Þjóðviljinn - 23.05.1976, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. mal 1976
Jack Nicholsons I hlutverki Mc Murphy
Hann haföi lent I slagsmálum, en er heilbrigður þegar hann kemur
Gaukshreiðrið
McMurphy er settur handjárn-
aður inn á geöveikrahæli eftir að
hafa lent i slagsmálum rétt einu
sinni. Ekkert bendir til þess, að
geðheilsa hans sé i ólagi. Vanda-
mál hans eru hins vegar þau, að
hann er latur til vinnu, agalaus og
lætur hendur skipta þegar honum
mislikar.
Hælið hefur frjálslegt og lýö-
ræöislegt yfirbragð enda hagar
McMurphy sér óþvingað I sam-
ræmi við það. Þegar hann fær
vitneskju um, að forstöðukonan á
hælinu hefur vald til þess aö halda
honum eins lengi og henni sýnist,
áttar hann sig á þvf, aö hann er
ekki frjáls maður. 1 hvert skipti
sem hann sýnir mótþróa gegn
frelsisskerðandi reglum hælisins
(sem auðvitaö hafa sina rétt-
lætingu i nafni mannúöar) lengir
hann dvöl sina þar.
Þótt sjúklingarnir eigi flestir aö
heita sjálfvíljugir á hælinu greiöa
þeir atkvæöi um sin jnál eftir
vilja forstööukonunnar, til þess
aö sýna henni hollustu.
McMurphy sem aörir er alger-
lega varnarlaus gagnvart hinni
mannúðarfullu lækningu, sem
virðist miöa að þvf að forða sjúk-
lingunum frá erfiöleikum jafnt
sem ánægju daglegs lifs, eöa
m.ö.o. hindra aö sjúkdóms-
einkennin komi i ljós. Meðferöin
dregur úr þeim allan lifskraft og
frumkvæöi og þeir láta skilyröis-
laust að stjórn foringjans — for-
stöðukonunnar, ungfrú Ratched.
Þetta sjálfviljuga ófrelsi og'
gervilýðræði á hælinu á sér hliö-
stæðu i þjóöfélaginu utan hælisins
og áhorfandinn er minntur á þaö
öðruhvoru, t.d. þegar McMurphy
með gáska slnum og gantaskap
kemur lifi i sjúklingana og gefur
þeim kjark nokkra stund, þótt
þær tilraunir endi stundum með
skelfingu.
sem þykist vera daufdumbur,
hyggur McMurphy á flótta. Þegar
indiáninn er loics tilbúinn er
McMurphy einmitt i dái eftir raf
magnshögg. Indiáninn vill ekki
skilja hann þannig eftir, leggur
kodda yfir vit honum og i óskil-
greindu uppnámi þrýstir hann að
svo McMurphy gefur upp öndina.
Indiáninn brýst út um glugga og
ieggur af staö út i auönina i kring.
Þessi einkennilegi endir viröist
veröur McMurphy til þess aö
ungur piltur 'meðal sjúklinganna
fær loks friö til þess aö eiga sam-
farir vib konu. Þaö hefur slik
áhrif, að hann hættir að stama
eins og hann geröi áður og virðist
hafa fengið einhverja bót á sjúk-
iegri óframfærni sinni. Þegar
ungfrú Ratched verður þess á-
skynja, ógnar hún honum með
móöur hans, sem greinilega hafði
óeölilegt vald yfir honum, enda
Louise Fletcher I hlutverki forstöðukonunnar, ungfrú Ratched
Meögáska og gantaskap kemur hann lifi i sjúklingana.
Indjáninn ætlaöi aö flýja meö honum
Vítahringur
Læknar í stjórn hælisins sann-
færast um það, að McMurphy er
andlega heilbrigöur og vilja
gjarnan útskrifa hann. En for-
stöðukonan telur sig enn geta
„gert eitthvaö fyrir hann.” Hann
er settur i rafmagnsmeöferö og
hægt og hægt hverfur lifið úr
augunum og hann fær einkenni
geðveikissjúklings.
Asamt geysistórum indiana,
i fljótu bragði tilhæfulaus, en á
hælinu var i rauninni verið aö
drepa McMurphy andiega og
ekkert eftir nema deyða likam-
ann. Þessi einfalda — kannski
ódýra — lausn gerir samanburö
nauðsynlegan á likamlegum
dauöa McMurphys vegna ástar
indiánans á honum og hinu
hægfara morði andans, sem
þarna er framiö á sjúklingunum.
I seinni hluta kvikmyndarinnar
tekur pilturinn óöar aö stama og
reynir sjálfsmoröenn á ný meö
árangri. Þótt þetta atriöi sé
kannski ekki visindaleg sönnun á
réttmæti hefðbundinna aðferöa á
geðveikrahælum, vekur það
a.m.k. til umhugsunar um
ákveöna hættu. Til þess að halda
stjórn og aga á hælinu notfærir
forstööukonan sér veikleika
sjúklinganna og viðheldur með
þvi þráhyggju þeirra.
Hælið og lýðræðið
Hins vegar er ekki hægt að
skoða þessa kvikmynd eingöngu
sem lýsingu á geðveikrahæli.
Reyndar lýsir hún þvi meðal
annars hvernig hægt er að ein-
angra ósækilega einstaklinga — i
þessu tilviki öran, og lifsglaöan
ira — á geöveikrahæli og gera þá
óskaðlega. En hún er þó fremur
rannsókn á manninum sem
félagsveru. Ef einhverjir skilja
<
myndina sem gagnrýni á eitt
ákveðiö stjórnkerfi (likleg
skýring á þvi, hvers vegna hún
fær slika auglýsingu og dreifingu
sem raun ber vitni) þá er það
einföldun. Hún er ekki siöur mynd
af vestrænu lýöræði en austan-
tjaldslýðræöi, enda er Forman
hvorutveggja kunnugur.
McMurphy fær löngun til þess'
að horfa á sjónvarp i setu-
stofunni. Ungfrú Ratched hefur