Þjóðviljinn - 08.04.1976, Qupperneq 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. april 1976.
Skrifið
eða
hringið.
Sími: 17500
Hér eru fjórir foringjar „verndara” okkar nýbúnir að fá orður fyrir „vaskiega framgöngu” I Vest-
mannaeyjagosinu. Hvenær ætli þeir verði orðaðir fyrir vernd slna gegn yfirgangi breta í islenskri land-
helgi? 17. júní?
þessi ósköp dundu yfir þá?
Rússar bara að koma. Mikil
blessun að eiga skjól i vændum.
Flestirótrylltir menn vissu þá
og hafa vitað síðan, að allur
þessi málatilbúnaður var hinn
ómerkilegasti. Mikið skal þó
leggja á sig vegna komma-
hræðslunnar. Það er hægt að
trúa hvaða lygi sem er, láta
draga sig nærri þvi hvert sem er
og samþykkja nærri hvað sem
er. Síðan höfum við dinglað i
bandalagi þessu, sem hefur
reynst eitthvert voðalegasta
bófafélag á jörðunni. Ætli göml-
um ungmennafélögum, sem
sátu á þingi ’49, hafi aldrei verið
um og ó siðan þeir ráðstöfuðu
börnum sinum á þennan hátt.
Þú manst eftir sögunni um
kirkjusmiðinn á Reyni. Bóndinn
gerðisamningviðókunnan smið
oghét syni sinum að launum eða
þvi að geta nefnt rétt nafn
smiðsins áður en verki lyki.
Hann fór lika einförum i vand-
ræðum sinum, manngreyið.
Hann vissi ekkert við hvern var
að eiga. Það var þó söngur úr
holti, sem leysti málum að þvi
sinni. Þessi saga sýnir okkur,
hvað nauðsynlegt er að vita hin
réttu nöfn hlutanna og nota þau,
en ekki önnur. Ég hef litla þekk-
ingu á tungum annarra þjóða en
grunar þó, að fáar þjóðir eigi
tungumál, sem sé jafn rökrétt i
mörgum atriðum og islenskan
er. Þess vegna skýrir það
margt, þegar hlutirnir eru kall-
aðir sinum réttu nöfnum. Hafi
aumihgja mennirnir sem leiddu
okkur i Nató forðum, átt erfiðar
einverustundir fyrst á eftir
(sem ég vona), þá hefur það
rjátlasttöluvertaf þeim áður en
langt leið. Næsta atlaga sýndi
það. Þá gekk bara vel að ljúga i
þá. Allir fyrri svardagar gleypt-
ir og þeir tóku við hernum og
virtust næstum fegnir. Stóri
flugvöllurinn var byggður og
endurbættur og margir komust i
feitt.
„Tveir flugvellir
hættuminni en
einn”
En svo kvisaðist að framverð-
ir frelsisins þyrftu kannski land
undir annan flugvöll annars
gæti orðið erfitt að varðveita
nægilega mikið frelsi. Nú voru
góð ráð dýr, sumir ættjarðar-
vinir fóru að kaupa jarðir, þar
sem slétt var undir, svo að hægt
væri nú að útvega land undir
annan flugvöll með viðunandi
kjörum. Þetta var tvimælalaus
ættjarðarást. Það þykist ég lika
muna, að hingað kæmi norskur
hershöfðingi, sem héti Bjarni
öen. Eitthvað var það i sam-
bandi við flugvöllinn væntan-
lega. Ég hef haft það til marks
um erindi hans, að á framboðs-
fundi fyrir norðan, þegar Jónas
Arna var að ræða þetta mál við
Karl Kristjánsson, hafi Karl
sagt: „öen taldi, að tveir hern-
aðarflugvellir byðu minni hættu
heim en einn.” Ég hef siðan
haldið, að ég myndi þetta orð-
rétt.
Þarna var áreiðanlega stutt i
það, að ráðist yrði i fram-
kvæmdir. Hvað varð til þess að
breyta málunum veitégekki, en
tel vist, að ekki hafi það verið
fyrir islenskan tiiverknað. Föð-
urlandsást jarðarkaupmanna
notaðist ekki að þvi sinni. Siðan
þetta gerðist, er mikið vatn
runnið til sjávar og á okkur hef-
ur dunið dögum oftar sibyljan
sama um þýðingar lands okkar
fyrir varnir frelsisins og óskap-
leg hætta hefur stundum verið á
að rússar tækju okkur i karp-
húsið.
Heræfingar rússa á
landgrunninu
Éghef Moggann fyrir þvi, að
þeir hafi jafnvel stundað flota-
æfingar á landgrunni íslands.
Það fer nú um mann af þvi sem
minna er. Stundum eru þó fyrir-
sagnir i Mogga ekki verulega
nákvæmar. Þegar Moggi sló
upp rosafyrirsögn um heræfing-
arnar á landgrunninu okkar,
þykist ég muna, að fréttamönn-
um væri boðið i flugferð með
könum að skoða herlegheitin.
Þeir flugu i suður, flugu lengi,
og þegar komið var nær þvi suð-
ur á móts við Lundúnaborg,
birtist flotinn voðafegi. Þá þótti
mér landgrunn vort með allra
stærsta móti. Ég er ekkert kátur
yfir heræfingum neinskonar
nær eða fjær, en svona fiflalæti
eru þó enn siður fagnaðarefni.
Það er vegna þess að hér er ver-
ið að forðast að kalla hlutina
réttum nöfnum svo frekar sé
hægt að trylla frá fólki vitið.
Enda kom árangurinn i ljós,
þegar undirskriftasöfnunin var
framkvæmd um árið, að marg-
ur sem lengst af hafði talið sig
trúa á „Krist minn Mariusson”,
trúði nú á „trunt, trunt og tröllin
i fjöllunum”, og skrifaði bara
undir. Sá skilningur er orðinn
rikur, að án hersetu verði ekki
lifað i landinu. Þetta gildir um
allt of marga og er árangur þess
að trylla frá fólki vitið og kalla
engan hlut réttu nafni, þegar á
þessi mál er minnst. Þess vegna
er lika óhætt að sverja Nató
hollustueið við hvert ilivirki
þeirra i landhelgismálinu.
Fréttaflutningur og
þjóðarstolt
ÞU manst eflaust vel árin,
sem nýlendurnar voru að brjót-
ast undan kúgurum sinum. Þá
vorum við fóðraðir heldur bæri-
lega á fréttum af þessum voða-
legu mönnum, sem allt vildu
heldur drepa og eyðileggja en
þiggja föðurlega umsjá hinna
menntuðu þjóða, sem auk þess
voru i Nató. Þarna var margur
Jón Sigurðsson úthrópaður á
hroðalegan hátt. Borgarablöðin
islensku og Rikisútvarpið sungu
' þennan ljóta og villandi söng
næstum i einum kór. Þetta var
talið hæfilegt fóður handa is-
lendingum og upp úr þessu
moldviðri stóð Þjóðviljinn
lengst af einn blaða. Heimildar-
menn voru nú ekki af lakara
taginu, nefnilega sama fólkið og
hróparnú út yfir heiminn fréttir
af þvi, hvernig Höskuldur og fé-
iagar eru sifellt að reyna að
sigla niöur herskip Betu drottn-
ingar. Er ekki mál að rumska
og hætta að láta ljúga i sig. Ég
hef rætt eingöngu um dökku
hliðarnar og nóg er enn, sem
sýður undir niðri. Þessu verður
þó að linna i bili og ég ætla að
segja þér sögu
Ég var staddur fyrir tæpum
tveimur árum i góðum og glöð-
um hópi islendinga. Við vorum á
ferð i Karpatafjöllum. Þar er
náttúrufegurð alveg sérstök.
Sólin var að ganga tii viðar og
skógurinn glóði. Við vorum
bergnumin. Þá kallar farar-
stjórinn á ungan dreng til sin og
fer að ræða við hann. „Finnst
þér þetta ekki fallegt?” „Jú.”
„Hefurðu nokkurn tima séð
nokkuð svona fallegt?” „Já,
bara heima,” svaraði drengur-
inn. Flóknara var það nú ekki,
Oddbergur.
Vertu svo blessaður
ogskrifaöu fljótt.
Sigurður Pálsson.
UMSJÓN: ERL^GUR SIGURÐARSON
1 'uskukarlasamþykkt
1 Þjóðviljanum 6. april 1976,
bls. 14, birtist án athugasemda
ritstjórnar mjög athyglisverð
samþykkt, sem gerð var á aðal-
fundi Lögmannafélags íslands
26. mars s.l., þar sem fordæmt
er ofbeldi geg- lögmönnum og
dómurum VÍÐA UM HEIM (!)
(Af hverju ekki Guðs um
geim?). öll er -amþykktin hin
átakanlegasta.
1. Hvers vegna eru ekki talin
upp þau lönd, þar sem nefnt
ofbeldi á sér stað?
2. Hverja vill Lögmannafélag
Isiands sneiða hjá að móðga,
eða var yfirleitt ætlunin að
móðga nokkurn?
3. Er hugsanlegt, að ein
ástæðan til þess , að rikis-
stjórnir „viða um heim”
þora að beita lögmenn og
dómara ofbeldi og jafnvel
láta þá hverfa sporlaust, sé
sú, að lögmannafélög „viða
um heim” lúti forystu ámóta
tuskukarla og þeirra, sem
stóðu að þessari ámatlegu
samþykkt?
Reykjavik, 6. apri! 1976
Siguröur Baldursson.
Bæjarpósturinn væntir þess
að Lögmannafélagið svari
spurningum Sigurðar. Svarið
mun verða birt hér á siðunni um
leið og það berst.
Bréf til
Oddbergs
jrá
Sigurði
Pálssyni
Oddbergur minn góður!
Það er satt að ég hef af þvi
nokkra raun hvað fundum okkar
hefur fækkað seinni ár. Ég ætla
að reyna að brúa bilið og vona
að þú svarir mér á sama vett-
vangi áður en langt lióur. Margt
sækir á hugann og eru það eink-
um þær hliðar þjóðmálanna,
sem mér þykja uggvænlegast-
ar, sem ég ætla að nefna i byrj-
un.
Nákvæmrar rann-
sóknar er þörf
Það sem kemur mér af stað
öðru framar er, að i dag 30.
mars eru timamót, sem ég tel
að enginn islendingur hafi á-
stæðu til að minnast með stolti.
Þú veist hvað ég er að fara. Það
er inngangan i Atlantshafs-
bandalagið. Enda sé ég ekki að
nokkur sé að minnast afmælis-
ins i dag með ánægju. Eru menn
þó sjaldan að spara sjálfshólið
— ef annað er vogandi. Ég var
bara barn ennþá norður i landi,
þegar mikill meirihluti alþing-
ismanna lét leiða sig eins og bú-
fé inn i Nató. En það voru ekki
bara þingmenn, sem leiddir
voru. Þeir leiddu þjóðina inn i
þessi þokkasamtök og svo var
haldið upp á allt saman með þvi
að beygja töluvert stóran hóp af
fólki, sem kallað hafði verið á
Austúrvöll. Flestir voru svo
trakteraðir með táragasi, sumir
beint i augun. Þetta var alveg
bráðnauðsynlegt til þess að
menn skildu hlutina i réttu sam-
hengi, enda hafði meðhöndlun
þessara náðarmeðala verið æfö
i hæfiiegan tima. Þegar svona
atburðir gerast er þörf að draga
af þeim rétta lærdóma. Þess
vegna verður að rannsaka allt
sem gerðist þennan dag og þá
næstu á undan og eftir. Þetta
þarf að gera áður en hlutirnir
fyrnast um of. Ýtrustu ná-
kvæmni og óhlutdrægni þarf að
viðhafa i svona rannsókn. Ég
nefni þetta vegna þess að mér
finnst óþolandi annað en að
sögubækur skýri rétt og ýtar-
lega frá þessu öllu. Ég hef eina
sögukennslubók undir höndum
sem heitir „Frá einveldi til lýð-
veldis”. Þar er tekið sannköll-
uðum vettlingatökum á þessum
atburðum ogaðallega er þögnin
notuð tii að villa fyrir lesendum.
Kirkjusmiðurinn
á Ileyni
Mér þykir illt að una þessu og
finnst alveg sjálfsagt mál, að is-
lendingar geti i nútið og framtið
fengið réttar upplýsingar um þá
miklu niðurlægingu, sem kjörn-
ir fulltrúar þjóðarinnar voru
lagstir i á útmánuðum 1949. Þó
að fulltrúar sósialista reyndu
eins og þeir gátu að spoma við
fótum þá eins og endranær, þeg-
ar niða hefur átt rétt af islend-
ingum, dugði það hvergi til.
Hvað skyldu hin herleiddu þing-
mannagrey hafa hugsað, þegar
t 27 ár höfum viö dinglaö I félagsskap sem er eitthvert voöalcgasta
bófafélag á jöröinni.