Þjóðviljinn - 18.02.1976, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 18. febrúar 1976
Ármenningar endanlega
fallnir niður í 2. deildina
„Algjört aðstööuleysi til æfinga var kjaftshögg á okkur strax í upphafi,” segir Pétur þjálfari
Meö tapi fyrir Vals-
mönnum í Laugardalshöll
á mánudagskvöld eru Ár-
menningar endanlega
fallnir niður í 2. deild.
Lokatölur leiksins urðu
22:16 fyrir Val, sem hafði
allan leikinn forystu, en þó
aldrei afgerandi fyrr en í
seinni hálfleik.
Lið Ármanns brotnaði þá
gjörsamlega, enn einu
sinni virtist úthaldið bresta
og leikur liðsins datt niður
— Leikmennirnir hafa ekki
nærri þvi fullt úthald, sagði einn
ármenninganna eftir leikinn. —
Trúlega er ekki nokkur maður i
liðinu sem hefur helminginn af
þvi þreki, sem nauðsynlegt er
góðum handboltamönnum. Það
er við okkur sjálfa að sakast, —
það er a.m.k. vist að Pétur
Bjarnason þjálfari er eini maður-
inn sem hefur staðið sig eins og
hetja i vetur. Hann reyndi allt
sem hægt var og fallið verður sist
af öllu skrifað á hans reikning.
Pétur þjálfari sagði að hann
kenndi æfingaaðstöðunni um fall-
ið framar öðru. Strax i haust
hefðu þeir orðið að notast við tvo
stutta tima í hverri viku, annan á
r /•V
staðan
Staðan í
I. deild
Staðan í 1. deiid áð loknum
tveimur leikjum á mánudags-
kvöld:
Valur-Armann 22:16
Fram-Vikingur 29:20
FH 13 9 0 4 289:251 18
Valur 13 8 1 4 258:228 17
Fram 13 7 2 4 233:221 16
Víkingur 13 7 0 6 269:272 14
Haukar 13 5 2 6 242:238 12
Grótta 13 5 0 7 237:256 10
Þróttur 13 4 2 7 246:262 10
Armann 13 3 1 9 203:272 7
Markahæstu menn:
Friðrik Friðrikss. Þrótti 83/18
Pálmi Pálmason Fram 78/21
Viðar Simonarson FH 75/27
Páll Björgvinsson Vik 73/27
Hörður Sigmarsson Haukum65/21
Geir Hallsteinsson FH 63/5
fimmtudagskvöldum i Laugar-
dalshöll og hinn á föstudags-
kvöldum i Alftamýrarskóla. —
Auðvitað er þetta ekki nærri þvi
nóg af æfingum, tvö samliggjandi
kvöld i viku eru nákvæmlega ekki
neitt til þess að byggja upp 1.
deildar handboltalið.
Þetta kom til af þvi að við
slepptum húsnæðinu i Vogaskóla
og fengum i staðinn loforð um að-
stöðu i nýja húsinu við Haga-
skóla. Það hins vegar komst ekki
i notkun fyrr en núna skömmu
fyrir áramót, og þá var allt um
seinan. Við fengum enda ekki þá
aðstöðu þar sem upphaflega var
talað um.
— Nei, ég átti i upphafi keppnis-
timabilsins alls ekki von á þvi að
liðið félli niður. Það hefur á að
skipa ungum og friskum strák-
um, en með svona aðstöðu var
ekki við miklu að búast.
Fimmtudagstiminn i höllinni
nýttist lika illa, það var oft veriö
að keppa og þá var okkur úthýst,
— jafnvel allt að þvi annað hvert
fimmtudagskvöld.
Sennilega hefur það lika spilað
inni núna að menn voru nokkuð
drjúgir með sig eftir árangurinn i
fyrra. Töldu sig ekki þurfa að
hafa sérlega mikið fyrir þessu i
vetur, en það var mikill mis-
skilningur. Samfara svo þessari
æfingatiðni i vetur myndaðist
óhjákvæmilega áhugaleysi; menn
voru eiliflega svekktir út af
þessu, en enginn fékk við neitt
ráðið, sagði Pétur.
Mörk Vals i leiknum gegn
Ármanni: Jón Karlsson 8 (2 viti),
Guðjón Magnússon 5 (2 viti), Þor-
björn Guðmundsson 2 (2 víti),
Bjarni Guðmundsson 2, Gunnar 2,
Jóhannes 1, Agúst 1, og Jón Pétur
1 (viti).
Mörk Ármanns: Hörður
Haröarson 5, Hörður Kristinsson
5 (3 viti), Björn Jóhannsson 3,
Jens 2 og Friðrik Jóhannsson 1.
Dómarar voru þeir Öli Ólsen og
Kjartan Steinbeck. Brottvisanir
af leikvelli: Stefán Hafstein A 2
min, Ragnar Gunnarsson A 2
min, Jóhannes Val 2 min, Gisli
Blöndal Val 2. Jón Pétur Val og
Hörður Harðarson A misnotuðu
vitaskot i fyrri hálfleik og Hörður
siðan aftur i seinni hálfleik. Hann
var þó besti maður liðsins,
skoraði fimm mörk með
skemmtilegum langskotum og
var ógnandi i sókninni. Hjá Vals-
mönnum bar Ólafur Benediktsson
af, hann varði af einstakri
grimmd allan leikinn og bætti
þannig upp lélegan varnarleik
Vals. —gsp
Valur-Víkingur
og Árm.-Haukar
í l.deild í kvöld
t kvöld fara fram i Laugar-
dalshöll tveir leikir í siðustu
umferð 1. deildarkeppninnar.
Eigast þá við klukkan 20.15 lið
Armanns og Hauka og strax á
eftir lið Vals og Vikings.
Fyrri leikurinn skiptir engu
máli fyrir Iiðin sem þar keppa.
Armann er fallið og Haukar
verða um miðja deild. Seinni
leikurinn getur hins vegar
ráðið miklu. Vinni Vikingur á
Fram möguleika á sigri i
deildinni með þvi að vinna FH
i siðasta leik mótsins og næla
sér þar með I aukaúrsiitaleik.
Vinni Valur hins vegar og FH
tapar fyrir Fram er titillinn i
höndum Valsmanna, en auka-
úrslitaleikur ef FH og Fram
gera jafntefli.
Mótið er því ekki búið enn,
leikirnir i siöustu umfcrð
skera úr um cndanlega röðun
efstu liðanna á verðlaunasæt-
in. — gsp
Víkingar sem lömb
í höndum Framara
sem fyrir vikið eiga enn möguleika
á íslandsmeistaratitlinum, ef allt gengur þeim í haginn
Enn eiga framarar von um að
ná islandsmeistaratitilinum i 1.
deildinni. Þeir skelltu vikingum á
mánudagskvöld með niu marka
mun, skoruðu tuttuguogniu mörk
gegn tuttugu. i leikhléi var staðan
14-11 fyrir Fram, og á timabili
komst munurinn upp i tiu mörk i
seinni hálfleik.
Mestu munaði Um markvörsl-
una í þessum leik. Hjá frömurum
varði Guðjón Erlendsson af stakri
prýði allan timann á meðan allt
lak inn hjá Rósmundi i marki
Vikings. Af öðrum ieikmönnum
Fram er helst að telja þá Hannes
Leifsson og Pálma Pálmason,
markahæstu menn liðsins, sen
hjá Víkingi léku allir undir getu
aö þvi er best varð séð.
Mörk Fram: Hannes 9, Pálmi
7, Sigurbergur 4, Arni Sverrisson
3, Magnús 2, Gústaf 1, Pétur Jó-
hannesson 1, Arnar 1 og Birgir 1.
Mörk Vikings: Páil Björgvins-
son 5 (4 viti), Stefán Halldórsson 4
(1 viti), Viggó 3, Jón Sig. 2,
Erlendur 2, Þorbergur 2, Sigfús 1
og Skarphéðinn 1.
Dómarar voru: Kristján örn
og Gunnar Kjartansson og var
leikurinn ekki auðdæmdur. Brott-
visanir af leikvelli fengu: Þor-
bergur Vik, 2 min, Arnar Fram 2
min., Erlendur Vik., 2 min.
Hannes Fram 2 min, Pétur Jóh.
Fram 2 min. Vitaskot misnotuðu
þeirStefán Halldórsson og Pálmi
Pálmason i fyrri hálfleik og
Gústaf i þeim siðari.
— gsp
Létt hjá Val
— er þeir sigruðu
ungt og sprækt
lið grindvíkinga
Valsmenn voru ekki I neinum
vandræðum með lið Grinda-
vikur i bikarkeppninni i körfu á
mánudag. Þeir sigruðu með 86
stigum gegn 52, eftir að hafa'
verið yfir 46-34 i hálfleik.
Valsmenn léku þennan leik án
Þóris Magnússonar en þaö kom
ekki að sök þvi Torfi Magnússon
og Rikharður Hrafnkelsson
voru i ham báðir tveir. Ólafur
Jóhannsson átti góðan leik með
Grindavikurliðinu, svo og
Kristinn Jóhannsson sem var
mjög góður, með skemmtilega
boltameðferð og útsjónarsam-
ur.
Stigahæstir hjá Val: Rikharð-
ur 35 og Torfi 17.
Hjá Grindavik: Ólafur Jóh. 19
og Kristinn Jóh. 10. G.jóh.