Þjóðviljinn - 16.12.1975, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 16. desember 1975.
Greinargerð Seðlabankans vegna afskipta eftirlitsins af viðskiptum Alþýðubankans
Oll útlánastarfsemi
bankans í könnun
Vegna umræðna, sem orðiö
hafa i fjölmiðlum um málefni
Alþýöubankans hf. hefur banka-
stjórn Seðlabankans farið þess á
leit, að Timinn birti eftirfarandi
greinargerð um starfsémi banka-
eftirlitsins og afskipti þess af
málefnum Alþýðubankans.
„Seðlabanki Islands annast um
eftirlit með starfsemi viðskipta-
banka, sparisjóða og annarra
innlánsstofnana á grundvelli
fyrirmæla i lögum bankans. Segir
m.a. i lögunum, að bankaeftir-
litið skuli fylgjast með þvi að
innlánsstofnanir fylgi lögum og
reglum, sem hverju sinni gilda
um starfsemi þeirra og að þvi sé
heimilt að gera athugasemdir, ef
það telji hag eða rekstur innláns-
stofnunar óheilbrigðan. Skulu
slikar athugasemdir tilkynntar
ráðherra þegar i stað.
Grundvallarþátturinn i starfi
bankaeftirlitsins er sá, að starfs-
menn þess fara i innláns-
stofnanirnar með reglubundnum
hætti til könnunar á rekstri þeirra
og efnahag. Er i þvi sambandi
lögð höfuðáhersla á að sannreyna
eiginfjárstöðu stofnananna með
hagsmuni innstæðueigenda fyrir
augum. Mikilvægasti liður þess
starfs er nákvæm könnun á út-
lánaviðskiptunum, þ.á.m.
dreifingu útlána á einstaka
viðskiptaaðila og greiðslutrygg-
ingum, sem settar hafa verið.
Gerðar eru itarlegar skýrslur um
niðurstöðu eftirlits hverju sinni.
Þrjú ár frá
siðustu skoðun.
Alþýðubankinn hf. hóf starf-
semi snemma árs 1971 og yfirtók
rekstur Sparisjóðs alþýðu, sem
starfað hafði frá 1967. Fram-
kvæmdi bankaeftirlitið kannanir
hjá Sparisjóði alþýðu i janúar
1970 og 1971. Hjá Alþýðubankan-
um var siðan framkvæmt eftirlit
i nóvember 1972. Virtist starfsemi
hins nýja banka hafa farið vel af
stað.
1 október s.l. var tekin
ákvörðun um að framkvæma
eftirlit hjá Alþýðubankanum, en .
þá voru samkvæmt framan-
skráðu tæp þrjú ár liðin frá
siðustu skoðun hjá bankanum.
Bent skal á, að bankaeftirlitið fær
mánaðarlega efnahagsyfirlit frá
öllum innlánsstofnunum og ein-
stökum útibúum þeirra og fylgist
reglulega með fjárhag þeirra
með öðrum hætti, m.a. með
lausafjárstöðu þeirra eins og hún
kemur fram i stöðu viðskipta-
reiknings hjá Seðlabankanum.
Hafa slikar upplýsingar að sjálf-
sögðu nokkur áhrif á það, hve oft
og þá hvenær farið er til ná-
kvæmra athugana hjá einstökum
stofnunum , Lausafjárstaða
Alþýðubankans fór mjög versn-
andi um og eftir mitt þetta ár.
Ekki eðlileg
aðgæsla
Skoðunin hjá Alþýðubankanum
að þessu sinni var miðuð við stöðu
útlána og annarra efnahagsliða i
lok október. Fljótlega kom i ljós,
að dreifing útlána bankans á
einstaka lánsaðila var með
öðrum hætti en bankaeftirlitið
taldi samrýmast eðlilegri banka-
legri aðgæsiu, ekki hvað sist með
tilliti til þess að um var að ræöa
banka með fá starfsár að baki og
ráðstöfunarfé og eigið fé i sam-
ræmi við það Var þvi lögð
áhersla á að ná saman yfirliti yfir
greiðslutryggingar stærstu út-
lánanna til þess að leggja mætti
fyrsta mat á raunverulega fjár-
hagsstöðu bankans. Niðurstaða
þessarar frumkönnunar varð á
þenn veg, að ákveðið var að biðja
um fund með bankastjórum
Alþýðubankans þegar i stað. Var
fundurinn haldinn 10. nóvember.
Gerðu bankaeftirlitsmenn þar
grein fyrir sinum sjónarmiðum á
grundvelli þeirra upplýsinga,
sem fyrir lágu um útlán bankans
og óskuðu eftir frekari upplýsing-
um og skýringum frá banka-
stjórninni.
Sú mynd af fjárhagsstöðu
Alþýðubankans, sem við blasti að
loknum fundinum, var að mati
bankaeftirlitsins á þann veg, að
nauðsynlegt væri, að efitrlitið léti
formlega heyra frá sér án tafar.
Var bankastjórn Alþýðubankans
þvi skrifað bréf dags. 13. nóvem-
ber. Afrit af bréfinu var sent til
viðskiptaráðherra á grundvelli
áðurnefndra lagaákvæða og jafn-
framt var afrit bréfsins sent til
formanns bankaráðs Alþýðu-
bankans með skirskotun til hlut-
verks bankaráðsins samkvæmt
lögum, reglugerð og samþykkt-
um bankans.
1 bréfinu segir m.a. almennt
um útlánaframkvæmd bankans,
að það sé „mikið áhyggjuefni frá
sjónarmiði bankaeftirlitsins að
útlánin hafi i vaxandi mæli gengið
til fárra og stórra lánsaðila,
þannig að eðlileg og nauðsynleg
áhættudreifing hafi ekki fengist i
útlánastofni bankans. Enn meira
áhyggjuefni sé þó sú staðreynd,
að stórkostlega hafi vanað á, að
greiðslutryggingar væru teknar
samhliða lánveitingum.”
Skuldir átta úr hófi
t bréfinu er siðan vikið sérstak-
lega að skuldastöðu átta aðila við
bankann. Útlán bankans til
einstakra aðila hafa verið mjög
rædd i fjölmiðlum siðustu
dagana, sérstaklega þó viðskipti
við einn lánsaðila. bótt æskilegt
kunni að vera, að staðfestar
upplýsingar um þessi mál komi
fram opinberlega eins og málum
er nú komið, þykir Seðlabankan-
um að athuguðu máli ekki rétt,
vegna trúnaðarskyldu hans, að
birta tölulegar upplýsingar um
viðskipti einstakra aðila við
Alþýðubankann nema samþykki
þeirra sjálfra liggi fyrir.
A hinn bóginn þykir Seðla-
bankanum rétt, að fram komi, að
beinar skuldir áðurnefndra átta
aðila við Alþýöubankann virtust á
skoðunardegi úr hófi fram miðað
við heildarstarfsfé bankans og
eiginfjárstöðu. Að mati banka-
eftirlitsins vantaði auk þess stór-
lega á það, að fullnægjandi
tryggingar væru fyrir skuldum
sumra þessara aðila. Sérstaklega
var staða bankans veik gagnvart
stærsta lánþeganum vegna mjög
ófullnægjandi greiðslutrygginga,
Beirut 15/12 reuter ntb — Eftir
einhverja hörðustu bardagahrinu
sem oröiöhefur í Libanon að und-
anförnu lögöust vopnaviðskipti aö
mestu leyti niöur i Beirut i dag.
Ilöföu deiluaöilar þá komið sér
saman um 16. vopnahléö á 3 mán-
uöum.
Bardagarnir hafa verið hvað
harðastir i hótelhverfinu i norð-
vesturhluta borgarinnar þar sem
vinstri menn og falangistar hafa
barist um yfirráð yfir hótelinu
Holiday Inn i hér um bil viku.
hárra skuldarupphæða i formi
vanskilatékka og verulegra yfir-
drátta á hlaupareikningum um-
fram umsamdar skuldarheimild-
ir.
Skriflegt svar banka-
stjórnarinnar við þessu bréfi var
lagt fram á fundi 25. nóvember.
Af hálfu Seðlabankans sátu
fundinn fulltrúar bankastjórnar
og bankaeftirlits, en frá
Alþýðubankanum komu banka-
stjórar, formaður bánkaráðs,
tveir endurskoðendur bankans og
lögmaður hans. Þær upplýsingar,
sem fram komu i svarbréfi
bankastjórnarinnar, breyttu á
engan hátt þeim meginniður-
stöðum, sem áður lágu fyrir um
fjárhagsstöðu bankans. Varð
niðurstaða fundarins sú, að afla
yrði þegar i stað uppgjörs á fjár-
hagslegri stöðu stærsta lánþeg-
ans. Var löggiltum endurskoð-
anda, sem annast hafði um árs-
uppgjör og skattframtöl hans
fvrir árið 1974, falið af hálfu
Alþýðubankans, og að sjálfsögðu
með samþykki viðkomandi aðila,
að gera bráðabirgðauppgjör á
fjárhag hans pr. 30. nóvember sl.
Svart uppgjör
Þetta uppgjör var svo lagt fyrir
bankaráð Alþýðubankans og
siðan bankaeftirlit Seðlabankans
mánudaginn 1. desember. Telur
bankaeftirlitið sér ekki heimilt
að skýra frá tölulegum niður-
stöðum uppgjörsins á annan hátt,
en þann að upplýsa, að niður-
stöðurnar og viðbótarupp-
lýsingar, sem aflað var á næstu
dögum voru svo alvarlegs eðlis að
bankaráð Alþýðubankans óskaði
eftir fundi með bankastjórn
Seðlabankans föstudaginn 5.
desember og fór fram á lánsfyrir-
greiðslu i Seðlabankanum til að
tryggja greiðslustöðu bankans.
Varð Seðlabankinn við þessari
beiðni eins og fram kemur i
fréttatilkynningum bankanna 8.
desember, en þá lá einnig fyrir
yfirlýsing frá miðstjórn Alþýðu-
sambands Islands um stuðning
við fyrirgreiðs1ubeiðni
Alþýðubankans, auk yfirlýsingar
um, að miðstjórnin mundi gera
það, sem i hennar valdi stæði, til
stuðnings bankanum, m.a. með
þviaðbeita sér fyrir þvi af alefni,
að 60 millj. kr. samþykkt hluta-
fjáraukning i bankanum kæmi til
framkvæmda eins fljótt og fram-
ast væri unnt.
öll athugaverð
útlán könnuð
öll meðferð bankaeftirlitsins á
framangreindum málum hefur að
sjálfsögðu eingöngu mótast af
þeirri frumskyldu eftirlitsins að
fylgjast með fjárhagsstöðu
Alþýðubankans eins og annarra
innlánsstofnana og beita áhrifum
sinum til að tryggja fjárhag
bankans með hagsmuni inni-
stæðueigenda fyrir augum.
Ákvarðanir um kannanir
einstakra skuldamála hafa
eingöngu tekið mið af skuldar-
upphæðum og tryggingalegri
Falangistum hefur tekist að
halda hótelinu en vinstri menn
gera harða hrið að þvi úr nálæg-
um hótelum. Falangistar sam-
þykktu í dag að herinn tæki Holi-
day Inn á sitt vald.
Um helgina hófust átök að nýju
i hafnarborginni Tripoli fyrir
norðan Beirut. Þar féllu um 30
manns i gær en ekki er vitað hve
margir féllu i dag vegna lélegra
samgangna við borgina. Tals-
menn hersins sögðu þó að ástand-
ið þar væri slæmt og færi versn-
andi.
stöðu bankans og önnur sjónar-
mið hafa þar alls engu ráðið. 1
slikum tilvikum beinast at-
huganir og öryggisaðgerðir eðli-
lega fyrst að þeim skuldamál-
um, þar sem viðkomandi innláns-
stofnun er i mestri hættu, en siðan
eru önnur mál tekin til meðferðar
strax og timi vinnst til.
. Eins og tilkynnt hefur verið
opinberlega, starfar sérstakur
fulltrúi Seðlabankans nú við dag-
legt eftirlit i Alþýðubankanum.
Mun Seðlabankainn ganga eftir
þvi að öll athugaverð útlánamál
og önnur vandamál i starfsemi
bankans verði könnuð til hlitar og
i framhaldi af þvi gripið til við-
eigandi ráðstafana til þess að
vernda hag bankans og tryggja
heilbrigð viðskipti. Beinast at-
huganir nú aðallega að f járhags-
stöðu fimm aðila. Hefur lög-
fræðingur Seðlabankans nú
fengið tvö þessara mála til með-
ferðar, en hin eru i höndum
Alþýðubankans i samvinnu við
fulltrúa Seðlabankans.”
(Millifyrirsagnir eru Þjóðvilj-
ans.)
2. umræða
Framhald af bls. 1
inni. Vist er, að þeir aðilar i Sjálf-
stæðisflokknum og Framsóknar-
flokknum, sem best ná saman um
þá hægri stefnu, sem nú er fylgt,
miða engan veginn við það, að hér
verði einungis um timabundin úr-
ræði að ræða, heldur varanlegar
aðgerðir meðan hægri stjórnin
hefur völdin. Þess vegna er það
brýnasta hagsmunamál launa-
fólks i landinu að völdum núv.
rikisstjórnar verði hnekkt sem
fyrst.”
Viðurkenning
Framhald af 3. siðu.
hvað áhrærir réttarstöðu þeirra
og kjör.
Simstjórar innan landssam-
bandsins eru 94 talsins og verður
þeim sent samkomulagið næstu
daga. Þar kemur m.a. fram, að i
tveim áföngum verða simstjórar
á 2. fl. stöðvum opinberir starfs-
menn með fullum réttindum, svo
sem sumarleyfi, veikindaorlofi og
lifeyrissjóði, sem hingað til hefur
ekki verið, enda hefur réttur
þessara starfsmanna Landssima
Islands nánast enginn verið.
Aðeins 9 stöðvanna eru i húsnæði i
eigu Pósts og sima, en hinar i
einkahúsnæði. Verður húsaleiga
nú greidd i meira samræmi við
raunveruleikann, einnig á 3.
flokks stöðvum, en þeim hefur
aldrei verið greiddur eyrir i húsa-
leigu, allt frá 1906. Frekari kjara-
bætur þeim til handa verða rædd-
ar nánar við samningagerð i vor,
er endurskoðun reglugerðar fer
fram.
1 frétt frá formanni Félags sim-
stöðvarstjóra i 2. og 3. flokks
stöðvum, en það er Guðrún L. As-
geirsdóttir á Mælifelli i Skaga-
firði, segir svo m.a.:
Segja má, að nokkuð hafi áunn-
ist á þessu rúma ári, siðan sim-
stjórarnir stofnuðu samtök sin,
enda undarlegt, hve lengi var
hægt að halda þessum hópi rikis-
starfsmanna utan við lög og rétt.
Asannast þar sem endranær
máttur samstöðunnar. Stjórn
landssambandsins skipa Guðrún
L. Ásgeirsdóttir, Mælifelli, for-
maður, Bjarni Pétursson, Foss-
hóli, gjaldkeri og Kristjana Vil-
hjálmsdóttir, Gerðum, ritari.
Loks skal þess getið, að 10. des.
1974 varð samband simstöðvar-
stjóranna aukaaðili að Félagi isl.
simamanna og hefur notið dyggi-
legrar aðstoðar stjórnar þess sið-
an.
Góðir
\
Framhald af 3. siðu.
Ljubimows.
Leikstjórn Náttbólsins verður i
höndum annars rússa, Victors
Strizkovs, en hann er einkum
þekktur fyrir túlkanir á verkum
Gorkis. Strizkov er væntanlegur
hingað um hátiðarnar og hefjast
æfingar milli jóla og nýárs.
Ýmsir þekktustu leikarar Þjóð-
leikhússins fara með hin sögu-
frægu hlutverk i þessu leikriti,
þeirra á meðal Valtir Gislason, en
hann á 50 ára leikájmæli i vor.
Aðvörun til kaupgreiðenda frá bæjarfógetanum í Kópavogi Kaupgreiðendur, sem taka skatta af starfsmönnum sinum búsettum i Kópa- vogi, eru hér með krafðir um tafarlaus skil innheimtufjárins. Jafnframt eru þeir aðvaraðir um, að málum þeirra, sem ekki hafa skilað innheimtufé, verður visað til sakadóms á næstu dögum. Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Auglýsing Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða fjósameistara nú þegar. Æskilegt er að umsækjendur hafi búfræðimenntun og reynslu i hirðingu nautgripa. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri eða bústjóri i sima 7000 á Hvanneyri. Bænadaskólinn á Hvanneyri.
Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Sigurðar Sigurbjörnssonar yfirtollvarðar Stangarholti 12 fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 17. des kl. 13.30.Þeir sem vildu minnast hins látna láti Hjartavernd njóta þess. Ingibjörg Sigurðardóttir. Börn tengdabörn og barnabörn.
Líbanon
16. vopnahléð