Þjóðviljinn - 01.07.1975, Síða 16
Þriðjudagur 1. júli 1975.
Ódýrasta
ferðin
. Núeru aðeins fimin dagar
þar til lagt verður upp i sum-
arferð Aiþýðubandalagsins
um Kjósarskarðsveg — Þing-
velli — Grafning — ölfus.
A skrifstofunni að Grettis-
götu 3 er tekið við pöntunum i
sima 28655, i Keflavik i sima
2349 eða 2180 eftir kl. 19. Ýinsir
sem ávalit hafa farið i sumar-
ferðina hafa dregið að panta
miða, — kannski vegna þess-
arqr sifelldu rigningar, en um
helgina hlýtur að stytta upp —
en þá er of seint að panta
m iða.
Ferðin hefur yfirleitt verið
mikii fjölskylduferð og rétt að
minna á að farmiði fyrir börn
undir tólf ára aldri er 800 kr.,
en fyrir fullorðna 1100 kr.
Myndin er úr einni af sumar-
ferðum Alþýðubandalagsins.
Sumarferðin
er á
sunnudaginn
ílalia
Kreppa hjá
Róm 30/6 reuter — Flokkur
kristilegra demókrata á ítaliu
varð fyrir miklu áfalli er sex fé-
Aðeins eftir
að semja
við tvo
starfshópa
Enn er ósamið við tvo starfs-
hópa um kaup og kjör. Eru þar
blaðamenn annars vegar og hins
vegar félagsmenn verkalýðsfé-
laga i Rangárvallarsýslu vegna
starfsmanna við Sigöldu.
Á sunnudagskvöld náðist sam-
komulag við bakara, og var það
byggt á grundvelli ASÍ — sam-
komuiagsins að þvi viðbættu, að
samið var um miklar kauphækk-
anir vegna starfsaldurs.
Fulltrúar verkalýðsfélaganna i
Rangárvallasýslu mættu til fund-
ar hjá sáttasemjara kl. tvö i
gagrdag, og var ekkert samkomu-
lag sýnilegt er blaðið hafði tal af
Torfa Hjartarsyni eftir klukkan 5
i gærdag.
Sáttasemjari boðaði blaða-
menn og útgefendur á sinn fund
klukkan 10 i gærkveldi, en siðasta
sáttafundi lauk hjá honum á laug-
ardagsmorgun eftir að hafa stað-
ið i rúmar 19 klukkustundir. Á
þeim fundi náðist mikilsvert
samkomulag varðandi handrita-
og prófarkalesara. begar ræða
átti hækkun launa slitu útgefend-
ur viðræðum, en til samninga-
fundarins í gærkveldi var boðað
að ósk biaðaútgefenda. —úþ
Ný stjóm í Líbanon
Yfir sjö hundruð manns hafa fallið í bardöguni siðustu þrjá mánuði
Beirut 30/6 reuter — Eftir að hafa
puðað við stjórnarmyndun I rúm-
an mánuð tilkynnti Rashid
Karami forsætisráðherra skipan
nýrrar stjórnar i Libanon I dag.
Við henni blasir að setja niður
deilur falangista og palestinu-
araba sem njóta stuðnings vinstri
sinna i landinu cn þær hafa kostað
amk. 700 mannslif undanfarna
þrjá mánuði.
Það er mikið vandaverk að
setja saman stjórn i Libanon þar
sem flóknar reglur gilda um hlut-
deild hinna ýmsu trúflokka i
stjórn landsins. Karami er sjálfur
forsætisráðherra en hann er mú-
hameðstrúar og af öðrum ráð-
herrum ber hæst nafn Camille
Chamoun sem er kristinn og var
forseti Libanon fram til ársins
1958 er honum var steypt af stóli i
byltingu sem Karami stjórnaði.
Hvorki falangistar né sósialist-
ar eiga fulltrúa i stjórninni. Kar-
ami er taiinn fulltrúi múslima og
róttækra en falangistar eiga itök i
Chamoun semer mjög ihaldssam-
ur. Auk þessara tveggja eiga fjór-
ir ráðherrar til viðbótar sæti i
stjórninni. Þeir eru fremur full-
trúar trúflokka en að þeir hafi
umtalsverð völd.
Geysiharðir bardagar voru i
Beirut um helgina og var barist
bæði i miðborginni og úthverfum.
Ekki er vitað með vissu hve
margir hafa látist en vitað er um
amk. 100 sem féllu i gær og 42 i
dag.
Alþjóðleg vörusýning:
„Glerkonan”
hefur vakið
hrifningu!
Hún verður meðal fjölmargra hluta á
sýningunní, sem haldin verður í haust
Alþjóðlega vörusýningin
— Reykjavík '75 verður
haldini Laugardalshöllinni
22. ágúst -7. september nk.
Það er Kaupstef nan í Rvik.
sem gengst fyrir þessari
sýningu en alþjóðlegar
sýningar á vegum kaup-
stefnunnar hafa verið
haldnar annað hvert ár
undanfarið. Rúmlega 100
aðilar hafa skráð þátttöku
sína og hafa þeir samtals
tekið á leigu um 95% sýn-
ingarsvæðisins.
Að þessu sinni verður lögð á-
hersla á að hafa bókstaflega allt
sem fáanlegt er um mótorhjól og
kristilegum
lagar hans, þ.á m. þrlr ráðherrar,
sögðu sig úr framkvæmdanefnd
flokksins.
Þessir sex sem allir eru af
vinstri væng flokksins kváðust
hafa tekið þessa ákvörðun til þess
að hvetja flokksforystuna til að
endurskoða stefnu sina og bar-
áttuaðferðir.
Fanfani formaður flokksins á-
varpaði framkvæmdanefndina i
dag en hún telur 44 menn. Eftir
ræðu hans var fundinum frestað
um sólarhring. Var litið á þá á-
kvörðun sem sigur fyrir andstæð-
inga Fanfanis innan nefndarinn-
ar.
A fundinum i dag sagði Fanfani
að enginn hagnaðist á stjórnar-
kreppu eins og sakir stæðu. Hún
myndi aðeins flýta fyrir þing-
kosningum þarsem kommúnistar
myndu hugsanlega auka fylgi sitt
enn meir.
Mikil gagnrýni hefur verið við-
höfð gegn forystunni siðan flokk-
urinn tapaði fylgi i kosningum
fyrir hálfum mánuði. I kjölfar
kosninganna bauð Fanfani sósial-
istum aðild að stjórninni til þess
að friða andstæðinga sina, en
sósialistar höfnuðu boðinu.
Hérá landi er nú staddur Grett-
irL. Jóhannsson, sem verið hefur
aðalræðismaður tslands i Winne-
peg i Kanada i rúmlega 36 ár.
Hann mun brátt láta af þvi starfi
og I þakklætisskyni fyrir dygga
þjónustu við ættlandið, hefur
rikisstjórnin boðið honum hingað
til lands ásamt konu sinni.
Blaðamenn voru i gærdag boð-
aðir á hans fund, og þar minntist
hann á samskipti islensku útflytj-
endanna og afkomenda þeirra i
Kanada við tsland.
annað sem þeim tilheyrir, s.s.
fatnað, hjálma o.fl. auk fullkomn-
ustu mótorhjóla. Til að lifga upp
eins og framast er unnt verður
einnig leitast við að hafa mikið af
tækjum, sem gera mönnum kleift
að mæla eigin kunnáttu, við-
bragð, hæfni o.m.fl. Geta sýning-
argestir lagt fyrir sjálfa sig ýms-
ar þrautir og sannreynt þannig
hæfileika sina á ýmsum sviðum.
Langstærsti hluti þeirra, sem
tekið hafa svæði á leigu eru is-
lenskir aðilar, en þá gjarnan inn-
flytjendur erlendra vara. Má
reikna með að kostnaður þessara
innflytjenda sé að verulegu leyti
greiddur af erlendu fyrirtækjun-
um. Þá hafa einnig italskir og
pólskir aðilar tryggt sér sýning-
arbása.
Aðail sýningarinnar verður þó
vafalaust þáttur a-þjóðverja.
beirhafa i langan tima starfrækt
vinnustofu þar sem unnið er við
gerð likana af mannslikömum og
einstökum liffærum mannsins.
Likön a-þjóðverjanna hafa jafn-
lengi verið þau albestu sem gerð
hafa verið og hafa þeir jafnan i
gangi farandsýningar sem sendar
eru viða um heim. t Laugardals-
A-þýska heilbrigðissafnið sendir til tslands nýjustu farandsýningu
slna: „Maðurinn i umhverfi sinu”. Hér vinnur einn starfsmanna þess
að Ifkanasmfði.
höllinni verður sett upp nýjasta
farandsýningin. bungamiðja
hennar er tæplega fjögurra metra
hátt likan af konu sem flytur á is-
lensku tuttugu minútna ræðu um
likama sinn og einstök liffæri.
Með aðstoð ljósa, sem kvikna á
mismunandi timum útskýrir
„glerkonan” fyrir áhorfendum
ýmsa þætti likamsstarfsemi sinn-
ar.,,Glerkonan hefur farið viða
um heim og vakið geysilega at-
hygli,— jafnvel meiri en nokkurt
annað likan sem þýska heil-
brigðissafnið hefur sent frá sér.
Þetta a-þýska heilbrigðissafn
hefur um margra áratuga skeið
rekið öflugan áróður fyrir
heilbrigðismálum og farandsýn-
ingarnar hafa verið beinn liður i
þeim áróðri.
—gsp
Islensk skip notuð
yið kapallagningu
fyrir ameríkanana
Ekkert heyrist frá hernúms-
liðinu á Kefla víkurflugvelli
vegna kaplamálsins svoncfnda
og er ekki annað að sjá en að
„verndararnir” liafi algerlega
sofið á verðinum þegar njósna-
duflum og kapalstrengjum hef-
ur veriðdembt isjóinn innan is-
lenskrar landhelgi, nema þá að
þeir þurfi eitthvað að fela og
vilji þvi ekki vita neitt, — það
skvldi þó aldrei vera?
Eitt er að minnsta kosti vist
og það er aö hernámsliðið hefur
notað islensk skip til að leggja
kapal i sjó útaf Stokksnesi.
Vorið 1971 var fiskiskipið
Bergá, sem þá var gert út frá
Höfn I Hornafirði, fengið til að
sigla út með kapal, mun sverari
og meiri um sig en þann sem
fannst á dögunum. úti á sjó var
svo staðsettur prammi, sem tók
Fiskiskipið
Bergá var
notað til þess
vorið 1971
við kaplinum og lagði hann i sjó-
inn en við hann voru fest flotholt
á stökustað meðan á lagningu
hans stóð. Kannski til þess að
hægt væri að tengja eitthvað við
hann.
En á pramma þessum unnu
eingöngu ameriskir hermenn og
að sögn óskars Guðmundsson-
ar, sem var skipstjóri á Bergá,
þegar þetta gerðist, voru
ameriskir hermenn um borð i
Bergá og önnuðust þeir alla
meðferð kapalsins.
Ekki sagðist Óskar hafa hug-
mynd um til hvers þessi kapall
var lagður þarna, skipið var að-
eins leigt til þessara flutninga.
— Við vorum nýhættir á vertið
og biðum eftir þvi að skipið færi
i slipp til hreinsunar eftir ver-
tiðina, þegar við vorum látnir
flytja kapalinn, sagði Óskar.
Það er þvi greinilegt að kanar
hafa eitthvað verið að bauka við
sæstrengi, án þess að islensk
yfirvöld, i þessu tilfelli land-
helgisgæslan, væri neitt látin
vita af þessu eða i það minnsta
hafa yfirmenn hennar ekki
kannast við neinar kapallagn-
ingar hér við land, eftir að
kapalmálið kom upp á dögun-
um.
—S.dór