Þjóðviljinn - 08.04.1975, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. apríl 1975.
Reykjavíkurmótiö
Or leik Fram og Vfkings. Hér er HafliOi Pétursson kominn I dauðafæri en mistókst.
Fram byrjar vel
Sigraði meistara
Víkings 1:0 í fyrsta leiknum
Reykjavikurmótið i knatt-
spyrnu hófst si. sunnudag með
leik milli Reykja víkurmeistara
Vikings og Fram. Svo fóru leikar
aö Fram sigraði 1:0 cftir að stað-
an i leikhléi haföi verið 0:0. Það
verður þvi ekki annaö sagt en að
Fram byrji keppnistímabilið vel
eins og svo oft áður, en Fram er
löngu frægt fyrir að byrja vel en
dala svo þegar á liður keppnis-
timabilið, hvað sem nú verður.
Mótið verður keyrt mjög stift
áfram; i gærkveldi léku Valur og
Þróttur og i kvöld leika svo KR og
Ármann. Mótinu lýkur 5. mai nk.
Vikingar hafa enn ekki fengið
þjálfara sinn, Sanders, til lands-
ins og eru þvi kannski verr undir
búnir Reykjavikurmótið en hin
Reykjavikurfélögin sem öll hafa
fengið sina þjálfara og eru byrjuð
skipulagðar æfingar fyrir löngu.
Vikingar eru að visu fyrir löngu
byrjaðir að æfa, en ekki undir
stjórn þess manns sem verður
með liðið i sumar.
Sænska liöið sem varð Norðurlandameistari i handknattleik stúlkna (mynd Einar)
Haukar
unnu
stór-
sigur
Einn leikur fór fram i Litlu
bikarkeppninni í knattspyrnu
um siðustu hegi og áttust þar
við ÍBH (Haukar) og Breiða-
blik. Leikurinn fór fram i
Hafnarfirði.
Haukarnir unnu óvænt stór-
an sigur yfir Blikunum, 4:1. i
leikhléi var staöan 1:1, en
Breiðablik lék undan allsterk-
um vindi i fyrri hálfleik. í
þeim siðari þegar Haukarnir
höfðu vindinn i bakið tóku þeir
öll völd og skoruðu þrivegis.
Haukarnirsem urðu i 2. sæti
i 2. deild i fyrra viröast vera
öllu sterkari nú en þá og ekki
óliklegt að þeir verði aftur i
toppbaráttu 2. deildar i sum-
ar.
Undan-
úrslit
í kvöld
i kvöld kl. 20.15 hcfst fyrri
leikurinn i undanúrslitum bik-
arkeppni HSÍ og er það leikur
Fram og Leiknis og fer hann
fram i Laugardalshöllinni.
Síðari leikurinn, milliFH og
Hauka fer svo fram annað
kvöld i Hafnarfirði og hefst
hann kl. 20.45. Sigurvegarar i
þessum leikjum leika svo til
úrslita i bikarkeppninni.
Bikar-
meist-
ararnir
sigruöu
íslands-
meist-
arana
2:1
Fyrsti leikurinn i meistara-
keppni KSt fór fram á Akranesi
sl. laugardag og áttust þar við
bikarmeistarar Vals og islands-
meistarar tA. Leiknum lauk með
sigri Vals 2:1. Leikurinn var
harður og skemmtilegur á að
horfa, kannski einum of harður
þar sem þrir leikmenn voru
bókaðir.
Valsmenn byrjuðu leikinn af
feikna krafti og eftir aðeins 5
minútur lá boltinn i neti Akra-
ness-marksins eftir skot frá
Kristni Björnssyni. Og 5 minútum
siðar, eða á 10 min. lá boltinn aft-
ur i netinu og nú var það Ingi
Björn Albertsson sem sendi hann
i markið, 2:0 Val i vil.
Og Valsmenn héldu uppi mikilli
sókn I 20 minútur og áttu nokkur
góð tækifæri sem ekki nýttust.
En uppúr miðjum fyrri hálfleik
Frh. á bls. 15
Svíar
sigruöu
(sland í
3. sæti
Danirnir urðu í 2. sæti, einu
stigi á undan íslendingum.
Orslit leikja mótsins urðu sem
hér segir:
ísland—Noregur 12:7
Danmörk—Sviþjóð 11:11
Noregur—Sviþjóð 8:10
Island—Danmörk 9:9
tsland—Sviþjóð 8:16
Noregur—Danmörk 9:16
Eins og á þessu sést hefði is-
lenska liðið unnið mótið hefði það
sigrað svia. En sviarnir mættu
mjög ákveðnir til leiks og gerðu
útum leikinn þegar á fyrstu min-
útum hans. Þeir komust i 5:0 og
þann mun tókst islenska liðinu
aldrei að vinna upp og þvi gat
ekki farið hjá þvi að sviarnir sigr-
uðu með nokkrum mun, en hann -
varð samt stærri en búist var við.
Islenska liðið lék sinn besta leik
gegn norðmönnum og sýndi þá ó-
trúlegt öryggi og vann hægt og ró-
lega á norska liðinu sem hafði yfir
nokkuð framan af leiknum.
Gegn dönum gekk ekki eins vel.
íslenska liðið hafði þó góða mögu-
leika á sigri, hafði boltann þegar
stutt var eftir að leiknum og hafði
þá yfir 9:8, en taugaóstyrkur liðs-
ins var of mikill og boltinn glatað-
ist og danirnir náðu að jafna.
Islenska stúlknaliðið hefur
aldrei fyrr staðið sig svona vel á
NM og það er vissulega ástæða til
bjartsýni á framtið islensks
kvennahandknattleiks ef svo vel
verður haldið á spilunum i fram-
. tiðinni og gert hefur verið i vetur.
Sænski fyrirliðinn tekur við bik-
arnum.
Svíar uröu Noröurlanda-
meistarar í handknattleik
stúlkna með þvi aö sigra
íslenska liöið 16:8 í úrslita-
leik mótsins sem lauk hér á
landi sl. sunnudag. ís-
lenska liðiö lenti i þeirri
stöðu aö hefði þaö sigrað
svía hefði það orðið meist-
ari, en með því að tapa
leiknum lenti það í 3. sæti.
íslensku stúlkurnar byrj-
uðu mótið mjög vel, sigr-
uðu norska liðið með yfir-
burðum, en gerðu svo jafn-
tefli við það danska og
tapaði loks fyrir því
sænska. Þrátt fyrir allt má
vel við árangur liðsins una.
NM stúlkna í handknattleik: