Þjóðviljinn - 23.06.1976, Qupperneq 11
MiOvikudagur 23. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
DCP
Islandsmet hjá Ingunni
á Rvíkurleikunum í gœr
en að öðru leyti bar mótið greinileg merki þess
að fjöldi manns er við œfingar i útlöndum
Ingunn Einarsdóttir setti
nýtt islandsmet í 100 m.
grindahlaupi á Laugar-
dalsvelli í gærkvöldi er hún
hljóp á tímanum 14.3
sekúndum, en gamla metið
var einu sekúndubroti lak-
ara. Ingunn setti það sjálf
árið 1974. Að öðru leyti var
þetta fyrra kvöld Reykja-
víkur leikanna ósköp
dapurlegt á að horfa. Yfir
10 af bestu frjálsíþrótta-
mönnum landsins eru er-
lendis við æfingar og tóku
því ekki þátt í mótinu, og
það munar um minna þeg-
ar veruleg breidd í iþrótt-
inni er ekki fyrir hendi.
Aö visu geröu menn góöa hluti
þarna innan um. Sérstaklega má
nefna góöan árangur Stefáns
Halldórssonar úr IR i spjótkasti,
en hann kastaöi 54.64 metra og
bætti sig um hvorki meira né
minna en fimm metra. Ágúst
Þorsteinsson hljóp I gærkvöldi i
fyrsta sinn 5000 m. hlaup og varö
fyrstur islensku keppendanna á
timanum 16.08.2 min., en annar
varö Ágúst Gunnarsson sem
einnig náöi góðum árangri ef
tekiö er miö af fyrri hlaupum.
Hinn kornungi hlaupari úr FH,
Óskar Guðmundsson, varö i ööru
sæti i 800 metrunum á timanum
2.07.4 min. sem er prýöilegur
árangur af ekki eldri frjáls-
iþróttamanni.
Þar meö eru afrekin i gær-
kvöldi upptalin. Eins og áöur
segir galt mótið þess hve margir
eru erlendis, en hitt var ekki til aö
hjálpa upp á sakirnar aö mæting-
in varö jafn léleg og raun bar
vitni. 1 hverri greininni á fætur
annarri mættu til leiks e.t.v. tveir
keppendur af fjórum til fimm
skráðum, og t.d. má nefna aö i
siöustu grein kvöldsins, 4x100 m.
boöhlaupi, mætti ein sveit af fjór-
um. Svo er kvartaö yfir þvi aö
áhorfendur séu fáir á frjáls-
iþróttamótum!
Orslit i einstökum greinum
(þrir efstu menn, ef fjöldi kepp-
enda var svo mikill):
Tíu islenskir
100 m. grindahlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir 1R 14.3 sek.
Erna Guðmundsdóttir KR 15.2
sek.
Kúluvarp karla:
Hreinn Halldórsson KR 18.61 m.
Guöni Halldórsson 17.59 m.
Hástökk karla:
Jón Sævar Þórðarson 1.90 m.
Elias Sveinsson KR 1.85 m.
Stefán Halldórsson IR 1.75 m.
200 m. hlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir IR 25.2 sek.
Maria Guöjohnsen 26.4 sek.
Anna Haraldsdóttir FH 31.0 sek.
Langstökk karla:
Friörik Þór Óskarsson 6.65 m.
Pétur Pétursson HSS 6.56 m.
200 m. hlaup karla:
Bjarni Stefánsson 22.4 sek.
Magnús Jónasson Á 23.7
Sumarliöi Óskarsson IR 24.1
800 m. hlaup kvenna:
Anna Haraldsdóttir FH 2.32.4
min.
Lilja Steingrimsdóttir USVS
2.34.7 min.
Spjótkast karla:
Stefán Halldórsson 1R 54.64 m.
Stefán Jóhannsson A 52.18 m.
Sigurbjörn Lárusson ÍR 49.72 m.
Kúluvarp kvenna:
Gunnþórunn Geirsdóttir Breiöa-
bliki 10.71 m.
Sigrún Sveinsdóttir A 9.11 m.
Katrin Atladóttir KR 7.91 m.
4xx 100 m. boðhlaup karla:
Sveit IR 45.6 sek.
800 m. hlaup karla:
Einar Óskarsson Breiðabliki
2.06.9 min.
Óskar Guömundsson FH 2.07.4
min.
Jörundur Jónsson IR 2.15.5. min.
5000 m. hlaup:
Willi Foreck (v-þýskur gestur)
15.19.8 min.
Agúst Þorsteinsson UMSB 16.08.2
min.
Agúst Gunnarsson Breiöabliki
16.25.8 min.
I kvöld halda Reykjavikur-
leikarnir áfram á Laugardals-
velli og veröur byrjaö kl. 19.30.
—gsp
Ingunn tekur við verðlaunum
fyrir islandsmetið I grinda-
hlaupinu i gærkvöldi.
Þrír leikir í
1. deild í kvöld
Þrir leikir fara fram I 1.
deildarkeppninni i kvöld og
hefjast þeir allir klukkan 20.00. A
Akranesi mæta heimamenn liöi
keflvikinga. I Kópavogi leika
Breiöablik og Fram og I Hafnar-
firöi mætast FH og KR. Efstu
liöin. Valur og Vikingur eru ekki á
dagskránni i kvöld og heldur ekki
botnlið þróttara þannig aö frekar
eru þessir leikir hlutlausir á aö
lita.
f r j álsíþróttamenn
verða á skoska
meistar amótinu!
„JÉg lœt mér nœgja að taka
stefnuna á nœstu OL-leika”
— sagði Ingunn Einarsdóttir að loknu hlaupinu i gœr
Fjöldi islensku keppendanna á
skoska meistaramótinu sem fer
fram um næstu helgi verður ekki
mikið minni heldur en á Reykja-
vikurleikunum i gærkvöldi! Sam-
tals munu tiu Islendingar verða á
meðal þátttakenda I Skotlandi á
þessu móti og vcrður þvi ekki
annað sagt en að menn leggi
mikið upp úr þvi þessa dagana að
flýja islenska æfingaraðstööu og
leita fanga á erlendri grund.
Nú þegar eru sjö islendingar i
Skotlandi og eru það hlaupararnir
Sigfús Jónsson, Agúst Asgeirs-
son, Jón Diðriksson, Gunnar Páll
Jóakimsson, Sigurður P. Sig-
mundsson, Einar P. Guðmunds-
son, og Gunnar Þ. Sigurðsson. I
viðbót við þessa hlaupagarpa
bætast siðan þeir Friðrik Þór
Óskarsson Hafsteinn Óskarsson
og Bjarni Stefánsson áður en ótiö
hefst.
Þar fyrir utan eru þau Óskar
Jakobsson og Lilja Guömunds-
dóttir úti i Sviþjóö viö æfingar og
sumir frjálsiþróttamenn ný-
komnir heim eftir dvöl er-
lendis...Sannarlega talandi dæmi
um aðstööuna sem þessu fólki er
búin hér heima. __
— Nei, ég verð að láta mér
nægja að stefna að næstu
Olympiuleikum, sagði Ingunn
Einarsdóttir i gærkvöldi þegar
hún var spurð að þvi hvort ein-
hver möguleiki væri á Ol -
lágmarki frá henni á þessu sumri.
— Ég varð að afskrifa þessa Ol -
leika um leið og ég var skorin upp
ibakisnemma á sl. ári. Ég missti
það ár nær aiveg úr og ákvað þá
strax aö reyna ekkert að komast
til Montreal i sumar. Ég vildi
heldur jafna mig fullkomlega og
stila af alvöru upp á leikana i
Sovétrlkjunum.
, — Þú ert ekkert hrædd við
aldurinn?
— Nei, ég þarf nú ekki aö vera
það sem betur fer. Ég verö 24 ára
gömul þegar að mér kemur og
betri aldur er varla hægt að hugsa
sér. Þótt ég sé kannski „gömul”
nú þegar hérna heima, miöaö viö
flestar stelpurnar, er ég hálfgert
kornabarn ennþá i samanburöi
viö toppfólkiö úti I heimi. Ég þarf
bara aö gera þaö upp viö mig sem
fyrst hvaöa greinum ég ætla aö
einbeita mér aö og vinna siöan
markvisst meö stefnuna á
Moskvu áriö 1980.
— Hvaða greinar heldurðu að
það verði?
— Þaö er nú erfitt aö átta sig á
þvi eins og stendur. Að öllu
óbreyttu myndi ég leggja alla
áherslu á stuttu hlaupin en sleppa
400 metrunum algjörlega, en á
móti kemur þessi orörómur sem
gengur um að til standi að leggja
niöur fimmtarþrautina og taka
upp áttþraut i staðinn. Ef af þvi
veröur skal ekki standa á mér að
slást i hópinn og taka þátt i henni,
hún viröist a.m.k. ansi freistandi.
—gsp-
Stórglœsilegt 1500m. hlaup:
r
Nýtt Islandsmet og
Olympíulágmarkið
fékk ekki varist!
Oly mpiulágmarkið I 1500 m.
hlaupi kvenna fékk ekki með
nokkru móti varist er Lilja
Guðmundsdóttir hljóp vega-
lengdina stórglæsilega á móti i
Stokkhólmi á laugardaginn.
Hún setti nýtt tslandsmet og
var heilum fjórum sekúndum
innan við Ol-Iágmarkið. Timi
hennar var 4.26.2 min. en lág-
markið er 4.30,0, þannig að
farseðill Lilju til Montrela er
tryggður svo um munar. Lilja
á einnig góðan möguleika áð
ná lagmarkinu I 800 m. hlaupi
og þvi er nú Ijóst að Þórdis
Gisladóttir úr ÍR verður ekki
eina konan sem kcppir i frjáls-
um iþróttum fyrir tsland-
Lilja hefur undanfarið
dvalist við æfingar iSviþjóð og
framfarir hennar hafa verið
gifurlegar. Fyrir löngu var
ljóst aö hverju stefndi og upp-
skera mikils erfiðis við
æfingar hefur svo sannarlega
orðið rikuleg.
Fimm heimsmet
á bandaríska
úrtökumótinu
Fimm heimsmet voru
sett á bandaríska úrtöku-
mótinu i sundi, þar sem
keppt var um hverjir
keppa fyrir USA á
Olympiuleikunum. Greini
lega verður baráttan á
milli bandaríkjamanna og
a-þjóðverja afar hörð í
sundinu, en flestir muna
vafalaust eftir heims-
metaregninu á a-þýska
meistara mótinu um
daginn.
Brian Goodell setti nýtt met i
400 m skriösundi og synti á
timanum 3.53.08 min. John Naber
settiheimsmet i 200 m baksundi á
2.00.64 min. Brian Goodell setti
sitt annað heimsmet i 1500 m
skriösundi á timanum 15.06.66
min. Shirley Babashoff setti
heimsmet i 800 m skriösundi á
8.39.64 min og hún setti einnig
fjögur bandarisk met á þessu
móti. Þykir hún einna liklegust til
þess aö veita a-þýsku stúlkunum
einhverja keppni.
Eitt heimsmet til viðbótar var
sett er Goodell setti metiö sitt i
1500 metrunum. Þaö var félagi
hans i sama sundinu sem fékk
löglegan tima á 800 metrunum og
synti á 8.01.54 minútum.
-gsp-
i