Þjóðviljinn - 14.12.1975, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. desember 1975.
Eitt af málverkum Gunnlaugs Schevings, sem til sýnis er i Listasafni tslands, og skissur sem lista-
maðurinn gerði að þvi.
t tveimur sölum Listasafns
tslands eru nú til sýnis 56 myndir
eftir Gunnlaug Scheving, og er
hér um að ræða hluta af dánar-
gjöf listamannsins til safnsins.
Þegar Gunnlaugur Scheving lést i
desember 1972 arfleiddi hann
Listasafn tslands að öllum verk-
um sfnum. Gjöfina má flokka á
eftirfarandi hátt eftir efni og
ástandi: tólf oliumálverk, 306
vatnslitamyndir, 256 túsk- og
vatnslitaskissur, 36 litkrft-
armyndir, 33 litkrítarskissur,
þrjár grafikmyndir, tvær
coilage-myndir, fimmtfu teikni-
bækur og dagbækur listamanns-
ins.
1 formála að sýningarskrá eftir
ÓlafKvaransegir: „Einsog þessi
flokkun gefur til kynna þá er gjöf
Gunnlaugs Schevings mikil að
vöxtum og óvenjulega marg-
breytileg, allt frá fyrstu frum-
dráttum að myndum til full-
gerðra verka, og spannar yfir all-
an listferil hans allt frá skUtu-
teikningum á Seyðisfirði til hinna
stóru og voldugu sjávarmynda
hans, sem hann vann að skömmu
fyrir andlát sitt. Gunnlaugur
Listasafn Islands
Sýnir hluta
af dánargjöf
Gunnlaugs
Schevings
Scheving hefur, eftirlifendum til
mikillar gleði, varðveitt af kost-
gæfni og alúð mikinn fjölda af
skissum og undirbúningsmynd-
um að stærri verkum sinum, sem
listamenn forna oft þegar „stór-
hreingerningar” eiga sér stað á
vinnustofunni. Þessi þáttur
gjafarinnar er einkar athyglis-
verður, þar eð þessar myndir
gefa möguleika til margvislegs
innsæis i listsköpun og vinnuað-
ferðir listamannsins. Hér má oft
fylgja ferli myndarinnar allt frá
fyrstu frumdráttum og siðan stig
af stigi er myndhugmyndin tekur
margvislegum umbreytingum,
allt i samræmi við markmið og
listrænan metnað höfundar.
Gunnlaugur hefur haft mjög
kerfisbundna vinnuaðferð, yfir-
leitt byrjað verk sin i örsmáum
skissum, sem hann gerir af heilar
seriur og þá nálgast hann oft
myndefnið frá ólikum hliðum likt
og kvikmyndaaugað er
rannsakar ólik sjónarhom og ger-
ir tilraunir með ólikan og marg-
breytilegan myndskurð, eða að
eitt smáatriði eða myndþáttur er
dreginn fram sérstaklega og
rannsakaður. 1 þessum skissum
er ekki einungis að finna leið og
rannsókn listamannsins að einni
mynd, heldur má hér oft og tiðum
sjá hvernig og hvar ákveðinn
myndefnisþáttur sprettur upp og
gengur siðan i gegn i ólikum
verkum og fær mismunandi
merkingu i samræmi við sam-
hengi sitt.”
Annarsstaðar i' safninu eru nú
til sýnis yfir hundrað og tiu lista-
verk, öll eftir islenska listamenn.
Listasafn fslands er opið sunnu-
daga, þriðjudag, fimmtudaga og
laugardaga kl. 1.30 til 4.00.
dþ.
Leiðbeiningar
Stafirnir mynda islensk
orð eða mjög kunnugleg
erlend heiti, hvort sem
lesið er lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt
númer og galdurinn við'
lausn gátunnar er sá að
finna staflykilinn. Eitt
orð er gefið og á það að
vera næg hjálp, þvi að
með þvi eru gefnir stafir i
allmörgum öðrum orð-
um. Það eru þvi eðlileg-
ustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern i
sinn reit eftir þvi sem töl-
urnar segja til um. Einnig
er rétt að taka fram, að i
þessari krossgátu er
gerður skýr greinarmun-
ur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a
aldrei komið i stað á og
öfugt.
flœðilandiö mikla
s 0 n i n w
m
7 P~ 3 v- 5 w lo H QP 0? ~ 9 ” jr 0? 12
2 7 12 /3 /V 2 /I V 23 H Ié> 11 V l£~ 8 1? 18 /9
/é> 10 ? § y 20 )lc 13 Qp 12 10 10 12 21 ll V /9
22 23 UP 18 12 ? 22 H V <v V 21 23 //
£T 18 V 12 2 V 13 18 18 s- H V 23 25 11 lá> PP
“ (V, 2(p 12 12 /9 il 21 I/ V Z 9 H U V n 2sr
,hK '°L r HR V 23 IH V 22 V ) v 9 1/ 10 lo V 20
.3 y 27 22 Ko V Uo 10 11 1H z H lí y 11 2.
qpxi- 11 J6> U 10 11 /? /y Z CJ> 21 i'f n V 18 b~ V
20 /? V n- 2S~ 2 ll 10 V 2 12 XI V 23
20 10 13 H S2. 2H 2 11 £ 21 s 2 sa llff 10 u 3/ 31
Setjið rétta bókstafi i reitina
neðan við krossgátuna. Þeir
mynda götuheiti i Reykjavik.
Sendið þetta orð sem lausn á
krossgátunni til afgreiðslu
Þjóðviljans, Skólavörðustig 19,
merkt „verðlaunakrossgáta nr.
12”. Skilafrestur er þrjár vikur.
Or réttum iausnum verður
dregið og hlýtur sá, sem útdreg-
ið nafn ber, bókina Flæðilandið
mikla að launum.
Flæðilandið mikla er eftir kin-
verska rithöfundinn Mau Tun,
en hann hefur verið mennta-
málaráðherra i kinaveldi og
)lo 1 H 10 U /9
formaður rithöfundasambands
þess lands.
Bókin hefur að geyma 9 smá-
sögur.
Hannes Sigfússon þýddi bók-
ina yfir á islensku.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 8
Dregið hefur verið úr lausnum í verðlaunakrossgátu
nr. 8, sem birtist 16. nóvember. Upp kom nafn
Hallgríms Pálssonar, Meðalbraut 12, Kópavogi. Verð-
launin eru bókin Norræn Ijóð, Ijóð eftir 40 skáld í þýð-
ingu Hannesar Sigfússonar. Hallgrímur er beðinn að
vitja bókarinnar til ritstjórnar Þjóðviljans.