviþjóð 8:16 Noregur—Danmörk 9:16 Eins og á þessu sést hefði is- lenska liðið unnið mótið hefði það sigrað svia. En sviarnir mættu mjög ákveðnir til leiks og gerðu útum leikinn þegar á fyrstu min- útum hans. Þeir komust i 5:0 og þann mun tókst islenska liðinu aldrei að vinna upp og þvi gat ekki farið hjá þvi að sviarnir sigr- uðu með nokkrum mun, en hann - varð samt stærri en búist var við. Islenska liðið lék sinn besta leik gegn norðmönnum og sýndi þá ó- trúlegt öryggi og vann hægt og ró- lega á norska liðinu sem hafði yfir nokkuð framan af leiknum. Gegn dönum gekk ekki eins vel. íslenska liðið hafði þó góða mögu- leika á sigri, hafði boltann þegar stutt var eftir að leiknum og hafði þá yfir 9:8, en taugaóstyrkur liðs- ins var of mikill og boltinn glatað- ist og danirnir náðu að jafna. Islenska stúlknaliðið hefur aldrei fyrr staðið sig svona vel á NM og það er vissulega ástæða til bjartsýni á framtið islensks kvennahandknattleiks ef svo vel verður haldið á spilunum i fram- . tiðinni og gert hefur verið i vetur. Sænski fyrirliðinn tekur við bik- arnum. Svíar uröu Noröurlanda- meistarar í handknattleik stúlkna með þvi aö sigra íslenska liöið 16:8 í úrslita- leik mótsins sem lauk hér á landi sl. sunnudag. ís- lenska liðiö lenti i þeirri stöðu aö hefði þaö sigrað svía hefði það orðið meist- ari, en með því að tapa leiknum lenti það í 3. sæti. íslensku stúlkurnar byrj- uðu mótið mjög vel, sigr- uðu norska liðið með yfir- burðum, en gerðu svo jafn- tefli við það danska og tapaði loks fyrir því sænska. Þrátt fyrir allt má vel við árangur liðsins una. NM stúlkna í handknattleik:

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.