Þjóðviljinn - 02.09.1975, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. september 1975.
Lokastaðan i 1. deild er þessi:
Akranes-Keflavik 1:0
FH-Vikingur ,0:2
KR-IBV 1:0
Valur-Fram 2:2
Akranes
Fram
Valur
Vikingur
Kefla vik
FH
KR
ÍBV
14 8 2 2 29:14 19
14 8 1 5 20:17 17
14 (i 4 4 20:17 1«
14 6 2 5 17:12 15
14 4 5 5 12:12 12
14 4 5 5
1:21 12
14 2 4 7 12:18 10
14 2 5 7 11:22 9
Markhæstu menn:
Matthías Hailgrimsson, Akran. 10
Marteinn Geirsson, Fram ~ 8
Örn Óskarsson, ÍBV 8
Guðmundur Þorbjörnsson, Val 8
Lokastaðan i 2. deild er þessi:
Selfoss—Breiðablik 1:2
Reynir Á — Völsungur 1:2
Þróttur—VikingurÓ 2:0
Haukar — Armann 0:0
Breiöablik 14 13 0 1 51: 9 26
Þróttur 14 11 1 2 29: 13 23
Árm ann 14 f> 5 3 22: : 16 17
Selfoss 14 5 5 4 27. : 21 15
Völsungur 14 4 3 7 17: 30 11
Haukar 14 3 2 9 16: 28 8
Revnir A 14 3 1 10 15: 32 7
Vlkingur ó 14 2 1 11 14: 39 5
Markahæstu m eni n:
Hinrik Þórhallsson, Breiðabl. 14
Sumarliði Guöbjörnsson, Self. 12
Þór Hreiðarsson, Breiðabl. 10
Ólafur Friðriksson, Breiðabl. 9
Hreinn Elliðason, Völsungi 7
Þorvaldur Þorvaldsson, Þrótti 7
Sverrir Brynjólfsson,Þrótti 7
Markakóngurinn i 2. deiid, Hinrik Þórhallsson, er ekki nema tuttugu og eins árs gamalI.Hann á þó ekki ófáa leiki með Breiðablik að baki — hef-
ur verið fastur liðsmaður undanfarin fjögur ár. Þessi mynd af honum er tekin á landsmótinu á Sauðárkróki sem fram fór 1971 og var Hinrik
þá þegar oröinn einn beittasti sóknarmaður Breiðabliks. Hér er hann (t.v.) i baráttu við einn heimamanna.
Valur lagöi toppana
aö velli í síðustu
tveim umferöunum
og aö loknum 2-3 tapi Fram fyrir Valsmönnum
var skagamönnum afhentur ísl.meistarabikarinn
Valsmenn hafa svo sannarlega
kvatt þetta keppnistimabil með
glæsibrag. 1 næst siðustu umferð
galopnuðu þeir toppbaráttuna
með þvi að sigra ÍA mjög óvænt
og stóðu Framarar skaga-
mönnum þá jafnfætis i efsta sæti.
1 siðustu umferð sigraði Valur
hins vegarFram i skemmtilegum
leik og færði þar með IA íslands-
meistaratitilinn á siifurbakka.
Leikur Fram og Vals var
leikinn á Melavelli vegna mikilla
rigninga undanfariö. Var hann á
margan hátt skemmtilegur á að
horfa, ekki sist fyrir þá sök að
fimm mörk litu dagsins ljós og
sum bara nokkuð iagleg.
Það var Magnús Berg sem
skoraði fyrsta mark Vals sem
virkaði allan timann sterkari
aðilinn i þessum leik þótt Fram-
arar sæktu sig verulega undir
lokin. Magnús skoraði með skalla
eftir vel framkvæmda auka-
spyrnu utan af velli.
MarkMagnúsar kom á 17. min.
og annað bættist við aðeins 7 min.
siðar. Mikil varnarmistök áttu
sér stað hjá Frömurum og
Hermann komst einn inn fyrir og
óð 1 átt að marki. Eftir langt
hlaup fram völlinn missti
Hermann boltann þó of langt frá
sér og Árna tókst að bægja skoti
hans úr þröngu færi I markstöng-
ina og þaðan hrökk boltinn út.
Annað mark Vals kom á 38.
min. Albert Guðmundsson tók
hornspyrnu frá hægri. Boltinn
hrökk I þverslá og þaðan út til
Guðmundar Þorbjörnssonar sem
skoraði með skalla 2-0.
Þannig var staðan i leikhléi 2-0.
Valur hafði leikið undan vindi
fyrir hlé og tveggja marka
forystan var nokkuð sannfærandi
veganesti. Sigurinn var þó ekki
gulltryggður fyrr en Hermann
Gunnarsson, einn besti maður
Vals i þéssum leik, skoraði glæsi-
legt mark á 23. min. og enn var
það skallamark. Bergsveinn
Alfonsson sendi háan bolta frá
hægra kanti og Hermamn kom á
fullri ferð og „keyrði” boltann i
netið af miklum krafti.
3-0 var staðan, 20 min. til leiks-
loka og úrslitin virtust ráðin.
Allir voru sammála um það nema
leikmenn Fram sem sóttu i sig
veðrið og skoruðu á 30. min.
Sannarlega slysalegt mark það,
en þaðhleypti nýju fjöri i leikinn
og Framarar tviefldust. Trausti
Haraldsson átti laust skot að
marki, Sigurður Dagsson var
öruggur með boltann en hann
hrökk i Dýra Guðmundsson
varnarmann Vals og breytti
stefnu i hitt hornið. Inn skoppaði
boltinn og staðan var 3-1.
Aðeins tveimur min. siðar kom
annað mark Fram. Þar var Mar
teinn Geirsson að verki með yfir-
vegað og gott skot innan úr vita-
teignum, — skot sem Sigurður
réði ekki við.
Aftur var spennan i hámarki.
Allt gat gerst þegar Fram var
komið I þennan ham. En ekkert
fleira gerðist! Leikurinn bauð að
visu upp á botnlaus tækifæri á
báða bóga en inn vildi boltinn ekki
oftar. Valur náði undirtökunum á
ný með Hermann i broddi fylk-
ingarog Arni Stefánsson mátti oft
taka á til að forða marki sinu frá
enn meiri skakkaföllum.
Einn maður bar ægishjálm yfir
aðra i þessum leik. Það var
Sigurður Dagsson markvörður
Vals, sem nú er kominn á ný inn i
liðið. Hann sýndi þarna stjörnu-
leik, lék af yfirvegun og öryggi
allan timann og vissulega er synd
að hafa hann ekki með i landsliðs-
ferðinni sem lagt var upp i gær-
rnorgun. Hermann kom einnig
friskur út úr þessum leik og var
brattari en oftast áður i sumar.
Þar með lauk knattspymu-
vertiðinni i' ár. Eftir eru að visu
leikir i evrópukeppnum, bikar-
keppni og úrslitaleikir i tveimur
yngri flokkum og 3. deild en
deildakeppninni i sumar er lokið.
—gsp
Hinrik varð
markakóngur
Og Breiðablik kvaddi aðra
deild með góðum sigri
Hinrik Þórhallsson varð
markakóngur 2. deildar og
tryggði hann sér þá nafnbót i
siðasta leik Breiðabliks i 2.
deild sinni. Var það gegn
selfyssingum, sem einnig áttu
möguleika á að ná titlinum i
sinar raðir. Sumarliði
Guðbjartsson hafði skorað 13
mörk i deildinni i sumar fyrir
þennan leik og sömu marka-
tölu var Hinrik með.
En Sumarliði átti aldrei
möguleika á að bæta við
markasafnið i þessum leik.
Nýliðamir i 1. deild höfðu
mikla yfirburði og 3-1 sigurinn
hefði getað verið enn stærri.
Breiðablik lék undan vindi i
fyrri hálfleik og hafði þá
úrhellisrigninguna einnig i
bakið. Skoruðu kópavogsmenn
þrjú mörk fyrr leikhlé. Það
fyrsta gerði Þór Hreiðarsson
eftir að markvörður hafði
varið skot en misst frá
Hinriki. Gisli Sigurðsson
skoraði 2-0 með þrumufleyg
frá vitateig og siðan tryggði
Hinrik sér markakóngstitilinn
með þvi að skora þriðja
markið úr vitaspyrnu sem
hann „fiskaði” sjálfur.
I siðari hálfleik jafnaðist
leikurinn nokkuð þótt enn
væru það Breiðabliksmenn
sem ættu flest tækifærin.
Selfyssingar skoruðu eitt
mark og lauk leiknum þvi' 3-1
fyrir Breiðablik.
Breiðablik, Vík-
ingur Ó og Völs-
ungur náðu sigri
Og Haukar og Ármann gerðu jafntefli
I siðustu umferð 2. deildar urðu
úrslit þau að Breiðablik sigraði
Selfoss 3-1 og er sagt frá þeim leik
hér fyrir ofan. Reynir A lék á
heimavelli gegn Völsungum og
tapaði 1-2 eftir spennandi leik þar
sem hart var barist og oft af
nokkurri hörku.
Haukar og Ármann skildu jöfn,
0-0, eftir mikinn barningsleik þar
sem Armann var allan timann
sterkari aðilinn og sótti án afláts
án þess að skora.
Þróttur sigraði Viking O með
tveimur mörkum gegn engu og
átti I töluverðum erfiðleikum með
botnliðið, sem verður að leika
gegn Þór eða KA frá Akureyri um
aukasæti i 2. deild.