Þjóðviljinn - 18.02.1976, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 18. febrúar 1976
DJOÐVHHNN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gcstsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsblaði:
Árni Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skóiavöröust. 19. Sími 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
VANTRAUST Á RÍKISSTJÓRNINA
Allsherjarverkfallið sem nú er skollið á
er til komið vegna stefnu rikisstjórnarinn-
ar i kjara- og efnahagsmálum. í fyrsta
lagi hefur rikisstjórnin rænt kaupi verka-
fólks þannig að nú þurfa forsjármenn
heimilanna að vinna 40 dögum lengur á ári
hverju fyrir sömu nauðsynjum og þeir
keyptu fyrir árstekjur á kaupmætti sið-
asta árs, vinstristjórnarinnar. Verkalýðs-
hreyfingin hefur vegna kjararánsstefnu
núverandi rikisstjórnar orðið að standa i
samningaþrefi með nokkurra mánaða
millibili og uppsögn samninganna nú er til
þess gerð að reyna að ná einhverju af þvi
aftur sem rikisstjórnin hefur stolið af
launamönnum.
Þrátt fyrir kaupránið hefur verkalýðs-
hreyfingin ákveðið að freista þess að
tryggja kaupmátt launamanna með ýms-
um efnahagslegum ráðstöfunum sem ekki
kæmu beint kaupinu við. Þessum tillögum
alþýðusamtakanna hefur rikisstjórnin
hafnað með öllu og raunar beitt sér fyrir
ráðstöfunum sem ganga þvert á stefnu
verkalýðssamtakanna. Þannig hefur
rikisstjórnin sýnt verkalýðssamtökunum
og forustumönnum þeirra örgustu fyrir-
litningu og áhugaleysi. Tók þó steininn úr
þegar Morgunblaðið lýsti þvi yfir fyrir
hönd rikisstjórnarinnar að hún hafi ekki
haft tima til þess að sinna kjaramálunum!
Siðustu dagana hefur staðið yfir viðtæk-
asta allsherjarverkfall sem um getur á ís-
landi. Um 35 þúsund manns hafa lagt
niður atvinnu vegna þess að i landinu er
rikisstjórn sem er fjandsamleg launafólki.
Rikisstjórnin hefur ekki sýnt minnstu við-
leitni til þess að leysa vandann þrátt fyrir
verkfallið; þvert á móti skrifa málgögn
stjórnarinnar dag eftir dag um nauðsyn
þess að koma i veg fyrir kauphækkanir.
Þannig stendur rikisstjórnin á bak við
þvermóðsku atvinnurekenda og dæma-
lausa óbilgirni.
Þessi framkoma rikisstjórnarinnar á
annars vegar rætur að rekja til stefnu
hennar almennt, en hins vegar til þess, að
ráðherrar núverandi rikisstjórnar eru
óhæfir til þess að fást við vandann. Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra hefur ekki
þann pólitiska styrk og ekki þá reisn sem
nauðsynleg er til þess að leiða rikisstjórn.
Annar aðalmaður rikisstjórnarinnar
hefur heldur ekki tima til þess að hugs um
verkfallsmálin vegna þess að hann er of
önnum kafinn við að leysa úr vandamál-
um sem hans nánustu samstarfsmenn i
Framsóknarflokknum hafa skapað með
glæfralegum fjármálaævintýrum.
En þó að rikisstjórn landsins neiti
þannig algerlega að viðurkenna stað-
reyndir allsherjarverkfallsins og neiti öll-
um samningum við launamenn er annað
uppi á teningnum þegar kemur að
samningum við útlendinga; i sambandi
við landhelgismálið hefur afstaða rikis-
stjórnarinnar verið niðurlægjandi fyrir
alla landsmenn. Stjórnarflokkarnir hafa
varpað öllum áhyggjum sinum i hendur
Nató, sem þó aðhefst ekkert til þess að
reka út héðan ofbeldisbáta breska sjó-
hersins. Og i þessum efnum er raunar
einnig komið að málefni sem snertir
verkalýðshreyfinguna, þvi hvað skiptir
hana meira máli en traustur atvinnu-
grundvöllur? Samningamakkið við breta
er hins vegar allt i þá áttina að þrengja og
veikja grundvöll atvinnulifsins til þess að
grafa undan sjálfstæðu atvinnulifi lands-
manna og þar með lifskjörum verkalýðs-
ins. Enda hafa verkalýðssamtökin með
Alþýðusamband islands i broddi fylkingar
beitt sér eindregið gegn þvi að samið verði
við breta um veiðar innan landhelginnar.
Eins og er virðist landið vera stjórn-
laust; rikisstjórnin er óhæf. Hún ræður
ekki við neitt. Slik rikisstjórn ætti auðvit-
að að fara frá. Hún getur ekki leyst neinn
vanda af neinu tagi og þjóðin vantreystir
henni. Það er kominn timi til þess að
stjórnarandstaðan sameinist um það að
bera fram á alþingi tillögu um vantraust á
þessa rikisstjórn og hún ætti sjálf að hafa
manndóm i sér til þess að undirstrika upp-
gjöf sina með þvi að fara frá þannig að
svigrúm skapist til þess að mynda hér á
landi stjórn að minnsta kosti til bráða-
birgða sem nýtur trausts fólksins hvort
sem það lýtur að stjórnmálunum út á við, i
landhelgismálinu eða inn á við i kjara-
málunum. Allsherjarverkfallið staðfestir
vantraust verkalýðssamtakanna og allra
launamanna á stjórnvöldum; afstaða al-
mennings hefur sýnt það vantraust sem
almenningur hefur á afstöðu rikis-
stjórnarinnar i landhelgismálinu. Það er
timi til kominn að alþingi islendinga verði
i raun sú stofnun sem þvi ber að vera:
Tæki og málstofa þess fólks sem vill rikis-
stjórnina frá; meirihluta landsmanna.
—s.
Hannes Jónsson.
Hannes slítur
stjórnmála-
sambandi
Nýkorninn breskur sendi-
herra i Moskvu sendi nýlega
boðsbréf til allra sendiherra
þar i borg og bauð til sarnkværn-
is. Sendiherrarnir rnættu —
nerna islenski sendiherrann,
Hannes Jónsson. Breski sendi-
herrann baö þá urn leyfi til þess
að fá að heirnsækja islenska
sendiráðið i Moskvu. Þvi neitaði
islenski sendiherrann Hannes
Jónsson; hann tæki ekki á rnóti
fulltrúurn breta rneðan bresk
herskip iðkuðu ofbeldisverk inn-
an islensku landhelginnar.
Þessi afstaða Hannesar Jóns-
sonar kornst þegar i stað i há-
rnæli; ekki þarf enda rnikið út af
aö bera i vanahring utanrikis-
þjónustunnar til þess að frétt-
nærnt þyki. Fréttin urn afstöðu
Hannesar var send út á frétta-
stofurn viðsvegar urn heirn, og
þannig barst fréttin til Islands.
Mikill rneginhluti islendinga
gladdist yfir þessari frétt; að
loksins skyldi finnast lifandi
rnaður i islensku utanrikisþjón-
ustunni, rnaður sern léti viðhorf
islendinga rnóta gjörðir sinar
frarnar öllu öðru. Þess vegna
var það að fjöldi rnanna sendi
Hannesi Jónssyni þakkar- og
heillaóskaskeyti i gær og i
fyrrakvöld.
En kerfisþrælarnir og Nató-
rnálgögnin voru döpur i bragði
yfir þessurn viðbrögðurn sendi-
herrans. Morgunblaðið felur
fréttina i eindálk á innsiðu i gær
og ráðuneytisstjórinn i utan-
rikisráðuneytinu sagði rneð
þótta og þykkju að Hannes
Jónsson hefði ekkert sarnráð
haft við utanrikisráðuneytið urn
rnálið. Fullvist er raunar að
utanrikisráðuneytið hefði bann-
að Hannesi Jónssyni að haga
gjörðurn sinurn eins og raun
varð á, en öll vinnubrögð þess
hafa að undanförnu einkennst af
slappleika og klaufaskap. Er
fullvist að viðbrögð Hannesar
Jónssonar i Moskvu hafa gert
rneira gagn rnálstað okkar i
landhelgisrnálinu en sarnanlögð
reisa Péturs Thorsteinssonar til
allra rikja Nató i Evrópu.
Vonandi verða viðbrögð
Hannesar Jónssonar til þess að
fleiri rnenn vakni til lifsins i
utanrikisþjónustunni. Þvi
rnyndi öll þjóðin fagna innilega.
Brutust rússar
til valda i Iðju?
Einurn degi áður en hin al-
rnennu verkföll, sern nú standa
yfir, hófust, gerðist sá atburður
i einu stærsta verkalýðsfélaginu
i Reykjavik, að við stjórnarkjör
var fráfarandi forrnaður félags-
Guöjón Sv. Sigurðsson
ins kolfelldur i allsherjarat-
kvæðagreiðslu, en slikt hefur
ekki átt sér stað i verkalýðs-
hreyfingunni i Reykjavik urn
býsna langt árabil.
Það verkalýðsfélag, sern hér
urn ræðir er Iðja, félag verk-
srniðjufólks.
Listi fráfarandi forrnanns B-
listinn hlaut aðeins 356 atkvæði,
en A-listinn, sern bar sigur úr
býturn hlaut hins vegar 594 at-
kvæði.
f Morgunblaðinu sl. laugar-
dag, daginn sern kosningarnar i
Iðju hófust, birtist býsna at-
hyglisvert bréf urn þetta stjórn-
arkjör frá Guðjóni Sv. Sigurðs-
syni, sern fyrir fáurn árurn var
forrnaður i Iðju og talinn ein
helsta „stjarna” Sjálfstæðis-
flokksins i verkalýðshreyfing-
unni.
Guðjón reynir þar af öllurn
rnætti að leggja lið félaga sin-
urn, sern Iðjufólk vildi ekki
lengur hafa að forrnanni og beit-
ir garnalkunnurn ráðurn til að
hræða fólk frá fylgi við A-list-
ann, sigurvegara kosninganna.
Guðjón Sigurðsson segir
rn.a.: ,
„Þegar ég siðan reyni að
skoða þetta niður i kjölinn, sern
þarna er að gerast, þá er ekki
nokkur vafi á þvi að pólitískur
austanvindurleiki urn vanga A-
lista rnanna, og á þeirn lista eru
bæði formaöur M.Í.R. og vara-
form. M.Í.R.!!... Ég rnótrnæli
þvi að farið sé rneð Iðju i póli-
tiska herleiöingu og hvet alla
Iðjufélaga, unga og aldna til að
styðja lista stjórnar- og trúnað-
arrnannaráðs B-listann... Iðja á
að vera það vigi frelsis og urn-
burðarlyndis i verkalýðsrnál-
urn, sern allir lita til rneð virð-
ingu. Það er þvi nauðsynlegt að
allir lýðræðissinnar, hvar i
flokki, sern þeir standa, styðji
lista stjórnar og trúnaðar-
rnannaráðs félagsins af alefli.”
Þannig hljóðaði sern sagt bar-
áttuhvöt þessa sendirnanns
Sjálfstæðisflokksins i verka-
lýðshreyfingunni, en hún korn
reyndar fyrir litið að þessu
sinni.
En rneðal annarra orða,
skyldu þeir vera rnargir lesend-
ur Morgunblaðsins, sern trúa
þvi, að nú hafi þeir austrænu
rússar loks hrifsað til sin völdin
i félagi verksrniðjufólks i
Reykjavik?!!
Ráðherrarnir
auglýstir
Morgunblaðið hefur tekið upp
þá nýbreytni að auglýsa ráð-
herra núverandi rikisstjórnar.
Fyrsta viðfangsefnið i þessari
athyglisverðu auglýsingaher-
ferð er Matthias Bjarnason
sjávarútvegsráðherra. Má
segja, að það sé mjög við hæfi
að byrja á honum, þó að land-
helgin hafi nýlega verið færð út
i200sjómilurog islendingar eigi
i striði við breta hefur litið orðið
vart við þennan æðsta yfirmann
sjávarútvegsmála.
Undirritaður telur liklegt að
næsti maður i auglýsingaher-
ferð Morgunblaðsins verði Geir
Hallgrimsson, en sá er forsætis-
ráðherra landsins að nafninu til.
Hann hefur haft hljótt um sig að
undanförnu. Einkum hefur þögn
hans i landhelgismálinu vakið
mikla athygli; varð hún raunar
heimsfræg eins og menn muna
þegar ráöherrann sýndi þá
athyglisverðu stillingu að segja
ekki eitt einasta orð um innrás
breta i islensku landhelgina
fyrir nærri hálfum mánuði. Þá
þykir mönnum ekki úr vegi að
auglýsa Geir með hliðstæðum
hætti og gert var með Matthias
vegna kjaradeilunnar, en þrátt
fyrir allsherjarverkfallið hefur
forsætisráðherra landsins ekk-
ert haft til málanna að leggja.
Hann vill ekki rasa um ráð
fram, hann sýnir átillingu. Ekki
væri siður fróðlegt að sjá aug-
lýsingu Morgunblaðsins um
Gunnar Thoroddsen félags-
málaráöherra og þjóðkunnan
drengskap hans, sem Þórarinn
skrifaöi leiðarann um forðum.
Þá mætti gjarnan birta aug-
lýsingar um fjármálaráð-
herrann, Matthias A.
Mathiesen, sem er svo talna-
glöggur að hallinn á rikis-
búskapnum áttfaldast á sex
mánuðum.
Undirritaður telur þó, að
Morgunblaðið þurfi ekki að
auglýsa alla ráðherrana með
þeim hætti sem getið er hér á
undan. Til dæmis vita allir hver
er dómsmálaráðherra landsins,
einkum þó vegna þess sem hann
gerir ekki.
mmm
HRhkwÁwW
■ I Allt Iff
Wm r. •-:■. ■
MUNh