Þjóðviljinn - 14.12.1975, Side 9
Sunnudagur 14. desember 1975. JóÐVILJINN — SIÐA 9
The Gunnar
Schram
Show
ÁRNI
BJÖRNSSON
SKRIFAR:
Upplyfting alþýðunnar
Fyrst eftir þátt Gunnars G.
Schram með skáldunum fjórum
fyrir rúmum mánuði varð sil
krafa mjög hávær, að haldið
yrði áfram á sömu braut og is-
lenskir sjóbojs og frumkraftar
látnir leysa af hólmi engilsax-
neska atvinnumenn einsog
Davið Frost eða Tommy Steele.
Svofellt athæfi mundi efla
þjóðarstoltið i tvennum skiln-
ingi. Það sýnir, að við erum
sjálfum okkur nægir, og i öðru
lagi styrkir það sjálfsvirðingu
alþýðunnar, einsog fullorðin
kona komst að orði við mig dag-
inn eftir:
„Það er svo upplyftandi fyrir
okkur alþýðufólkið að horfa á
þessa frægu og lærðu menn og
sjá,hvað þeir geta veriðdæma-
laust vitlausir.”
Um einstaka leiknauta má
raunar fyrst segja, að það hafi
verið hundraðogellefu meðferð
á öldnu stórmenni að draga
Gunnar Gunnarsson i þátt sem
þennan (requiescatin pace). En,
svona virtistsem Matthias hefði
viljað hafa þetta, svo að hann
gæti setið i sólinni af gömlu
meisturunum og i vitund áhorf-
enda birtust hin þrjú stóru
nöfn islenskra bókmennta i dag.
Siðan kom Jónas Arnason eins-
og skollinn úr sauðarleggnum á
elleftu stundu og eyðilagði
stemmninguna. Bitastæðasta
framlag hans var reyndar
tilvitnun i Arna Bergmann þess
efnis, að ranglæti framið i nafni
sósialisma sé verra en hitt, sem
gert er i nafni fasismans.
Jónasi tókst þó að hleypa
Halldóri upp, og það var reglu-
lega gaman að sjá skáldið fár-
ast yfir áratugalöngu pexi Þ jóð-
viljans og Moggans, rétt einsog
hann hefði aldrei sjálfur tekið
þátt i þessum vopnaskiptum
ellegar sagt fyrir 30 árum, að
Þjóðviljinn væri „eftilvill besta
eignin i hverju smáu húsi á
landinu.” (Sjálfsagðir hlutir,
bls. 252.) Kannski hættir hann
að verða góð eign, þegar hús
skáldsins stækkar.
Halldór hefur vissulega látið
frá sér sum þau ummæli, sem
islenskum sósialistum hefur
hvað mest verið nuddað uppúr
áratugum saman og betur væru
ósögð, einsog þegar hann fjall-
aði um innrás Sovétrikjanna i
Pólland og sagðist ekki „sjá
nokkurt hneyksli I þvi, að 15
milljónir manna eru þegjandi
og hljóðalaust innlimaðir undir
bolsevismann”. (Þjóðviljinn 27.
sept. 1939).
Það var útaffyrirsig fróðlegt
að sjá andsvör Jónasar og
Matthfasar, þegar Halldór
byrsti sig. Einn sjáandi lýsti þvi
svo, að þeir hefðu brugðist við á
þann tvennan hátt, sem hunda
erháttur,sé þeim sveiað: annar
urraði, en hinn lagðist niður og
ýlfraði.
Það var raunar átakanlegt að
sjá flaður Matthiasar utani
Halldór. Hitt verður að telja
Ma. Joh . til tekna, að hann
virðist þrátt fyrir allt furðan-
lega einlægur i hinum sérstæða
klofningi sinum sem ritstjóri
hins rammasta afturhaldsmál-
gagns annarsvegar og hinsveg-
ar sem ljóðrænn sveimhugi og
jafnvel mannvinur.
Snerkjur i andliti manna voru
i þessu sambandi allrar athygli
verðar, einkum þegar þeir
héldu sig ekki vera i sjónmáli.
Myndstjórnin varnefnilega með
afbrigðum góð hjá Rúnari
Gunnarssyni.
Hallddr kallinn kom annars
skást útúr þessu og mæltist oft
viturlega. Það sýnist margt til i
kenningu hans um svæðis-
bundna þjóðfélagsskipan (sem
auðvitað byggist á náttúrlegum
aðstæðum), þótt það sé óneitan-
lega andkönnulegt að lofa hið
engilsaxneska* munstur i
Bandarikjunum ánþess að
minnast á þrælahaldið eða
fimbulfamba um góða keisara i
Rússaveldi, „sem voru kannski
dálitið blóðþyrstir, en gerðu
margt vel við fólkið.”!
Og með þessari munstrakenn-
ingu sinni er Halldór raunar
kominn út i einskonar örlaga-
hyggju, svipaða kenningunni
um hina „sögulegu nauðsyn”,
sem hann hefur stundum verið
að álasa marxistum fyrir að að-
hyllast. Mabur fer að freistast
til að snúa við þessari gömlu
CIA-forskrift: einu sinni stalin-
isti — alltaf stalinisti.
En það er samt vert að vekja
athygli á skoðunum, sem settar
voru fram af Halldóri nokkurn-
veginn á þessa leið:
Það er sama, hversu góð
kenningeri sjálfu sér. Þegar þú
ert orðinn skyldugur til að trúa
henni — eða ég drep þig, — þá
hefur það ekkert að segja,
hversu góð hún er. Þegar búið
er að lögbjóða hana sem hinn
eina stórsannleik, verður hún
vond.
Marx stingur ekki upp á þvi
aðkúga fólk. Hannstingur upp á
þvi að frelsa það.
Við eigum Marx hérna á Vest-
urlöndum. En þeir fyrir austan
hafa stolið honum frá okkur og
botna hvorki upp né niður i hon-
um.
Máttur skáldskaparins
Svo kom næsta sýning G.
Schram, en hún var þvi miður
ekki til alþýðlegrar skemmtun-
ar. Þar hafði morgunblaðspexið
yfirhönd i túlkun Björns
Bjarnasonar og raunar stjóm-
andans lika. Þótt Gunnar væri
liklega allur af vilja gerður til
að sýna óhlutdrægni, þá er ekki
auðgjört að afmá áhrif upp-
eldisins i Heimdalli.
Þótt Ólafur Ragnar þrástag-
abist nánar á þvi einu, að reynt
væri að horfa á myndina frá
fleiri sjónarhornum, „lyfta um-
ræðunum á hærra plan”, likt og
Halldór Laxness orðaði það i
fyrri þættinum, þá var það eins
og að stökkva vatni á gæs.
Heimildamyndin um leyni-
þjónustu Bandarikjanna og út-
listun CIA-mannsins Tom
Braden (sjónvarpið 9/12) gerir
þessa forpokun ljósari en ella:
Hersögu er komið á kreik (kaf-
bátasagan), blaðamönnum,
menntamönnum, stúdentaleið-
togum (þetta vissum við þegar
á 6. áratugnum) og ekki sist
verkalýðsforingjum var mútað
beint eða falið. Timarit og blöð
voru stofnuð (Encounter) eða
lifi haldið i æskilegum málgögn-
um á horriminni (Alþýðublaðið
á ráðherraárum viss manns?).
CIA-stofnun „Frjálsrar menn-
ingar” i Paris myndar útibú
viða um heim (m.a. á Islandi).
CIA hafði ótakmörkuð fjárráð i
þessu skyni, þótt þeim væru
settar vissar skorður, þegar átti
að drepa einstaka menn.
Þetta baksvið skýrir nokkuð
hið rigfasta orðalag
Nató-manna. Það nægir t.d.
ekki að segja, að kafbátar
Sovétrikjanna sigldi um At-
lantshafið, heldur „sækja þeir
fram á” það. „Sagt er”, að
framvarðalinan sé milli Græn-
lands, Islands og Skotlands.
Hver segir það? Sú sögn skyldi
þó aldrei vera komin frá CIA? —
Hverjir gripu til „gagnráðstaf-
ana” á þessu sviði? CIA veit
svarið við þvi. Þegar ólafur
Ragnar spyr, hvort flotastyrkur
Sovétrikjanna gæti ekki hugs-
anlega verið skýranlegur með
nauðsyn þeirra á þvi að halda
sinum þröngu siglingaleiðum
opnum, þá er einfaldlega svar-
ab, að það geti ekki verið nægj-
anleg skýring. Engin rök —
enda óþörf fyrir forfiflaða á-
horfendur.
Þegar Ólafur Ragnar bendir á
Sviss, sem verið hefur hlutlaust
ásamt Austurriki i miðri
Evrópu áratugum saman, þá
Framhald á 26 siðu
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
TÓMAS GUÐMUNDSSON
STJÖRNUR
VORSINS
1 tilefni af 75 dra afmœli Tómasar Guömundssonar skdlds 6. jan. 1976
gefur Almenna bókafélagið út STJÖRNUR VORSINS i viðhafnarút-
gdfu með myndskreytingum Steinunnar Marteinsdóttur. Formála ritar
Kristján Karlsson. Bókin er gefin út í mjög takmörkuðu upplagi eða
1495 tölusettum eintökum, öll með eiginhandardritun skáldsins.
Bókin er til sölu ibókaverzlunum og hjd Almenna bókafélaginu á einu
og sama verði allsstaðar og kostar kr. 7.800.- með söluskatti. Pantanir
verða afgreiddar eftir þeirri röð sem þœr berast til okkar.
Þessi bók er prentuð og bundin
í 1495 tölusettum eintökum
og er þetta eintak nr.
0 ■/yy\ iAaJ'YY^'VGí'^
Austurstræti 18, R. ^
sími 19707-16997