Þjóðviljinn - 23.05.1976, Síða 11

Þjóðviljinn - 23.05.1976, Síða 11
Sunnudagur 23. maJ 1976 1 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Milos Forman, höfundur myndarinnar; hann þekkir til bæði fyrir austan og vestan hins vegar ákveðið aö leikin skuli létt' tónlist. Þegar McMurphy styngur upp á þvi að kveikt skuli á sjónvarpinu bendir ungfrú Ratched honum á að dagskráin á hælinu sé gerð með velferð sjúkl- inganna i huga og röskun á henni geti haft illt i för með sér, en i nafni lýðræöisins fer fram at- kvæðagreiðsla. Aðeins einn sjúkl- inganna auk McMurphy hefur hugrekki til að bjóða ungfrú Ratched byrginn, þótt alla langi til aö horfa á þáttinn i sjónvarp- inu. McMurphy tekst um siðir að fá meirihluta viðstaddra til þess að rétta upp hönd. En það dugir ekki, þvi samkvæmt lýðræöis- kennd ungfrú Ratched verður hann einnig að sannfæra óvitana, sem hvorki geta skilið neitt né tjáð sig, til þess að breytingin nái fram að ganga. Og vegna hinna heyrnardaufu spilar ungfrú Ratched tónlistina svo hátt að ekki heyrist mannsins mál. McMurphy er ekki neinn spá- maður i þessum félagskap. Sjúkl- ingarnir dá hann vegna þess að hann hefur kjarkinn, sem þeir hafa glatað. Athafnir hans stjórnast ekki af hugsjónum heldur eigingirni. Sjúklingarnir kvarta yfir þvi, að þeir fái ekki reykvörur sinar og forstööukonan skammti þær. Ástæðan er sú, að McMurphy hefur unnið allar sigarettur af þeim i spilum. En þrátt fyrir stóra galla heillar aðalpersónan McMurphy áhorf- endur og túlkun Louise Fletcher á ungfrú Ratched er mjög sann- færandi. Svört kímni Siöan Forman yfirgaf heima- land sitt, Tékkóslóvakiu, hefur hann á u.þ.b. átta árum gert tvær kvikmyndir svo mér sé kunnugt, „Taking off,” sem sýnd var á tslandi undir nafninu Kynslóða- bilið, og „Gaukshreiörið.” „Kynslóðabilið” fékk heldur dræma aðsókn enda ekki augiýst upp af dreifingarfyrirtækjunum. Þar var dregin upp skemmtileg mynd af skiiningsleysi fullorðna fólksins á yngri kynslóðinni. „Kynslóðabilið” var ekki eins ágeng mynd og „Gaukshreiðrið”. Agengnin þar er falin i sérstakri blöndu af gamni og alvöru, sem tékkar eru þekktir fyrir, og gengur stundum undir nafninu svört kímni. Ahorfandinn veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta þegar alvara grinsins rennur upp fyrir honum. Sem i öðrum kvikmyndum Formans eru persónurnar alþýöufólk. Þær notar hann til þess að fjalla um nokkur pólitisk hugtök eins og t.d. vald, lýöræði, ótt.a viö yfirvald, frumkvæði, aga o.s.frv. Þó fer Forman aldrei yfir hin „skyn- samlegu mörk” i þessu hámangaöa tjáningarformi. Hann þreytir ekki heldur áhorf- endur með ofsögn en lætur þeim eftir að draga ályktanir (t.d. i atriðinu þar sem lækningaraðferð forstöðukonunnar leiða til sjálfs- morös eins sjúklingsins). Hann skiptir persónunum heldur ekki upp i frelsaöa og fordæmda. Allar persónur eru mannlegar með kosti og galla. Myndfrásögnin er áreynslulaus og heiðarleg. Hún er laus við óþarfar tæknibrellur og sýndarmennsku. Þetta siðast- nefnda gerir „Gaukshreiðrið” sérstakt i röð þleirra kvikmynda, sem hlotið hafa Óskarsverðlaun. Hún hlaut fimm óskars- viðurkenningar árið 1975. Osaka i mai Ingólfur Sveinsson: Ég er nýl timinn og ætla að gerbreyta framleiðslunni úr lirfrænum efnum í kemisk þaegindi. Nafn mitt er Plast company limited Reykjavik — New York Framleiðslusvæðið verður aðallega utan hnattarins. Kannaðir eru möguleikar á stækkun fyrirtækisins vegna vaxandi áhuga manna á ólífrænum efnum. Gangið i félagið í tima og tryggið rétt ykkar gagnvart útlendíngum Tíu prósent afsláttur ef keypt eru hlutabréf í hærri flokkum. Menn óskast til starfa. Unnið verður á geimpöllum á 4 tíma vöktum samkvæmt 3 taxta Dagsbrúnar. ókeypis vinnuþolssprautur eftir þörfum. (1976) SÍMON PÉTUR: HEIMATÚN vegabændur sátu á meginlandshillunni og köstuðu mjólkhringjunum milli sín þeir rifu hið undursamlega kjalnolt upp með rótum og skoðuðu í krók og kring þeir sáu strax að það var bara uppkonstrúerað elabórat og þveittu þvi útf loftið það datt oní hellisána við túnfótinn á bjámustöðum með svo miklum gusugangi að björn heitinn í grafarholti hrökk upp einsog gunnar á hlíðarenda i haugnum og kvað hefðbundið Ijóð við raust

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.