Þjóðviljinn - 02.09.1975, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.09.1975, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. september 1975. Lokastaðan i 1. deild er þessi: Akranes-Keflavik 1:0 FH-Vikingur ,0:2 KR-IBV 1:0 Valur-Fram 2:2 Akranes Fram Valur Vikingur Kefla vik FH KR ÍBV 14 8 2 2 29:14 19 14 8 1 5 20:17 17 14 (i 4 4 20:17 1« 14 6 2 5 17:12 15 14 4 5 5 12:12 12 14 4 5 5 1:21 12 14 2 4 7 12:18 10 14 2 5 7 11:22 9 Markhæstu menn: Matthías Hailgrimsson, Akran. 10 Marteinn Geirsson, Fram ~ 8 Örn Óskarsson, ÍBV 8 Guðmundur Þorbjörnsson, Val 8 Lokastaðan i 2. deild er þessi: Selfoss—Breiðablik 1:2 Reynir Á — Völsungur 1:2 Þróttur—VikingurÓ 2:0 Haukar — Armann 0:0 Breiöablik 14 13 0 1 51: 9 26 Þróttur 14 11 1 2 29: 13 23 Árm ann 14 f> 5 3 22: : 16 17 Selfoss 14 5 5 4 27. : 21 15 Völsungur 14 4 3 7 17: 30 11 Haukar 14 3 2 9 16: 28 8 Revnir A 14 3 1 10 15: 32 7 Vlkingur ó 14 2 1 11 14: 39 5 Markahæstu m eni n: Hinrik Þórhallsson, Breiðabl. 14 Sumarliði Guöbjörnsson, Self. 12 Þór Hreiðarsson, Breiðabl. 10 Ólafur Friðriksson, Breiðabl. 9 Hreinn Elliðason, Völsungi 7 Þorvaldur Þorvaldsson, Þrótti 7 Sverrir Brynjólfsson,Þrótti 7 Markakóngurinn i 2. deiid, Hinrik Þórhallsson, er ekki nema tuttugu og eins árs gamalI.Hann á þó ekki ófáa leiki með Breiðablik að baki — hef- ur verið fastur liðsmaður undanfarin fjögur ár. Þessi mynd af honum er tekin á landsmótinu á Sauðárkróki sem fram fór 1971 og var Hinrik þá þegar oröinn einn beittasti sóknarmaður Breiðabliks. Hér er hann (t.v.) i baráttu við einn heimamanna. Valur lagöi toppana aö velli í síðustu tveim umferöunum og aö loknum 2-3 tapi Fram fyrir Valsmönnum var skagamönnum afhentur ísl.meistarabikarinn Valsmenn hafa svo sannarlega kvatt þetta keppnistimabil með glæsibrag. 1 næst siðustu umferð galopnuðu þeir toppbaráttuna með þvi að sigra ÍA mjög óvænt og stóðu Framarar skaga- mönnum þá jafnfætis i efsta sæti. 1 siðustu umferð sigraði Valur hins vegarFram i skemmtilegum leik og færði þar með IA íslands- meistaratitilinn á siifurbakka. Leikur Fram og Vals var leikinn á Melavelli vegna mikilla rigninga undanfariö. Var hann á margan hátt skemmtilegur á að horfa, ekki sist fyrir þá sök að fimm mörk litu dagsins ljós og sum bara nokkuð iagleg. Það var Magnús Berg sem skoraði fyrsta mark Vals sem virkaði allan timann sterkari aðilinn i þessum leik þótt Fram- arar sæktu sig verulega undir lokin. Magnús skoraði með skalla eftir vel framkvæmda auka- spyrnu utan af velli. MarkMagnúsar kom á 17. min. og annað bættist við aðeins 7 min. siðar. Mikil varnarmistök áttu sér stað hjá Frömurum og Hermann komst einn inn fyrir og óð 1 átt að marki. Eftir langt hlaup fram völlinn missti Hermann boltann þó of langt frá sér og Árna tókst að bægja skoti hans úr þröngu færi I markstöng- ina og þaðan hrökk boltinn út. Annað mark Vals kom á 38. min. Albert Guðmundsson tók hornspyrnu frá hægri. Boltinn hrökk I þverslá og þaðan út til Guðmundar Þorbjörnssonar sem skoraði með skalla 2-0. Þannig var staðan i leikhléi 2-0. Valur hafði leikið undan vindi fyrir hlé og tveggja marka forystan var nokkuð sannfærandi veganesti. Sigurinn var þó ekki gulltryggður fyrr en Hermann Gunnarsson, einn besti maður Vals i þéssum leik, skoraði glæsi- legt mark á 23. min. og enn var það skallamark. Bergsveinn Alfonsson sendi háan bolta frá hægra kanti og Hermamn kom á fullri ferð og „keyrði” boltann i netið af miklum krafti. 3-0 var staðan, 20 min. til leiks- loka og úrslitin virtust ráðin. Allir voru sammála um það nema leikmenn Fram sem sóttu i sig veðrið og skoruðu á 30. min. Sannarlega slysalegt mark það, en þaðhleypti nýju fjöri i leikinn og Framarar tviefldust. Trausti Haraldsson átti laust skot að marki, Sigurður Dagsson var öruggur með boltann en hann hrökk i Dýra Guðmundsson varnarmann Vals og breytti stefnu i hitt hornið. Inn skoppaði boltinn og staðan var 3-1. Aðeins tveimur min. siðar kom annað mark Fram. Þar var Mar teinn Geirsson að verki með yfir- vegað og gott skot innan úr vita- teignum, — skot sem Sigurður réði ekki við. Aftur var spennan i hámarki. Allt gat gerst þegar Fram var komið I þennan ham. En ekkert fleira gerðist! Leikurinn bauð að visu upp á botnlaus tækifæri á báða bóga en inn vildi boltinn ekki oftar. Valur náði undirtökunum á ný með Hermann i broddi fylk- ingarog Arni Stefánsson mátti oft taka á til að forða marki sinu frá enn meiri skakkaföllum. Einn maður bar ægishjálm yfir aðra i þessum leik. Það var Sigurður Dagsson markvörður Vals, sem nú er kominn á ný inn i liðið. Hann sýndi þarna stjörnu- leik, lék af yfirvegun og öryggi allan timann og vissulega er synd að hafa hann ekki með i landsliðs- ferðinni sem lagt var upp i gær- rnorgun. Hermann kom einnig friskur út úr þessum leik og var brattari en oftast áður i sumar. Þar með lauk knattspymu- vertiðinni i' ár. Eftir eru að visu leikir i evrópukeppnum, bikar- keppni og úrslitaleikir i tveimur yngri flokkum og 3. deild en deildakeppninni i sumar er lokið. —gsp Hinrik varð markakóngur Og Breiðablik kvaddi aðra deild með góðum sigri Hinrik Þórhallsson varð markakóngur 2. deildar og tryggði hann sér þá nafnbót i siðasta leik Breiðabliks i 2. deild sinni. Var það gegn selfyssingum, sem einnig áttu möguleika á að ná titlinum i sinar raðir. Sumarliði Guðbjartsson hafði skorað 13 mörk i deildinni i sumar fyrir þennan leik og sömu marka- tölu var Hinrik með. En Sumarliði átti aldrei möguleika á að bæta við markasafnið i þessum leik. Nýliðamir i 1. deild höfðu mikla yfirburði og 3-1 sigurinn hefði getað verið enn stærri. Breiðablik lék undan vindi i fyrri hálfleik og hafði þá úrhellisrigninguna einnig i bakið. Skoruðu kópavogsmenn þrjú mörk fyrr leikhlé. Það fyrsta gerði Þór Hreiðarsson eftir að markvörður hafði varið skot en misst frá Hinriki. Gisli Sigurðsson skoraði 2-0 með þrumufleyg frá vitateig og siðan tryggði Hinrik sér markakóngstitilinn með þvi að skora þriðja markið úr vitaspyrnu sem hann „fiskaði” sjálfur. I siðari hálfleik jafnaðist leikurinn nokkuð þótt enn væru það Breiðabliksmenn sem ættu flest tækifærin. Selfyssingar skoruðu eitt mark og lauk leiknum þvi' 3-1 fyrir Breiðablik. Breiðablik, Vík- ingur Ó og Völs- ungur náðu sigri Og Haukar og Ármann gerðu jafntefli I siðustu umferð 2. deildar urðu úrslit þau að Breiðablik sigraði Selfoss 3-1 og er sagt frá þeim leik hér fyrir ofan. Reynir A lék á heimavelli gegn Völsungum og tapaði 1-2 eftir spennandi leik þar sem hart var barist og oft af nokkurri hörku. Haukar og Ármann skildu jöfn, 0-0, eftir mikinn barningsleik þar sem Armann var allan timann sterkari aðilinn og sótti án afláts án þess að skora. Þróttur sigraði Viking O með tveimur mörkum gegn engu og átti I töluverðum erfiðleikum með botnliðið, sem verður að leika gegn Þór eða KA frá Akureyri um aukasæti i 2. deild.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.