Þjóðviljinn - 14.12.1975, Blaðsíða 21
Sunnudagur 14. dcsember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
félaga og jafningja og blessunar-
lega laus við alla vanmáttar-
kennd gagnvart þeim, sem við
var að etja. Hann var sannur i
öllu sem hann tók sér fyrir hendur
og ekki trúi ég þvi,. að hann hafi
nokkru sinni aðhafst nokkuð það,
sem andstætt var hreinni og
óflekkaðri samvisku hans.
Sá sem þessar fátæklegu linur
hripar i flýti, átti þvi láni að fagna
að kynnast Sigurði Guðnasyni
nokkuð. Að visu aðeins skamma
hrið sem flokksbróður og sam-
starfsmanni i verkalýðshreyfing-
unni og kom þar aldursmunur til,
en nokkru frekar þegar hann
hafði á efri árum dregið sig i hlé
úr baráttunni og lifði lifi sinu i
rólegri elli. Fyrir þau kynni verð
ég Sigurði ævinlega þakklátur.
Þrátt fyrir háan aldur var hann
flestum yngri i anda, ávallt glað-
ur og hvetjandi til dáða, ákveðinn
og djarfur i skoðunum og á sum-
um sviðum allt að þvi framúr-
stefnumaður. Fram til siðustu
ára entusthonum þeir eiginleikar
bjartsýni og framsýni, hjarta-
hlýju og samúðar með hverjum
góðum manni og göfugum mál-
stað, sem gerir menn að gæfu-
mönnum svolengi sem þeim end-
ist lif og heilsa. Slikum er gott
heilum vagni heim að aka.
Og svo aðeins að lokum: Ég
veit að ég mæli fyrir munn is-
lenskrar verkalýðshreyfingar
þegar ég þakka Sigurði Guðna-
syni öll hans störf fyrir islenska
alþýðu. Sjálfsagt hafa þau ekki
verið alfullkomin fremur en önn-
ur mannanna verk, en þau voru
örugglega öll unnin af þeim
hreina huga og óbilandi vilja til
að gjöra rétt, en þola aldrei órétt,
sem að lyktum mun færa stétt
okkar verkafólksins sigur.
Blessun fylgi minningu Sigurð-
ar Guðnasonar.
Björn Jónsson.
Arið 1888 bjuggu að Holtakoti i
Biskupstungum, hjónin, Guðni
bórarinsson og Sunneva Bjarna-
dóttir. Hinn 21. júni það ár fædd-
ist þeim sonur, er hlaut nafnið
Sigurður. bann unga svein munu
vinir hans og samherjar ásamt
fjölskyldu hans kveðja á morgun,
er hann verður lagður til hinstu
hvildar eftir langan og starfsam-
an ævidag, 87 ára aö aldri.
Eins og flestir jafnaldrar hans
ólst hann upp við hin venjulegu
sveitastörf þeirra tima. Þó lang-
aði hann snemma að afla sér
frekari menntunar og fór þvi tæp-
lega tvitugur i bændaskólann á
Hólum og lauk þar námi árið 1909.
Átta árum siðar eða 1917 hóf
hann búskap að Borgarholti i
Biskupstungum og hinn 6. júli
1918 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Kristinu Guðmunds-
dóttur frá Tjörn i Biskupstung-
um. I Borgarholti bjuggu þau til
ársins 1922, en fluttust þá til
Reykjavikur, þar sem hann hóf
að stunda verkamannavinnu og
hélt þvi áfram um næstu tvo ára-
tugi. Um þann þátt i ævi hans, á-
samt störfum hans i verkalýðs-
hreyfingunni, verður ekki fjallað i
þessum linum. Gerð munu honum
betri skil af öðrum, sem þeim
málum eru kunnugri.
Haustið ’42 var hann f framboði
til Alþingis á lista Sósialista-
flokksins i Reykjavik. Hlaut hann
þá þingsæti sem landskjörinn
þingmaður. Og 1946 varð hann
einn af átta þingmönnum Reykja-
vikur og hélt þvi sæti til 1956, er
hann sjálfur kaus að draga sig i
hlé. Þegar á það var minnst við
hann, að óþarfi væri fyrir hann að
hætta þá strax, var svar hans
þetta: „Svona starfi á maður að
hætta meðan einhverjir sjá eftir
manni en ekki biða þangað til all-
ir telja lokin sjálfsögð.”
A þeim vettvangi varð það að
leiðir okkar Sigurðar lágu saman.
Varð það fyrst haustið 1944. en þá
aðeins stuttan tima; Siðar áttum
við eftir að vinna saman i þing-
flokki Sósialistaflokksins i nokkur
ár. Og tel ég ekki of mælt að ég
hafi þvi betur lært að meta kosti
hans sem kynning okkar varð
.meiri og leiddi til nánari vináttu.
beir eðlisþættir, sem mér alltaf
fundust einkenna Sigurð mest,
voru heilindi hans og hreinskilni
gagnvart hverjum þeim málstað,
sem um var að fjalla. Á þingi var
hann fulltrúi verkalýðsstéttarinn-
ar og þvi eðlilega mest upptekinn
af hennar málum. Enda var hann
jafnan fljótur til andsvara ef hon-
um þótti rétti hennar hallað.
hvort heldur var með orði eða
verki. Sjaldan flutti hann langar
ræður, en honum var sýnt um að
greina kjarna hvers máls og
segja þá meiningu sina i tiltölu-
lega stuttu máli. Og i einkavið-
ræðum var hann jafnan eldsnögg-
ur til svars ef honum þótti réttu
máli hallað, gat þá einatt afvopn-
að viðmælandann með hnitmið-
aðri setningu.
Ekki ber þó að skilja ofanritað
þannig, að yfirsýn hans i þjóð-
málum hafi ekki náð út fyrir mál-
efni verklýðsstéttarinnar. Þessi
ár voru einmitt upphafsár þeirrar
niðurlægingar i sjálfstæðismálum
þjóðarinnar, er hófst með sam-
þykkt Keflavikursamningsins
1946 og náði hámarki sinu vorið
1951, þegar kallaðir voru saman
þingmenn stjórnarflokkanna
þriggja til að samþykkja ósk um
bandariska hersetu hér til fram-
búðar. En þingmenn stjórnarand-
stöðunnar, Sósialistaflokksins,
voru ekki kallaðir til þótt svo væri
látið heita að hér væri um sam-
þykkt Alþingis að ræða.
Jafnframt þvi sem þessi ár
voru upphafsár þessarar póli-
tisku niðurlægingar voru þau
úpphafsár hinnar nýju sjálf-
stæðisbaráttu, sem þá var hafin
og stendur enn.
Og i þessari sjálfstæðisbaráttu
tók Sigurður Guðnason þátt af lifi
og sál meðan heilsa og kraftar
entust. Hann tók virkan þátt i um-
ræðum á Alþingi bæði við sam-
þykkt Keflavikursamningsins og
inngönguna i Nató. Hann tók
einnig þátt i baráttu samtaka
hernámsandstæðinga eftir að
hann var horfinn af þingi. Og það
vakti eftirtekt, er hann sjötiu og
tveggja ára að aldri, árið 1960, tók
þátt i mótmælagöngu frá Kefla-
vik og lét sig ekki muna um að
ganga alla leiðina, 50 km. Þannig
var Sigurður alltaf heill i öllu þvi,
er hann léði liðsinni sitt.
Sigurður Guðnason ólst upp á
timum mikilla hræringa i is-
lensku þjóðlifi og islensku stjórn-
málalifi. Hann var fimmtán ára
gamall, þegar sá mikli stjóri
málasigur vannst, árið 1903, að fa
innlenda heimastjórn með búsetu
fyrsta islenska ráðherrans i
Reykjavik og með ábyrgð fyrir
Alþingi. Hann var þritugur að
aldri, þegar ísland varð fullvalda
riki 1918. Og hann var enn i fullu
starfsfjöri og sjálfur þátttakandi i
röð atburðanna, þegar islenska
rikið var lýst lýðveldi árið 1944.
Enda var hann eins og fleiri
meira en litið sár yfir undanhald-
inu, sem hafið var, aðeins rúmum
tveim árum siðar. Og lagði þá
fram krafta sina á gamals aldri,
tilþess að fá þannblettþveginn af
islensku þjóðlifi.
bá var hann einnig félags-
hýggjumaður i orðs þess fyllstu
merkingu. Fátt mun hafa verið
honum fjær, en að troða sinum
eigin hagsmunum fram yfir ann-
arra, þar sem hann taldi allra rétt
jafnan. Mun sá eiginleki fremur
öðru hafa skapað honum það ó-
skoraða traust, er hann vann sér
bæði meðal stéttarbræðra sinna
og annarra er honum kynntust.
Eitt vil ég enn nefna, sem mér
þótti einkenna Sigurð. Það var
mikill áhugi hans fyrir listum.
Einkum voru það leiklist og
myndlist sem áttu hug hans. Um
eitt skeiö, hve lengi veit ég ekki.
hafði hann unnið i Iðnó og kynnst
mörgum hinna eldri af leikurum
okkar. Hann hafði mjög næmt
auga fyrir leiksýningum og var
vel að sér i leiklistarsögu.
Hvað myndlistaráhuga hans
snerti, þá hallaðist hann mjög að
jákvæðu mati á verkum hinna
yngri myndlistarmanna gagn-
stætt því, sem raun varð um
flesta hans jafnaldra. Hann tók
ákveðna afstöðu meðhinum ungu
listamönnum i þeim hörðu svipt-
ingum, er fram fóru hér i landi
kringum miðja þessa öld, þegar
óspart var reyntað nota pólitiskt
vald Alþingis til að knésetja þá
listamenn, er ekki fylgdu gömlum
hefðbundnum reglum.
Ég varð einn af þeim kunningj-
um, sem alloft var gestur á heim-
ili þeirra hjóna árin, sem sam-
starf okkar var hvað mest. bar
var ætið jafn ánægjulegt að
koma, þvi alltaf voru visar hinar
látlausu og hlýju viðtökur frú
Kristinar ásamt skemmtilegum
samræðum við þau bæði.
Að endingu vil ég votta frú
Kristinu, dætrum hennar og
barnabörnum öllum innilega
samúð við fráfall hans.
Ásmundur Sigurðsson.
Sigurði Guðnasyni kynntist ég
sumarið 1944. Ásamt þremur
skólafélögum minum vann ég þá
undir verkstjórn hans ofan við
Reykjavik. Fundum okkar bar oft
saman fram á sumarið 1974 og
skiptist ég ávallt á orðum við
hann, andartak eða allt upp i
drjúga stund. Afsjó varað taka.
Frá þvi að Sigurður Guðnason
brá búi 1922 og fluttist á mölina
vann hann öllum stundum að efl-
ingu verkalýðsfélaganna og i
þágu málstaðar þeirra. 1 daglegri
vinnu dró hann heldur ekki af sér.
Kjartan Ólafsson i Hafnarfirði
sagði Sigurð hafa verið með rösk-
ustu mönnum, sem hann gekk til
verka með. I Alþýðuflokknum
skipaði Sigurður sér i hóp hinna
róttæku. Hann kom við sögu i
átökunum 9. nóvember 1932.
Hann var meðal þeirra Alþýðu-
flokksmánna, sem tóku höndum
sanan við kommúnistaflokkinn til
að stofna Sameiningarflokk
alþýðu, — Sósialistaflokkinn 1938
og var hann alla tið einn innviða
hans.
Nafn Sigurðar Guðnasonar er i
órofatengslum við sókn verka-
lýðshreyfingarinnar 1942. Annar
meginatburður hennar var kjör
Dagsbrúnarstjórnarinnar frægu,
sem Sigurður var formaður fyrir,
en hinn var skæruverkföllin, sem
hófust við höfnina i Reykjavik.
Hann var formaður Dagsbrúnar
til 1954, annars viðburðarriks árs
i sögu verkalýðshreyfingarinnar.
Árið 1942 var Sigurður einnig
kjörinn alþingismaður, og sat
hann á Alþingi til 1956. 011 spor,
sem Sigurður steig á félagsmála-
ferli sinum, munu hafa orðið al-
menningi til heilla.
Sigurð Guðnason þekkti ég af
afspurn, þegar kynni okkar tók-
ust, og mér er enn i minni, hve
hann kom mér á óvart. Ég hafði
ekki vænst þess, að harðnaður
baráttumaður hefði hið ljúfa
viðmót, glöðu lund og hlýja vinar-
hug til allra manna, sem Sigurði
voru gefin. Mér skildist siðar, að
hann var dæmigerður fyrir fyrstu
kynslóð forystusveitar verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Haraldur Jóhannsson
ELECTROLUX
Z30S
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112
Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-113
Útsölustaðir:
i Reykjavik eru auk uniboðs-
ins: Ingþór llaraldsson hf„
Armúla 1, Tómstundahúsið
hf.. Laugavegi 164, Bygginga-
vöruverzlun Kópavogs, Ný-
býlavegi 8.
Utan Reykjavikur: Stapafeli
hf., Keflavik, Atlabúðin,
Akurevri. Verzlun Páls Þor-
björnssonar, Vestmannaevj-
um.
JOLAGJAFIR
EITTHVAÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
D
w;57
•• r
ALGJ0R NYJUNG A ISLAND1
S. Sigmannsson & Co h.f., Súðarvogi 4,
Iðnvogum, sími 86470
Leturgrafari sem gerir yður
fært að merkja nær hvað sem
er.
Bandsög, draumatæki hand-
lagna mannsins. Sagar bæði i
tré og járn.
Útskurðartæki gefur fjöida
möguleika á útskurði ýmiss
konar svo sem: t gler, tré,
skinn, eir og til notkunar við
modelsmiði.
Málningarsprautur, 2 gerðir,
fyrir húsgögnin, ibúðina og bil-
inn.
Limbyssa til heimilisnota Til-
valið til módelsmiði, límingar á
húsgögnum, til að kitta i
sprungur o.m.fl.