Þjóðviljinn - 13.01.1976, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 13. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
SUÐURNESJAMENN
LOKA HERSTÖÐINNI
1 . *.* ** ' i í»
Þetta er hópurinn sem stóð vörð við vegatálmann í Grindavik siðdegis á sunnudag. 1 baksýn sést fjar-
skiptastöðin. Þeir tóku sér stöðu við grjótgarðinn sem rutt var upp á laugardaginn. A myndinni má
meðal annars þekkja eftirtalda;Sævar óskarsson, Skúla óskarsson, óla Bjarna ólafsson, Rúnar Björg-
vinsson, Jón Guðmundsson, Enok Sigurðsson, Þorsteinn Guðmundsson.Ragnar Ragnarsson og Svavar
Sverrisson. Mynd: gsp.
1 varðturninum stóð vaktmaður með kiki og fylgdist hann
vandlega með Þjóðviljamönnunum á sunnudaginn.
Um helgina tóku suðurnesjamenn til
sinna ráða og lokuðu herstöðinni.
Grindvikingar lokuðu veginum að f jar-
skiptastöðinni þar í grennd alla helgina
eða frá þvi um tvöleytið á laugardag og
keflvikingar lokuðu Rockwille - stöðinni
i tvo klukkutima. Fleiri hundruð manns
tóku þátt i þessum aðgerðum, en for-
ustumenn þeirra voru úr röðum sjó-
manna og útvegsmanna. Meginkröfur
fólksins eru raktar á næstu siðum, en
þær beinast fyrst og fremst að NATO og
bandariska herliðinu. Þátttakendur i
aðgerðunum eru úr öllum stjórnmála-
flokkum, en forustumennirnir eru
margir áberandi forvigismenn Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurnesjum, vara-
þingmaður, formaður sjálfstæðisfélags,
fyrrverandi bæjarfulltrúi o.s.frv.
Ilann varð að sætta sig við að fara gangandi i gegnum
varnarmúrinn þessi bandarikjamaður klyfjaður þung-
uin pinklum.
Allar helstu fréttastofur fylgdust með
þessum atburðum, BBC, Reuter og aðr-
ir. Þjóðviljinn fór á vettvang á sunnu-
dag og birtast á þessari og næstu siðum
myndir og frásagnir af atburðunum.