Þjóðviljinn - 04.09.1975, Síða 9
' Fimmtudagur 4. september 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Jónína H.Ó.:
Til verka-
manna hjá
Eimskip
Nú þegi ég ekki lengur. Af
gefnu tilefni ráðlegg ég ykkur,
að standa þéttan vörð um hags-
muni ykkar, verkamenn hjá
Eimskipafélagi Islands. Ég
vann i Faxaskála i 10 mánuði,
frá byrjun ágúst ’74 til mánaða-
móta növ.-des. og siðan frá jan.
fram i miðjan júlt. 1 des. var
gerður samningur milli verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar og
Eimskipafélags Islands. Fól
hann i sér ýmsar breytingar á
vinnuháttum okkar. I staðinn
áttu þeir, sem unnið höfðu i 3
mánuði að fá 8% kauphækkun,
en þeir sem sóttu námskeið,
sem félagið hélt, fengu 8% þar
ofaná.
. Þegar komið er fram í miðjan
april var ég búin að vinna i 3
mánuði samfleytt, höfðum við
verkamenn haldið samninginn
og var þá komið að þvi að ég
fengi þessa 8% hækkun. En ekki
fékk ég kauphækkunina. Ég lét
málið liggja niðri i 3 mán. hafði
nóg að gera með minn fritima
annað en að endurreikna viku-
lega launin. Ég vissi þó að lús-
arhækkun þessi kæmi ekki af
sjálfu sér, það höfðum við rekið
okkur á áður. Það er kannske
svo hátt kaupið hjá okkur að við
megum vel við þvi að 692 kr.
vanti vikulega á kaupið? Viku-
kaup mitt er 11.800 eftir að hafa
unnið hjá félaginu i 10 mán.
Jæja, einn góðan veðurdag
drif ég mig niðrá skrifstofu
Eimskipafélagsins-, vildi ekki
láta Eimskip komast upp með
aðhirða mina peninga þegjandi
og hljóðaiaust. Ég tala fyrst við
yfirmann launagreiðslnanna.
Hún segist engu ráða, það sé
vöruafgreiðslustjórinn sem
stjórni þessu. Ég geng upp lang-
an langan stiga inni hlýtt og
bjart herbergi (munur eða kuld-
inn i vöruskemmunum) og þar
hitti ég vöruafgreiðslustjórann
og segist hann skulu laga þetta
er ég hef sagt honum málavexti,
en segir að þessi mistök stafi af
þvi að þeir hafi fengið vitlausan
stofn. Ég glotti i laumi að skipu-
lagsleysinu, en lét þessa afsök-
un samt góða heita.
Daginn eftir ætla ég að sækja
peningana mina. En þá var nú
gállinn annar á vöruafgreiðslu-
stjóranum, og sagði hann mér
að ég hefði aldrei verið fastráð-
in og ætti þvi engan rétt á þess-
ari hækkun. Bað ég vöruaf-
greiðslustjóra þennan um betri
skýringu á þvi, sem hann sagði.
Gerðist hann þá æstur og sagði
að þeir hjá Eimskip ákvæðu al-
gjörlega sjálfir hverja þeir fast-
réðu. Sem sagt,það skipti ekki
máli hvað lengi þeir hefðu unn-
ið á staðnum. En enga fastráðn-
ingartilkynningu hafði hann til
að sýna mér og sagðist ekki
ræða þetta meir. Mikill er lág-
sunnudagur—
smáauglýsingar:
lægsta verð
Jónlna H. Ó.
kúruhátturinn. En nú hef ég það
á hreinu eftir trúnaðarmönnum
Dagsbrúnar að allir þeir sem
unnið hafa hjá Eimskipafélagi
tslands i 3 mán. skulu fá þessa
hækkun.
Mér hefur skilist að það sé
óánægja hjá fleirum en mér útaf
svipuðum hlutum. Er það ekki
rétt, vinnufélagar? Þið munið
lika, að fyrir stuttu skeðu tvö at-
vik. Þá var reynt að kúga tvo
vinnufélaga ykkar og þeim hót-
að brottrekstri ef þeir gengju
ekki i fyrra tilvikinu að afar-
kostum verkstjóra eins skálans,
og i þvi siðara var það fyrr-
nefndur vöruafgreiðslustjóri
sem reyndi kúgunarbrögð. Já,
það skeður ýmislegt bak við
bláu girðinguna hjá „óskabarni
Islands”. En það var verkalýðs-
félag okkar sem hjálpaði okkur i
þessum málum. Vinnufélagar,
við þurfum sjálf að standa sam-
an gegn kúguninni, þvi á hverj-
um lendir hún næst? Snúumst
gegn kúgunarvaldinu, rekum
það i gegn, göngum af þvi dauðu
með beittasta vopni okkar SAM-
STöÐUNNI.
Nauðsynlegt er að verkamenn
i Faxaskála kjósi sér trúnaðar-
mann.
Rvik, 27. ágúst
Jónina H.Ó.
Auglýsing
um verð á sementi
Frá 1. september 1975 er verð á sementi
frá Sementsverksmiðju rikisins svo sem
hér segir: Án Með
söluskatts söluskatti
Portland- kr : kr.:
sementpr. tonn 10.000.00 12.000.00
Hrað-
sement pr. tonn 11.400.00 13.680.00
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
ÓNSKÓLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR.
Innritað verður i skólanum, Hellusundi 7,
fimmtudaginn 4. september og föstudag-
inn5. september kl. 4-7 báða dagana. Skól-
inn er nú fullskipaður. Nemendur sem
innrituðust i vor eru beðnir að staðfesta
umsóknir með þvi að greiða námsgjöld
sin, annars eiga þeir á hættu að aðrir nem-
endur verði teknir i þeirra stað. Skólinn
verður settur i Lindarbæ mánudaginn 8.
september kl. 17. Kennsla hefst miðviku-
daginn 10. september.
Skólastjóri
Móðir okkar
KRISTÍN ÓLADÓTTIR,
Boðaslóð 17, Vestmannaeyjum,
lést I Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 1. september. Jarðarför-
in fer fram frá Landakirkju laugardaginn 6. sept. kl. 2.
Börn og aðrir vandamenn.
FERÐ TIL BANGKOK
fyrir tvo I hálfan mánuð. Farið verður með Otsýn. Is-
lendingar leggja að jafnaði ekki leið sína um undra-
heima Austurlanda, —tll þesseru þau ef til vill of langt I
burtu — en hver veit, kannski dettur þó I lukkupottinn,
svo að það er eins gott að geyma miðann þar tll sýning-
unni lýkur 7. september.
VINNINGUR DAGSINS:
Skoðunarferð til Vestmannaeyja: með Flugfélagi Is-
lands. Farið verður að morgni, og eyjarnar skoðaðar.
Innifalin er máltíð á Hótel Vestmannaeyjum. I Eyjum
er margt að sjá, fyrir utan stórbrotna náttúru, tll dæmis
má nefna Sjóminjasafnið I Vestmannaeyjum, sem er
einstakt. Komið verður aftur að kvöldi.
VINNINGAR OG VINNINGSNÚMER I GESTAHAPP-
DRÆTTINU, SEM ÞEGAR HAFA VERIÐ DREGNIR
ÚT:
22. ágúst:
Ævintýraferó um Breiöafjörö
kom á nr. 5387
23. ágúst:
Heiöursgestir i Valhöll
kom á nr. 7942.
24. ágúst:
Fjölskylduferö aö Húsafelli
kom á nr. 15921
25. ágúst:
Skemmtisigling um ViÖeyjarsund
kom á nr. 18686.
26. ágúst:
VetrarfegurÖ viö Skjálfanda
kom á nr. 21481.
27. ágúst:
Meö 18 gesti „hvert á land sem er”
kom á nr. 24756.
28. ágúst:
A Noröurheimskauti
kom á nr. 27036.
29. ágúst:
A eskimóaslóöir
kom á nr. 33914.
30. ágúst:
Leikhúsferö til Akureyrar
kom á nr. 41473
31. ágúst:
Hrikaleiki Hornstranda
kom á nr. 54258.
1. sept:
Fjör i Færeyjum
kom á nr. 31597.
2. sept.
Tiska I fararbroddi
kom á nr. 63005.
Lukkupottur
Laugarda lsha 1 lar
DALNÚ0LEG VðRllSÝNING REYKJAVÍK 1975