Þjóðviljinn - 10.07.1975, Page 3

Þjóðviljinn - 10.07.1975, Page 3
Fimmtudagur 10. júli 1975. t>JóÐVILJlNN — StÐA 3 Náttúru- verndar- menn á Norðurlandi: Gagnrýna hraðann á undirbúningi K röfluvirkjunar. Um tuttugu manns, fulltrúar, stjórnarmenn og gestir, sátu full- trúafund Samtaka um náttúru- vernd á Norðurlandi sem haldinn var i Reykjahlið við Mývatn þann 28. júni. Á fundinum voru meðal annars gerðar ályktanir þar sem hraðinn á undirbúningi Kröflu- virkjunar er gagnrýndur og lagst gegn þvi að stefnt sé að Blöndu- virkjun á næstu áratugum. Ályktun um Kröf luvirkjun. Fulltrúafundur SUNN 1975 gagnrýnir þær vinnuaðferðir og þann hraða, sem viðhafður er viö jarðgufuvirkjun i Kröflu, þar eð ekki hefur gefist timi til eðlilegra og sjálfsagðra forrannsókna af þeim sökum. Fundurinn beinir þeirri áskorun til Náttúruvernd- arráðs, að það fylgist vel með framkvæmdum þessum, og fylgi einarðlega eftir þeim skilyrðum sem það hefur sett um rannsókn- ir, mannvirkjagerð, umferð, meðferð affallsvatns o.fl. Ályktun um Blönduvirkjun Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) hafa fylgst með undirbúningi Blönduvirkjun- ar i A-Hún. Miðað við þær hug- myndir, sem nú liggja fyrir um þessa virkjun (sbr. Greinargerð um virkjun Blöndu, Orkust., 25.4. 1975), vilja samtökin vekja at- hygli á eftirfarandi: 1. í áætluninni er gert ráð fyrir allt að 62 ferkm. miðlunarlóni á afréttum A-Hún. og Skagafjarð- ar, en af þvi er talið að um 56 fer- km. séu samfellt gróðurlendi. Þetta eru nálægt 40% þess gróðurlendis, sem likur eru til, að tekið verði undir miðlunarlón við fullnýtingu á vatnsorku landsins (Ef Þjórsárver eru undanskilin eru þetta um 60%.) (Sbr. Jakob Björnsson: Landþörf orku- Framhald á bls. 10 BLÖNDUYIRKJUN veldur of miklum umhverfisspjöllum Nýja mötuneytið í Faxaskála Hreiniætisaðstaða er eins og best verður á kosið. Eimskip kemur upp glœsilegum motuneytum r Arangur sérsamninga Dagsbrúnar og Eimskips frá i fyrra Eimskipafélag islands hefur . nýverið opnað mjög glæsileg mötuneyti fyrir starfsmenn sina við Reykja vikurhöfn. Eru mötuneyti þessi fjögur. Eitt er i Faxaskála og rúmar um 250 manns, annað er í Sundaskála og er heldur minna, rúmar á milli 200 og 250 manns,og það þriðja er i Grandaskála og rúmar um 90 manns, og það fjórða er í Borgarskála. Þarna er hafnarverkamönn- um seldur heitur matur i hádeg- inu og er hann frá mötuneyti Miðfells h.f. við Artúnshöfða og kostar máltiðin ekki nema 140 kr. Er sama hvort um er að ræða kjöt eða fisk. Mötuneyti Miðfells h.f. hefur fengið nýja tegund matarbakka til að flytja heitan mat i og helst maturinn heitur langan tima i þessum bökkum, enda eru þeir einangraðir likt og kaffibrúsar. Yfirmaður þessara mötu- neyta hjá Eimskip er Guðmund- ur Þórðarson, fyrrum bryti á Gullfossi. Sagði Guðmundur J. Guðmundsson varaform. Dags- brúnar að þessi mötuneyti væru árangur sérsamninga sem fé- lagið gerði við Eimskip i fyrra en um 80% hafnarverkamanna i Reykjavik vinna hjá Eimskip. Guðmundur sagði að það væri full ástæða til að hrósa Eimskip fyrir hve rösklega var i málið gengið og hve glæsilega hefði verið frá mötuneytunum geng- ið. Þau uppfylla ströngustu kröfur sem gerðar eru til slikra staða-og sagði Guðmundur,að öll aðstaða hafnarverkamanna hefði gerbreyst með tilkomu mötuneytanna. Guðmundur kvað þörfina á slikum mötuneytum fyrir hafn- arverkamenn hafa verið orðna mjög brýna eftir að menn hættu að geta farið heim i mat i há- deginu og eftir að lausráðning verkamanna hætti, en nú eru hafnarverkamenn orðnir fast- ráðnir hjá Eimskip gagnstætt þvi sem áður var. Og það er hægt að taka undir með Guðmundi og hæla þessum mötuneytum eftir að hafa skoð- aö þau; þau eru til fyrirmyndar. —S.dór Vináttuvika samvinnustarfsmanna: Krefjast ódýrari ferða á milli N orðurlanda! Dagana 27. júni til 4. júli sl. var haldinn hér á landi i fyrsta sinn svokölluð vináttuvika eða KPA- vika með þátttöku samvinnu- starfsmanna frá öllum Norður- löndunum. Eru vikur þessar haldnar til að kynna samvinnu- starf hvers lands og efla kynni milli samvinnustarfsmanna á Norðurlöndum, og eru einn þáttur viðtæks félags- og kynningar- starfs, sem sambönd samvinnu- starfsmanna á Norðurlönd- um standa fyrir i hverju landi fyrir sig og sameiginlega. Þátttakendur i þessari vináttu- viku voru alls 62, flestir frá Svi- þjóð eða 16 en fæstir frá Finn- landi, 10. Meðal fulltrúa voru t.d. margir blaðamenn frá blöðum samvinnustarfsmanna. Dvalið var að sumarheimili samvinnu- manna að Bifröst, Laugarvatni og á einkaheimilum i Reykjavik og ferðast um Borgarfjörð, Snæ- fellsnes, Suðurland og til Vest- mannaeyja. Að Bifröst sáu þátt- takendur sýningu Inúkhópsins á Inúkmanninum og vakti sú sýn- ing að vonum mikla athygli og hrifningu. Þá kynntu þátttakend- ur sér starfsemi Kaupfélags Borgfirðinga, Mjólkurbús Flóa- manna og Garðyrkjuskóla rikis- ins. Jafnframt þessari vináttuviku var haldinn hér i fyrsta sinn fund- ur svonefnds KPA-ráðs, sem hef- ur það verkefni að samræma starf samtaka samvinnustarfs- manna á Norðurlöndum og á- kvarða sameiginleg verkefni þeirra. Eru fundir þess haldnir árlega og til skiptis á Norðurlönd- unum. Fundurinn var haldinn að Bifröst 29. júni og voru fulltrúar islenskra samvinnustarfsmanna þeir Gunnlaugur P. Kristinsson Akureyri, Pálmi Gislason, Reykjavik og Reynir Ingibjarts- son, Reykjavik. Meðal tillagna, sern þessi fund- Þáttakendur á KPA-vikunni I Bif röst. ur samþykkti var áskorun til Norðurlandaráðs og rikisstjórna allra Norðurlandanna, að vinna að þvi af alefli, að gera ferðalög milli Norðurlahdanna sem ódýr- ust og hagkvæmust og beina ferðastraumi til þeirra innbyrðis i stað sólarlanda, sem nú er orðið hagkvæmara að ferðast til, a.m.k. frá Islandi. Islenskir samvinnustarfsmenn gerðust aðilar að sambandi sam- vinnustarfsmanna á Norðurlönd- um, sem skammstafast KPA, að Kooperativa Personal Alliansen, haustið 1973, en þá hafði Lands- samband isl. samvinnustarfs- manna nýverið stofnað. Sam- vinnustarfsmenn á Norðurlönd- um eru nú nærri tvö hundruð þús- und, þar af á sjötta þúsund hér- lendis. I Landssambandi isl. sam- vinnustarfsmanna eru nú 15 félög með um 3000 félagsmenn. For- maður þess er Reynir Ingibjarts- son, ritari Jóhanna G. Erlings- son, gjaldkeri Sigurður Þórhalls- son og aðrir i framkvæmdastjórn Baldvin G. Albertsson og Pálmi Gislason. Landssambandið held- ur landsþing annað hvert ár og verður það næst að Bifröst, 30 og 31. ágúst nk.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.