Þjóðviljinn - 13.01.1976, Side 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Þriðjudagur 13. jamíar 1976.
Þróttarar
tóku viö sér
á elleftu
stundu
og undir öruggri handleiðslu Bjarna
Jónssonar söxuðu þeir á forskot
Hauka og jöfnuðu í lokin
Leikur Þróttara og Hauka i 1. deildinni i fyrra-
kvöld var með skemmtilegri viðureignum sem sést
hafa lengi. Það fór enda svo að leik loknum að á-
horfendur risu nær allir sem einn á fætur og klöpp-
uðu liðunum lof i lófa fyrir tilþrifamikla baráttu og
æsispennandi lokaminútur.
Jöfnunarmark Þróttar átti sér
svipmikinn aðdraganda. Þeir
höfðu með mikilli hörku unnið
upp vonlausa stöðu og þegar
þrjátiu sekúndur voru til
leiksloka jafnaði
Bjarni Jónsson 19:19. Haukar
óðu upp og viti menn, Stefán
Jónsson labbaði inn i vitateiginn,
lagði sig inn úr hægra horni og
skoraði 20:19. Þróttur aftur fram,
boltinn látinn ganga og þegar sex
sekúndur voru eftir var flautað
frikast og klukkan stöðvuð. Hafn-
firðingar röðuðu sér i vegg,
spennan var i hámarki. Boltinn
vargefinn úr frikastinu eldsnöggt
út til hægri á Konráð Jónsson sem
sendi hann með þrællúmsku skoti
upp i markhornið nær og jafntefli
var staðreynd.
Sanngjörn úrslit a’tarna, um
það voru flestir sammála. Liðin
komu bæði upp og duttu siðan aft-
ur niður i misgóða kafla en þrátt
fyrir mikla yfirburði Hauka i
leikhléi og byrjun seinni hálfleiks
fannst manni alltaf að ekkert gæti
verið sanngjarnt annað en jafn-
tefli.
Þróttur tók forystu i byrjun
með tveimur mörkum Halldórs
Bragasonar. Haukar náðu ekki að
jafna fyrr en tiu minútur voru
liðnar er staðan varð 7-7 og siðan
allt i einu tólf sjö fyrir Hauka.
Þróttur missti leikinn gjörsam-
lega niður, Elias Jónasson fór á
kostum fyrir hafnfirðinga og úr-
slit leiksins virtust strax i hálfleik
ráðin, en þá var staðan 12-8.
Að minnsta kosti duldist engum
hvernig leiknum lyki þegar tutt-
ugu min. voru eftir og staðan 16-
lOfyrir Hauka. En Þróttur lagaði
þá stöðuna i 17-15 og jafnaði siðan
eins og áður segir á elleftu
stundu.
Trúlega voru það markmenn
liðanna sem réðu úrslitum i þess-
um bráðskemmtilega leik. Mar-
teinn Árnason fann sig ekki i
Þróttaramarkinu i fyrri hálfleik
og i hans stað kom inn Kristján B.
Sigmundsson eftir hié. Drengur-
inn sá varði hreint stórkostlega á
köflum, m.a. tvö vitaköst og fjöl-
mörg linuskot. Haukar skiptu lika
um markmann eftir hlé, settu
Gunnar Einarsson út og leyfðu
Ólafi Torfasyni að spreyta sig.
Honum gekk ekki vel og Gunnar
hefur trúlega komið einum of
seint inn á aftur.
Haukar reyndu með góðum ár-
angri þá varnartaktik að taka þá
Bjarna Jónsson og Friðrik Frið-
riksson báöa úr umferð i fyrri
hálfleik. Fleiri lið hafa reynt það
sama en mistekist, en þarna gekk
dæmiðupp og Þróttur lamaðist. 1
leikhléi fundu Þróttarar hins veg-
ar svar við þessu og réttu þá úr
kútnum svo um munaði.
Bjarni var mikill yfirburða-
maður hjá Þrótti i þessum leik og
hrein unun er að horfa á yfirferð
hans i vörninni. Hann fiskaði ófáa
bolta eftir.hlé, smiðaði þannig
hraðaupphlaup sem gáfu mörk og
annað stigið, áður en yfir lauk.
Hjá Haukum bar að venju mest á
Eliasi, einkum þó i fyrri hálfleik.
MörkHauka: Elias8 (2 viti og 2
viti misnotuð) Sigurgeir 2, Arnór
2, Ingimar 2, Guðmundur Har. 2,
Stefán Jónsson 2 og Ólafur ólafs-
son 2 (1 viti).
Þróttur: Halldór Bragason 7 (2
viti) Konráð 3, Trausti 3, Svein-
laugur 2, Björn 2, Bjarni 2, Frið-
rik 1.
Dómarar voru þeir Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Hannes-
son. Brottvisanir i tvær min
fengu: Elias Jónasson Haukum,
Friðrik Friðriksson Þrótti, Jó-
hann Frimannsson Þrótti og
Svavar Geirsson Haukum.
—gsp.
Guðmundur Haraldsson skorar annað tveggja marka sinna fyrir Hauka. Mynd: gsp.
2. deildarkeppnin
opnast í hálfa gátt
ÍR náði aðeins jafntefli gegn ÍBK í Keflavík
Sláturhúsið, eins og handknatt-
leiksliðin kalla iþróttahúsið i
Njarðvik, varð tR-ingum erfitt
eins og fleiri liðum sem þurfa
þangað að sækja til leikja við
ÍBK. Ástæðan fyrir þessari nafn-
gift á húsinu er sú, að handknatt-
leikslið fá ekki að nota harpix þar
eins og annarsstaðar og þau eru
orðin svo háð þessu stama efni að
þau geta ekki leikið án þess.
nema það komi alvarlega niður á
leik þeirra. En þeir i Njarðvík eru
svo smásmugulegir að þeir leyfa
ekki notkun efnis þessa, og það
hefur kostað mörg liðin stig þar
syðra.
Nú voru það ÍR-ingar, toppliðið
i 2. deild, sem urðu fyrir barðinu á
þessu, þeir náðu aðeins jafntefli
gegn IBK, 16:16, eftir að hafa haft
yfir 9:7 i leikhléi. Aðeins 4 minút-
um fyrir leikslok varstaðan 14:12
IBK i vil en á þessum stutta tima
sem eftir vaF tókst ÍR að tryggja
sér jafnteflið.
Fyrir bragðið má segja að 2.
deildarkeppnin hafi opnast i hálfa
gátt, KA á nú möguleika á að ná
1R að stigum, önnur lið blanda sér
varla i baráttuna.
Valur Reykjavíkurmeist
ari í innanhússknattsp.
Reykjavikurmótið i innanhúss-
knattspyrnu fór fram sl. sunnu-
Ótakmarkaöir yfirburöir
en botnlaus flatneskja!
— þegar FH sigraöi Armann meö átta mörkum
Leikur FH og Armanns I 1.
deild handboltans var litið augna-
yndi. Hafnfirðingar sigruðu með
átta marka mun, 28:20, og náðu
þeir sex marka forystu strax i
byrjun. Leikurinn var alltaf ó-
jafn, engin spenna og þar fyrir ut-
an einhver mesta flatneskja sem
hægt er að bjóða upp á i hand-
knattleiknum. Þvælingurinn og
vitleysan var orðin botnlaus undir
lokin enda virtust allir hættir að
taka leikinn alvarlcga.
Það var Geir Hallsteinsson sem
gaf FH tóninn og skoraöi tvö
fyrstu mörkin. Innan tiðar var
staðan orðin 7—1 og i leikhléi sið-
an 15—9 fyrir FH. Afram hélst
leikurinn siöan i svipuðum hlut-
föllum og lokatölurnar urðu siðan
eins og áður segir 28—20.
En þrátt fyrir 48 mörk i einum
leik sást litið af fallegum tilþrif-
um i sóknarleiknum og um varn-
arlefkinn þarf varla að hafa mörg
orð. Ljósir punktar voru afar fáir,
Geir og Viðar þreytulegir meö FH
og meðalmennskan allsráðandi
hjá báðum liðum. Þó kom Hörður
Harðarson vel frá sinu hlutverki
með ármenningum, var marka-
hæstur og óvenjufriskur.
Mörk FH: Þórarinn 7 (2viti),
Geir 6, Viðar 5, Guðmundur Arni
3, Guðmundur Sveinsson 3, Arni
Guðjónsson 2, Sæmundur
Stefánsson 1 og Kristján Stefáns-
son 1.
Mörk Ármanns: Hörður Harð-
arson 9 (4 viti), Jens Jensson 4,
Hörður Kristinsson 3, Björn Jó-
hannsson 2, Jón Ástvaldsson 1,
Stefán Hafstein 1.
Dómarar voru þeir Óli Ólsen og
Björn Kristjánsson. Brottvisanir i
tvær min. fengu þeir Geir
Hallsteinsson FH, Sæmundur
Stefánsson FH og siðan Sæmund-
ur aftur i tvær minútur skömmu
fyrir leikslok.
—gsp
dag I Laugardalshöll og lauk með
sigri Vals, sem sigraði Fram f úr-
slitum 8:7 i all-sögulegum leik.
Sögulegum, vegna þess að fram-
an af hafði Fram mikla yfirburði,
5:1 I leikhléi og 6:2 snemma I sfð-
ari hálfleik, en Valsmenn tóku lff-
inu með ró og sigu á og sigldu sfð-
an framúr á iokasprettinum.
t 3. sæti varð Vikingur sem
UBK vann
Fylki
óvænt
Mjög óvænt úrslit urðu i leik
Breiðabliks og Fylkis i 2. deild I
handknattleik um helgina,
Breiðablik sigraði 14:9, og eru
þetta fyrstu stigin sem blikarnir
fá I 2. deild I vetur.
Flestir höfðu dæmt Breiðablik
til að falla niður, en eftir þessi úr-
slit er ljóst að allt getur gerst enn
i þeim málum.
sigraði Ármann 11:7.KR varð i 5.
sæti, sigraði Fylki 9:6,og i 7. sæti
varð Þróttur sem sigraði Leikni
9:5.
Keppt var i tveimur riðlum, og
þvi var leikið til úrslita um átta
efstu sætin.
Stemmning
ÍT
I
Skemmunni
— þegar KA
sigraði Þór 23:22
Það gekk ekki neitt litið á á
Akureyrium helgina þegar KA og
Þór leiddu saman hesta sina i 1.
deild karla. Leikurinn var æsi-
spennandi þegar þessi tvö akur-
eyrsku lið börðust, og lokatölur
urðu þær, að KA sigraði 23:22.
Liðið er þar með á grænni grein i
baráttunni fyrir 1. deildar sæti,
hefur aðeins tapað tveimur stig-
um og er nú i efsta sæti deildar-
innar.