Þjóðviljinn - 16.12.1975, Side 1
UÚÐVIUINN
Þriðjudagur 16. desember 1975 — 40. árg. 286. tbl.
SAMMNGAFUNDUR
HALDINN í DAG
Samningafundur vcrður i dag
hjá sáttasemjara, Torfa Hjartar-
syni, með samninganefndum ASl
og Ví og hefst hann klukkan tvö.
Tveggja tima samningafundur
var haldinn sl. laugardag. .Bar
þar fátt til tiðinda.
Sérkröfugerð verkalýðsfélag-
anna mun ekki vera lokið enn sem
komið er.
Vinnuveitendur hafa ekki enn
lagt neitt til mála á samninga-
fundum, en samninganefnd ASl
heíur hins vegar lagt fram kjara-
málaályktun kjaramálaráðstefnu
ASt, sem haldin var á dögunum.
—úþ
Stöðvast
skipa-
smíði í
landinu?
Vegna ákvarðana Fiskveiða-
sjóðs, að lækka innborganir til
nýsmiða á fiskiskipum hér innan-
lands úr 71% i 35,5% má búast við
að skipasmiði leggist algjörlega
niður innan tiðar ef þessari á-
kvörðun verður ekki hrundið.
Ákvörðun þessi var tekin án
nokkurs samráðs við ráðherra.
Niðurskurður á innborgunum
þýðir i raun, að ef um væri að
ræða smiði á 400 miljón króna
skipi þyrfti skipasmíðastöðin
sjálf að f jármagna nýsmiðina um
200 miljónir og má telja með öllu
ómögulegt að nokkur innlend
skipasmiðastöð gæti gert slikt.
Um þetta mál var ekki hægt að
fá skipasmiðastöðvareigendur til
að tjá sig i gær enda munu hags-
munasamtök þeirra hafa hug á að
halda blaðamannafund um málið
idag. ' —úþ
Bretum
fœkkar
ört
Voru aðeins
17 út af
Austfjörðum i gœr
Skömmu fyrir helgina voru
um 50 breskir togarar hér við
land, aðallega út af Austfjörð-
um. t gær taldist landhelgis-
gæslunni hins vegar svo til, að
bretarnir væru ekki fleiri en 17
talsins.
Islensku togararnir munu
vera á svipuðum slóðum og
þeir bresku þessa stundina
þar sem hafis hefur hrakið þá
af miðunum út af Vestfjörð-
um.
Af framferði breta er ann-
ars fátt að segja. Óveður hefur
haldið þeim frá veiðum. Ein
bresk njósnaþota kom inn yfir
miðin i gær.
Þjóðviljinn skýrði frá þvi
fyrir nokkru, að Höskuldur
Skarphéðinsson, skipherra
tæki við skuttogaranum
Baldri, sem átti að senda til
gæslustarfa, en þar sem Bald-
ur reyndist alvarlega bilaður,
átti Höskuldur að halda áfram
gæslustörfum á vitaskipinu
Arvakri þar til viðgerðum á
Baldri væri lokið. Enn hefur
orðið hér breyting á, sú, að
Höskuldur er farinn út með
varðskipið Óðin i veikindafor-
föllum Sigurðar Þ. Árnasonar,
skipherra._____—úþ
Ríkisstjórnin leggur til:
10% útsvarshækkun!
1 gær var lagt fram á alþingi
og tekið til 1. umræðu stjórnar
frumvarp, þar sem kveðið er i
um, að öll útsvör i landinu skul
á næsta ári hækka um 10%, oj
sjúklingum gert að greiða 481
miljónir fyrir lyf og læknisþjón
ustu umfram það, sem núgild
andi lög og reglur gera rát
fyrir.
Með þessu móti er ætlunin að
afla tekna til sjúkratrygging-
anna i stað þess að skera al-
mannatryggingarnar niður um
2 miljarða, eins og stjórnin hafði
áður boðað.
Það eru 1200 miljónir króna,
• Greiðslur sjúklinga fyrir
lyfoglœknisþjónustu hœkki
um nœr 500 miljónir!
sem reiknað er með að 10% al-
menn útsvarshækkun gefi, og til
viðbótar koma svo 480 miljón-
irnar sérstaklega frá sjúkling-
um, vegna hækkunar eigin
greiðslu fyrir lyf og læknisþjón-
ustu.
Þeir Helgi Seljan og Ragnar
Arnalds andmæltu báðir frum-
varpinu harðlega við 1. umræðu
i efri deild. Helgi benti á, að með
þessu frumvarpi væri snúið við
af braut vaxandi samhjálpar,
og Ragnar Arnálds uridirstrik:
aði sérstaklega, að þessar
auknu skattaálögur, sem fælust
i 10% útsvarshækkun, bitnuðu
nær eingöngu á almennu launa-
fólki, en atvinnurekstrinum
væri enn hlift.
Slikt væri fullkomið hneyksli,
ekki sist með hliðsjón af þeim
staðreyndum sem fyrir liggja
um mörg hundruð skattfrjálsra
fyrirtækja með tugi miljarða
veltu.
Sjá 11. síðu
Á áttunda timanum i gærmorgun tók Haukur Már þessa mynd við Leiru-
bakka i Breiðholti. Margur bifreiðareigandinn átti i nokkrum erfiðleikum
með að koma bilnum sinum af stað og færðin var þung fram eftir morgni
vegna mikillar snjókomu um nóttina. Hún vekur vonir um að Hvit jól verði
að þessu sinni á Reykjavikursvæðinu.
Tugmiljóna tjón
a
Suðureyri
Hafís skammt undan landi
Gyesilegt óveður gekk yfir
Vestfirði um hclgina og kom
verst niöur á Suðureyri við Súg-
andafjörð þar sem hundruð
miljóna króna tjón varð á
mannvirkjum.
Fréttaritari Þjóðviljans á
Suðureyri, Gisli Guðmundsson,
sendi i gær fréttir af atburði
þessum ásamt myndum af
skemmdum til Isafjarðar, en
blaðinu hefur enn ekki borist
sending þessi.
Sagði Gisli i simtali viö blaðið
i gær, að óveðrið hefði gengið á i
tveimur hrinum. Sú fyrri var á
laugardag fram undir miðnætti,
en þá breytti vindátt og siðari
hrinan skall á um nóttina og
stóð til sunnudagsmorguns.
Vindur var vest-suð-vestan og
stóð beint inn fjörðinn. Mjög
byljótt var og rigning.
Sem dæmi um tjón það sem
varð,>agði Gisli, að Húseininga-
hús hefði hrunið til grunna, fisk-
hjallur með fiski að verðmæti
5—6 miljónir hefði fokið út i
buskann, rúður brotnuðu i fjölda
húsa og járnplötur fuku af hús-
um og voru eins og fjaðrafok um
allan bæ.
1 seinni hrinunni fuku nokkrir
fiskhjallar af stað og mölbrotn-
uðu. Allar gömlu trébryggjurn-
ar brotnuðu og trillu tók á loft og
eyðilagðist hún þegar hún kom
aftur til jarðar. Gisli sagði, að
vegurinn undir Spilli væri stór-
skemmdur og óakfær. Vatns-
leiðslan til bæjarins er þar ber
og i stórhættu.
Kafari átti að kanna höfnina i
gær, en gat ekki vegna þess hve
mikið grugg var i henni.
Þreifandi snjóbylur var þar
vestra siðdegis i gær, en logn.
Djúpbáturinn Fagrancs til-
kynnti um hafis út af Deild, og
þcgar Suðureyrarbátar voru að
róa til fiskjar i gærmorgun urðu
þeir aö bey.gja af leið þegar þeir
voru komnir 8 rnllur út úr
fjarðarkjaftinum vegna hafiss.
Nánar segir af óveðrinu þegar
pistill Gisla kemst til skila. —úþ
Seðlabankinn
svarar fyrir sig:
Fimm
fyrirtæki
1 könnun
1 greinargerð frá Seðlabanka
tslands um störf bankaeftirlitsins
og afskipti þess af málefnum Al-
þýðubankans kemur fram að at-
huganir beinist einkum að fjár-
hagsstöðu fimm fyrirtækja. Tvö
þessara mála eru i höndum lög-
fræðings Seðlabankans, en hin I
höndum Alþýðubankans i sam-
vinnu við fulltrúa Seðlabankans.
Greinargerð Seðlabankans er
samin sem svar við ásökunum
um að skuldamál Sunnu og Air
Vikings við Alþýðubankann hafi
verið tekin sérstaklega fyrir
vegna annarlegra sjónarmiða.
Seðlabankinn rekur dagsetning-
ar, bréf og ákvarðanir, sem fóru
milli aðila, frá þvi að gerð var
skoðun hjá Alþýðubankanum i
október sl. Þá strax kom i ljós að
skuldir átta aðila við bankann
voru úr hóíi fram miðað við
starfsfé og eiginfjárstöðu bank-
ans. Auki þess skorti stórlega á að
fullnægjandi tryggingar væru
fyrir skuldunum. Sérstaklega var
staða bankans veik gagnvart
stærsta lánþeganum (Sunna Air
Viking) vegna ófullnægjandi
greiðslutrygginga, hárra skulda-
upphæða i formi vanskilatékka og
verulegra yfirdrátta á hlaupa-
reikningum umfram umsamdar
skuldarheimildir. Þá var ákveðið
i samráði við bankaráð Alþýðu-
bankans að afla uppgjörs á fjár-
hagslegri stöðu stærsta lánþeg-
ans. Niðurstöðurnar reyndust svo
alvarlegar að bankaráðið ákvað
að leita til Seðlabankans um láns-
fyrirgreiðslu til þess að tryggja
greiðslustöðuna.
Seðlabankinn tekur fram að á-
kvarðanir um kannanir einstakra
skuldamála hafi eingöngu tekið
mið af skuldarupphæðum og
tryggingarlegri stöðu bankans,
og strax og timi vinnist til verði
önnur skuldamál tekin fyrir.
Seðlabankinn viðurkennir að
eins og nú sé komið málum sé full
þörf á þvi að nefna tölur um
skuldir og annað máli sinu til
stuðnings, en vegna þagnar-
skyldu telur bankinn sig ekki geta
gert það nema samþykki viðkom-
andi aðila liggi fyrir.
Sjá 14. síðu i