Þjóðviljinn - 07.09.1975, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 7. september 1975
Electrolux
ffll
Frystikista
410 Itr.
..___________
Electrolux Frystlkista TC 145
410 litra Frystigeta
28 kg á dag. Sjálfvirkur hitastill-
ir (Termostat). Öryggisljós með
aðvörunarblikki. Hraðfrystistill-
ing. Plata með stjórntökkum.
Lás á loki. Tvær körfur. Skilrúm.
Útbúnaður, sem fjarlægir vatn
úr frystihólfinu. Segullæsing.
Fjöður, sem heldur lokinu uppi.
Vorumarkaðurinn hf.
Kvnni® ykkur
okkar
hagstæða
É*VETRAR*i
VERÐ J
sem gildir fró
1. september.^
Sérstakur i
afsláttur fyrir 4
HÓPA4
og langdvalar*
gesti. 4
HÖT|i^lOF 4
2-88-66 '
r^(
SBNDIBIíASTOÐlN Hf
Sigurbur Steinþórsson og Grímur Lúöviksson —
afmælisveislu Marokkóprinsins.
nýkomnir úr
1. 0 ^ 1» *> j
Turn i moskunni i Rabat.
í afmæli Marokkóprins
Tveir fimmtán ára skátar, þeir
Grimur Lúðviksson úr Keflavik
og Siguröur Steinþórsson úr
Reykjavik, voru heldur en ekki
heppnir um daginn. Þeir voru á
jamboree-móti i Noregi þegar
þeim ásamt 32 skátum öörum úr
17 löndum var boðiö í afmælis-
veislu prinsins af Marokkó.
Prinsinn, sem heitir Mú-
hammeð 5. er 12 ára á þessu ári
og skortir ljóslega ekki vasa-
peninga til að geta haldið upp
afmælið sitt svo eftir verði tekið.
„Við komum saman i PÖls,
afmælisgestirnir, þann 8. ágúst”,
sagði Grimur Lúðviksson, ,,og
þaðan fórum við til borgarinnar
Rabbat i Marokkó. Frá Rabbat
fórum við næsta dag og þá til
borgarinnar Fes, og þar vorum
við lika eina nótt. Siðan vorum viö
á skátamóti i bænum Ifrane,
þaðan til Meknes og loks til Saidia
en þar dvöldum við fimm daga og
bjuggum þá i tjöldum.”
Undarleg veröld
Þeir ferðalangar sögðu að
Tveimur
íslenskum
skátum var
boðið
í afmæli
ríkisarfans í
Marokkó
margt hefði komið þeim undar-
lega fyrir sjónir i Marokkó.
„Stéttaskiptingin er áberandi”,
sagði Sigurður, „annars vegar
sér maður ótrúlega fátækt en hins
vegar jafnótrúlegt rikidæmi. Við
ferðuðumst þarna eins og rikis-
bubbar, bjuggum ýmist á
fjögurra eða fimm stjörnu
hótelum og ókum i lúxusvagni
með loftkælingu. Við höfðum
kannski ekki nægilega góð tæki-
færi til að ganga um á eigin
vegum, nema i Fes. Og þar er
fólkið svo sannarlega lörfum
klætt.”
„Afmælisgestir prinsins litla
bjuggu á tilteknu tjaldbúðasvæði i
Saidia þar sem miðpunktur
veislunnar var.
„Við vorum reyndar stöðugt i
afmælisveislum”, sagði Sigurður,
„en þarna i Saidia sáum við
prinsinn. Hann hefur höll út af
fyrir sig og óeinkennisklæddir lif-
verðir fylgja honum hvert fótmál.
Kóngurinn, pabbi hans, heitir
Hassan og hann á margar hallir
út um allt rikið. Tjaldbúðasvæðið
i Saidia var umkringt her-
mönnum — reyndar bar mikið á
vopnuðum vörðum af ýmsu tagi i
landinu”.
Afmælisveisla prinsins af
Marokkó hefur væntanlega
kostað laglegan skilding þvi hann
borgaði far fyrir fjölda manns
norðan úr álfu og heimferðina
lika auk uppihalds i rikinu og
gjafa sem hver veislugesta þáði.
„Það var skritið”, sagði
Grimur, „að við, afmælisgest-
irnir vorum stöðugt að þiggja
gjafir, en prinsinn fékk ekkert i
likingu við það sem hann gaf. Við
frá íslandi gáfum honum
prjónaða sokka. Mamma hans
Sigurðar prjónaði þá”. Við gáfum
honum lika bandalagsmerkið,
vikingaskip”.
Skátahreyfingin mun vera út-
breidd i Marokkó og reyndar lika
i öðrum löndum N-Afriku.
„Skátar úr þriðja heiminum
eru langfjölmennastir á skáta-
mótum núorðið”, sagði Sigurður,
„við úr Evrópu erum i miklum
minnihluta”.
—GG
KHGHMHWMnEnMHRHBBÍ
Ólullgerða Moskan I Rabat sem er 2-3
þúsund fermetrar.
Hans hátign, Múhammeð 5. afmælisbarn
um þcssar mundir. Hann er umkringdur
lifvöröum.
Veisluborð i einni af afmælisveislum prinsins.