Þjóðviljinn - 06.01.1976, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 06.01.1976, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Þriftjudagur 6. janúar 1976. Tilkynning til launagreiðenda er hafa í þjónustu sinni starfsmenn búsetta í Hafnarfirði og Kjósarsýslu Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103. gr. reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér með krafist, af öllum þeim er greiða laun starfsmönnum búsettum i Hafnarfirði og Kjósar- sýslu, að þeir skili nú þegar skýrslu um nöfn starfsmanna hér i umdæminu, sem taka laun hjá þeim, nafnnúmer, heimilisfang og gjalddaga launa. Jafnframt skal vakin athygli á skyldu kaupgreiðanda til að tilkynna er launþegar hætta að taka laun hjá kaup- greiðanda og þeirri ábyrgð, er kaupgreiðandi fellir á sig ef hann vanrækir skyldur sínar samkvæmt ofansögðu, eða vanrækir að halda eftir af launum upp i þinggjöld sam- kvæmt þvi sem krafist er, en i þeim tilvikum er hægt að innheimta gjöidin hjá kaupgreiðanda, svo sem um eigin skuld væri að ræða. Bæjarfúgetinn i Hafnarfirði Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu, Strandgötu 31, Ilafnarfirði. Félagsfundur Iðja, félag verksmiðjufólks heldur al- mennan félagsfund i Lindarbæ fimmtu- daginn 8. janúar kl. 8.30. Dagskrá: 1. Kjaramálin 2. Heimild til verkfallsboðunar 3. önnur mál Félagar mætið vel og stundvislega, og sýnið skirteini við innganginn. Félagsstjórn. 18. leikvika — leikir 20. des. 1975. Vinningsröð: 111 — 111 — ÍXX — 1X1 1. VINNINGUR: 12 réttir —‘kr. 22.500.00 2653 7462 11241 35543 36627 36737 37418 3037 9713 35325 35813 36673 36883 38273 2. VINNINGUR : 11 réttir — kr. 1.400.00 448 5333 8460 35086 35813 36764 37536 2492 6671 8485 35216 36000 36810 37553 3143 + 6879 8657 35287 36113 36825 37756 3184 6944 + 8711 35373 36136 36828 37790 3194 7302 9789 35374 36237 36907 37825 3328 7310 10125 35449 36279 + 37098 37892 3420 7609 10127 35508 36341 37161 37987 4114 7609 10625 + 35525 36516 + 37178 37991 4215 7720 10702 35656 36565 + 37213 38248 4304 8126 10711 35671 36628 37332 38270 4382 8241 10791 35733 36687 + 37337 38476 4397 8275 11116 35813 36733 37471 38490 5003 8288 11432 35813 36740 37531 38491 5319 8429 35001 + nafnlaus Kærufrestur er til 12. jan. kl. 12 á hádegi. Kærur sjailu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsniönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 18. leikviku verða póstlagðir eftir 13. jan. 1976. Ilandhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heim- ilislang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga. GKTRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK. Rœtt við Arna Hjartarson í miðnefnd herstöðvaandstœðinga Aðalverkefni miðnefndar er að koma af stað starfshópum A ráðstefnu herstöðvaand- stæðinga í Stapa var kosið í miðnefnd, sem vinnur að því að samræma hina ýmsu þætti í starfi her- stöðvaandstæðinga. Þjóð- viljinn hafði fyrir skömmu tal af einum miðnefndar- manna, Árna Hjartarsyni kennara, og spurði hann hvað helst væri að frétta af starfi nefndarinnar til þessa. — Það er kannski ekki hægt að segja að miðnefndin hafi til þessa gert margt, sem borið hafi sýni- legan ávöxt, sagði Arni, — en það hafa að minnsta kosti verið haldnir reglulegir fundir, hálfs- mánaðarlega, alveg frá þvi að ráðstefnunni lauk á Stapa, og aðallega rætt um tilhögun fram- tiðarstarfsins. Jafnframt hefur miðnefndin veriðá höttunum eftir húsnæði til starfsemi sinnar og hefur nú fengið það i félagi við Vietnamnefndina i gamla Hábæ við Skólavörðustig. — 1 hverju er fyrirhugað að starf miðnefndar fólgið i megin- atriðum? Starfshópar — 1 Stapa var ákveðið að aðal- verkefni nefndarinnar ætti að vera að koma af stað starfshóp- um, en vald nefndarinnar sem slikrar er að öðru leyti mjög tak- markað. Við höfum þvi unnið að þvi að ýta starfshópnum af stað, en róðurinn er dálitið þungur, enda er herstöðvamálið ekki sér- staklega i brennidepli núna: at- hygli manna beinist miklu meira að efnahagsmálum. Ég tel samt sem áður að miðnefndin sé mjög mikilvæg, þar eð hún er þá alltaf til taks, ef málið yrði skyndilega ofarlega á baugi. — Eru einhverjir starfshópar komnir i ganginn? — Jú, einn hefur þegar hafið störf og sendi frá sér ályktun i sambandi við landhelgismálið fyrir nokkru. Það er hópur um al- þjóðamál. Annar hópur, sem á að fjalla um herinn og heilbrigðis- mál, er i þann veginn að komast af stað, og fyrirhugað er að þriðji hópurinn fari af stað á Suðurnesj- um og f jalli um áhrif hersins á at- vinnu- og efnahagslif þar um slóðir. Gert er ráð fyrir að sá hóp- ur hefji störf núna eftir áramótin. Stofnun fleiri hópa er i undirbún- ingi. Þjóöhátíöarljóö Böðvars — Hvað er frekar að frétta af starfi nefndarinnar? — Við i nefndinni litum svo á, að við séum ekki beint framhald af samtökum herstöðvaandstæð- inga, sem störfuðu i fyrra og hitt- eðfyrra, á dögum vinstri stjórn- arinnar siöari. Samt sem áður höfum við fengið ýmislegt að arfi frá þeim samtökum, meðal ann- ars gáfu Samtök herstöðvaand- stæðinga út plötu með söngvum Böðvars Guðmundssonar, sem hann flytur sjálfur. Platan hefur titilinn Þjóðhátiðarljóð 1974. Dreifing þeirrar plötu komst aldrei almennilega af stað i fyrra, svo að við tókum að okkur dreif- inguna. Það hefur verið fremur erfitt að fá verslanir hér i höfuð- borgir.ni til að selja plötuna, þar eð þetta litlar plötur eru á undan- haldi á markaðnum. Þetta er þó fimm laga plata, ekki tveggja. Við höfum engu að siður komið plötunni i nokkrar búðir hér, til dæmis Vesturver og Mál og menningu, en annars lagt áherslu á að dreifa henni út um land, þar sem hún fæst nú á fjölmörgum stöðum. A það má benda að plat- an er mjög ódýr, þar eð hún er á sama verði og tveggja laga plata. Landssamtök byggð á starfshópum — Hvenær er gert ráð fyrir að ný samtök herstöðvaandstæðinga verði formlega stofnuð? — Við höfum gert ráð fyrir þvi að samtök yrðu stofnuð upp úr þessum starfshópum eftir ár eða svo. út frá þvi var gengið á Staparáðstefnunni að miðnefndin starfaði i ár, skilaði þá af sér störfum og að störf hennar hefðu þá borið þann árangur að mögu- Þjóðviljanum hafa borist um- sagnir tveggja spænskra blaða um sýningu Þjóðleikhússins á ÍNÚK i október sl. Nuevo Diario segir m.a.: Sýning Reykjavikurleikhússins var athyglisverðasta verkið á leiklistarhátið Alfil-leikhússins. — A sviðinu beita leikararnir fimm öllum úrræðum tjáningar- getu sinnar til að flytja okkur með skáldlegu næmi og óviðjafn- anlegri nærfærni siði og venjur, störf, leiki, ástleitna dansa þessa samfélags sem veitir hverjum einstökum næg tækifæri að tjá sig. Með ljóðum, söngvum, forn- um frásögnum, svipmyndum úr veiðiferðum og trúarlegum at- höfnum kynna þau okkur, þrátt fyrir tungumálaerfiðleikana, glatað sakleysi þessarar Paradis- ar norðurhjarans. — Með sam- spili andstæðnanna, milli ljóð- rænunnar i upphafi verksins og harmrænna sviðsmyndanna i lok- in nær það tilgangi sinum. Það er ekki á færi annarra en mikilla hæfileikamanna i leikarastétt með mikinn boðskap að flytja að fanga svo hugi áhorfenda úr fjar- lægum menningarheimi. Þetta var mikill leiksigur.” legt væri að stofna landssamtök herstöðvaandstæðinga, byggð á þessum starfshópum, sem nefnd- inhefði komið af stað.— Miðnefnd- in hefur sent frá sér eitt frétta- bréf, þar sem segir frá þvi helst, er starfað hefur verið, og við ætl- um að koma þessu fréttabréfi út áfram, reglulega, mánaðarlega eða annan hvern mánuð, og senda það ýmsum mönnum, sem við vitum að hafa áhuga á störfum nefndarinnar. — Hyggst nefndin hafa opna skrifstofu i húsnæðinu i Hábæ? — Jú, það eru uppi hugmyndir um það, að þegar umsvifin fara að verða meiri, verði skrifstofa opin, þótt ekki sé nema fáa daga I viku eða part úr degi. Við höfum gert ráð fyrir að um það gæti orð- ið samstarf við Vietnamnefndina, sem hefur þetta húsnæði með okkur. En ennþá er þetta ekki orðið annað en ráðagerðir, þótt vonandi komist þær i fram- kvæmd. I miðnefnd herstöðvaandstæð- inga eru Andri fsaksson, Armann Ægir Magnússon, Arni Hjartar- son, Bjarni Arason, Gils Guð- mundsson, Hlin Agnarsdóttir, Ragnar Stefánsson, Sigmar Inga- son,' Sigrún Gunnlaugsdóttir, Sig- urður Magnússon, Soffia Sigurð- ardóttir og Svava Jakobsdóttir-. dþ. YA segir m.a.: „...tekst islensku leikurunum fimm með kunnáttusamlegri tján- ingu sinni að yfirstiga þá hindrun sem tungumálið er og halda áhuga leikhúsgesta sýninguna á enda... — Aðdáun vekur hve mjög leikararnir, þrjár konur og tveir karlmenn, leggja sig fram um að koma verkinu til skila og hve vel þeim tekst með hreyfingum, lát- bragði og hljóðhermi að lýsa jafnt fögnuði eskimóa yfir veiddum sel sem hljóðinu I sleða er dráttardýr draga eftirisnum og snjallri með- höndlun léttu bátanna... — Af svipaðri tjáningartækni og með fullkomnu valdi yfir svipbrigð- um, látæði öllu og raddbeitingu sýna hinir áhugasömu Islensku leikarar okkur venjur og siði grænlendinga og dagjegt lif þeirra í svipmyndum... — Þetta er sýning sem vert er að geta sök- um óvenjulegra listrænna gæða þvi bæði var frammistaða leikar- anna hvers og eins mjög góð og eins var samstilling hópsins frá- bær og henni var það að þakka að þessi sviðsetta könnun á þjóðern- isvitund grænlendinga varð lif- andi leikhúsverk.” Spænskt lof um INlJK

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.